Morgunblaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDA6UR 19. NÓVEMBER 1992
Bílar
Japanir auka bíla-
framleiðslu íEvrópu
í KJÖLFAR samkomulags um takmörkun innflutnings á japönsk-
um bQum tU Evrópu stefna Japanir nú á aukna framleiðslu inn-
an Evrópu.
Samkvæmt samkomulagi milli
Evrópubandalagsins og japanskra
yfírvalda hefur verið sett þak á
fjölda innfluttra bíla frá Japan til
Evrópubandalagslanda frá og með
næsta ári til aldamóta. Japanskir
bílaframleiðendur brugðust við
þessu með áætlunum um aukna
framleiðslu í Evrópu.
Honda Motor Co. framleiddi
fyrsta bíl sinn í Evrópu í síðasta
mánuði þegar verksmiðja þeirra í
Swindon í Englandi tók til starfa.
Þar er áætlað að framleiða 50.000
bíla á næstu 18 mánuðum og þeg-
ar fram líða stundir á árleg fram-
leiðsla að fara upp í 100.000 bfla.
Toyota opnar fyrstu verksmiðj-
una í Evrópu fyrir áramót, einnig
I Englandi. Þar á að framleiða
100.000 bfla á ári, en seinna meir
er einnig gert ráð fyrir að stækka
verksmiðjuna.
Nissan hefur framleitt bfla í
Englandi síðan árið 1986, en nú
á enn að auka framleiðsluna. Á
síðasta ári voru smíðaðir 120.000
bflar þar, en 175.000 í ár og
270.000 á næsta ári.
Búist ér við að framleiðsla þess-
ara þriggja stærstu japönsku bíla-
framleiðenda verði kominn upp í
um 500.000 bfla á ári I Evrópu
um miðjan áratuginn. Auk þess
fá félögin aðgang að mörkuðum í
gegnum fjöldamörg samstarfs-
verkefni með evrópskum framleið-
Svíþjóð
Verðmat Skandia-
félaga lækkar
STANDAKD & Poor í Stokkhólmi hafa lækkað mat sitt á mörgum
dótturfélögum Skandia i kjölfar erfiðleika félagsins.
Meginástæða þess að Standard
& Poor telja nauðsynlegt að lækka
mat sitt á dótturfélögum Skandia
er áframhaldandi verðfall eigna
Skandia sem og að félaginu hefur
ekki tekist sem skyldi að breyta
skammtímaskuldum í langtíma-
skuldir. Að auki býst S&P við lé-
legri afkomu Skandia á árinu.
Því hafa þijú tryggingafélög,
Skandia Intemational Insurance
Corp, Skandia America Reinsur-
ance Corp og American Skandia
Life Assurance, öll verið færð úr
A-flokkun niður í BBB. Þetta end-
urskoðaða mat á stöðunni eykur
enn á þrýsting um að dótturfélag-
ið Skandia America verði selt, en
Skandia hefur dregið að svara
nýjasta tilboðinu í það.
Bandaríski fjárfestingahópur-
inn John Head & Partners hefur
boðið 550 milljónir dollara fyrir
Skandia America. Skandia hefur
enn ekki tekið afstöðu til tilboðsins
þar sem þeir telja frekari trygging-
ar nauðsynlegar.
endum. Hinsvegar verður innflutn-
ingur frá Japan takmarkaður við
rúmlega 1,2 milljónir bfla á ári
fram til aldamóta.
JAPANIR — Innflutningur japanskra bíla takmarkaður við
1,2 milljónir á ári.
Tölvur
Kvikmyndir í PC-tölvum
Financial Times
Bandarísku tölvufyrirtækin Microsoft og Intel hyggjast í samein-
ingu koma því tQ leiðar að kvikmyndir verði eðlQegur þáttur í
daglegri notkun PC- tölva. Nýtt forrit frá Microsoft, „Video for
Windows", gerir öllum PC- tölvum með 386 eða 486 örgjörva og
Microsoft Windows-stýrikerfi, kleift að sýna stafrænar kvikmynd-
ir ásamt texta, grafik og kyrrmyndum. Þessi blandaða birtingar-
tækni gæti endurvakið áhuga manna á PC-tölvum, ekki síst í
tengslum við fræðslu- og afþreyingarefni.
Fram að þessu hefur þurft
kostnaðarsamar forfæringar til að
kalla fram hreyfanlegar myndir í
PC-tölvum. Notendur hafa orðið
að bæta rafrásaborðum við tölv-
umar og sérhæfð forrit hafa dreg-
ið stórlega úr almennum notkun-
armöguleikum. En á sama tíma
hefur Apple Computer getað boðið
upp á kvikmyndir í Machintosh-
tölvum sínum.
Vandamálið er að gerð, geymslu
og sýningu tölvukvikmynda fylgir
gífurlegt gagnaflóð. í Video for
Windows beitir Intel nýrri tækni,
Indeo, sem þjappar gögnunum
saman í viðráðanlega stærð. Þann-
ig geta kvikmyndir orðið einn hluti
af núverandi notkun tölvanna, svo
sem ritvinnslu.
Video for Windows mun sjálf-
krafa laga stærð og gæði mynd-
anna að afli PC- tölvunnar sem
keyrir forritið. Venjuleg 386 PC
sýnir 15 heldur rykkjóttar myndir
á sekúndu og stærð þeirra verður
aðeins um tíundi hluti af skjánum.
Aftur á móti nýtir 486 PC íjórð-
ung skjásins og þar eru myndimar
24 á sekúndu. Með því að bæta
sérstöku rafrásaborði við tölvuna
má síðan í báðum tilvikum kalla
fram líðandi myndir sem geta fyllt
út í skjáinn.
„Blönduð birtingartækni verður
mikilvæg við margvíslega notkun
PC- tölva“, spáir Bill Gates, stjóm-
arformaður og aðalframkvæmda-
stjóri Microsoft. Á vinnustöðum
mætti meðal annars nota tölvu-
kvikmyndir við þjálfun starfs-
manna, vörakynningu og margvís-
lega þjónustu í verslunum. Kvik-
myndir geta einnig aukið mjög
áhrifamátt ýmissa tölulegra upp-
lýsinga og rafeindapósts innan
fyrirtækja.
Núverandi notendur Microsoft
Windows geta að kostnaðarlausu
fengið þann hluta Video for
Windows, sem gerir þeim kleift
að sjá „búta“ úr kvikmyndum. En
forritið allt mun fyrst um sinn
kosta 199 dali í Bandaríkjunum.
Notendur hafa þá möguleika á að
gera sínar eigin kvikmyndir.
Þó svo að flestar PC-tölvur geti
án breytinga keyrt Video for
Windows, er búist við því að þess-
ir nýju möguleikar auki áhuga
margra notenda á að stækka við
sig og verða sér úti um búnað sem
eykur gæði myndar og hljóðs. Þar
koma til greina fleiri rafrásir,
stærra minni og minnisdiskar (CD-
ROM) sem rúma mikið magn upp-
lýsinga. Séu menn að fá sér PC-
tölvu í fyrsta sinn verður jafnframt
auðveldara að sýna þeim fram á
kosti þess að kaupa öflugri tölvu
frekar en þá ódýrustu.
Tölvur
Milliliðalaus viðskipti
Bandarískir tölvuframleiðendur eru í auknu mæli farnir að
selja vöruna sína milliliðalaust.
Fréttir herman einnig að fyrir-
tækið Apple ætli að flytja fram-
leiðsluna og síðar höfuðstöðvamar
frá Kalifomíu til Texas. Er þetta
talið vera liður í spamaði og endur-
skipulagningu, en Kalifomía þykir
vera orðin full dýr.
Þetta þykir merki um harðnandi
verðsamkeppni og minni álagn-
ingu á tölvum á þessum markaði.
Nýjasti aðilinn í þessum leik er
Apple fyrirtækið, sem hyggst
bjóða fyrirtækjum að skipta beint
við fyrirtækið.
Vidskiptavikan
í Vesturheimi
Veðraskil í efnahagstífinu
eftir Petrínu S.
Úlfarsdóttur
VIKUNA eftir sigur BQl Clint-
ons { forsetakosningunum hafa
spumingar vaknað nm það
hvemig honum muni ganga í
þeim málaflokk sem færði hon-
um sigur, efnahagsmálum. Úr-
slit kosninganna hafa þó ekki
enn valdið miklum viðbrögðum
{ viðskiptaheiminum. TQ að
fjalla um og ákveða fyrstu að-
gerðir hefur Clinton ákveðið að
mynda hóp sérfræðinga undir
leiðsðgn gamals vinar, hagfræð-
ingsins Richards B. Reich i Har-
vard-háskóla. Fyrstu fregnir
frá leiðtoga hópsins benda til
þess að ekkert bráðræði verði
á ferðinni. Efnahagurinn sé ef
tQ viU á krossgötum undir eigin
vélarafli og séð verði tQ fram í
janúar hvert stefna muni.
í kosningastefnumálaskrá
Clintons varðandi efnahagsmál er
einkum að fínna eftirtalin atriði:
■Peningatilfærslur úr vamarmál-
um til annarra þátta þjóðfélags-
. ins, sérstaklega samgöngumála,
umhverfísmála og nýrra tækni-
verkefna. Engar nákvæmar töl-
ur hafa komið fram í því sam-
bandi, en manna á meðal hafa
verið nefíidar upphæðir allt að
60 milljarðar bandaríkjadala
næstu fímm ár.
■Auknir skattar á þá sem hafa
meira en 200 þúsundir dala á
ári í tekjur.
■Sérstakur milljónamæringa-
skattur.
■Nýir skattar á erlend fyrirtæki
í Bandaríkjunum.
■Skattaívilnanir til fyrirtækja
vegna fjárfestinga í verksmiðj-
um og tækjum.
■Starfsþjálfun verði rekin með
fé frá fyrirtækjum, sem munu
greiða 1,5% af launagjöldum
þar til.
■Alríkis-sjóður til að lána skóla-
gjöld til þeirra sem vilja mennta
sig en hafa ekki efni á því.
■Kerfí iðnþjálfunar verði sett á
laggimar um land allt, með
áherslu á flóknari störf.
■Heilbrigðisþjónusta nái til allra.
■Stemmd verði stigu við hvers
kyns óeðlilegum hagnaði í heil-
brigðisþjónustu, og þannig
draga úr ofeyðslu til þess mála-
flokks.
Clinton hefur sagt að hann
muni einbeita sér að því að örva
hagkerfíð og draga úr fjárlaga-
halla. Varðandi utanríkismál, þá
er hagfræði aftur efst á baugi.
Clinton segist vera að leita að ut-
anrfkisráðherra sem trúi því að
téður málaflokkur velti fyTst og
fremst á stefnu sem stuðli að al-
þjóðlegum hagvexti, auk viðreisn-
ar heima fyrir. Aðstoðarfólk hans
hefiir látið í skína að Asíulönd
muni nú loks fá þá athygli Banda-
ríkjaforseta sem þau hafa til unn-
ið. Þykir þetta tímabært, meðal
annars í ljósi þess að Japanir hafa
aukið kaup sín á bandarískum
vöram og þjónustu um 25% síð-
ustu fíögur ár. í fyrra seldu
Bandaríkjamenn meira til Japans
en til Þýskalands, Frakklands, ít-
alíu og Irlands samtals!
Staða efnahagsmála í Banda-
ríkjunum í dag markast einkum
af ástandi sem kalla má veðra-
skil. Veðurhanar hagkerfísins hafa
í heildina verið neikvæðir síðustu
fjögurra mánaða. í september-
mánuði var þessi summa mínus
0,3%. Húsbyggingar hafa þó í
heildina heldur færst í vöxt í sept-
embermánuði. Bifreiðasala var og
21,6% hærri í októbermánuði held-
ur en ári áður, einkum vegna auk-
inna kaupa á þyngri ökutækjum.
Smásala jókst um 0,9% í október.
Einnig hafa veitingahús, sem eftir
því sem Gregory Giever hjá Smith,
Barney, Harris, Upham & Co. seg-
ir merkja einna fyrst breytingar í
eyðslu neytenda, heldur tekið við
sér. Brace Steinberg, yfirhagfræð-
ingur hjá Merrill Lynch, telur sig
sjá fram á að atvinnuleysi sé um
það bil að minnka, menn séu að
hugsa sér til hreyfíngs varðandi
nýjar húsbyggingar, og heldur sé
að hýma yfir hagkerfínu.
Aðstandendur vel rekinna og
stöndugra lítilla og meðalstórra
fyrirtælq'a, sem sjá að nú er lag
fyrir vöxt, kvarta sáran undan
erfíðleikum við að fá lán til fíár-
festinga. Þykir þetta sérstaklega
bagalegt í Ijósi þess að einmitt
þessi flokkur fyrirtækja stuðlaði
að tilkomu 12 milljóna nýrra starfa
á áttunda áratugnum, meðan 500
stærstu fyrirtækin minnkuðu við
sig. Lánastofnanir bera því við að
löggjafínn og yfírstjóm peninga-
mála í landinu sníði þeim þröngan
stakk við útlán, einkum með því
að krefjast hárra tryggingasjóða
gegn áhættusömum lánum.
Gullkorn vikunnar
Frank R. Lichtenberg hjá við-
skiptadeild Columbia-háskóla
kynnti niðurstöður rannsóknar
sem gerð var á efnahagslífí fimm-
tíu og þriggja þjóða á árunum
1960 til 1985. Fram kom að fíár-
festing í þróunar- og rannsóknar-
verkefnum skilaði sér að jaftiaði í
sjöföldum hagnaði, sem augijós-
lega fer langt fram úr útkomu á
hefðbundnum fíárfestingum. Enn-
fremur, þá dvelur sá hagnaður sem
af helst nokkuð lengi í því landi
þar sem til slíkrar fíárfestingar
er stofnað, áður en hann smitast
til annarra hagkerfa. Þannig geta
þjóðlönd haldið sér stöðugt í fylk-
ingarbijósti með fíárfestingu í
framþróun.
Heimildin Barrons 16. nóvember, Wall Street
Joumal 16. nóvember, New York Times 15.
nóvember, Business Week 16. nóvember.
Höfundurínn úrskrifaðist sem
hagfræðingur frá Fitchburg-
háskóla í Massachusetts í vor og
stefnir aðþvíað hefja doktorsnám
við Clark-háskóla. Hún mun skrifa
vikulega um efnahags- og við-
skiptamál í Bandaríkjunum sem
eru í mikilli deiglu nú eftir for-
setakosningamar. Hér segir frá
helstu straumum vikuna 9.-16.
nóvember 1992