Morgunblaðið - 13.12.1992, Side 16

Morgunblaðið - 13.12.1992, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 Báknið vill öðlast eilíft líf FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir að verði ekki ráðist í niðurskurð ríkisútgjalda, eigi þjóðin aðeins tveggja slæmra kosta völs að stórhækka skattana, eða að velta sköttunum yfir á framtíðina. Hann telur líklegt að á næstu íjórum til fimm árum, eigi Islendingar að vera búnir að ná jafnvægi, bæði í viðskiptum við önnur lönd og í ríkisbúskapnum. eftir Agnesi Bragadóttur VOLD heilla, hvetja menn til dáða eða knýja þá til ódæðisverka, allt eftir því hver heldur um valdasprotann hverju sinni og við hvers konar aðstæður hann heldur um sprotann eftirsótta. Þetta sýnir sagan okkur, og vefengir sjálfsagt enginn, sem á annað borð hefur sótzt eftir völdum. En skyldi það nú vera eftirsóknarverður valdapóstur í ís- lenzka stjórnmálakerfinu, að fá að stjóma ríkisfjármálunum? Friðrik Soph- usson fjármálaráðherra hefur stýrt ríkisfjármálum íslendinga í rúma nítján mánuði, og þegar litið er yfir fjármála- ráðherraferil hans, verður nú ekki bein- línis sagt að fyrst komi upp í hugann einhver afrekaskrá fjármálaráðherrans í glímu hans við ríkisfjármálin. Strax um mitt sumar 1991 kom á daginn, að markmiðum ríkisstjórnarinnar í ríkis- fjármálum það árið yrði hvergi náð, eyðsla umfram telqur ríkissjóðs á fjár- lögum þessa árs er skelfileg og fátt bendir til þess að fjárlagafrumvarp árs- ins 1993 verði að lögum frá Alþingi án þess að markmiðum ríkissljómarinnar um 6 milljarða króna halla á ríkissjóði næsta árs verði varpað fyrir róða og hallinn verði tveggja stafa tala í millj- örðum talið, þegar upp verður staðið. Friðrik ræðir hér við blaðamann Morg- unblaðsins um það sem úrskeiðis hefur farið í fjármálasljórn ríkissljórnar Dav- íðs Oddssonar, hvar hann telur að árangur hafi náðst, greinir frá því sem hann telur vera helztu skýringar vand- ans og svarar því hvort hann telji yfir höfuð mögulegt að koma einhverjum böndum yfir útgjöld ríkisins. Höfundur og guðfaðir slagorðs ungra sjálfstæðis- manna, Báknið burt!, segist enn hafa fulla trú á að það sé framkvæmanlegt, þótt hann viðurkenni að vissulega sé þar um erfitt langtímaverkefni að ræða. Friðrik, það þarf ekki að líta á nema nokkrar stærðir úr ríkisfjármálun- um undanfarin ár, til þess að vera fljótur að komast að þeirri niður- stöðu að því fer fjarri að markmið- um ríkisstjómarinnar í ríkisbúskapnum hafi verið náð. Svo ég nefni eina skelfilega tölu máli mínu til stuðnings, sem ég tek beint upp úr leiðara Morgunblaðsins í dag (föstudag), þá er halli ríkissjóðs þijú undanfarin þjóðar- sáttarár samtals um 26 milljarðar króna - 26 þúsund milljónir króná. Getið þið stært ykkur af einhveijum raunverulegum árangri, á meðan svona tölur blasa við alþjóð, þótt þessi ríkis- stjóm beri ekki ábyrgð á nema hluta af halla- rekstrinum? „Já, ég tel að ríkisstjómin hafi í raun náð mjög miklum árangri og því til staðfestingar get ég bent á, að ef ekkert hefði verið að gert í ríkisfjármálum, þá hefði hallinn á ijárlögum næsta árs orðið á milli 20 og 25 milljarðar króna. Það sem hins vegar hefur tafíð þann bata sem við helzt hefðum viljað sjá, það er að segja að ná fullu jafnvægi í ríkisfjármálun- um, er að við höfum bæði orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna veltusamdráttar í þjóðfélaginu og einnig meiri útgjöldum sem stafa af sömu ástæðum, þ.e. auknu atvinnuleysi. Það er eng- inn vandi að sýna fram á, ef við skoðum að- gerðir ríkisstjómarinnar, miðað við þær for- sendur sem Iágu fyrir þegar ríkisstjómin tók við völdum, að ef þær hefðu staðizt, þá stæð- ust gjöld og tekjur á í fjárlagafmmvarpinu fyrir næsta ár. En síðan ríkisstjómin tók við, hefur ýmislegt breytzt: Álver er út af borðinu, a.m.k. í bili, þorskafli hefur stórkostlega dreg- izt saman, við höfum ákveðið að veita veruieg- um fjármunum til atvinnuskapandi fram- kvæmda, miklu meira fé gengur til Atvinnu- tryggingasjóðs og loks verðum við að taka til- lit til veltusamdráttarins. Ef ekkert af þessu hefði gerzt, þá hefðum við séð þann árangur í ríkisfjármálum á næsta ári sem að var stefnt í upphafi." — Samt sem áður. Því fer svo víðsfjarri að efnahagslegum markmiðum ríkisstjómarinnar hafi verið náð, og til þess að gæta nú réttlæt- is, markmiðum fyrri ríkisstjóma um langa hríð einnig. Segja staðreyndir málsins okkur ekki að þótt fjármálaráðherra tali um umtals- verðan árangur skortir mikið á til þess að hann sé sá sem þjóðin þarf á að halda í þeim efnahagslega öldudal sem hún nú er? „Það er alveg ljóst að útgjöld hér á landi em allt of há og hafa verið um langan aldur. Það sem þó er alvarlegast er að útgjöldin vorti langt umfram tekjur í mestu góðærunum. Þess vegna hefur það gerzt, að skuldir rfkisins hafa vaxið og nú á samdráttarskeiðinu þarf því að borga vexti af þessum skuldum ríkis- sjóðs, sem eru ógnvænlegar upphæðir. í ár emm við að borga 11 milljarða í vexti af skuld- um sem hafa hlaðizt upp á bestu ámm lýðveld- isins. Þegar þar að auki þarf að stíga á brems- una í svona erfiðu árferði, þá auðvitað syngur í saumum og brestur í böndum. En engu að síður verðurp við að meta árangurinn miðað við þá stöðu sem við erum í og því segi ég að hann sé umtalsverður. Á hinn bóginn er það rétt, að til þess að hann verði nægjanleg- ur og að komið verði í veg fyrir að við séum að velta skuldum yfir á framtíðina og sköttum yfir á bömin okkar og barnabörnin, þá þurfum við að taka miklu meira á heldur en við geram nú. Við skulum hafa það í huga, að það er ekk- ert sem bendir til þess að ástandið batni hér á landi á næstu tveimur til þremur ámm. Þvert á móti held ég að við íslendingar verðum að venjast þeirri hugsun að sú efnahagslega lægð sem við emm í, kunni að vara í tvö til þijú ár enn. Enn er ekkert sem bendir til þess að fiskveiðar geti orðið umtalsvert meiri á áranum 1994 og 1995 en þær em í dag og það er ekkert sem gefur vísbendingu um það í dag að við fáum tækifæri til þess að nýta orkuna okkar á þessu árabili. Því verðum við að vera búin undir lengri kreppu en við höfðum ætlað. “ — Er nokkur ástæða til þess að ætla, þegar við skoðum stjómmálasögu undanfarinna ára, að í fjárlagafmmvarpi ársins 1993, sem tekið verður til þriðju umræðu nú í vikunni, verði þínum markmiðum um að afgreiða fjárlögin með 6,2 milljarða halla náð og er nokkur ástæða til þess að ætla, hver sem niðurstöðu- tala fjárlaganna svo verður, að hún fái staðizt fremur en fyrri daginn? „Það er ekki viðunandi frá mínum sjónar- hóli að fjárlagaframvarpið verði afgreitt frá Alþingi með halla sem verður yfir 7 milljarðar króna. Ríkisstjómin og meirihluti fjárlaga- nefndar vinnur nú að því að ná hallanum niður í það sem hann var, þegar fjárlagafmmvarpið var kynnt í haust. Það verður mjög erfitt, en bráðnauðsynlegt engu að síður. Hitt er svo annað mál að þegar spurt er hvort þessi fjár- lög komi til með að halda, fremur en fjárlög undanfarinna ára, þá er því til að svara að það veit enginn á þessari stundu. Líklegast er þó að svo verði ekki, það skal viðurkennt. Því miður er það svo, að áætlanir hafa ríka tilhneigingu til þess að standast ekki. Ég hef af því áhyggjur að tekjurnar verði jafnvel enn- þá minni en ráð er fyrir gert og útgjöldin jafn- vel heldur meiri, því ef eitthvað er, þá sýnist mér að efnahagslægðin geti orðið enn dýpri og atvinnuleysi á næsta ári heldur meira en við emm að vonast til og okkar áætlanir ganga út frá. Það sem ég sé jákvætt við þann árangur sem við höfum náð, ef ég ber okkur saman við ríkisstjórnir fyrri ára, er að við höfum náð betri árangri í daglegum rekstri ríkisins, ríkis- fyrirtækja og stofnana, sem sézt meðal annars af því að áætlanir um rekstur og laun ríkis- stofnana standast nokkurn veginn. Raunar hefur launakostnaður ríkisins dregizt saman um sem nemur um 200 ársverkum á þessu ári. Þá má ekki gleyma þvi að þessi ríkisstjórn hefur ekki eingöngu verið að fást við vanda- mál líðandi stundar og vandamál næsta árs. Hún hefur á mörgum sviðum verið að koma í veg fyrir að skuldir haldi áfram að hlaðast upp til framtíðar. Ég nefni Lánasjóð íslenzkra námsmanna, en þar stefndi í stórkostlega skuldsetningu sem skattgreiðendur framtíðar- innar hefðu þurft að greiða. Við höfum einnig lagað eiginljárstöðu Byggingarsjóðs ríkisins, sem er nú trygg.“ — Sjálfstæðisflokkurinn, þar sem þú gegnir varaformennsku, hefur alla tíð viljað beijast fyrir því að ríkisfjármálin væra tekin föstum tökum. Þú ert sjálfur höfundur og guðfaðir fleygs slagorðs Sjálfstæðisflokksins: Báknið burt! Miðað við þann árangur sem náðst hefur í ríkisijármálunum, er þetta slagorð ykkar ekki hálf hjárænulegt? „Nei, það tel ég alls ekki. Ég bendi á það, að þrátt fyrir allt, em skattamir í heild sinni að lækka um þessar mundir. Það hljómar kannski ótrúlega, en það er satt.“ — En er ekki eina ástæða þess sú að tekj- umar em að lækka, þar sem landsframleiðsla hefur dregizt saman? „Jú, jú, það er hárrétt. En ef við lítum á útgjöld ríkissjóðs, sem var jú sá liður sem Báknið burt! beindist helzt gegn, þá hefur það þó gerzt á þessu kjörtímabili að í fyrsta skipti er tekið fast á því að selja opinber fyrirtæki og eirikavæðingin er hafín. Þar hefur þegar orðið nokkur árangur og verður væntanlega meiri á næstu árum. Þetta er auðvitað mjög erfítt við þær aðstæður sem nú ríkja í þjóðfé- laginu, á það skal engin dul dregin. Til saman- burðar vil ég geta þess, að sænski hægri flokk- urinn, undir stjóm Carls Bildts, var með stór- felldar hugmyndir um einkavæðingu og lofaði fyrir kosningar að selja fjöldann allan af sænskum ríkisfyrirtækjum. Nú hefur hann þurft að hverfa frá þeirri stefnu sinni um sinn í þeim erfiðleikum sem Svíar eiga í og eru á margan hátt samsvarandi og við eigum við að etja. Við réðumst hins vegar fyrr en Svíar gegn útgjaldauknaum í velferðarkerfinu og stöndum því betur að vígi en þeir.“ — Ertu að segja að hallarekstur ríkissjóðs sé bara eins og hann eigi að vera, eða hvað? „Síður en svo. En menn verða að átta sig á því þegar þeir em að ræða um hallann-á ríkisfjármálunum, að það verður að sundur- greina þann halla. Annars vegar er um hag- rænan halla að ræða, sem er sá hallarekstur sem verður til vegna þess að tekjurnar drag- ast saman, þegar veltan minnkar og útgjöldin vaxa, vegna aukins atvinnuleysis. Þessi halli hverfur um leið og ganga fer betur í þjóðarbú- skapnum. Hin ástæðan fyrir hallarekstri ríkis- sjóðs er mun alvarlegri og erfiðari viðureign- ar, en það er hinn kerfisbundni halli, sem er tilkominn vegna þess að Alþingi hefur sett lög og reglur um meiri og betri réttindi, kjör og bætur þegnunum til handa, án þess að greiðsla komi fyrir. Þjónustan kostar samt sífellt meira, það era æ fleiri sem njóta hennar og æ færri sem vinna fyrir kostnaðinum af henni. Þetta getur ekki endað nema með skelfíngu. Ef við bara tækjum lyfjakostnaðinn einan út úr þessu kostnaðar- og þjónustudæmi, þá er hægt að sýna fram á það, að ef vöxturinn í lyfjakostn- aði verður hinn sami og hingað til, þá færu öll íslenzku fjárlögin í lyfjakostnað eftir 20 til 30. ár. Þess vegna er svo mikilvægt fyrir okk- ur að við stöðvum þessa aukningu og það getur ekki gerzt nema með einum hætti: Að þeir sem njóta þjónustunnar borgi beint fynr hana í meiri mæli en þeir hafa hingað til gert. Við verðum að færa greiðslumar frá skatt- greiðendunum yfir til neytendanna, en það er einmitt það sem ríkisstjómin hefur verið að gera. Mikilvægasta kostnaðaraðhaldið felst nefnilega í verðskyni neytandans." — Þú ert sem sagt ennþá þeirrar skoðunar að Báknið burt! sé framkvæmanlegt. „Ég held aðjiað sé ekki hægt að stýra ríkis- fjármálum á Islandi í framtíðinni, nema að fylgja þeim hugmyndum sem lágu að baki slag- orðinu Báknið burt!. Öllum hlýtur að vera ljóst, að ef við tökum ekki á ríkisútgjöldunum, þá eigum við aðeins tveggja slæmra kosta völ: að stórhækka skattana, eða að velta sköttunum yfir á framtíðina, án þess að nokkur trygging sé fyrir því að þá verði auðveldara að eiga við málin, nema síður sé. Ég held sem betur fer að það sé vaxandi skilningur í þjóðfélaginu á því að við sem njótum lífsins í dag og gæða hinnar opinberu þjónustu eigum að greiða fyr- ir þessa þjónustu, en hvorki börnin okkar né barnabörnin. Við eigum að greiða okkar reikn- inga og fslendingar framtíðarinnar sína, svo einfalt er það. Auðvitað kostar þetta geysilegt átak og samstöðu. Það emm við og engir aðr- ir sem verðum að axla þessar byrðar.“ — Hver er skoðun fjármálaráðherrans á því

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.