Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992
19
ijrjgPMW'
I Kaupmannanom
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUQVELLI
OG Á RÁOHÚSTORGI
Háhyrningurinn Ódysseifur bitbein í Barcelona
HAGKAUF
gœði úrval þjónusta
LJOMÁ
vitamín tnijðrllki
Wh\m 10 *v a a
r-'W.lo
LJOM/
'iimiit Mntöríiii I
*> s u o u c* O
Kröfur um að hvalnum verði
sleppt á íslandsmiðum
Háhyrningurinn Ódysseifur I dýragarðinum I Bareelona
er orðinn að alþjóðlegu bitbeini og er þess meðal annars
krafist að hann verði aftur fluttur til fyrri heimkynna við
ísland þar sem hann sé að glata geðheilsunni í dýragarðs-
þrónni eftir að hafa skemmt gestum garðsins í 9 ár. Segir
frá þessu í enska blaðinu The European.
Verði þetta sjónarmið ofan á
yrði Ódysseifur fyrsta
sjávarspendýrið sem fangað hefur
verið til vistar í dýragarði sem
sleppt yrði aftur út í náttúruna,
að sögn European. Minna má þó
á að háhymingum hefur verið
sleppt áður úr sædýrasafninu hér-
lendis. Stjómendur dýragarðsins
era þó ekki á því að sleppa dýrinu
og segjast ekki óttast_ stríð við
dýraverndurarmenn. Ódysseifur
sé helsta aðdráttarafl garðsins og
hann vilji þeir ekki missa.
Hópur breskra vísindamanna
hefur varað við afleiðingum öllu
lengri vistar Ódysseifs í garðinum.
Þeir segja að hann gæti orðið
hættulegur vegna stöðugrar
streitu og líkamlegrar þjáningar í
lauginni sem sé af minni gerðinni.
Hafa þeir hvatt til þess að honum
verði sleppt aftur þar sem hann
var fangaður; við strendur ís-
lands. Undir það hafa umhverfis-
samtök og samtök dýravemdunar-
sinna tekið og sömuleiðis héraðs-
stjóm Katalóníuhéraðs. Stjómin
telur að slíkt yrði góð auglýsing
fyrir Barcelona og dýragarðinn.
Stjómendur dýragarðsins ráð-
gera hins vegar að senda Ódysseif
til hressingardvalar í stóru sjávar-
dýrasafni í Bandaríkjunum. Á
meðan hann er í burtu er áformað
að byggja nýtt sædýrasafn og mun
stærri laug fyrir Ódysseif við sjáv-
arsíðuna og útvega annan háhym-
ing svo hann hafi selskap þegar
hann kemur til baka. Áætlaður
stofnkostnaður við nýja safnið er
þrír milljarðar peseta eða 1,65
milljarður ÍSK.
Ödysseifur var fangaður við
strendur Islands fyrir 14 áram og
hefur verið helsta aðdráttarafl
dýragarðsins í Barcelona í 9 ár.
Hefur unnið hug og hjörtu gesta
vegna góðrar hlýðni við safnverði
sem hann hefur leyft að stinga
höfði og höndum ofan í kjaft sinn.
Háhyrningar era ekki árásar-
gjamir og taldir vera gáfaðastir
sjávardýra. Ódysseifur, sem orð-
inn er 16 ára, sex metra langur
og vegur 4,5 tonn, er hins vegar
orðinn fyrir löngu of stór fyrir
laugina sem hann er látinn dúsa
í. Er hann sagður fullur streitu,
hundleiður og sljór og þarfnat fé-
lagsskapar annarra háhyminga.
Ódysseifur er tekinn að sýna
vissa skapgerðarbresti og árás-
artilhneigingar. Minnugir slyssins
í Kaliforníu í fyrra þegar auðsveip-
ur háhyrningur missti stjórn á sér
og drekkti vörslumanni sínum
hafa stjómendur garðsins í Barcel-
ona gert ráðstafanir til að ekkert
af því tagi eigi sér stað. Starfs-
mönnum leyfist til dæmis -ekki
lengur að stinga höfðinu upp í
hann.
íslendingar fylgjast vel með
háhyrningafj ölskyldum?
Eins og áður segir hefur föngnu
og tömdu sjávarspendýri ekki áður
verið sleppt til náttúralegra heim-
kynna. Bresku samtökin BSPWD
sem beita sér fyrir vernd hvala
og höfranga segja að upplagt sé
að reyna það með Ódysseif. Fyrsta
skrefið yrði að flytja hann til sjáv-
ar í einhveijum íjarða íslands og
kenna honum að veiða fisk sér til
matar, eins og segir í The Europe-
an. Þar myndu sérfræðingar fínna
„fjölskyldu“ hans — íslendingar
fylgist vel með höfrangafjölskyld-
um sínum — og sleppa honum til
hennar. Til að fylgjast með hvem-
ig honum reiddi af yrði útvarpss-
endir festur við hann.
Deilunni um örlög Ódysseifs er
ólokið en framtíð hans er nú í
höndum sérstakrar nefndar sér-
fræðinga, að sögn blaðsins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ódysseifur spjallar við tvær íslenskar stúlkur, Elínu Tinnu og
Örnu, sem heimsóttu hann síðastliðið sumar.