Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 10

Morgunblaðið - 19.11.1992, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNULÍr FIMMTUDAGUR 19- NÓVEMBER 1992 VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF DAGBÓK Tölvubókasýning hjá stúdentum ■ TÖLVUBÓKASÝNING frá Prentice Hall bókaforlaginu stendur yfír í Bóksölu stúdenta frá 16.-27. nóvember. Á sýn- ingunni má fínna 350 titla sem spanna það nýjasta og áhuga- verðasta á sviði tölvuhugbúnað- ar. í tilefni sýningarinnar býður Bóksalan upp á 10% afslátt af öllum erlendum tölvubókum. Námstefna um markaðssókn erlendis ■ AUK hf., Gæðastjórnunar- félag Islands og Hagræðing- arfélag Islands gangast fyrir námstefnu mánudaginn 23. nóvember á Hótel Islandi. Leiðbeinendur verða þeir David T. Carey og John W. Alden sem eru kunnir af starfi sem ráðgjafar ýmissa stórfyrirtækja í New York. Ennfremur mun Jón Sigurðsson, viðskiptafull- trúi í New York flytja erindi. Lífeyrismál tölvunarfræðinga ■ KJARANEFND félags tölvunarfræðinga heldur fund um lífeyrismál miðvikudaginn 25. nóvember f BHM salnum að Lágmúla 7 kl. 12-13. Fyrir- lesarar eru Dr. Pétur H. Blön- dal, stærðfræðingur, Valgarð- ur Sverrisson, Lífeyrissjóði verslunarmanna og Arna Harðardóttir, Landsbréfum. Fundurinn er opinn öllum fé- lagsmönnum og er aðgangur ókeypis. Vörustjómun í heilbrigðiskerflnu ■ VÖRUSTJÓRNUN í heil- brigðiskerfinu er yfirskrift fundar sem Aðgerðarrann- sóknafélag íslands, Vöru- stjórnunarhópur HFI og heil- brigðis- og tryggingarráðu- neytið halda miðvikudaginn 25. nóvember nk. í Borgartúni 6 kl. 15.20-18.00. Meðal þeirra sem flytja erindi á fundinum eru Þorkell Helgason aðstoð- armaður ^ heilbrigðisráðherra, Snjólfur Ólafsson dósent við Háskóla íslands og Sindi Sin- drason framkvæmdastjóri hjá Pharmaco hf. M.a. verður fjallað um biðlista sjúklinga, framleiðslu og dreifingu lyfja og upplýsingatækni í heil- brigðiskerfinu. Þátttöku þarf að tilkynna i sima 621066 fyrir 24. nóvember. Mannvirkjaþing ■ MANNVIRKJAÞING 92 sem haldið verður á Hótel Loft- leiðum miðvikudaginn 25. nóv- ember nk. kl. 9.00-18.00 verð- ur helgað íslenskum byggingar- iðnaði á tímamótum. Á þinginu verða haldin 15 erindi um mál- efni byggingariðnaðar ásamt umræðum og fyrirspumum til fyrirlesara. Skráning á þingið fer fram í síma 616577 fyrir 23. nóvember. Ráðstefnugjald er 9.500 kr. Námskeið hjá Vitund ■ VTHJND heldur námskeið 26. nóvember kl. 17-19 í B-sal á Hótel Sögu þar sem fjaUað verður um hvemig ná megi árangri í Evrópu. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Pétur Guðjónsson og er ætlað þeim sem eru að Ieita allra leiða til að koma fyrirtæki sínu á fram- færi, skapa arðbæran markaðs- grundvöll og keppa á Evrópu sem heimamarkaði. Fjallað verður um breyttar aðstaeður í Evrópu, nýja möguleika fyrir íslendinga og hvað gera þurfi til að nýta þá möguleika. Þátt- töku þarf að staðfesta í síma 620086 eða myndsíma 614800 fyrir 20. nóvember. Tölvur Marinó G. Njálsson Vel heppnuð tölvusýning hjá EJS hf. VIÐSYN “ Eftirfarandi tengingar eru á myndinni: a) við SKÝRR beint frá sýningarsvæðinu, b) við Reiknistofu bankanna annars vegar í gegnum beina (leiðstjómanda/router) upp í EJS og í gegn um gátt, sem stödd er í tæknideild, og hins vegar beintenging, c) haft er sam- band við X.400 tölvupóstkerfi Pósts og síma í gegnum X.25 gagnanet- ið, d) annað tölvupóstkerfi er í samskiptum við Microsoft í Bandaríkjun- um, Danmörku og Svíþjóð, e) tenging við UNIX-tölvu hjá EJS á Grens- ásvegi í gegn um beina, sem tengist svo X.25 gagnaneti Pósts og síma og tengist þaðan inn á allar Hagkaupsbúðir á landinu vegna uppsetningar, viðhalds og eftirlits með búnaði þar og f) EJS hf. teng- ist með Microsoft Mail eða WordPerfect Mail svo viðskiptavinum sínum beint, sem á að spara öllum leiðindabið í síma. Tölvusýning Einars J. Skúlasonar hf. á Hótel Sögu sl. laugardag var um margt forvitnileg og skemmtileg. Fyrst og fremst var hún vel heppnuð og rós í hnappagat fyrirtækisins. Fyrirtækið sýndi margt af því, sem það hefur á boðstólum, allt frá ein- földum notendahugbúnaði upp í öflugt og flókið netkerfi. Megin þungi sýningarinnar, að mati Amar Andréssonar sölustjóra EJS hf., var nýr hugbúnaður frá Microsoft. Þar mátti sjá Windows NT stýrikerfíð, Windows for Workgroups, Word 2.0 fyrir Windows, Excel 4.0 fyrir Windows og PowerPoint og síðast en ekki síst nýja Access-gagna- grunninn, sem formlega var kynntur á Comdex sl. mánudag. Windows NT og Windows for Workgroups Mikill áhugi var fyrir fyrirlestrum um þessi tvö kerfi, en þeir voru haldnir á klukkutímafresti á meðan á sýningunni stóð. Windows for Workgroups gefur notendum kost á samnýtingu á hörðum diskum og prenturum. Diska má samnýta, ef notandinn er með 386 eða 486 tölvu. Hann getur þá gefið öðrum aðgang að diskinum sínum með því að gera hann samnýtanlega. Ef annar not- andi vill notfæra sér þetta, verður harði diskur hins aðilans bara eins og eitt jaðartæki í viðbót á tölvu notandans. (Macintosh-fólk þekkir þessa aðferð úr sínu umhverfi og eins þeir sem unnið hafa á eldri PC-netum, áður en sérstakur net- stjóri/netþjónn kom til sögunnar.) Hægt er að einskorða þennan að- gang við diskinn í heild eða hvert skráarsafn fyrir sig og lesaðgang eða les- og skrifaðgang. Samnýting á prenturum virkar svipað. Aðrar nýjungar eru t.d. tölvupóstur, sem auðveldar notendum mjög mikið að senda póst á milli tölva. I póstkerf- inu er ekki bara hægt að senda texta, Bókakynning heldur einnig hluti. Einnig er inn- byggt dagbókarforrit, forrit sem fylgist með álaginu á tölvunni og einfalt samskiptaforrit í anda gömlu póstkerfana í stórtölvuumhverfinu. Windows for Workgroups er að mati þeirra EJS manna mikil bylting fyrir aðstæður eins og eru hérna á markaðnum. Hér þurfa menn að geta byijað á litlu neti, sem síðar þróast út í stærri kerfi. Þetta stang- ast nokkuð á við álit ýmissa sérfræð- inga erlendis, sem sjá ekki svo aug- ljós not fyrir búnaðinn. Ég treysti mér ekki að taka afstöðu til þess að svo stöddu. Að sögn Hjörleifs Kristinssonar hefur Windows NT allt það sem Windows for Workgroups hefur. Mjög fljótlegt er að keyra kerfið upp samanborið við DOS-tölvur og eru afköst alveg viðunandi, eins og það var sett upp á sýningunni. Verður spennandi að sjá hvaða viðbrögð stýrikerfið fær, en búast má við ein- hverri gagnrýni vegna hins gríðar- lega pláss, sem það tekur, eða 46 MB á harða diskinum. Ekki er ætlun- in hér að fjalla um Windows NT í smáatriðum, þar sem það hefur fengið mikla og góða umfjöllun í blöðum og tímaritum hér á landi, sem erlendis. Komin er út s.k. beta- útgáfa af kerfinu og er hægt að fá hana hjá EJS. Sun Eitt ár er nú síðan EJS hf. hóf að selja tölvubúnað frá Sun Micro- systems. Á þessu ári hafa selst um 60 tölvur ásamt fylgihlutum. Á sýn- ingunni var nokkuð frambærileg Sun-vinnustöð með geisladrifi, seg- ulbandasstöð, hörðum diski og 21 tommu litaskjá. Sun Microsystems kynnti 10. nóvember sl. nýjungar í tíu-seríunni, sem kynnt var í vor og sumar, en einnig nýja vinnustöð, sem verður á mjög freistandi verði (PC- verði). EJS verður með kynningu á þeim búnaði á morgun, 20. nóvem- ber. Nýja tölvan, kölluð SPARC-10, er með nýjum örgjörva, ISDN-tengi, hátalara og útgangi fyrir hljóð og mynd. EJS hf. væntir þess að hin nýja vinnustöð komi til með að vekja forvitni margra, sérstaklega þegar verðið er haft í huga. Mun það vera í kringum 350 þúsund krónur, sem er rífleg verðlækkun frá eldri gerð- um. Sun Net-manager er netumsjón- arkerfi eða eftirlitskerfi með neti. Það hentar aðilum með tuttugu eða fleiri netstöðvar á staðameti. Kerfið getur stjómað netinu, fundið villur og bilanir. Þannig birtist á stjóm- stöðinni hvar bilun hefur komið upp og flýtir það mjög fyrir viðgerð. Þetta er mjög athyglisverður bún- aður, sérstaldega þar sem netbilanir hafa orðið meiri áhrif á afköst, en áður. Tandy og Victor Fyrir þá, sem ekki kynnast innvið- um tölvunnar svo mikið, var forvitni- legt að skoða Victor-tölvu, sem var í gegnsæjum plastkassa. Gat fólk þar séð hvar og hvemig spjöldum „Islenskt atvinnulíf“ í framför eftir Þorkel Sigxirlaug'sson Ritið „íslenskt atvinnulíf hefur nú komið út í fimm ár og tekur stöð- ugt framföram um efni og eykur upplýsingagildi. Sú var tíðin að upp- lýsingar um afkomu og rekstur fyrir- tækja Iágu ekki á Iausu og enn era nokkur fyrirtæki sem ekki sýna áhuga á að birta opinberlega almenn- ar fjárhagsupplýsingar. Lokuðum einkafyrirtækjum er frjálst að gefa ekki fjármálalegar upplýsingar um sinn rekstur ef þau telja það þjóna betur hagsmunum sínum eða ann- arra. Það er aftur á móti ánægjuefni hve þeim fyrirtækjum fiölgar stöð- ugt, sem era þátttakendur í upplýs- ingariti Talnakönnunar hf. um ís- lensk fyrirtæki. ítarlegar upplýs- ingar um íslensk fyrirtæki era mjög gagnlegar fyrir ýmsa aðila, svo sem hluthafa, lánardrottna og viðskipta- menn. Ritið „Islensk atvinnulíf" skiptist í tvö bindi. í fyrra bindinu, sem kom út í júní á þessu ári, era upplýsingar um fyrirtæki sem gengu frá ársupp- gjörum og aðalfundum tiltölulega snemma á árinu. Má þar fmna ýmis fyrirtæki á hlutabréfamarkaði, eign- arleigur, verðbréfafyrirtæki og sjóð- ir, bankar, sparisjóðir og trygginga- félög. f seinna bindinu sem kom út í byijun nóvember era viðbótarapp- lýsingar um ýmis sjávarútvegsfyrir- tæki, iðnfyrirtæki, sjóði, samvinnu- fyrirtæki, orkuveitur og síðast en ekki síst ýmis bæjarfélög. Sú nýjung er í seinna bindinu að þar er skrá yfir einstaklinga og fyrirtæki með tilvitnun í þær blaðsíður sem nöfn þeirra koma fyrir í báðum bindunum. Upplýsingar era mismunandi eftir greinum og eðli reksturs, en nokkuð staðlaðar um starfssvið og almenna starfsemi, Qárfestingar og fram- kvæmdir, rekstur og stöðu og fram- tíðarhorfur. Greinilega er oft erfitt að fjalla um framtíðarhorfur, en Talnakönnun kemst þokkalega í gegnum það í flestum tilvikum. For- svarsmenn, stjóm og stærstu hlut- hafar era tilgreindir. Lykiltölur úr rekstrar- og efnahagsreikningi og sjóðsstreymi era tilgreindar svo og ýmsar aðrar kennitölur. Gagnlegt er að einnig eru tilgreindir eignarhlutir í öðram félögum. Gera má ráð fyrir að sumir for- svarsmennfyrirtækja hafi orðið held- ur óglaðir þegar Benedikt Jóhannes- son, framkvæmdastjóri Talnakönn- unar hf., hringdi til þeirra fyrir nokkram áram og óskaði eftir ýms- um upplýsingum um fyrirtæki þeirra. Þá þótti þetta afskiptasemi og for- vitni sem ekki væri við hæfi. Síðan hafa tímamir breyst. Nú þykir yfir- leitt sjálfsagt og nauðsynlegt að birta sem ítarlegastar upplýsingar um ís- lensk atvinnufyrirtæki. Sum fyrir- tæki hafa jafnvel óskað sérstaklega eftir því að fá að vera með í ritinu. Það, er að verða kappsmál íslenskra fyrirtækja að skila hagnaði og hafa sem ítarlegastar upplýsingar um sinn rekstur. Það er mikill misskilningur sem stundum kemur fram í máli manna að það sé almennt talinn aumingja- skapur að tapa og þjófnaður að skila hagnaði. Þeim fjölgar sífellt, sem betur fer, er telja það ósanngjamt og kenna umhverfinu um flest vanda- málin. Menn þurfa að horfast í augu við tap af raunsæi. Fyrirtæki tapa í sumum tilvikum tímabundið vegna þess að slíkt er óhjákvæmilegt og eðlilegt miðað við aðstæður eða tap- rekstur varð til vegna Qárfestinga í r ** © ® WIHAtóWMIMFOG¥ÍSIOCW6 Mk li " • framtíðarhagnaði vegna markaðs- kostnaðar, vöruþróunar eða sam- keppni. Þá eiga stjómendur að út- skýra slíkt, en ekki kenna öðram um. Aðrir tapa vegna stjórnleysis, mis- taka og vanmats á umhverfinu og enn aðrir lenda í taprekstri tilneydd- ir, til dæmis vegna opinberra af- skipta. Það er aldrei æskilegt að fyr- irtæki séu rekin með tapi og síst af öllu ber að neyða þau í slíka stöðu. Hagnaður á að sjálfsögðu alltaf að vera markmið, en ekki er alltaf hægt að komast hjá taprekstri og fyrir- tæki verða að vera undir slíkt búin. Hvorki tap né góður hagnaður eiga að þurfa að vera feimnismál og góð- ar upplýsingar um íslenskt atvinnulíf og stöðug sókn til að auka fram- leiðni, nýsköpun og samkeppnisstyrk er það sem við þurfum. Bókin „ís- lenskt atvinnulíf" gefur okkur góða innsýn í rekstur og afkomu íslenskra fyrirtækja þótt enn vanti nokkur mikilvæg fyrirtæki í myndina og því er heildaryfirsýn ekki fullkomlega góð. I flestum löndum era gefin út ítar- leg rit um atvinnufyrirtækin og má þar t.d. nefna „Greens" í Danmörku, sem er þriggja binda ritverk gefið út árlega af Borsen ogg tekur til flest allra danskra fyrirtækja. Að mörgu leyti tekur „íslenskt atvinnulíf“ öðr- um sambærilegum erlendum ritum fram vegna þess að í því er fiallað er um rekstur fyrirtækjanna á ítar- legri hátt og ekki einvörðungu fiár- hagslegar upplýsingar teknar úr árs- reikningum. I ritinu „Greens" er aft- ur á móti einnig skrá yfir helstu ein- staklinga í viðskiptalífinu, aldur þeirra, menntun, aðalatvinnu, helstu stjómunarstörf og áhugamál. Ég mæli með því að Talnakönnun hf. kanni hvort mögulegt sé að bæta við kafia eða sérhefti með ítarlegri upp- lýsingum um einstaklinga í íslensku atvinnulífi. Starfsemi Talnakönnunar hf. er mjög gagnleg og það er lofsverður árangur af þessu litla fyrirtæki að koma ritinu út. Samkvæmt upplýs- ingum í ritinu er Talnakönnun með ársveltu árið 1991 að íjárhæð 15,6 milljónir króna, náði 400 þúsund króna hagnaði og 31% arðsemi eigin §ár. Þar kemur fram að tap varð á útgáfustarfseminni og hagnaður af ráðgjafarstarfseminni. Með sama áframhaldi trúi ég því að tapinu af útgáfustarfseminni verði snúið í hagnað, því upplýsingar um íslenskt atvinnulíf eiga erindi til allra sem stunda viðskipti hér á landi. Það er ánægjulegt ef einkafyrirtæki getur staðið undir svona útgáfu, því trúlega er ekki vænlegra ef einhver ríkis- stofnun gæfi þetta út. Höfundur er framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskips.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.