Morgunblaðið - 13.12.1992, Síða 47

Morgunblaðið - 13.12.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR HÍTTÖHcfÍ { SUNNUDAGUR 13. [ICfAJHVRJOHOM DESEMBER 1992 47 SKIÐASTOKK Frægdin er fallvölt Nieminen hefuröðrum hnöppum að hneppa og keppirekki enn * ÁHUGAMENN um skíðastökk hafa sjálfsagt tekið eftir að Finninn fljúgandi, Toni Niemin- 1 en, var ekki á meðal keppenda á fyrsta heimsbikarmóti tíma- bilsins í skfðastökki, sem fór fram í Falun i Svíþjóð um síð- ustu helgi. Hann var ekki valinn í lið Finna, þar sem hann stóðst ekki prófið. Æfingar hafa setið á hakanum og er einbeitingar- leysið taiið afleiðing skyndi- legrar frægðar. Nieminen var þjóðarstolt Finna eftir Vetrarólympíuleikana í Frakklandi í byijun ársins. Hann sigraði með glæsibrag í skíðastökki af 120 m palli og var auk þess í ^ sigursveit Finna í liðakeppninni, en vann einnig til bronsverðlauna. Matti Nykanen hampaði þrennum á gullverðlaunum á Vetrarólympíu- ’ leikunum í Calgary 1988, en honum varð hált á svellinu. Arftaki hans, . sem var aðeins 16 ára í Albertville, * sagðist ekki hafa áhyggjur af freist- ingunum sem fylgdu frægðinni. „Eg veit hvemig á að bregðast við neikvæðu hliðunum sem fylgja frægð og frama og ég held að ég geti haldið áfram að lifa eðlilegu lífi,“ sagði Nieminen eftir sigur- stökkið í febrúar. Ungi skíðastökkvarinn hefur ekki getað staðið við stóm orðin. Fyrir skömmu tók hann þátt i stökkkeppni í Finnlandi, datt án þess að meiða sig og var fjari þeim sem stukku lengst. Matti Fulli, landsliðsþjálfari Finna, sagði að frægðin hefði haft áhrif á Niemin- en. „Það er ekki gott fyrir 17 ára óharðnaðan ungling að vera stöðugt í sviðsljósinu og auk þess eru gerð- ar allt of miklar kröfur til hans.“ Nieminen keypti sér nýlega bíl og í kjölfarið hefur lögreglan fylgst náið með honum til að gæta þess að hann bryti ekki af sér við stýrið á meðan hann væri með ökuskír- teini til reynslu. Nieminen kvartaði opinberlega vegna þessa eftirlits og sagði það hafa truflandi áhrif, en lögregían svaraði því til að mikil- vægt væri að hafa gætur á skíða- stökkvaranum, því hann væri fyrir- mynd og ungt fólk liti upp til hans. Pulli sagði að Nieminen væri undir miklu álagi. „Ennfremur eru freistingarnar margar og þeirra vegna getur hann ekki einbeitt sér að íþróttinni og æfingunum, en ég er vongóður um að hann komi aft- ur.“ GARÐATORG - GARBABÆ, SÉRVERSLANIR: OPIÐ LENGUR Laugardaginn 12. des. kl. 10-18 Sunnudaginn 13. des. kl. 13-17 Laugardaginn 19. des. kl. 10-22 Sunnudaginn 20. des. kl. 13-17 Þriðjudaginn 22. des. kl. 10-22 Þorláksmessu 23. des. kl. 10-23 Aðfangadag 24. des. kl. 9-12 ^ *Ven£é vcC&ovhcci CITIZEN Swift 24e litaprentari 24ra nála prentari. 216 stafir á sekúndu. Sérlega skemmtilegur í litaprentun úr MS- Windows. MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - Sírni 688944 - Fax 679976 Iaun og upphefð voru líka nægilegt keppikefli. Þuríður lá aftur eftir í | viðbragðinu, en síðan fór hún fram- úr hinum stúlkunum þrem, létt eins og hind, og sigraði örugglega á 11,2. Hinar stúlkumar komu allar í einum hnapp og fengu sama tíma, 11,4, svo sjónarmunur var látinn i ráða. Laugar 1946. Starfsíþróttir - stúlkur leggja á borð Ekki mátti kasta til höndunum. Það voru ekki afköstin sem skiptu máli heldur hnitmiðuð vinnubrögð, vandvirkni og smekkvísi. Enda var enginn handagangur í öskjunni þegar stúlkumar byijuðu, undir vakandi augum dómnefndarinnar og forvitnum augum áhorfenda. Einstaka flissaði eða glotti við tönn og þótti sportið lítilfjörlegt en slíkt gufaði fljótt upp. Menn komust strax að raun um acLþað var gam- | an að fylgjast með. Ekki var laust við að heimasæturnar væru ögn skjálfhentar og undirleitar, þær i gutu líka augunum hver á aðra. ■ Lilja Þórarinsdóttir minnist þess hve taugaóstyrk hún var fyrir Ikeppnina. Þegar á hólminn kom styrktust taugarnar fljótt og hún reyndi að gleyma því að salurinn var fullur af áhorfendum. Stúlkum- ar unnu þó hver á sinn hátt, en fumlaust og vel svo fólk fór að velta því fyrir sér hver myndi bera sigur úr býtum. Dauðaþögn var í salnum meðan stúlkumar lögðu dúkana á borðin, fægðu borðbúnað og lögðu á borðin, bmtu saman servíettur og skreyttu síðan herleg- heitin með blómum. Sveitamenn, vanir því að skófla í sig soðning- unni í snarheitum, ráku upp stór augu þegar stelpur sem hefðu getað verið af næsta bæ breyttu á svip- stundu venjulegu dóti í fagurlega skreytt veisluborð, hvert með sínu lagi. Ingibjörg notaði servíettubrot sem kallað er ljós, en borð hennar var almennt gestaboð. Guðríður braut servíettumar í búðarskó, enda var borðið hennar trúlofunarborð. I Fanney var ögn kankvís á svip og braut sínar servíettur svo þær líkt- ust biskupshúfum, enda var borð hennar fyrir herraboð. Servíettur Lilju við borð 4 vom í líki blæ- vængs, en borð hennar var páska- borð. Þegar Ásdís [Sveinsdóttir, hús- mæðrakennari] keppnisstjóri hafði skýrt borðin á þennan hátt fór nokkur kliður um salinn meðan beðið var eftir úrskurði dómnefnd- ar. Dómnefndin var skipuð þeim Ásdísi og Sólveigu Hagalínsdóttur. Allir dáðust að lipurð stúlknanna, smekkvísi og hugkvæmni og svo virtist sem flestir hölluðust að því að borð 2 og 4 væra einna best úr garði gerð. Þá var til þess tekið að Lilja á borði 4 hefði unnið hvað ömggast og fumlausast, hjá henni vom engin óþörf spor né handtök. Nú var þeim ungu piltunum sem flissað höfðu og glott orðið ijóst að hér vora á ferð meiri kvenkostir en annars staðar væri völ á og enginn á flæðiskeri staddur sem þær ættu. Dómnefndin átti í erfiðleikum með að gera upp á milli borðanna, en sem betur fór var stigagjöfín í föstum skorðum og því var þetta einfalt reikningsdæmi. Nefndin lauk miklu lofsorði á öll borðin en tilkynnti síðan að önnur verðlaun hlyti Guðríður Jónsdóttir fyrir trú- lofunarborð sitt, en í fyrsta sæti yrði Lilja Þórarinsdóttir með sitt smekklega og látlausa páskaborð. Eiðar 1952. „Ókey, við þangaðl“ Þegar íþróitakeppninni var að ljúka kom stór bíll branandi inn á svæðið, innanborðs var undarlega klætt fólk, síðhært og með hatta, hafði yfír sér annan blæ en var á flestum gestum staðarins. „Hvar getum við geymt græjumar, okkur vantar einhvem stað til að geta dressað okkur upp,“ var sagt og stjórnendur mótsins raku upp til handa og fóta til að útvega Hljóm- um og fylgdarliði mannsæmandi aðstöðu. Þeim var bent á skúr við völlinn nærri pallinum, þar væri aðsetur mótsstjóra, stjömumar gætu notast við hann. „Ókey, við þangað!" Þar hlupu fulltrúar hins nýja tíma beint í flasið á virðulegum og velklæddum eldri manni með hatt. Það var Þorsteinn Einarsson mótsstjóri, sem að sönnu átti meira undir sér á þessum stað en þessir kotrosknu krakkar. Honum þótti nóg um fyrirganginn og vandaði um fyrir þeim með nokkrum vel völdum orðum. „Heyrðu gamli minn, ertu eitthvað fúll?“ var svarið og þeir félagar tóku til við að und- irbúa sig fyrir ballið. Laugarvatn 1965. Úrslitaleikur í blakí Þá reis upp í stúkunni formaður H_SK, einbeittur á svip, og hrópaði: „Áfram HSK, áfram HSK!“ og klappliðið tók við sér sem aldrei fyrr. Hinn voldugi kór yfírgnæfði hróp Kjalnesinga sem þramudynur. Þetta verkaði sem vítamínsprauta á Skarphéðinsliðið og nú gerðist kraftaverk. Allt í einu hvarf ráð- leysið og þeir fóra að spila blak af miklum móð. Liðið sýndi sínar bestu hliðar og stigin komu hvert af öðra á HSK-töfluna. Þá skora Kjalnes- ingar sitt fjórtánda stig og skorti nú aðeins eitt stig til að gera út um leikinn. Hafi spennan verið mik- il áður, þá tvöfaldaðist hún við þetta og andrúmsloftið í salnum var bók- staflega rafmagnað. Hávaðinn var slíkur að húsið virtist leika á reiði- skjálfi. Skarphéðinsmenn tvíelfdust nú og sýndu landsliðsklassa. Bolt- inn gekk manna á milli af leiftur- hraða og býsna oft endaði hann í gólfi Kjalnesinga. Staðan var nú orðin 14:10 og allt gat gerst. Áhorf- endur litu hver á annan. Ætlaði þeim að takast hið ómögulega, að brúa þessa gjá? Og hinir vösku menn Skarphéðins sýndu hvers þeir vora megnugir, þeir höluðu inn hvert stigið á fætur öðra hægt og bítandi og að lokum var sextánda stigið í höfn og sigurinn þeirra. Allir urðu bókstaflega trylltir af fögnuði. Leikmenn stukku hæð sína í loft upp í öllum herklæðum og réðust svo á liðstjórann og tolleruðu hann.svo hann þaut marga metra í loft upp og er þó ekkert fís. Klapp- liðsmenn föðmuðust og dönsuðu villtan dans á bekkjunum. Langur tími leið áður en menn áttuðu sig á þessum ótrúlegu umskiptum þeg- ar töpuðum leik var breytt í glæst- an sigur.' Þennan sigur áttu Skarp- héðinsmenn allir með tölu, leikmenn og áhorfendur sýndu órofa sam- stöðu og sönnuðu það einu sinn enn að sameinaðir stöndum vér en sundraðir föllum vér. Kpflavík/Njarðvik 1984. mvmm SIEMENS Euroset 211 er framúrskarandi traust símtæki og hverrar krónu virði. • Borð- eða veggtæki • Hnappar fyrir ýmsar sérþjónustuaðgerðir Pósts og síma • Endurval á síðasta númeri »18 hnappa númeraminni • Skjár sem sýnir valið númer og samtalslengd • Stillanleg tíðni og styrkur hringingar • Símalás Verð aðeins kr. 6.200,- SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SlMi 28300

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.