Morgunblaðið - 13.12.1992, Side 39

Morgunblaðið - 13.12.1992, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 39 Helga Vilhjálmsdóttír kemmri — Minning Fædd 11. febrúar 1902 Dáin 9. desember 1992 Ég verð að fara, feijan þokast nær og framorðið á stundaglasi mínu. Sumarið með geislagliti sínu hjá garði farið, svalur fjallablær af heiðum ofan, hrynja lauf af greinum og horfmn dagur gefur byr frá landi. (Davíð Stefánsson) Það var vissulega orðið framorð- ið á stundaglasi „frænku“ og hún búin að skila miklu og farsælu ævistarfi. Helga var síðust til að taka feijuna yfir móðuna miklu af systkinum sínum. Helga Vilhjálmsdóttir var fædd 11. febrúar 1902 að Ölduhrygg í Svarfaðardal. Hún var dóttir hjón- anna Kristínar Jónsdóttur og Vil- hjálms Einarssonar. Árið 1904 fluttu þau hjón að Bakka í Svarfað- ardal og bjuggu þar til æviloka og eru ætíð kennd við þann bæ. Helga var fimmta í röðinni af átta systkinum sem upp komust. Bakkaheimilið var annálað rausnarheimili og var þar yfirleitt Fædd 12. júní 1917 Dáin 2. desember 1992 Þá er hún Ebba frænka flogin inn í aðra vídd. Hún Borghildur Péturs- dóttir eða Ebba, eins og flestir köll- uðu hana, var ein af fyrstu mann- eskjunum sem ég man eftir, þarna á Oddsstöðum á Melrakkasléttu þar sem ég fæddist og ólst upp að mestu fyrstu 6 ár ævinnar. Ebba, móður- systir mín, bjó þá myndarbúi með Sigurði heitnum Finnbogasyni og tveimur dætrum sínum Veru og Þorbjörgu, en sú þriðja, Guðrún, kom skömmu síðar. Þarna á Oddsstöðum, á hjara veraldar, var samt mikil mannleg hlýja og Ebba frænka var tvímælalaust sá aðili sem stuðlaði mest að henni. Ég var þarna með móðurömmu minni en ekki man ég annað en að Eþba hafi gengið mér einnig í móðurstað og ekkert gert upp á miili mín eða sinna eigin barna. Síðar meir kynntist ég henni sem manneskju og skildi þá hvernig hennar lífsspeki hafði án efa átt dijúgan þátt í því að allt viðmót hennar bar vott um kraft, ákveðni og gleði. Og hvernig hþn á óeigin- gjarnan hátt gaf af sér og mismun- aði fólki ekki í framkomu sinni. Hún gat verið með ákveðnar skoðanir en hún sá alltaf eitthvað jákvætt í öll- um, jafnvel hjá þeim sem flestir áttu erfitt með að sjá nokkuð jákvætt við. Ég minnist þess ekki að Ebba hafi nokkurn tíma kvartað, hvorki um heilsu sína eða erfitt heimili á hijóstrugri jörð. Ég man ekki eftir því að hún hafi látið hafa mikið fyr- ir sér, ekki einu sinni á efri árum þegar hún var búin að missa Sigurð bónda sinn og heilsunni fór hrak- andi. Ebba var ein af þessum sterku konum sem hafði yndi af tilverunni og gaf meir af sér en hún tók og þótti það sjálfsagður hlutur. Á Odds- stöðum var mjög oft gestkvæmt og þar var mikið sungið og hlegið bæði á norðurljósasveiptum vetrarkvöld- um svo og í birtu miðnætursólarinn- ar. Ebba var þar bæði hrókur alls fagnaðar og sá einnig um að allir hefðu allt til alls. Þótt hún væri þarna í tvöföldu hlutverki leysti hún þau af hendi með þvílíkri lipurð að það mætti halda að hún hefði ekk- ert fyrir því. Þetta var það andrúmsloft sem ég bjó við fyrstu árin og einnig síð- ar, þá að vísu um skemmri tíma. Þetta var sú Ebba sem ég kynntist mest og man best eftir. Þetta er sú Ebba sem ég sé svo mikið af f elstu dætrum hennar þremur og þeirri yngstu, Borghildi yngri, og eina syni hennar, Boga. Þetta var kona sem mannmargt. Það var því mikið um að vera og börnin snemma látin taka þátt í störfunum. Víst er um það að félagslíf stóð með miklum blóma í Svarfaðardal á uppvaxtarárum Helgu og á heim- ili afa og ömmu var mjög gest- kvæmt og margir dvöldu þar lang- dvölum, t.d. Jóhann beri. Einnig veit ég til þess að stundum var ungu fólki safnað saman úr dalnum og slegið upp balli á Bakka. Þannig var æskuheimili hennar ein allsheij- ar félags- og þjónustumiðstöð á nútímamælikvarða. Sannarlega eru slík heimili besta veganesti sem hægt er að fá fyrir lífið. Samheldni systkinanna var alla tíð mikil svo og afkomenda þeira. Helga braust ung til mennta og sýndi dugnað og áræði sem á þeirri tíð var óvenjulegur hjá ungum sveitastúlkum. Á þeim tíma var mjög fátítt að stúlkur færu utan til náms. Árið 1925 fór hún til Danmerkur að afia sér frekari menntunar í lýð- háskóla og síðan í handavinnunám. Þá fór hún 1927 til Noregs og nam við öll sem þekktum hana getum sagt af sannfæringu: „Þarna fór kona sem lagði meir-af mörkum til annarra en hún bað aðra um, fjölhæf og góð kona sem við erum öll þakk- lát fyrir að hafa kynnst og var sem vegvísir fyrir okkur á hinni vandröt- uðu braut gleði og hamingju. Hún gaf okkur mikið veganesti í lífinu og gerði það án þess að við eða jafn- vel hún sjálf tæki eftir því.“ En nú er hún farin úr þessari jarð- nesku tilvist. Þótt hún hafi átt við mjög þrúgandi sjúkdóm að stríða og þótt hún hafi verið fegin hvíldinni er alltaf erfitt fyrir okkur sem eftir sitjum að vita af því að einhver okk- ur kær er farin fyrir fullt og allt. Því er nauðsynlegt að trúa því að eitthvað haldi áfram, hvernig svo sem sú trú er. Fyrir þá sem trúa ekki á framhaldslíf væri gott að hugleiða eftirfarandi: Þótt dauðinn hafi svipt líkama Ebbu lífi þá munu gjörðir hennar í þessu lífi lifa áfram eftir dauða hennar og áhrif þeirra munu vara um ókomna tíð. Þessi langi vefur gjörða sem hún spann í lífi sínu verður ekki slitinn með dauða hennar. Þessi sannleikur krefst djúprar íhugunar en þrátt fyrir það er ekki víst að við skiljum til fulls hvernig ein gjörð birtist okk- við lýðháskólann á Voss, sem þá naut mikillar frægðar, og lærði þar handavinnu og kjólasaum. Kennsla varð hennar lífsstarf. Við heimkomuna var hún fyrst kennari á Ólafsfirði og síðan í daln- um. Hún hélt námskeið vítt og breitt um héraðið, m.a. í kjólasaum og saumuðu margar konurnar fyrsta kjólinn undir leiðsögn Helgu. Þá hafði Helga sérstaka unun af að sauma barnaföt og nutu margir ur í annarri. Þeir sem á hinn bóginn trúa á framhaldslíf gætu hugleitt þetta: Dauðinn hefur aðeins svipt líkama Ebbu lífi og hugurinn hefur enn einu sinni slitið fjötra sína sigri hrósandi, lokið upp dyrunum í átt til eilífðar, í átt til ljóssins. Hver svo sem trú okkar er þá skulum_ við ekki gráta yfir líkama Ebbu. í staðinn skulum við íhuga hvar rætur okkar liggja í þessum efnum og þá mun hljóðlát gleði lifna innra með okkur. Hún Ebba hefði viljað að við gerð- um einmitt það. Pétur Guðjónsson. t Eiginmaður minn og faðir, SIGURÐUR G. BALDURSSON, “DIDDI“, lést í sjúkrahúsi í Colarado í Bandaríkjunum 9. þessa mánaðar. Þórdís Sölvadóttir og börn. t Hjartkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, KATRÍN ÞÓRISDÓTTIR, sem lést í Borgarspítalanum aðfaranótt sunnudagsins 6. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 15. desember kl. 13.30. Þórir Hilmarsson, Kolbrún Þórisdóttir, Stefán Þórisson, Helga Þórisdóttir, Halla Þórisdóttir, Snorri Þórisson, Þórhildur Helgadóttir, Jón B. Guðlaugsson, Ragnhildur B. Traustadóttir, Kristján Ó. Ólafsson, Björgvin Bjarnason, og systkinabörnin. Borghildur Péturs- dóttir - Minning góðs af. Hún sendi marga kassana til Noregs eftir stríð af bamafatn- aði sem hún saumaði. Helga bjó á Bakka þar til hún varð handavinnukennari við Kvennaskólann á Blönduósi haustið 1942, gegndi hún því starfi til 1947 er hún gerðist kennari við Hús- mæðraskólann á Varmalandi í Borgarfirði. Á Varmalandi var hún kennari í tæp 20 ár eða til 1966. Helga var afar mikilhæfur kennari en gerði jafnframt kröfur til nemenda sinna, ekki síst til systkinadætra sinna sem allflestar fóm í skóla til frænku. Hún þótti e.t.v. full ströng við þær en hún vildi ekki að hægt væri að segja að hún hyglaði þeim umfram aðra nemendur. Eflaust hefur hún með þessu einnig viljað byggja upp í þeim áræði, þor og dugnað sem hún sjálf hafði svo mikið af, þetta tókst henni. Já, Helga var einstakur dugnaðarfork- ur og einng listamaður. Stundum var henni strítt á því að hún væri viðutan, en þá var hún e.t.v. djúpt hugsi yfir nýju handavinnumunstri eða kjólasniði. Helga sleppti ekki hendi af náms- meyjum sínum að skólanámi loknu, hún fylgdist með þeim flestum alla tíð. Það er alveg ógleymanlegur tími sem hún var gestur minn á Bíldu- dal, sumarið 1970. Hún tók stjóm- ina í sínar hendur. Við m.a. heim- sóttum fyrrverandi námsmeyjar hennar þar, fórum á sjó og einnig var mikið saumað. Það sýnir dugnað Helgu að árin 1960 og 1961 sækir hún námskeið í Noregi, Svíþjóð og Danmörku m.a. í föndri. Á þessum árum byij- ar að örla á breyttu hugarfari gagn- vart húsmæðraskólum og stúlkur vildu vinna annað en hvít- saumsdúka. E.t.v. var Helga einnig farin að huga að starfslokum, því að 1966 hættir hún á Varmalandi og flytur til Sauðárkróks. Hún keypti sér þar lítið hús á Hólavegi 7. Þar kenndi hún við Unglingaskól- ann einn vetur og var síðan með föndur- og handavinnukennslu á vegum Sauðárkrókskirkju í Safnað- arheimilinu svo og á Sjúkrahúsi Skagfirðinga fyrir eldra fólkið. Helga var lengst af heilsugóð og sá um sig sjálf í húsi sínu á Krókn- um, en hún naut einnig góðra granna þar. Árið 1990 fór hún á öldrunar- deild Sjúkrahússins á Sauðárkróki. Tryggð Helgu við sína fögru heima- byggð var mjög sterk og síðastliðið vor flutti hún aftur heim í dalinn sinn. Hún lifði síðustu mánuði á Dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík og hafði herbergi er sneri mót dalnum. Um svipað leyti og hún hefur kennslu á Blönduósi flytur hún lög- heimili sitt að fæðingarbæ sínum Ölduhrygg til Þorbjargar systur sinnar og Björns manns hennar. Mynduðust sérstaklega sterk tengsl milli Helgu og barna þeirra hjóna. Helga giftist ekki né eignaðist böm. Þó mátti með sanni segja að fáar konur væru bamfleiri. Hún lét sér ákaflega annt um börn systkina sinna 'og barnaböm og frændfólk. Ég átti því láni að fagna að vera systurdóttir hennar og reyndi um- hyggju hennar. Öll kölluðum við hana frænku og allir í ættinni vissu við hveija var átt þegar talað var um „frænku“ og segir það sína sögu. Langri og starfsamri ævi Helgu frænku er lokið. Hún hélt áræðinu, dugnaðinum og umhyggjunni fyrir ættinni til hinsta dags. Eftir lifir minningin um merka og mikilhæfa konu sem öllum vildi koma til nokk- urs þroska. Sigrún Magnúsdóttir. t Bróðir minn og föðurbróðir, PÉTUR JÓNSSON bifvélavirki, Norðurbrún 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. desember kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Jónsdóttir, Kristbjörg Stefánsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐNÝ ÁRNADÓTTIR, sem lést 5. desember sl. verður jarðsungin frá Neskirkju þriðju- daginn 15. desember kl. 13.30. Þorsteinn Davíðsson, Björg Þorsteinsdóttir, Davið Þorsteinsson, Janice Balfour, Halldóra Þorsteinsdóttir, Guðmundur E. Sigvaldason, barnabörn og langömmubarn. t Alúðarþakkir fyrir sýnda vináttu og samúð við andlát og útför föður míns, INGVARS HALLSTEINSSONAR frá Skorholti. Kristín Ingvarsdóttir og aðrir ættingjar. Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNU SÍMONARDÓTTUR frá Hofsstaðaseli, Hlfðarvegi 47, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks 12G, Landspítala. AnnaGuðmundsdóttir, Una Árnadóttir, Sigrún Árnadóttír, Guðmunda Árnadóttir, Árni Sigurðsson, Jóngeir Sigurðsson, Andri Árnason, Ólafur Ellertsson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.