Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 1
88 SIÐUR B 286. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins HOLDUM HEIM Morgunblaðið/Kristinn E R T ROS HARRI frtíljcvlnu Spennusaga Bretans Roberts Harris „Föð- urland", sem fjallar um hvað hefði getað gerst ef Adolf Hitler hefði sigrað í síðari heimsstyijöldinni, hefur vakið mikla at- hygli. Harris var á dögunum staddur í Berlín til að kynna bók sína og var honum þá skýrt frá því að í austurhluta Þýskalands væri „Föðurland“ orðin að eins konar bibl- iu ungra hægri öfgamanna og mjög algengt að nauðrakaðir ungir menn kæmu inn í verslanir og spurðu eftir bókinni. Harris svaraði að það væri bara ágætt ef þeir keyptu bókina. Hún myndi sýna þeim fram á hversu mann- fjandsamlegur nasisminn hafi verið. Ef þetta lið kynni þá að lesa á annað borð, bætti hann við. Dýrkeyptur árangur 350 þeirra fimm þúsund hjólreiða- manna sem í sumar luku keppni í árlegri hjólreiðakeppni milli Þránd- heims og Ósló í Noregi þurftu að greiða þann árangur dýru verði. Könnun, sem gerð var eftir keppnina, hefur nú leitt í ljós að 7,5% kepp- enda, eða um 350 manns, áttu í vand- ræðum með kyngetuna eftir keppn- ina. Fimm þeirra hafa hálfu ári eftir keppnina ekki fengið hana aftur. Þá misstu 25% hjólreiðamannanna tíma- bundið alla löngun til kynlifs. Eykur áfeng-- ið ritsnilli? Kanadískir vísindamenn telja sig geta rökstutt þá gömlu goðsögn að áfengi ýti undir sköpunargleði rithöfunda. Rannsókn var gerð á tveimur hópum og fékk annar þeirra vodka-drykk en hinn drykk áþekkan að bragði en óáfengan. Báðum hópunum var sýnd landslagsmynd og gefnar tiu mínútur til að koma hughrifum sínum á blað. Kom vodka-hópurinn ávallt betur út. Allir eru þó ekki sammála þessu. „Vís- indakjaftæði," sagði rithöfundurinn Jeffrey Archer, sem aldrei snertir áfengi við ritstörf og Kingsley Amis sagði eigin tilraunir á þessu sviði hafa leitt til þveröfugrar niðurstöðu. Öfgamenn og Föðurland Jeltsín og Khasbúlat- ov ná samkomulasri Moskvu. Reuter. Moskvu. Reuter. RÚSLAN Khasbúlatov, forseti rússneska fulltrúaþingsins, tilkynnti þingmönnum í gær, eftir langan fund með Borís Jeltsín Rússlandsforseta, að þeir hefðu náð sam- komulagi um hvernig binda mætti enda á valdabaráttuna í landinu. „Ég held að við höfum náð saman. Auðvitað verður full- trúaþingið endanlega að skera úr um það, en ég tel okkur hafa náð samkomulagi," sagði þingforsetinn. Hann vildi ekki tjá sig um efnisatriði samkomulagsins en heimildir herma að Jeltsín hafi fallið frá kröfu sinni um þjóðaratkvæðagreiðslu og ætli að finna nýtt forsætisráðherraefni. Skömmu áður en viðræður Jeltsíns og Khasbúlatovs hófust tilkynnti talsmaður for- setans að Jeltsín hefði ákveðið, að leysa Gennadí Búrbúlis, helsta ráðgjafa sinn, frá störfum. Búrbúlis hefur árum saman verið einn nánasti samstarfsmaður Jeltsíns. Hann hefur sætt mikilli gagnrýni frá harðlínumönn- um á rússneska fulltrúaþinginu. Deilur Jeltsíns og þingsins hófust í kjölfar þess að þingið neitaði að staðfesta skipun Jegors Gajdars í embætti forsætisráðherra, en hann hefur verið aðalmaðurinn á bak við áætlanir ríkisstjómarinnar um markaðsvæð- ingu Rússlands. Jeltsín hefur til þessa haldið fast við þá kröfu að Gajdar verði forsætisráð- herra en síðdegis í gær sagði Sergei Fílatov, varaforseti þingsins, að samkomulag hefði náðst um að forsetinn gerði tillögu um annað forsætisráðherraefni eftir níu daga. í þingræðu á fimmtudag hellti Jeltsín sér yfir þingheim og sakaði harðlínumenn þar um að-stefna að „dulbúnu valdaráni". Skor- aði hann á þingið að undirbúa þjóðaratkvæða- greiðslu um hver ætti að fara með völdin, þing eða stjórn, en á það var ekki fallist. Valerí Rúmin, einn af aðstoðarmönnum Jelts- íns, sagði forsetann hafa sæst á að falla frá kröfunni um þjóðaratkvæðagreiðslu í viðræð- um sínum við Khasbúlatov. Maastricht Danir fá undanþágur Edinborg. Reuter. LEIÐTOGAR Evrópubandalagsins náðu á fundi sínum í Edinborg í gær samkomu- lagi um að Danir fái undanþágur frá Maastricht-sáttmálanum, sem þeir felldu í þjóðaratkvæðagreiðslu í júní, að því er embættismenn skýrðu frá síðdegis í gær. í samkomulaginu felst m.a. að Danir eru ekki skyldugir til að taka þátt í peningaleg-. um samruna bandalagsríkjanna né heldur eiga aðild að sameiginlegri varnarstefnu. Danir féllust á móti á að standa ekki í vegi fyrir nánari samruna hinna ríkjanna. VÖRDUR RÉTTAR EDA RÍKISSJÓÐS 16 14 # C BÁKNIÐ VILL ÖÐLAST ARFLEIFÐ### Hjis husi * 1 f **■ ij' * EILÍFT LÍF anituhill ym^ Bréfberinn á Skóla- vörðustig -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.