Morgunblaðið - 19.11.1992, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.11.1992, Qupperneq 11
var komið fyrir í tölvunni, staðsetn- ingu minnis, disklingadrifs og harða disksins, svo eitthvað sé nefnt. Væntanleg er á næstunni 50 MHz Victor-tölva frá Tandy GRID, en áhugaverðasta nýjungin á þeim bæ var þó ferðatölva frá Tandy GRID. Þessi ferðatölva var upphaflega þró- uð fyrir bandaríska herinn og mátti Tandy því ekki flytja þær út lengi vel. Sérútgáfa hersins er þannig útbúin að ekki er hægt að taka gögn út af henni, ekki sést á skjáinn, nema frá sérstöku sjónarhorni og hún er sérstaklega styrkt þannig að hún þolir að trukkur aki yfir hana. Útgáfan, sem íslendingum gefst kostur á að kaupa, er ekki svona fullkomin, en virðist ágætis kostur í fjölskrúðugri flóru ferðatölva á markaðnum. Sýningarnetið Sýndar voru teikningar af þremur netkerfum, þ.e. sýningametinu, net- inu hjá EJS á Grensásvegi og síðan neti, sem kallað var Víðsýn, sem er sýnt hér á síðunni. Þessar netupp- setningar vöktu mesta forvitni mína af því, sem sýnt var. Þær sýna, svo ekki verður villst um, hvernig hægt er að nýta tölvusamskipti til fljót- legra og öruggra samskipta allt í kringum hnöttinn. Lögð var áhersla á að sýna þær lausnir, sem EJS hefur verið að bjóða viðskiptavinum sínum undanfarna mánuði. Á sýningunni var reynt að koma upp eftirlíkingu af tölvuherbergi í stóru fyrirtæki. í þeim tilgangi var safnað saman miklum búnaði. Þarna voru tveir AST Premium SE netþjón- ar, báðir með 50 MHz 486 örgjörva, stækkanlegir í 80 MB vinnsluminni og 8 GB diskrými, fyrir utan ýmsa tengimöguleika, Á báðum var sett upp LAN Manager netkerfi, einnig var sett upp SQL Server á OS/2 og NetWare 3.11, allt á sama netinu. Hjartað í samskiptum á netinu er beinirinn, sem skiptir netinu í tvennt. Beinirinn kemur í veg fyrir að þung- ar keyrslur öðrum megin hafi áhrif á afköst hinum megin. Beinir sér einnig um að koma víðnetssamskipt- unum á við EJS á Grensásvegi. Tvær gáttir voru settar upp, önnur X.25 gátt við SKÝRR, en hin við EJS á Grensásvegi. Hvor um sig var bara eitt spjald í netþjónunum. Allar tölv- ur á sýningunni voru tengdar við netið með parsnúnum köplum, sem eru nær alveg að taka við af samása- köplum í Ethernetum. Draumatölvan og fleira Stillt hafði verið upp tölvu, sem kölluð var Draumatölvan. Þetta var 50 MHz AST tölva með 17 tommu litaskjá, sem er með sérstöku margmiðlunarkorti (EJS kallar það almiðlun), tengt við geisladrif, myndbandstæki og hátalara. Með þessum búnaði er t.d. hægt að tengja sjónvarp við tölvuna og hafa það síðan í litlum glugga á skjánum, þannig að þeir, sem ekki mega missa af neinu, en þurfa að vinna, geta unnið og horft á sjónvarp um leið. Microsoft hefur þegar gefið út ýmiss konar efni sem hægt er að nota með þessum búnaði. (The Undocumented MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992 C 11 Windows er ekki á meðal titla.) Við hliðina á Draumatölvunni var ný ferðatölva frá AST, sem býður upp á lægi (docking station) eða tengibox, þannig að auðvelt er að tengja tölvuna við netkerfi á vinnu- stað. Þessi hugmynd er mjög farin að ryðja sér til rúms, en rúmlega þrjú ár eru síðan ég sá þetta fyrst útfært af Nixdorf-tölvufyrirtækinu þýska, sem nú er hluti af Siemens- Nixdorf Information System. Ljóst er að AST er mjög framarlega í þróun búnaðar fyrir ferðatölvur og hafa nokkur atriði, sem fyrirtækið hefur unnið að, verið tekin upp sem staðall fyrir ferðatölvur. Má þar nefna PCMCA-tengikort, sem eru á stærð við kreditkort, og er þeim stungið í sérstaka rauf á tölvunni. Boðið er upp á gagna- og faxmót- ald, nettengi og SCSI-tengispjald svo eitthvað sé nefnt. Talgervill var það næsta, sem fyrir augu og eyru bar. Þetta er tölva, sem talar íslensku með sænsk- um hreim. Unnið hefur verið að þró- un þessa tölvubúnaðar í rúmlega sjö ár, en starfið hófst með vinnu við lokaverke/ni í tölvunarfræði við Háskóla íslands 1985. íslenskað WordPerfect fyrir Windows kom á markað í haust og var verið með það á einni tölvu á sýningunni. Er það lofsvert, að EJS hafi lagt út í það stórvirki að ís- lenska þetta mjög svo vinsæla rit- vinnsluforrit, en á móti er ég ekki alveg eins hrifinn af því hvernig WordPerfect tókst að færa forritið frá DOS yfir í Windows. Sé ég fyrir mér, að viðhaldsuppfærsla komi fljótlega frá fyrirtækinu. EJS hefur umboð fyrir nokkur fyrirtæki í netgeiranum. Eitt þeirra er 3COM. Helstu nýjungar frá þeim eru nettengibox, svo kallaður Link- Builder, og nýtt Ethernet tengi- spjaid, EtherLink III, sem mun vera um 50% hraðvirkara en næst hrað- virkustu spjöld á markaðnum. Hafa þessi spjöld vakið slíka lukku að eftir aðeins 3 vikur á markaðnum, voru pantanir upp á 150 þúsund kort komnar á biðlista. Afgreiðslukerfi fyrir verslanir Það er frekar óvanalegt að sýndar séu lausnir fyrir takmarkaðan hóp viðskiptavina á svona tölvusýning- um. Í einum hliðarsal var verið með tvenns konar afgreiðslukerfi til sýn- is. Annars vegar eins og þau, sem Hagkaup og nokkur kaupfélög hafa tekið í notkun hjá sér og hins vegar minna kerfi fyrir sérverslanir þar sem ekki er leitað eftir eins miklu afköstum. Hagkaupskerfið er að mestu erlend smíð, en hefur verið aðlagað og betrumbætt af þeim hjá EJS. Höfundur er tölvunarfræðingur. INNUM Með nýju INFOTEC-telefaxtækjunum ertu fjór- um sinnum fljótari að vinna á telefaxtækið en með hefðbundnum tækjum sem nú eru í notkun. Það tekur ekki nema 4,5 sek. að lesa bréf inn í minni tækisins* og síðan er bréfið sent á 10 sek. (*CCITT nr. 1). INFOTEC 3305 TELEFAX • 100 metra móttökurúlla »132 númera minni með inn- byggðri símaskrá • Möguleiki á tengingu við tölvu • Sjálfvirk villuleiðrétting ECM • Fjölsending á 100 tæki • Senditími 10 sekúndur Ví nCSgjnttnBC " 3305 INFOTEC 3660 LASERFAX • Prentar á venjulegan pappír • Fjölföldun á inn- komnum skjölum • 132 númera minni með inn- byggðri símaskrá • Möguleiki á tengingu við tölvu • Sjálfvirk villuleiðrétting ECM • Fjölsending á 100 tæki • Endurval á 10 síðustu númerunum .BOÐSVERÐ 1 99.900 k. Á Heimilistækja hf Sætún 8-105 Reykjavík • Sími 691500 • Fax 691555 Tilboösverð er miöað við 5% staðgreiðsluafslátt og 24,5% virðisaukaskatt. Tilboðsverðið gildir til 31. desember 1992. VIKULEGA TIL ISLANDS FRÁ MÖRKUÐUM í HOLLANDI Heildarþjónusta á sviði flutninga er mikilvæg fyrir innflytjendur, svo og öflugt umboðsmannakerfi um heim allan. SAMSKIP flytja vörur þínar frá upprunastað, hvar sem er í heiminum, heiin til þin fljótt og örugglega. Vikulegar siglingar til Rotterdam tryggja þér ferskar vörur. hSAMSKIP Traustur valkostur Holtabakka við Holtaveg • 104 Reykjavík • Sími (91) 69 83 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.