Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 52
Verið tímanlega með jólapóstinn PÓSTUR OG SÍMI W*/ Reghibundiim _■_/• spamaður Landsbanki íslands MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SÍMBRÉF Sim 691100, sn 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Flugleiðir bjóða út tryggingar Náum fram verulegri hagræðingu - segir Einar Sigurðs- son blaðafulltrúi FLUGLEIÐIR hafa nýlega lokið sínu fyrsta útboði á tryggingum félagsins hér innanlands og hafa jafnframt endurnýjað flugvéla- tryggingar sínar erlendis. Flugvélatryggingar félagsins, sem eru um 90% af heildartrygging- um Flugleiða, eru boðnar út beint á erlendum markaði en frjálsar ábyrgðatryggingar, eigna-, bif- reiða- og slysatryggingar, voru boðnar út í lokuðu útboði með þátt- * töku fjögurra íslenskra trygginga- félaga og voru tilboð þeirra opnuð í síðustu viku. Er félagið þessa dagana að fara yfír tilboðin. Þetta er í fyrsta skipti sem Flug- leiðir bjóða út tryggingar félagsins hér innanlands en til þessa hefur það samið við eitt félag, Tryggingu hf. Félagið hefur hins vegar tryggt flugvélaflota sinn erlendis um nokk- urra ára skeið og endurnýjað þær með árlegu útboði. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi ^Flugleiða, sagðist gera ráð fyrir að útboðið hér á landi skilaði sér í lægri iðgjöldum og yrði félaginu til hagsbóta. „Við erum mjög sáttir við niðurstöðuna og náum fram verulegri hagræðingu en þetta er þáttur í viðleitni félagsins að koma á aukinni hagræðingu í rekstrin- um,“ sagði hann. Morgunblaðið/Kristinn Jólaljósin tendruð Kveikt verður í dag, sunnudag, á ljósunum á jólatrénu á Austurvelli. Tréð er gjöf Óslóar-borgar til Reykvíkinga, eins og rúm 40 undanfarin ár. Athöfnin á Austurvelli hefst kl. 16. Strax að henni lokinni skemmta jóla- sveinar yngstu borgurunum á Austurvelli undir stjóm Askasleikis. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra Halli á fjárlögum verði ekki meiri en ráðgert var 1 haust FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir að það verði ekki viðunandi, ef fjárlög næsta árs verða afgreidd frá Alþingi, með yfir sjö milljarða króna halla. „Ég er staðráðinn í því að þegar fjárlagafrumvarpið verður afgreitt nú fyrir jól, að það verði ekki afgreitt með meiri halla en við gerðum ráð fyrir í haust, og þá er ég ekki að segja að ekki geti skakkað 200—300 milljónum, en ekk- ert umfram það. Það kann að verða mjög erfitt að ná því markm- iði, en mér verður hvergi hvikað frá því. Þess vegna er fjárlaga- vinnunni alls ekki lokið, eins og ýmsir hafa verið að gefa í skyn,“ segir fjármálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í dag. Friðrik kveðst hafa áhyggjur af því tekjur næsta árs verði jafnvel ennþá minni en ráð er fyrir gert og útgjöldin jafnvel heldur meiri, „því ef eitthvað er, þá sýnist mér Rysking- ar á Höfn Á Höfn í Hornafirði flugust heimamenn á við hóp Vest- mannaeyinga aðfaranótt laugar- dags. Eftir lokun vínveitingahúss kom til ryskinga milli nokkurra heima- manna og áhafnar báts frá Eyjum. Lögregla sagði að menn hefðu ekki orðið alvarlega sárir, einn hefði nefbrotnað og einhveijir orðið aum- ir. að efnahagslægðin geti orðið enn dýpri og atvinnuleysi á næsta ári heldur meira en við erum að von- ast til og okkar áætlanir ganga út frá,“ segir hann. Hann telur því allt eins líklegt að halli ríkissjóðs á næsta ári verði meiri, heldur en niðurstöðutölur fjárlaganna komi til með að verða. Fjármálaráðherra hefur jafn- framt uppi efasemdir um að vaxta- stig geti farið lækkandi á næst- unni, þrátt fyrir markmið ríkis- stjómarinnar í þá veru. Sjá ennfremur viðtal við Frið- rik Sophusson: Báknið vill öðlast eilíft líf, bls. 16. Ovissa um afgreiðslu samningsins um Evrópska efnahagssvæðið á Alþingi Fundurinn í Sviss ein- faldar meðferð málsins - sagði Björn Bjarnason að loknum fundi utanríkismálanefndar í gærmorgun EKKERT samkomulag lá fyrir milli stjórnar og stjórnarandstöðu um þingmeðferð EES-málsins upp úr hádegi í gær þegar Morgun- blaðið fór í prentun og var ekki vitað hvenær önnur umræða um frumvarpið um evrópskt efna- hagssvæði hefst á Alþingi. Utan- ríkisráðherra flutti þinginu skýrslu um niðurstöður fundar ráðherra EFTA-ríkjanna síðdegis og síðan urðu umræður um hana. Björn Bjarnason, formaður utan- ríkismálanefndar, sagði eftir fund nefndarinnar í gærmorgun að komið hefði fram eftir ráðherra- fundinn í Genf að nú sé mun ein- faldara að taka afstöðu til málsins en áður var talið og því þyrfti afgreiðsla hans ekki að verða tímafrek. Geir H. Haarde formað- ur þingflokks sjálfstæðismanna tók í sama streng. Utanríkismálanefnd muni fara yfír ögfræðilegt álit á þeim gögnum sem utanríkisráðherra lagði fram af ráð- herrafundinum á mánudag og segir Björn eðlilegt að farið sé yfir þessa formlegu hlið áður en efnisumræðan um samninginn hefjist á ný en að því búnu sé þingmönnum ekkert að vanbúnaði að hefja lokaafgreiðslu málsins á þinginu. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- Utanríkismálanefnd fundar Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kynnir niðurstöður ráðherrafund- ar EFTA fyrir utanríkismálanefnd í gærmorgun. isráðherra sagði í gær að EFTA-rík- in hefðu þegar sett tillögur á blað um innihald viðbótarbókunar um tæknilegar breytingar sem þarf að gera á samningnum og fela þær í sér að engar breytingar verði gerðar á samningnum sjálfum heldur verði þau ákvæði, þar sem vikið ér að. Sviss, gerð óvirk, þ.e. sett til hliðar. Jón Baldvin benti á að í dag færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla um EES-samninginn í Liechtenstein og að búist væri við að honum yrði hafn- að þar. Þá standi þau EFTA-ríki sem semji viðbótarbókunina frammi fyrir því að Alþingi væri eina EFTA-þing- ið sem ætti eftir að staðfesta samn- inginn. „Ef við viljum hafa hrein svör varðandi innihald bókunarinnar þurfum við að afgreiða samninginn," segir hann. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem sæti á í utanríkismálanefnd, sagði eftir fundinn í gær að þótt það gæti verið einfalt fyrir EFTA-löndin að gera tæknilegar breytingar á samn- ingnum væri því ósvarað hvað EB- ríkin hygðust gera. Hún sagði það sína skoðun að nægilegt væri fýrir Alþingi að ljúka annarri umræðu um samninginn fyrir ráðstefnu stjómar- erindreka EB og EFTA sem halda á í janúar en Iáta þriðju umræðu bíða fram yfír þann fund. DAGAR TIL JÓLA Dómur Hæstaréttar í BHMR-deilunni 3 dómararviku vegna tengsla ÞRIR hæstaréttardómarar viku sæti, vegna tengsla við málið, þegar Hæstiréttur kvað upp úrskurð sinn í máli BHMR gegn ríkinu um lög- mæti bráðabirgðalaganna sem felldu úr gildi kjarasamning BHMR frá því í maí 1989. Af þeim þremur dómurum sem kvaddir voru til í þeirra stað var einn, Stefán Már Stefánsson, prófessor, félagi í Félagi háskóla- kennara sem á aðild að BHMR en hann var talinn hæfur þar sem fé- lag hans átti ekki aðild að samningnum. Málið dæmdu hæstaréttardómar- amir Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur Torfason, Hrafn Bragason og Þór Vilhjálmsson, en auk þeirra vom kvaddir til Freyr Ófeigsson dóm- stjóri, Stefán Már Stefánsson pró- fessor og Sveinn Snorrason hrl. Þeir Þór og Sveinn skiluðu sem kunnugt er sératkvæði um málið og vildu stað- festa héraðsdóm. Gunnar M. Guðmundsson vék sæti vegna þess að sonur hans hafði undirritað bréf frá fjármálaráðu- neyti, þar sem svarað var fyrirspum- um um málið frá ríkislögmanni. Pét- ur Kr. Hafstein vék sæti vegna þess að hann tjáði sig um bráðabirgðalög- in í blaðagrein 1990. Haraldur Henr- ysson vék sæti vegna þess að hann var tengdur áfrýjanda í málinu. Það hefur vakið spumingar að Stefán Már skyldi dæma málið. Hann taldist hæfur vegna þess að Félag háskólakennara stóð utanvið „sam- flot“ BHMR félaga sem gerðu kjara- samninginn í maí 1989. Sjá „Hæstiréttur gagnrýndur" bls. 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.