Morgunblaðið - 05.12.1992, Page 6

Morgunblaðið - 05.12.1992, Page 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992 YIGDÍSAR VEGFARENDUR forðast að glápa á Guðrúnu á götu til að ljóstra ekki upp um viðbjóð sinn. Þeir sjá aðeins borðið sem veit út og er þó reynt að hylja, því hér gildir hið forn- kveðna; ekki er öll fegurð í andliti fólgin. Guðrún Magnús- dóttir, olnbogabarn í raunheimi vegna andlitslýta, dæmd á forsjá stofnana því enginn vill ráða greppitrýni í vinnu, geymir auðmjúkt hjarta og fagra hugarkima. Kima sem veggfóðraðir eru tilvitnunum í bækur sem hún hefur fundið á förnum vegi og í sorpi náungans, því Guðrún er safnari og „sólgin í hamingju sína“. Persónan og bókin sem hún býr í er öðrum þræði lofgjörð til bóka sem afdreps, sem laugar er endurnýjar hugró lesenda í sálarþrengingum. Guðrún á að vísu tvö hæli, hitt er alltumlykjandi skógur sem hún hef- ur ræktað í ímyndun sinni og skrýtt fossum og fuglum. Guðrún er Stúlkan í skóginum. (Bls 40.) Morgunblaðið/Einar Falur Vigdís Grímsdóttir, uppeldismóðir Guðrúnar og skógarvörður, læðir stundum dagsetningum inn í frásögnina, eins og til að storka hálf- sagða tímaleysinu sem skáldskapur fóstrar. Og í vitund hennar er skóg- urinn „spegill óska minna“. En griðlendi skógarins er ekki eins óhult fyrir umheiminum og Guðrún hélt, það skilur hún 16. ágúst 1991. Svo nákvæmlega má staðsetja ógnina því Vigdís Grímsdóttir, uppeldismóðir Guðrúnar og skógarvörður, læðir stundum dagsetningum inn í frásögn- ina, eins og til að storka hálfsagða tímaleysinu sem skáldskapur fóstrar. Daginn þann er henni boðið í fyrsta kaffíboð ævinnar - og hið síðasta - hjá konu sem bruggar fleira en suður- ameríska baunadrykki. Gestgjafinn er andstæða hennar, fagur útlits en innviðir feysknir. Samt er hann einnig safnari, brúðusafnari ... eða hvað? „Ég starði í augu eirtnar þeirra og sá mér til mikillar undrunar að það hreyfðist eitthvað í þeim fram og aft- ur með háttbundnum hreyfíngum og ég heyrði kunnuglegt tif Og þá sá ég að í augum brúðunnar voru faldir klukkuvísar. Augun voru þá Ifka klukkur. Ég hætti að stara, leit af brúðunni stundarkorn og þegar ég horfði í augu hennar aftur voru vís- arnir horfnir. Þessi brúða var þá tíminn sjálfur. Ég varð ringluð, beygði höfuðið í kjöltuna nokkrum sinnum, leit svo upp og skoðaði hana betur. Hún var í gammosíum, ullaríeistum, rauðum kjól með fléttur í dökku hári, breitt freknótt nef, bústnar kinnar og breiðar varir. Þetta var lítil stúlka." Vigdís rekur ævintýri í anda Grimms-bræðra á öld sem tengir orð- ið ævintýri við mannskæðar og hrað- skreiðar kvikmyndahetjur er glíma við valdasýki vitfírringa. Meðhöndlunin og túlkunin er skiljanlega ítarlegri en gengur og gerist í ævintýrum og yfir- bragði persóna er umtumað (noms- lega konan er engin nom), en fm- meigindir textans em hinar sömu: Bamslega hreinu sakleysi teflt gegn kolmyrkum andstæðing sem telur allt leyfilegt í þágu markmiða sinna, að- stæður em trúverðugar en umhverfíð tilheyrir annarri heimssýn en við eig- um að venjast. Ljóðrænni heimssýn er dylur skelfingu. Inn í þetta laumar hún tilbrigði við Fást-minnið, þar sem egnt er fyrir sálir af demónískri læ- vísi þess er trúir aðeins á staðreynd- ir. Guðrún skilur alvöm ástandsins að lokum en reynist ófær um að breyta því, vanmáttug í líkama sem er eins og refsipg. Aðeins bækumar viðhalda nauðsynlegu jafnvægi, tungumálið gerir henni kleift - eins og okkur hinum - að bera höfuðið hátt stundar- kom og skynja sig sem manneskju. Þangað sækir hún tii að „öðlast hlut- deild í heimi sem var mér framandi en þó svo nálægur að ég gat handleik- ið hann á örskotsstund og munað hann æ síðan". Varmi þeirra gæti þó reynst skammgóður, því gestgjafi hennar, Hildur, vflar ekkert fyrir sér í ásókn sinni og skrumskælingu. Henni er ekkert heilagt: „- Lánaðu mér peysuna þína, Guð- rún, sagði hún og glápti. Ég rétti henni peysuna og hún vöðl- aði henni saman, byijaði að stijúka hana, lék sér að henni og umlaði á meðan. Og svo hætti hún að gæla við peysuna og skellti henni yfír herðar sínar. Mér létti þegar hún stóð á fæt- ur, teygði fram álkuna, dró bijóstin undir sig svo að kryppa myndaðist milli herðarblaðanna, nuggaði saman lærunum einsog hana klæjaði, skældi sig í framan, beygði sig í hnjánum og rak út úr sér tunguna. Léttirinn hvarf þegar hún skakklappaðist fyrir framan mig, gaf frá sér urgkennt smjatthljóð og ég sá að hún stakk við fæti. Hvemig fínnst þér mér takast upp, sagði hún, staðnæmdist fyrir framan mig, rak andlitið að mínu og ég leit undan þegar slefa lak niður höku hennar og út á viðbeinið.“ (Bls. 172.) Innan umgjarðar ævintýris vakna einnig vangaveltur um ábyrgð þess „listamanns" sem upphefur sig sem ofurmenni gagnvart þeim er lifa í nið- urlægingu en eru ekki niðurlægðir. Gæsalappimar em tilkomnar af tveimur meginástæðum sem setja má fram í einni: Brúðugerð Hildar er runnin af trénaðri rót löngunar til að smækka umhverfið í hentuga stærð til að stjóma af fyrirlitningu - og sú löngun líkist fremur eðli niðurrifs- gagnrýnanda en sköpunar. En Guð- rún, sem fn'viljug og hógvær ber byrði skáldskapar og hrærist í einfaldri en ástúðlegri staðleysu, verður alltaf Hún gengur ú meðal okkar hinna og með úst sinni og alúð mun hún varðveita það sem skiptir menningu okkar mestu, skúldskapinn og um leið lífið í þjód- inni: gestur í ríki tómleikans. Þá er sú spurning nærtæk, hvort táknmynd sögunnar endurspegli ekki átök skáld- skapar og sálarvana ofríkis stað- reynda? Hins draumlynda og þess draumlausa? „Kannski veitist mér erfitt að svara þessari spumingu af því að stúlkan í skóginum og trú hennar á hið einlæga og einfalda á ennþá sterk ítök í hugs- un minni,“ svarar Vigdís Grímsdóttir. „Guðrún Magnúsdóttir, draumlyndur heimur hennar og trú á eilífðina og skáldskapinn er mér efst í huga. En einnig sú vissa hennar að við verðum að rækta manninn í sjálfum okkur til að nálgast þá hamingju sem óskyld- ust er græðgi, hraða, ofdrambi, stæri- læti og yfirborðsmennsku. Þetta er auðvitað meira en að segja það, leiðin til auðmýktar er grýtt og við emm engir guðir, hvorki yfir sjálfum okkur né heiminum. Átök Guðrúnar og Hild- ar em á milli persóna með ólík lífsvið- horf og ólíka lífssýn - en um leið eru þau átök minnar eigin sálar. Ég held að allir menn þekki þessa baráttu í einni eða annarri mynd. Við emm öll full af andstæðum, draumiynd og draumlaus, og í hverri einustu hugs- andi manneskju býr mikill skáldskap- ur sem sjaldnast lítur dagsins ljós. Erindi stúlkunnar í skóginum við okk- ur samtíðarmenn er brýnt og við þurf- um öll að taka afstöðu til þess og við þurfum að gera það fljótt, hvort sem við lesum bókina um hana eða ekki. Hún gengur á meðal okkar hinna og með ást sinni og alúð mun hún varð- veita það sem skiptir menningu okkar mestu, skáldskapinn og um leið lífið í þjóðinni. Okkur ber að koma auga á stúlkuna og huga að hvert við stefn- um, raunverulegum verðmætum okk- ar og gildismati, og velta því fyrir okkur hvort breytinga er þörf. Þetta er væn stúlka og hún þarfnast sam- ferðarmanna strax! Táknmynd sög- unnar er því lífið sjálft, eins margbrot- ið og það er og þó svo einfalt, svo ævintýralegt og þó svo raunsætt, svo brotið en þó svo heilt." SFr LESTU FYRIR MIG HVAÐ Á að lesa fyrir börnin? Það er spurning sem margir foreldrar velta örugglega fyrir sér þegar beðið er um lest- ur fyrir svefninn. Valið getur verið af ýmsum toga, en þó er líklegt að eitthvað af eftirtöldu verði fyrir valinu; þjóð- saga, ævintýri, uppáhaldsbók úr eigin bernsku eða nýlegri barnabók, kvæði, þula, hugsanlega eitthvað sem flokkast til alvarlegri bókmennta, en fyrst og síðast saga sem gæti orð- ið til þess að fræða og skemmta, um leið og svæfa. Sflja Aðalsteinsdóttir bók- menntafræðingur hefur tek- ið saman bók sem ber titilinn Sögustund. Þar er að finna 366 sögur, ljóð, ævintýri, kafla úr lengri bókum o.fl. o.fl. sem hugsaðir eru sem kvöldlesning fyrir börn á aldrinum 3-8 ára. Ekki er samt að efa að eldri böm hafa gaman af, að ekki sé minnst á foreldrana sjálfa. þarna er að finna úrval úr íslenskum bamabókmenntum eftir 62 höfunda en að auki eru ótal þjóðsögur, ævin- týri, þulur og jafnvel kaflar úr þrem- ur Islendingasögum og einn úr Fom- aldarsögum Norðurlanda. í bókinni er að fínna sögur eftir vinsæla höfunda úr fortíðinni, t.d. Sigurbjörn Sveinsson, Nonna, Hend- rik Ottóson o. fl. Af nútímahöfundum má nefna Guðrúnu Helgadóttur, Magneu frá Kleifum og Ármann Kr. Einarsson. Og svo em sögur eftir höfunda sem ekki hafa orðið þekkt- astir fyrir barnasögur s.s. Steinn Steinarr, Gunnar Gunnarsson og Ólaf Jóhann Sigurðsson. Sögustund er þannig upp byggð að þar er ein saga eða sögukafli fyr- ir hvem dag ársins (hlaupaár líka) og Silja segir að best fari á því að láta lesturinn og árstíðimar fylgjast að, „byija á fyrstu sögunni 1. janúar og lesa svo áfram á hveiju kvöldi til næstu áramóta.“ Einkunnarorð bókarinnar eru tekin „Ýmsar ófáanlegar sögur verða aftur aðgengilegar í Sögustund,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir. Rætt við Silju Aðal- steinsdóttur um Sögu- stund, nýút- komið úrval 366 leskafla úr íslenskum barnabókum úr bók Þórbergs Þórðarsonar, Sálmin- um um blómið, þar sem segir: „Það var sem sé hjátrú Sobbeggi afa, að engin saga væri alveg góð nema hún hefði þrjár náttúrur. Hún varð að vera fræðandi, göfgandi og örvandi. Það er að segja: Hún varð að tala við höfuðið og hjartað og hendurn- ar...“ Silja segir það sína bjargföstu sannfæringu að það sé fátt betra hægt að gera fyrir barn en Iesa fyrir það. „Lestur fyrir lítið barn bætir orðaforða þess og eykur við reynslu og skilning, auk þess sem sögur bjóða upp á alls kyns umræðuefni við börn- in.“ Silja segir það stórkostlegt tæki- færi fyrir bókelska manneskju að fá að gera sitt eigið úrval. „Ég var beð- in um að velja 365 sögur og kafla í svona kvöldlestrabók af útgefandan- um, en ég ákvað síðan sjálf að velja efnið þannig að þetta yrði um leið eins konar sýnisbók íslenskra barna- bókmennta. Ég var í rauninni ekki heft af neinu nema því að ég þurfti að taka tillit til aldurs væntanlegra hlustenda svo þarna eru ekki kaflar úr unglingabókum, og svo hinu að ég gat ekki valið sögur úr myndabók- um þar sem litmyndir eru hluti af sögunni. Þetta er textabók fyrst og fremst þó hún sé vissulega skreytt ótal myndum og teikningum eftir all- flesta listamenn íslenska sem hafa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.