Morgunblaðið - 13.12.1992, Síða 12

Morgunblaðið - 13.12.1992, Síða 12
íMORGUífflBMÐIÐ. SUNÍCKDAGUll ttö.CDESEMBER:{19S2 m STARFSFERILL HÆSTARETTARDOMARA Pétur Kristján Hafstein f. 20. mars 1949 í Reykjavík. Fulltrúi lögreglustjórans í Reykja- vík frá 15. mars 1976 til 1. sept. 1977. Fulltrúi í eigna- og málflutn- ingsúeild fjármálaráðuneytisins frá 1. júní 1978 til 1. maí 1983. Skip. sýslumaður í ísafjarðarsýslu og bæj- arfógeti á ísafirði 15. mars 1983 frá 1. maí s.á. Jafnframt settur bæjar- fógeti í Bolungarvík frá 25. ágúst til 23. sept. 1988 og aftur frá 14. jan. til 24. maí 1990. Skip. hæsta- réttardómari í Reykjavík 19. ágúst 1991 frá 1. okt. s.á. Guðrún Erlendsdóttir f. 3. maí 1936 í Reykjavík. Starfsmaður hjá Ríkisútvarpinu frá hausti 1956 til 1960 og hjá Sam- einuðu þjóðunum sumarið 1957. Rak málflutningsskrifstofu í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum Emi Claus- en hrl. frá júní 1961-1978. Aðjúnkt við lagadeild Háskóla íslands frá 1970, settur lektor þar frá 1976, skip. lektor 9. maí 1978 frá 1. maí s.á. og skip. dósent þar 14. jan. 1979 frá 15. sept. s.á. til júní 1986. Settur hæstaréttardómari frá 15. sept. 1982 til 30. júní 1983. Skip. hæstaréttardómari 30. júní 1986 frá 1. júlí s.á. Kjörin forseti Hæstaréttar frá 1. jan. 1991 til 1. jan 1993. Haraldur Henrysson f. 17. febr. 1938 í Reykjavík. Fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Keflavík júní-nóv. 1964. Fulltrúi hjá bæjarfógetanum í Kópavogi frá 1. des. 1964, skip. aðalfulltrúi þar 2. jan. 1973 frá 1. s.m. auk 30. sept. 1973. Skip. sakadómari í Reykjavík 21. sept. 1973 frá 1. okt. s.á. Settur hæstaréttardómari frá 1. sept. til 31. des. 1988, skip. hæstaréttardómari 8. des. 1988 frá 1. jan. 1989. Hrafn Bragason f. 17. júní 1938 á Akureyri. Fulltrúi hjá yfirborgardómaranum íReykjavík 1965-70, aðalfulltrúi þar 1970-72. Skip. borgardómari í Reykjavík 14. ágúst 1972 frá 1. s.m. til 1. sept., 1987. Skip. hæstaréttar- dómari 8. sept. 1987 frá 1. sept. 1987. Lögfræðingur Neytendasam- takanna 1968-70. Stundakennari í sjórétti við Stýrimannaskólann í Reykjavík 1969-72 og í félagarétti við lagadeild Háskóla Islands 1972-88. Hefur einnig kepnt þar siíjarétt, kröfurétt og stjórnskipun- arrétt í leyfum og forföllum prófess- ora. Oft verið skip. setudómari og gerðardómari. Garðar Kristján Gíslason f. 29. okt. 1942 í Reykjavík. Fulltrúi yfirborgardómarans í Reykjavik frá 1. jan. 1970, skip. aðalfulltrúi þar 2. jan. 1973 frá 1. s.m. Settur borgardómari 1. okt. 1974, skip'. borgardómari 28. sept. 1979 frá 1. des. s.á. Skip. forseti Félagsdóms 29. okt. 1986 frá 1. s.m. Skip. dómari við Hæstarétt íslands 23. des. 1991 frá 1. jan. 1992. Stundakennari við lagadeild Háskóla íslands frá 1. okt. 1973, aðjúnkt þar frá 1. sept. 1984. Prófdómari í fom- fræðum við stúdentspróf í M.R. frá 1976. Skip. til að vera dómari ad hoc við Mannréttindadómstól Evr- ópu í Strassborg (í máli Þorgeirs Þorgeirsonar rithöfundar gegn ísl. ríkinu) frá nóv. 1991. Gunnar Magnús Guðmunds- son f. 12. febr. 1928 í Reykjavík. Fulltrúi borgardómarans (Einars Arnalds) í Reykjavík frá 1. sept. 1954 til 1. des. 1960, dómari í munn- lega fluttum málum eingöngu frá 1. sept. 1955. Rak eigin lögfræði- og fasteignaskrifstofu í Reykjavík ásamt Vagni E. Jónssyni hrl. frá des. 1960 til 31. des. 1967, en höfðu samvinnu um rekstur skrifstofunnar tii 31. des. 1972. Rak lögfræðistofu einn til 30. júní 1991. Settur hæsta- réttardómari frá 1. ágúst 1989 til 10. júlí 1990 og frá 1. jan. til 30. júní 1991. Skip. dómari við Hæsta- rétt 25. júní 1991 frá 1. júlí s.á. Annaðist málflutnings og lögfræði- lega ráðgjöf fyrir Samvinnutrygg- ingar g.t. frá 1. júlí 1966 til 1. júlí 1989. Oft dómkvaddur til starfa í matsnefndum. Stundakennari við lagadeild Háskóla íslands við úrlausn raunhæfra verkefna um skeið frá 1970. Meðdómari í gerðardómi Sam- vinnutrygginga g.t. frá stofnun hans 1. sept. 1971 uns hann var lagður niður. Skip. í júlí 1973 form. gerðar- dóms í deilu stjómar Laxárvirkjunar og landeigenda vegna virkjunar Lax- ár í Aðaldal. Þór Helmlr Vilhjálmsson f. 9. júní 1930 í Reykjavík. Fulltrúi hjá borgardómaranum í Reykjavík frá 1. mars 1960 tii árs- loka 1961, settur borgardómari frá 1. jan. 1962, skip. borgardómari 23. nóv. 1962 frá 1. jan. 1963 og gegndi því starfí til 1. febr. 1967. Stunda- kennari í almennri lögfræði við laga- deild Háskóla íslands 1959-62 og öðm hveiju frá 1976. Settur lektor við lagadeild Háskóla íslands 1962-67 og skip. prófessor 31. jan. 1967 frá 1. febr. s.á., veitt lausn frá starfi 11. mars 1976 frá 1. s.m. Forstöðumaður Lagastofnunar Há- skóla íslands frá 23. sept. 1974 til 1976. Skip. hæstaréttardómari 26. febr. 1976 frá 1. mars s.á. Kjörinn varaforseti Hæstaréttar 18. des. 1981 frá 1. jan. 1982 til 31. des. 1983, kjörinn forseti Hæstaréttar 20. des. frá 1. jan. 1983 til 31. des. 1984 og varaforseti á ný frá 1. jan. til 31. des. 1992. Kjörinn dómari í Mannréttindadómstóli Evrópu í Strassborg frá 21. jan. 1971. Lög- fræðilegur ráðunautur Ríkisútvarps- ins 1958-76. Kennari í lögfræði á námskeiðum í endurskoðun 1967-72. Hjörtur Torfason f. 19. sept. 1935 á ísafirði. Fulltrúi á málflutningsskrifstofu Geirs Hallgrímssonar hrl. og Eyjólfs Konráðs Jónssonar hrl. í Reykjavík, síðar Eyjólfs Konráðs og Jóns Magn- ússonar hrl., frá febr. 1960 til sept. 1961 og frá 5.8 tii ársloka 1963. Gerðist 1.1.1964 meðeigandi Eyjólfs Konráðs Jónssonar og Jóns Magnús- sonar að skrifstofunni og rak hana síðan í féiagi við þá og fleiri til mars 1990. Settur dómari við Hæsta- rétt íslands frá 20.2. til 30.6.1988, skip. hæstaréttardómari 2.3.1990 frá 1. s.m. Ráðunautur við samn- ingagerð um álbræðslu á ísiandi, kísilgúrverksmiðju við Mývatn og jámblendiverksmiðju í Hvalfirði. Ráðunautur hjá iðnaðarráðuneytinu um ýmis lögfræðileg efni 1967-71 og síðar um stóriðjumál, m.a. endur- skoðun samninga um áðurnefnd fyr- irtæki og framkvæmd virkjana. Ráðunautur Landsvirkjunar 1965-90 og einnig Rafmagnsveitna ríkisins 1975-90, o.fl. fyrirtækja. Stundakennari við Lagadeiíd haustin 1974 til 1976. Fyrirlesari á nám- skeiðum um verksamninga o.fl. hjá Endurmenntunarstofnun H.í. frá 1986. mælt fyrir um ákveðnar launahækk- anir miðað við laun 30. júní 1990. Áttu þær að koma í stað ákvæða kjarasamninga um launabreytingar. BHMR félagar skyldu fá sömu launahækkanir og aðrir launþegar samkvæmt bráðabirgðalögunum. Hæstiréttur kemst að því í dómi sínum að setningu bráðabirgðarlag- anna hafi mátt jafna til uppsagnar samningsins frá og með 1. nóvember 1990, það er eftir að mánaðar upp- sagnarfrestur var liðinn frá 30. sept- ember. Þessi niðurstaða vekur nokkra furðu og skulu hér tíndar til ástæður þess. Fyrst er að nefna að „uppsögnin" frá og með 1. nóvember 1990 var ekki tilkynnt með lögform- legum hætti og því hæpið að hún sé fullgild. Þá er að nefna að í ann- arri málsgrein 4. greinar bráða- birgðalaganna segir: „Með þeim breytingum, sem lög þessi kveða á um, skulu kjarasamningar aðildarfé- laga BHMR og viðsemjenda þeirra gilda til 31. ágúst 1991 og falla þá úr gildi án uppsagnar." Bráðabirgða- lögin sjálf segja BHMR-samninginn gilda til 31. ágúst 1991, en Hæsti- réttur telur þau hafa sagt honum upp frá 1. nóvember 1990. Ein möguleg skýring viðmælenda blaðsins á þessu ósamræmi er sú að með því að komast að þessari niður- stöðu sé fundin leið til að viðurkenna rétt BHMR félaga og forða um leið ríkissjóði frá óhóflegum skaðabó- takröfum. Með þvi að segja samning- inn uppsagðan er búið að gera hann minna virði fjárhagslega heldur en ef ekki hefði verið litið svo á að samningurinn gilti t.d. eins og bráða- birgðalögin kváðu á um. Rétturinn lítur svo á að launahækkanir eftir bráðabirgðalögunum, 2% 1. desem- ber 1990 og 2,5% 1. mars 1991, komi upp í 4,5% launahækkun BHMR. Því eru áfrýjanda, BHMR .starfsmanninum, einungis dæmdar bætur frá 1. september 1990 til loka febrúar 1991 þegar 4,5% hækkun var náð. Málið dæmdu hæstaréttardómar- amir Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason og Þór yilhjálmsson. Auk þeirra Freyr Ófeigsson dómstjóri, Stefán Már Stefánsson prófessor og Sveinn Snorrason hrl. Þeir Þór og Sveinn skiluðu sératkvæði um málið og vildu staðfesta héraðsdóm. Þrír hæstarétt- ardómarar viku sæti úr dóminum af ýmsum ástæðum. Gunnar M. Guð- mundsson vék sæti vegna þess að sonur hans hafði undirritað bréf frá Fjármálaráðuneyti, þar sem svarað var ýmsum fyrirspumum varðandi málið frá ríkislögmanni. Pétur Kr. Hafstein vék sæti vegna þess að hann tjáði sig um bráðabirgðalögin í blaðagrein 1990. Haraldur Henrys- son vék sæti vegna þess að hann var tengdur áfrýjanda í málinu. Það hefur vakið spumingar að Stefán Már, en hann er í Félagi háskóla- kennara, sem er aðili að BHMR, skyidi dæma málið. Hann taldist hæfur vegna þess að Félag háskóla- kennara stóð utanvið „samflot“ BHMR félaganna sem gerðu kjara- samning í maí 1989. Háskólakennar- ar gerðu sérsamning og stóðu utan við þann sem málið snerist um. Ófullnægjandi úrlausnir Það er vissulega vert nánari skoð- unar ef rétt er að ekki séu allir jafn- ir fyrir lögunum. En gagnrýnendur í hópi lögmanna hafa einnig fundið að vinnubrögðum íslenskra dóm- stóla. Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. ræðst enn fram á ritvöllinn í tíma- riti lögfræðinema, Úlfljóti (1.1991) og fjallar þar um handhafa ríkis- valdsins. Hann telur ýmislegt mega betur fara þar á bæ og segir um dómstóla lýðveldisins: „Eg hef oft fengið sterkt á tilfinninguna að eitt- hvað allt annað en einlæg leit að réttri lögskýringu ráði niðurstöðu. Stundum eru niðurstöður jafnvel þannig, að mér er nær að halda að að menn hefðu fallið á lagaprófi með því að sýna slíkar úrlausnir." Lög- maðurinn segir að einungis eigi að dæma eftir köldum og óhlutdrægum réttarheimildum og niðurstaðan eigi að vera sú sama, hver sem dómarinn er, en á því hafi því miður oft orðið misbrestur. Hæstiréttur ákvað 9. janúar 1990 að ekki stæðist að íslenskum lögum að dómari, sem auk dómarastarfa hefði á hendi lögreglustjóm, dæmdi í máli sem rannsakað hefði verið undir hans stjóm. Fram að því hafði þessi skipan viðgengist um langan aldur, með ágætum árangri að margra áliti, og Hæstiréttur meira að segja lagt blessun sína yfir þetta berum orðum í dómum 1985 og 1987. Glöggir menn rekja þessa skyndilegu opinberun réttarins til þess að Mannréttindadómstóll Evr- ópu hafði ákveðið að taka til dóms mál íslendings, sem kærði hina ís- lensku skipan rannsóknar og dóms í héraði til Mannréttindanefndar Evrópu. Við skyndilega hugarfars- breytingu Hæstaréttar var fengin forsenda til að rnáhð yrði látið niður falla. Um þetta segir Jón Steinar í Tímariti lögfræðinga (4.1991): „Ég held ekki að nein varanleg breyting hafí orðið á íslenskum rétti að því er varðar réttarheimildirnar. Dómur Hæstaréttar frá 9. janúar 1990 er ekki annað en enn ein staðfesting á því, sem ég hef vitað nú um nokk- urt skeið. Raunveruleikinn í dóm- stólastarfi og lagaframkvæmd á ís- landi er allt ánnar en okkur var kennt í lagadeildinni. Dómarar (a.m.k. í Hæstarétti) hika ekki við að komast að niðurstöðum sem þeim finnast pólitískt æskilegar, hvað sem réttar- heimildum líður". Einsleitur hópur Miklar kröfur eru gerðar til þeirra sem hyggjast verða hæstaréttardóm- arar. Þó hefur verið að því fundið að dómarahópurinn í Hæstarétti sé helst til einsleitur, hafí of líkan bak- grunn og reynslu. Einn dómþoli Hæstaréttar orðaði það svo að þar sæti fólk „með 1. einkunn í lögfræði og 20 fermetra lífsreynslu". Hæsta- réttardómarar hafa nær upp til hópa fetað sig upp virðingarstigann um lægri dómsstig og kennarastóla Iagadeildar; verið opinberir starfs- menn frá því þeir stigu upp frá próf- borðinu. Að sögn Erlu Jónsdóttur, ritara Hæstaréttar, eru tveir af átta dómur- um réttarins nú úr hópi starfandi lögmanna. Einnig ér algengt að varadómarar séu kallaðir til starfa úr hópi lögmanna, þeir verða að uppfylla sömu skilyrði og hæsta- réttardómarar. Varadómarar eru yf- irleitt kallaðir til að dæma í tilteknu máli þegar hæstaréttardómari er vanhæfur eða fjarverandi. Umsóknir um stöður hæstaréttardómara fá umfjöllun allra dómara Hæstaréttar sem gefa áiit á hæfni umsækjenda. Raddir hafa verið uppi um að æskilegt væri að fleiri hæstaréttar- dómarar kæmu úr röðum málaflutn- ingsmanna, líkt og víða gerist. Breskir áfrýjunardómstólar eru til dæmis skipaðir dómurum sem koma úr röðum málflutningsmanna (bar- risters), sem flutt hafa mál bæði fyrir opinbera aðila og einkaaðila. Þessir dómarar hafa því víðtæka og hagnýta reynslu af málflutningi og lögmannsstörfum í þjóðfélaginu. Þau sjónarmið eru til meðal íslenskra lög- manna að æskilegt sé að í stöður hæstaréttardómara veljist fleiri úr röðum málflutningsmanna, í stað kerfísmanna sem fara hefðbundnar leiðir um héraðsdómstóla og laga- deild upp í Hæstarétt. Magnús Thor- oddsen, fv. forseti Hæstaréttar, lýsti í fyrmefndu viðtali því sem hann taldi æskilega samsetningu dómara- hóps Hæstaréttar. „Ég tel að lög- mannastéttin eigi að hafa fleiri full- trúa í réttinum. Nú (1990) er þar einn fyrrverandi hæstaréttarlögmað- ur, en þeir ættu að vera þrír að mínu mati, og síðan einn borgardóm- ari, einn sakadómari, einn fógeti, einn sýslumaður og einn fyrrverandi prófessor. Þannig yrði meiri breidd í réttinum."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.