Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 31 og enginn fékk að kaupa hús eða hótel á t.d. Park Avenue eða við Pacific Ocean nema að kunna að bera þau nöfn rétt fram. Seinna á lífsleiðini þegar ég sjálfur hóf að kenna ensku urðu mér þessar kennslustundir í ensku við spilaborð- ið á efri hæðinni minnisstæðar. Síðar á lífsbrautinni urðu sam- skiptin og heimsóknirnar stopulli, einkum eftir að ég flutti út á land. Þó var hugurinn hjá Doris í maíbyij- un 1967 þegar elsti sonur þeirra Hjálmar fórst í flugslysi. Það var henni þung raun sem og öðrum ætt- ingjum, og mér segir svo hugur að tíminn hafi aldrei að fullu sefað þá sorg. Vegna búsetu minnar í öðrum landsfjórðungi á ég þess ekki kost að fylgja Doris síðasta spölinn. Hjálmar, Eddý, Kathý og ættingj- um sendi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Hin langa þauta er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimman dauðans nótt. Geir Guðsteinsson. Á morgun, 14. desember, verður lögð til hinstu hvílu í Fossvogskirkju- garði elskuleg mágkona mín, Doris Walker Finnsson. Hún fæddist í Whitinsville í Massachusetts, Bandaríkjunum, dóttir hjónanna Mabelle og Hamilton Walker framkvæmdastjóra. Ekki naut hún þess að alast upp með föður sínum því hann lést þrem dögum áður en Doris fæddist. Systk- ini hennar voru Howard, sem er lát- inn, og Clare, sem býr í Bandaríkjun- um. Að loknu námi í menntaskóla hóf hún nám í hjúkrunarfræðum við Cornell-háskólann í New York. Því námi lauk hún 1943 og það sama ár hinn 6. nóvember giftist hún Hjálmari Finnssyni viðskiptafræðigi, sem þá starfaði í New York. Tveimur árum seinna komu þau í heimsókn til íslands. Sá þá Doris hluta af landinu. Þau fóru vestur á Hvilft í Öndunarfirði en þar bjuggu tengdaforeldrar hennar. Eg minnist þess hve fagurt sam- band varð milli þeirra og Dorisar. Þau elskuðu hana og virtu og það endurgalt hún í ríkum mæli. Það sama mátti segja um fjölskylduna alla. Mér eru einnig minnisstæð mörg fögur sumarkvöld á Hvilft þar sem hún var mikill gleðigjafi. Heim til íslands fluttu þau alkom- in 1948, en þá gerðist Hjálmar for- stjóri Loftleiða og seinna fram- kvæmdastjóri Áburðarverksmiðju ríkisins. Þau eignuðust þijú böm: Finn Thomas, sem lést í flugslysi við Vest- mannaeyjar 3. maí 1967. Hann stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla íslands. Hann varð öllum harmdauði er hann lést aðeins 22 ára að aldri; Edward Hjálmar, flug- stjóri hjá Flugleiðum; og Katherine Doris, húsmóðir og verslunarmaður. Hún býr í Bandaríkjunum. Barna- börnin eru sex og eitt langömmu- barn. Árið 1967 tók Fulbright-stofnunin til starfa hér á landi. Menningar- málafulltrúi bandaríska sendiráðsins fór þess á leit við Doris að hún tæki að sér starf forstjóra. Hún var for- stjóri stofnunarinnar frá 1957-1964, er hún lét af störfum vegna heilsu- brests. Við starfslok var hún heiðruð fyrir vel unnin störf. Doris var gáfuð og henni margt til lista lagt. Eitt af áhugamálum hennar var tónlist enda var hún góð- ur píanóleikari og munum við marg- ar yndislegar stundir á heimili þeirra hjóna er hún lék á píanó og gestir sungu þá gjaman með. Vinir bama hennar voru aufúsu- gestir á heimilinu að Vesturbrún 38 því þar var mikið hús- og hjartarúm. Þau þakka nú fyrir liðna tíð. Að leiðarlokum þakka ég og fjöl- skylda mín Doris fyrir yndislegar samvemstundir og þá ekki síst árin sem við bjuggum undir sama þaki. Hún heldur nú ljóssins hátíð með syninum kæra sem hún tregaði svo sárt. Guð varðveiti ástvini hennar alla. Hana fel ég himnaföðurnum að eilífu. Ragnheiður Finnsdóttir. Okkur langar með örfáum orðum að kveðja kæra vinkonu okkar, Dor- is Walker Finnsson, Vesturbrún 38, Reykjavík, er lést í Borgarspítalanum 8. desember sl. Fyrstu kynni okkar urðu árið 1973 er við þurftum, eins og allir Vestmanneyingar, að yfir- gefa heimabyggð okkar vegna eld- gossins, og hefur sú vinátta haldist síðan. Þá var það að elskuleg stúlka, vin- kona okkar, Guðrún Jónsdóttir, þekkti þessi heiðurshjón Doris og Hjálmar Finnsson, er bjuggu í Vest- urbrún 38, Reykjavík. Orðaði hún við Hjálmar hvort kæmi til greina að leigja þessari fjölskyldu neðri hæð í íbúð þeirra er stóð auð. Ekki stóð á svari Hjálmars, það var sjálfsagt. Þar með fluttum við inn í Vesturbrún 38. Doris, eins og hún var venjulega kölluð, var góður og traustur félagi, alltaf hress og kát þó hún hafl ekki gengið heil til skógar. Slík kona er vandfundin. Þó stöndum við frammi fyrir því að ein úr okkar hópi er fall- in frá og erum við að upplifa þann söknuð, sem fylgir því, frá okkar fyrstu kynnum. Við sendum okkar dýpstu samúð- arkveðjur til Hjálmars Finnssonar og allra ættingja. Minning um góða konu mun lifa meðal okkar. Sigurjón Sigurðsson, Anna Þorkelsdóttir, Viktor Sigur- jónsson, Karl Björnsson, Vestmannaeyjum. Ð FRÖNSKU hAMPANA FRÁ LE DAUPHIN LÝSA UPPIÓLIN - MIKIÐ ÚRVAL- le Qauphin FRANCE HEKLA LAUGAVEG1174 - SÍMAR 695500 695550 Við sýnum í dag og næstu daga hin frábæru leðursett frá NATUZZI Ítalíu. Rauð — blá — græn — bleik — lilla — brún — svört. Verð sem allir ráða við. Opid sunnudag frá kl. 14-17. Miúsgogn Ármúla 8, símar 812275 og 685375. __STEINAR WAAGE__ SKÓVERSLUN Jólagjöfin fyrir eiginmanninn Gjafakortin okkar eru góð, hentug og vinsæl jólagjöf Verð kr. 2.495,- Stærðir. 40-46. Lítin Svartur og vfnrauður. Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212 Herbergi meö baöi, síma, útvarpi, sjónvarpi og smábar. Upphituö útisundlaug — jarðgufubað — heitir pottar — nuddstofa — hárgreiöslu og snyrtistofa — ljósalampar. Fjölskyldufólk — einstaklingar Látiö okkur um amstriö og uppvaskiö. Njótiö samveru meö fjölskyldu og vinum. Samfelld skemmti- og hátíbardagskrá alla dágana frá 22 .des. - 3. jan. Gestgjafi hinn landskunni Sigurður Guðmundsson Upplýsingar og pantanir í síma 98-34700 - fax 98-34775 HÓTELÖCK HVERAGERÐl ♦ Pr. mann á dag í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli kr. 1.000 á dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.