Morgunblaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
29.tbl. 81. árg.
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Marita Petersen lögmaður Færeyja
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Með fullfermi til Eyja
3.000 TONN af loðnu bárust til Eyja í gær og er það fyrsta
loðnan sem landað er á vertíðinni. Fjórir bátar komu með
þennan afla, sem landað var hjá fiskimjölsverksmiðju Vinnslu-
stöðvarinnar. Sighvatur Bjarnason kom með fullfermi í gær-
morgun en um hádegi komu Jón Finnsson, Huginn og Kap,
allir með fullfermi. Sigurður Friðbjömsson verksmiðjustjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrsta loðna vertíðarinn-
ar bærist óvenju seint, en í fyrra kom fyrsti farmurinn 6.
janúar. Fiskimjölsverksmiðja Vinnslustöðvarinnar greiðir nú
4.000 krónur fyrir tonnið en verð er lægra á Austfjarðahöfn-
um, en þar er löndunarpláss einnig farið að minnka. Á mynd-
inni sést Huginn VE koma til hafnar í Vestmannaeyjum í gær
í blíðskaparveðri. Báturinn fékk farminn í fáum köstum á
miðvikudagskvöld.
Sjá nánar um loðnuveiðina á bls. 21
Þórshöfn. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
MARITA Petersen, lögmaður Færeyja, segir að þó erfitt sé
að spá um framtíðina muni það hugsanlega taka 10-15 ár áður
en færeyskt efnahagslíf hefur náð sér að fullu á strik á ný.
„Næstu ár verða ótrúlega erfið. En það er mikilvægt að við
tökum á vandanum þegar í stað. Það verður að skapa grund-
völl fyrir efnahagsbata þannig að fólk geti fyllst bjartsýni.
Ég held Iíka að við séum það þrjóskir Færeyingar að við gef-
umst ekki upp,“ sagði Petersen við Morgunblaðið í gær.
Hún sagði að deila mætti um
hvort stjórnmálamenn hefðu verið
einum of iðnir við að ráðast í fjár-
frekar fjárfestingar af ýmsu tagi,
s.s. í samgöngumálum en að henn-
ar mati hefðu lántökur einkaaðila
á níunda áratugnum líka verið allt
of miklar. Færeyingar hefðu ein-
faldlega lifað um efni fram.
Búist er við að atvinnuleysi, sem
nú mælist um 16%, fari fljótlega
upp í 20%. Petersen sagði að hrun
færeyska bankakerfisins í október
í fyrra hefði komið mjög á óvart.
Mönnum hefði ekki verið ljóst
hversu alvarleg staða bankanna var
í raun. Aðspurð hvort erfiðleikar
Sjóvinnubankans í síðustu viku
hefðu einnig komið mönnum í opna
skjöldu sagði hún að menn hefðu
ekki búist við að grípa þyrfti til
nýrra aðgerða svo skjótt og að um
jafn háar fjárhæðir yrði að ræða.
Undirbúningur hafinn fyrir fund Bills Clintons og Borís Jeltsíns
Forsenda þess að hægt væri að
vinna bug á vandanum til lengri
tíma væri að lífskjör yrðu skert og
hugsanlega einnig að fólk breytti
um hugsunarhátt, sagði Petersen.
Þýskaland
Vextir
lækka
Frankfurt. The Daily Telegraph.
ÞÝSKI seðlabankinn lækkaði í
gær vexti óvænt úr 9,5% í níu af
hundraði og millibankavexti um
fjórðung úr prósenti. Margir teþ’a
að of háir vextir í Þýskalandi séu
ein helsta orsök efnahagskrepp-
unnar í fiestum aðildarríkjanna.
Fyrstu viðbrögð á fjármálamörk-
uðum væru jákvæð en sérfræðingar
töldu að lækkunin væri of lítil til
að skipta sköpum, meira þyrfti til.
Hin ríki Evrópubandalagsins hafa
sakað Þjóðveija um að skeyta ekk-
ert um afleiðingamar af hárri vaxta-
stefnu, þeir hugsi aðeins um eigin
hag. „Ég er viss um að allur þing-
heimur fagnar því með mér að
vaxtalækkun hefur orðið í Þýska-
landi — þetta hefði að mínu viti átt
að gerast allmiklu fyrr,“ sagði Nor-
man Lamont, fjármálaráðherra
Bretlands, á þingfundi í gær.
GM greiði
hjónum sex
milljarða
Atlanta. Reuter.
DÓMSTÓLL í Atlanta í
Bandaríkjunum dæmdi i gær
General Motors, stærsta bíla-
fyrirtæki Bandaríkjanna, til
að greiða hjónum, sem misstu
son sinn í bílslysi, 101 milljón
dala, 6,5 milljarða króna.
Sonur hjónanna var í pallbíl
frá GM og lenti í árekstri. Dóm-
stóllinn komst að þeirri niður-
stöðu að hönnunargalli hefði
valdið því að eldur blossaði upp
í bílnum og olli dauða sonarins.
Reykjavík á listanum
- segir blaðafulltrúi Rússlandsforseta í samtali við Morgunblaðið
„ÉG GET staðfest að Reykjavík er einn
þeirra staða sem er á listanum yfir hugs-
anlega fundarstaði næsta leiðtogafund-
ar,“ sagði Anatólíj Krasíkov, blaðafulltrúi
Borís Jeltsíns Rússlandsforseta, í samtali
við Morgunblaðið í gær. í nýjasta hefti
bandaríska tímantsins U.S. News and
World Report segir að sennilega verði
fundur leiðtoga risaveldanna haldinn í
Reykjavík fyrir maílok og fullyrti sá sem
fréttina ritaði í samtali við Morgunblaðið
í gær að hann hefði áreiðanlejgar heimild-
ir fyrir því að höfuðborg Islands væri
efst á lista Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta. Aðrar heimildir Morgunblaðsins
herma að ekki sé líklegt að leiðtogafund-
ur verði endurtekinn í Reykjavík nú þó
svo endanleg niðurstaða liggi ekki fyrir.
Anatólíj Krasíkov sagði að ekki hefði verið
ákveðið enn hvar eða hvenær Jeltsín og Clinton
myndu hittast. Verið væri að ræða þessi mál
og enn hefðu engar ákvarðanir verið teknar.
Nokkrir fundarstaðir kæmu til greina og Reykja-
vík væri einn þeirra. Hann vildi ekki tjá sig um
það hvort það hefðu verið Rússar eða Bandaríkja-
menn sem komu Reykjavík á framfæri að þessu
sinni.
Clinton og Jeltsín
Ólafur Egilsson, sendiherra í Moskvu, segir í
samtali við Morgunblaðið að ekki þyrfti að
koma á óvart ef Jeltsín vildi halda fund í
Reykjavík því það hefði komið fram er Ólafur
hitti forsetann árið 1991 og síðar að hann
hugsaði hlýlega til íslands.
Reykjavík efst á lista Clintons?
Upprunalega birtist ávæningur af því að Clint-
on og Jeltsín hygðu á leiðtogafund á íslandi í
tímaritinu U.S. News and World Report í þess-
ari viku. Þar sagði í dálkinum „Pískrað í Was-
hington" að „svo vel hefði farið á með“ Clinton
og Jeltsín í tíðum símtölum að Bandaríkjafor-
seti vildi að sín fyrsta utanlandsferð yrði til fund-
ar við Rússlandsforseta fyrir maílok og sennilega
yrði fundurinn haldinn í Reykjavík.
„Reykjavík er efst á lista," sagði Charles Feny-
vesi, umsjónarmaður dálksins, í samtali við
fréttaritara Morgnnblaðsins í Boston. Fenyvesi
kvaðst í gær hafa það eftir „öruggri heimild í
Hvita húsinu“ að „aðrar borgir kæmu til greina,
en forsetinn kysi helst Reykjavík“. Að sögn heim-
ildarmanns Fenyvesis verður fundurinn á íslandi
nema Rússar vilji halda hann annars staðar.
„Clinton vill að fram komi að það hafí for-
gang að hitta Jeltsín," sagði Fenyvesi. „Hann
vill styrkja stöðu Jeltsíns."
Clinton er mjög í mun að sýna fram á það
að reynsluleysið hamli honum ekki í utanríkis-
málum og telur því brýnt að fyrsti leiðtogafund-
ur þeirra Jeltsíns gangi að óskum. í áðurnefnd-
um dálki tímaritsins U.S. News and World Rep-
ort segir að það sé aukin ástæða fyrir Clinton
að Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti,
hafi „á leiðtogafundinum í Reykjavík árið 1986
beðið skipbrot í fjölmiðlasamskiptum, hann virt-
ist lenda í vöm er Míkhaíl Gorbatsjov [fyrrum
Sovétleiðtogi] lagði fram tiilögur um mikla fækk-
un kjarnavopna."
Hvorki fulltrúar Rússlands né Bandaríkjanna
hafa rætt hugsanlegan leiðtogafund hér á landi
við íslensk stjórnvöld.
Við gætum þurft
10-15 ártilað
ná okkur á strik