Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 14

Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 Svidsliós banda- riskra fjölmióla hefur aó undan- förnu beinsl aó fjölþreifn- um þing- mönnum og ýmsum ráóa- mönnum i stjórn- sýslunni eftir Karl Blöndal Samskipti bandarískra karla og kvenna hafa ekki verið söm frá því að lagaprófessor- inn Anita Hill bar því vitni fyrir dómsmála- nefnd öldungadeild- ar þingsins að Clar- ence Thomas hæstaréttardómari hefði beitt sig kynferðislegri áreitni. Eftir vitnaleiðslur þingsins var haft á orði að það andaði köldu milli kynj- anna á vinnustöðum um landið allt. Einn vinnustaður hefur verið í sviðs- ljósinu vegna kynferðislegrar áreitni undanfarnar vikur og mánuði. A nokkrum mánuðum hafa þrír þing- menn verið vændir um ósæmilegt háttalag gagnvart konum. Fyrir nokkrum árum hefðu fjölmiðlar látið kyrrt liggja, en nú ber annað við. John F. Kennedy gat haldið fram hjá hvað eftir annað án þess að kæmi fram í fjölmiðlum þrátt fyrir vitund fréttamanna. Nú boðar feil- spor fjömiðlafár og háttemi, sem áður þótti bera karlmennsku vitni, þykur nú sýna fram á lítilsvirðingu við konur og heldur lítilfjöriegan persónuleika. Þegar blaðamenn spurðu Robert Packwood, öldungardeildarþing- mann frá Oregon, skömmu fyrir kosningar hvort eitthvað væri hæft í þeim orðrómi að dagblaðið The Washington Post væri að vinna að frétt um kynferðislega áreitni hans vísaði hann honum á bug. Sagði Packwood að andstæðingur sinn, demókratinn Les AuCoin, hefði kom- ið þessum orðrómi af stað sér til pólitísks ávinnings. 3. nóvember vann Packwood nauman sigur á and- stæðingi sínum úr röðum demókrata og var kjörinn á þing í fimma sinn. 19 dögum síðar höfðu blaðamenn The Washington Post aflað nægilega trausta heimilda til að birta fréttina. Að auki birti blaðið yfirlýsingu frá þingmanninum þar sem hann sagði að „hafi ummæli mín eða athafnir i raun verið illa þokkaðar eða hafi ég hegðað mér á nokkum þann hátt að valdið hafi einstaklingi óþægindum eða sneypu, þá biðst ég innilega af- sökunar". Tíu konur báru því vitni að Packwood hefði leitað á þær og hafa sex bæst við síðan. Samkvæmt einni frásögn var ástandið þannig á skrif- stofu þingmannsins að konum í starfsliði hans var ráðlagt að vinna ekki einar frameftir. Konumar sögðu að Packwood hefði leitað á þær, kysst þær á munninni án samþykkis og káfað á 13 ára stúlku. Strókar i smiói... stelpur i matreióslu Þessar ásakanir, sem ná allt aftur til ársins 1969, komu almenningi í opna skjöldu. Packwood hefur ætíð stutt málstað kvenna dyggilega á þingi. Hann er fylgjandi fóstureyð- ingum og réði konur til starfa áður en það fór að tíðkast meðal starfs- bræðra hans. Packwood héít á fimmtudag blaða- mannafund þar sem hann sagði að hann væri bam fjórða og fimmta áratugarins. Þá hefðu „strákar farið í smíði og stelpur i matreiðslu". Þing- maðurinn bætti við að í atvinnu sinni hefði hann með tímanum orðið upp- lýstari um konur og málefni þeirra, en persónuleg hegðun hans hefði ein- faldlega verið „ruddaleg og dónaleg". Þótt Packwood hafi iðrast á blaða- mannafundinum, nefndi hann ekki einstök atvik. Hann játaði aimenna sekt, en viðurkennir í raun ekki hið sértæka. Einnig hefur vakið reiði piargra að Packwood hefur gert til- raun til að skýla sér á bak við drykkjuskap. Enga þeirra, sem borið hafa vitni, rekur hins vegar minni til þess að Packwood hafi verið und- ir áhrifum áfengis þegar hann leitaði á þær. Þingmaðurinn dreif sig í meðferð, en til að flækja málið, kvaðst hann að henni lokinni ekki viss um það hvort han ætti við áfengisvandamál að stríða. Kjósendum hitnar i hamsi Kjósendur í Oregon eru margir æfareiðir yfir því að þetta skyldi ekki koma fram fyrr en eftir kosning- amar. Þykir þeim fulltrúi sinn hafa tafið birtingu fréttarinnar í The Washington Post af mikilli slægð. Hann dró blaðamenn The Washing- ton Post á viðtali eftir megni og einn- ig er hermt að útsendarar hans hafi haft í hótunum við meint fómarlömb áreitni hans ef þau drægju framburð sinn ekki til baka. Um leið liggja þeir fjölmiðlum í Oregon-ríki, sem höfðu pata af því að ekki var ein báran stök, á hálsi fyrir að hafa lát- ið hjá líða að kanna málið. Einn hópur hefur farið þess á leit við þingheim að Packwood verði vik- ið úr sæti sínu reynist ásakanir sann- ar og annar vill láta kveðja hann heim. Slíkt hefur hins vegar aldrei hent í öldungadeildinni og þingmaður hefur ekki verið rekinn síðan í borga- rastyrjöldinni. Víst er að Packwood ætlar ekki að verða fyrri til. Hann lýsti yfír því á fimmtudag að hann hygðist ekki verða við áskorunum um að segja af sér. Afdrifaríkar ásakanir Brock Adams, starfsbróðir Packwoods og nágranna hans í Was- hingtonríki, tókst ekki að humma ásakanir um kynferðislega áreitni fram af sér yfir kosningar. Adams tilkynnti nokkrum klukkustundum eftir að dagblaðið The Seattle Times birti í byijun mars frétt studda fram- burði átta kvenna um kynferðislega áreitni hans að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri. I fréttum var hann sakaður um allt frá því að hafa gerst nærgöngull við samstarfs- konur og pólitíska aðstoðarmenn til að hafa byrlað konu lyf, afklætt hana og nauðgað. Kvað Adams „til- búin ummæli tilbúins fólks“ hafa eyðilagt feril sinn og gaf sterklega í skyn að hann hefði verið fórnarlamb ábyrgðarlausrar fréttamennsku og tilbúnings andstæðinga sinna. Ymsum þótti hins vegar kyndugt að hann skildi draga sig í hlé daginn eftir að hann hafði safnað 130 þús- und dollurum í kosningasjóði sína. Þá vakti einnig grunsmdir að starfs- menn Adams höfðu samband við heimildamenn The Seattle Times nokkrum dögum fyrir birtingu frétt- arinnar og reyndu að kaupa þögn þeirra með fagurgala. Adams sagðist ekki hafa grun um það hveijir bæru sig slíkum sökum. Adams var sakaður um að hafa þröngvað sér upp á konu fyrir rúmum fjórum árum. Þá tókst honum að bera sakimar af sér og ljaraði málið út. Hann brást ekki við af jafn mikl- um krafti í þetta skipti og má ef til vill rekja það til breyttra tíma. Opinberir ástarfundir þingmanna Aður fyrr létu menn sér nægja að glotta þegar þingmenn gerðust nærgöngnlir við konur. Aðstoðar- menn þingmanna segja að þess sé skemmst að minnast er yfirboðarar þeirra reyndu ekki einu sinni að leyna ástarfundum sínum í afherbergjum þinghússins. „I gamla daga var haft á orði að vissir öldungadeildarþingmenn káf- uðu á ungum konum í lyfturn," sagði Danmiel K. Inouye, þingmaður demókrata frá Hawaii, í viðtali við The New York Times í mars. „Nú eru enginn orðrómur á kreiki. Sú staðreynd að fjölmiðlar hafa verið yfirmáta vökulir í eftirliti sínu með atferli okkar hefur haft áhrif og sið- ferðisstaðall okkar hefur [um leið] breyst.“ I kosningabaráttunni komu fram ásakanir á hendur Inoye um að hann hefði sýnt fjölda kvenna kynferðis- lega áreitni og nauðgað konu fyrir 17 árum. Neitaði Inouye staðfastlega pg náði endurkjöri. Nú undirbýr siðanefnd öldunga- deildarinnar rannsókn á máli Packwoods og íhugar hvort kanna eigi mál Inouyes. Það hefur ekki áður komið til kasta nefnadrinnar að fjalla um kynferðislega áreitni. Ljóst þykir að reglur öldungadeild- arinnar og jafnréttislögin frá 1991 banna áreitni, en ýmsir draga í efa réttmæti þess að dæma atburði, sem gerðust fyrir nokkrum árum á for- sendum, sem rekja má til breytts hugarfars. Upphafs þessarar hugarfarsbreyt- ingar er að leita í yfírheyrslum dóms- málanefndar öldungadeildarinnar yfir Clarence Thomas fyrir hálfu öðru ári. Thomas var dómaraefni George Bush forseta til hæstaréttar og hlutverk nefndarinnar var að sam- þykkja tilnefningu hans eða hafna henni. í miðjum klíðum komu fram ásakanir um að Thomas hefði áreitt Anitu Hill kynferðislega þegar hann var yfirmaður stofnunar sem fjallar um jafnrétti á vinnumarkaðnum. Nefndin hafnaði vitnisburði Hill í vitnaleiðslum, sem sýndar voru í beinni útsendingu, en frammistaða hennar fyllti konur um öll Bandríkin eldmóði. Olia á eidinn Síðan hafa komið upp ýmis mál, sem hafa verið eins og olía á eld. Árásir á konur á stélkróksráðstefnu (stélkrókurinn grípur bremsuspotta við lendingu á þilfari flugmóðurskips til að stytta lendingarbraut) sjóhers- ins í Las Vegas sviptu hetjublænum af dátunum og leiddu til afsagnar flotamálaráherra og málaferla, sem ekki sér fyrir endann á. í ljós kom að á hveiju ári lögðu viðstaddir yfir- menn og' undirmenn undir sig heila hæð hótelsins, sem ráðstefnan var haldin á, og þegar kona lét sjá sig mynduðu þeir göng og ráku hana eftirþeim á meðan þeir káfuðu, klipu, rifu, tættu og kreistu. I háskólum rekur nú hvert málið annað og stefna nemendur prófess- orum, sem gerast ívið nærgöngulir, án þess að blikna. Prófessor einn við Massachusetts Institute of Techn- ology í Cambridge var nýverið sýkn- aður af ákæru um að hafa kysst nemanda sinn í fjórgang án sam- þykkis. Á næstu dögum voru mót- mæli við skólann og nemendur í tíma hjá prófssorunum stóðu upp og drógu fram mótmælaspjöld. Prófessor einn við Yale í New Haven hefur verið áminntur fyrir leita á væntanlegan nemanda, sem hafði lagt land undir fót til að kynna sér skólann og borga í, sáttaskyni flugfarið fyrir hana. Atvikið átti sér stað fyrir nokkrum árum„ en konan, sem varff fyrir áreitninni, fór ekki á stúfana fyrr en eftir að Anita Hill gekk fram. Sama segir ein kvennanna sem bera Packwood sökum. Konan, sem greindi Packwood frá nafni sínu en ekki almenningi, sagði að kvöld eitt hefði þingmaðurinn króað sig af til að segja klúra brandara. Eftir að hafa hlýtt á vitnisburð Hill gerði hún sér grein fyrir því hvað athöfn Packwood var „niðurlægjandi fyrir konur“. Ein afleiðingin af þessari vakningu var gengi kvenna í síðustu kosning- um. 18 konur eru nú nýliðar í full- trúadeild þingsins og fjórar í öld- ungadeildinni. Fulltrúadeildarþing- mennimir komu saman á mánudag og gáfu út sameiginlega stefnuyfir- lýsingu. Aukin vernd gegn kynferðis- legri áreitni var þar efst á baugi. Það er meðal fjölmargra sérréttinda þingsins að það lýtur ekki ákvæðum alríkislaga sem banna kynferðislega áreitni á vinnustöðum og eru þing- menn því undanþegnir eigin lögum. „Við erum þeirrar hyggju að við ættum að vera ábyrg rétt eins og allir aðrir,“ sagði Majorie Margolies- Mezvinsky, þingmaður frá Pennsyl- vaníu, eftir fundinn. „Það er ekki nóg að greiða atkvæði rétt.“ Heimildir: The Boston Globe, The New Republic, The New York Times, Newsweek Magazine, The Seattle Times, Time Magazine og The Wash- ington Post.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.