Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13." DESEMbÉR" 1992"" Ættj örð mín kæra Myndin er tekin í afmæli frú Vigdísar 26. október 1947 á Iceland Restaurant á Broadway 1680 í New York. Talið frá vinstri: Frú Vig- dís, frú Dóra Þórhallsdóttir, frú Ágústa Thors, óþekktur, Thor Thors, Ásgeir Ásgeirsson og Hermann Jónasson. (Ljósm.: Planetary Photo.) Brot úrseinna bindi œvi- söguHermanns Jón- assonar forsœtisráÖherra Myndin er tekin á Nesjum í A-Skaftafellssýslu, þegar brúin yfir Jökulsá í Lóni var vígð. Talið frá vinstri: Hermann Jónasson, þá samgöngumálaráðherra, frú Vigdís Steingrímsdóttir, frú Bodil Begtrup, sendiherra Dana, Geir Zoega, vegamálastjóri og frú Ilólmfríður Zoega, Sigurður Jóhannsson, verkfræðingur vegamála- stjórnar og síðar vegamálasljóri og frú Stefanía Guðnadóttir og Jón Eiríksson, bóndi í Volaseli. (Ljósm.: Guðni Þórðarson.) Seinna bindi ævisögu Her- manns Jónassonar, forsætisráð- herra, sem Indriði G. Þorsteins- son hefur skráð, hefst árið 1939 við upphaf þjóðstjórnar, sem Hermann var í forsæti fyrir. Um það leyti gerðu þýskir nasistar kröfu til að fá lendingarleyfi hér á landi fyrir póst- og farþegaflug Lufthansa. Hitler þurfti ekki annað en skella hurðum á þessum tíma til að menn létu undan kröf- um hans um yfirráð yfir löndum og landsvæðum. Hermann Jónas- son hafði kjark til að neita um lendingarleyfi. Hann varð því fyrsti þjóðhöfðinginn í heimin- um, sem þorði að segja nei við Hitler. New York Times stað- festi þetta í forsíðufrétt. ttjörð mín kæra, sem er titiil þess- arar bókar, eru upphafsorðin í vísu, sem Her- mann Jónasson orti við skrifborð sitt í Stjómarráðinu, þegar hann var að fara frá völdum 1942 eftir að ljóst var að samstaða náðist ekki um stöðvun verðbólgu. Þessi titill á vel við Hermann Jónasson, líf hans og starf. Hann veitti þjóðinrii forystu á örlagatímum í sögu hennar, fram- sýnn, athugull og heill í hverri raun. Hann tók með skynsemi og geiglaust því sem að höndum bar, hvort heldur það var hemám eða sambandsslitin við Dani. Við birtum hér brot úr öðmm kafla bókarinnar: Minnihlutastjóm Framsóknar hafði setið við völd í um það bil ár með stuðningi Alþýðuflokksins án þess að Sjálfstæðisflokkurinn hreyfði hönd eða fót til að koma henni frá völdum. En alveg var ljóst að svo gat ekki staðið lengi. Það átti rætur að rekja til þess, að leiðtogar Fram- sóknar og a.m.k. Ólafur Thors, for- maður Sjálfstæðisflokksins, áttu í viðræðum á þessum tíma um hugsan- lega þjóðstjóm. í nokkum tíma hafði margt verið skrifað um svonefnt hægra bros Jónasar frá Hriflu. Og í Speglinum, sjálfu samviskubiti þjóðarinnar, birtist teikning af þeim Jónasi og Ólafí Thors, þar sem ðlaf- ur leiddi Jónas með hægra brosið og í maddömubúningi Framsóknar, þ.e. peysufötum. Þegar Skúli hvarf úr ríkisstjóm eftir ráðherradóm í rúm- lega ár, orti hann vísu: Ég sat eitt ár, en sumir voru skemur, þvi sæti það er regni og vindum háð, þó er ég fús að þoka fyrir þremur, sem þrá að komast upp í Stjómarráð. Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn gengu til samstarfs við framsóknarmenn um myndun þjóð- stjómar 18. apríl 1939. Sjálfstæðis- flokkurinn fékk tvo ráðherra en Al- þýðuflokkurinn einn. Óðum seig á ógæfuhliðina í Evr- ópu og almennt var vitað að styijöld varð ekki umflúin. Ástandið hér heima fyrir var erfitt í meira lagi. Útgerðin heimtaði gengislækkun. Svo var komið, að Hermann Jónasson lýsti því yfir á Alþingi 3. apríl að úr því yrði að fá skorið þá þegar, hvort Alþingi féllist á gengislækkun. Framleiðslan í landinu væri þannig stödd, að hún gæti ekki beðið lengur eftir því að fá leiðréttingu á skrán- ingu krónunnar. Þessu ástandi fylgdu uppkaup á vörubirgðum. Jafn- framt vikust innflytjendur undan því að kaupa inn vörur af ótta við að þurfa kannski síðar að greiða þær með breyttu gengi. Þá voru töluverð brögð að því að útflytjendur drægju að selja vörur úr landi. Þeir sem fluttu út frestuðu að skila gjaldeyri í von um gengislækkun. Allt kallaði þetta á tafarlausar úrlausnir. Þótt mikið hafi verið gert úr hægra brosi Jónasar frá Hriflu á þessum tíma, og hann hafi verið í umræð- unni, a.m.k. hjá forystu sjálfstæðis- manna, sem líklegur forsætisráð- herra, var þeim nugmyndum ekki til að dreifa hjá þeim Hermanni og Eysteini Jónssyni, sem höfðu orðið að bera hitann og þungann í brö- sóttu stjómarsamstarfi frá árinu 1934. Á árinu 1938 urðu þær breyt- ingar á forystuliði Alþýðuflokksins, að Héðinn Valdimarsson hvarf úr flokknum með lið manna, og mynd- aði með þeim Sigfúsi Sigurhjartar- syni og foringjum Kommúnistaflokks íslands Sameiningarflokk alþýðu — Sósíalistaflokkinn. Héðinn var kosinn formaður á stofnfundinum, en Brynj- ólfur Bjamason formaður flokks- stjómar og miðstjómar. Voru póli- tískir dagar Héðins brátt taldir upp úr þessu. En Héðinn hafði verið hið órólega afl í Alþýðuflokknum, og haft einna mest um það að segja, að Alþýðuflokkurinn hafnaði Jónasi frá Hriflu sem forsætisráðherra 1934. Þótt Alþýðuflokkurinn hefði þannig klofnað en héldi enn fast við þjóðnýtingarstefnu sína var samt orðið greiðara eftir brotthlaup Héð- ins að hefja viðræður um stjómar- myndun við flokkinn. Auðséð var að Hermann Jónasson ætlaði að hafa forystu um myndun nýrrar stjómar, hvað sem hægra brosinu leið. Hann leit svo á, að það væri í sínum verkahring að kanna það mál til hlítar með viðræðum um myndun þjóðstjómar við foringja borgaraflokkanna. Hálfum mánuði áður en þjóðstjómin var mynduð lýsti Hermann því yfir á Alþingi, að Sjálf- stæðisflokkurinn hefði gefið þau svör, að hann vildi taka þátt í slíkri stjómarmyndun, en nokkur skilyrði sem flokkurinn hefði sett væru ekki útrædd. Frá Alþýðuflokknum Iægi málið hins vegar ekki fyrir í því formi að afstaða hefði verið tekin til þess. Þetta orðalag bendir til að Alþýðu- flokkurinn hafí talið nokkra mein- bugi á þvi að fara í stjóm með flokk- unum báðum, Framsókn og Sjálf- stæðisflokknum. Framsókn gat myndað stjórn með hvomm flokk- anna einum, en taldi stérkast að mynda svonefnda þjóðstjóm, bæði vegna erfiðs ástands innanlands og stríðshættunnar, sem jókst með degi hveijum. í bók Matthíasar Johannessens um Ólaf Thors er lýsing eftir Ólaf á fundi Hermanns og hans eftir að Alþýðu- flokkurinn hafði gengið úr stjóminni 1938. Þar ræddu þeir margvíslega möguleika, m.a. vetrarkosningar, en fundur þessi var haldinn á haustdög- um. Hermann Jónasson léði ekki máls á vetrarkosningum en hafði uppi fjórar tillögur við Ólaf Thors. Hin fyrsta var að Framsóknarfiokk- urinn sveigðist til vinstri og myndaði stjórn með sósíalistum (Alþfl.) og kommúnistum. Hann tók fram að þennan möguleika dauðadæmdi hann sjálfur og svo mypdu flestir fram- sóknarmenn gera. Í öðm lagi að sós- íalistar og framsóknarmenn færu saman en þá stjóm taldi Hermann veika. í þriðja lagi væri um að ræða þjóðstjóm framsóknarmanna, sjálf- stæðismanna og Alþýðuflokks. Fjórði kosturinn væri Framsóknarflokkur- inn og Sjálfstæðisflokkurinn saman. Eftir nokkrar viðræður þeirra Hermanns og Ólafs kvaðst Hermann helst kjósa þjóðstjóm af þeim stjóm- armynstrum sem hann hefði talið upp og leitt hugann að. Rúmlega tvö ár væru til kosninga og margt það framundan sem yrði lítt fallið til vin- sælda en yrði þó að gera. Árangur yrði ekki kominn í ljós svo fljótt og því væri hyggilegt að hafa þá sem fæsta sem þyfti að beijast við í kosn- ingabaráttu. Af þeim ástæðum væri gott að hafa Alþýðuflokkinn með. Þau mál sem sérstaklega þyrfti að leysa væru fátækramálin, útvegs- málin og atvinnubótavinnan. Yrði Alþýðuflokkurinn utan við stjómina væri hætta á því að hann yrði alveg kommúnískur og samskipa Héðni. Því gæti hugsanlega komið til líkam- legra átaka. Ólafur taldi heppilegra að Framsóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn mynduðu stjóm, og bar við að í málflutningi sjálfstæðis- manna hefði ævinlega verið ráðist á sósíalista en Framsókn hlíft. Viðræður þeirra Hermanns og Ólafs, eins og þær em birtar í bók Matthíasar um Ólaf, eru merkilegar heimildir um þankagang helstu stjómmálamanna landsins á þessum tíma, þ.e. rétt fyrir upphaf seinni heimsstyijaldarinnar. Þegar hefur komið í ljós, að stjómmálaforingjar voru mjög varkárir, þegar erlend ríki áttu í hlut. Þeir voru einnig háðir viðhorfum landsmanna, og þau lágu þyngra á þeim á degi hveijum en hið erlenda brambolt, þótt íslensk vandamál væru ekki sambærileg við þær ógnir, sem vom í aðsigi annars staðar. Hermann upplýsti Ólaf um, a'ð Eysteinn Jónsson væri sama sinn- is; hann kysi helst að mynduð yrði þjóðstjóm. Langvarandi gjaldeyris- vandræði og innflutningshöft höfðu sett sín einkenni á þjóðlífið. Það lenti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.