Morgunblaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993 Nýbygging við gömlu kirkjuna HAFIN er bygging safnaðarheimilis og tónlistarskóla í Hafnarfírði og hefur byggingunum verið valinn staður við hlið Hafnarfjarðarkirkju. Gengt verður í kirkjuna úr safn- aðarheimilinu en tónlistarskólinn og söfnuðurinn munu samnýta aðalsalinn. aðarstarfið og verður mikill munur að fá þessa aðstöðu," sagði Sigþór. Fokhelt í árslok Hagvirki-Klettur sér um bygg- ingarframkvæmdimar og skal byggingin fokheld og lóð frágengin í lok þessa árs. Sigþór sagði að áætlað væri að húsið yrði tilbúið að innan á árinu 1995. Hafnar- jjarðarbær og söfnuðurinn fjár- magna fyrsta áfanga byggingar- innar en söfnuðurinn stendur einn undir kostnaði við innréttingar safnaðarheimilisins. Að sögn Sigþórs J. Sigurðsson- ar, formanns byggingamefndar, er byggingin gerð eftir verðlauna- teikningu hjónanna Sigríðar Magnúsdóttur og Hans-Olavs And- ersens, sem bæði em arkitektar. „Við emm ánægðir með útlit hússins, það mun falla vel inn í umhverfíð þama. Kirkjan verður 80 ára á næsta ári og það er mik- ill vandi að byggja við hlið svo gamals húss svo vel fari en ég tel að hér hafi það tekist með ágæt- um. Þessi bygging mun efla safn- Ljósmynd/Emilía I notkun eftir 2 ár Unnið er að byggingu safnaðarheimilisins og tónlistarskólans í Hafnarfírði um þessar mundir og er áætlað að húsið verði tilbúið að innan á árinu 1995. Sturlaugur í slipp Akranesstogarinn Sturlaugur H. Böðvarsson var tekinn í slipp hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík í gær. Skemmdir em á botni skipsins á mörgum stöðum að framan, eins og sést á myndinni, og em skemmd- imar heldur meiri en skipveijar bjuggust við. Sturlaugur H. Böðvars- son sigldi inn til Ólafsvíkur á þriðjudag þegar leki kom að skipinu en það hafði tekið niðri á grynningum við Snæfellsnes á mánudagsmorg- un. Nokkur olíumengun varð í Reykjavíkurhöfn þegar skipið var tekið þar í slipp. Innflutningur sjávarafurða tíl Evrópubandalagsins Tillaga um tolla- ívilnanir í 6 mánuði Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) hyggst leggja fram tillögur um sérstaka innflutningstolla á tilteknum sjávarafurðum til að mæta þeim töfum sem orðið hafa á því að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) taki gildi. Fyrst í stað er gert ráð fyrir sex mánaða tímabili sem hefst 1. apríl en verði EES ekki orðið að veruleika að því loknu yrði það lengt um þijá mánuði eða fram að áramótum. Þessir innflutningskvótar eru öllum opnir í þeirri röð sem sótt er um. Tillögur framkvæmdastjómar- innar sem voru samþykktar á fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna á mið- vikudag fela í sér tvenns konar kvóta fyrir blautverkaðan saltfísk. Annars vegar verður heimilt að flytja inn rúmlega 6.500 tonn á 3,7% tolli og hins vegar 33.300 tonn á 5% tolli. Tillögumar gera ráð fyrir heimild til að flytja inn 2.000 tonn af söltuðum flökum á 9% tolli. Sérstök bókun við EES- samninginn gerir ráð fyrir að þess- ar vörutegundir auk annarra verði íslenzku hasssmyglaramir í Þýzkalandi eru enn í varðhaldi ytra Ætluðu að fela hassið í togara f SLENDINGARNIR tveir, sem lögreglan í Bremerhaven í Þýzka- landi handtók aðfaranótt mánudags, eru enn í gæzluvarðhaldi í Þýzkalandi og hefur mál þeirra verið sent þarlendum saksókn- ara tU meðferðar. Mennirnir hafa játað við yfirheyrslur að hafa ætlað að smygla 13,5 kílóum af hassi, keyptu í Amsterdam, til íslands með fiskiskipi. Efnið ætluðu þeir að fela í vélarrúmi með leynd og sækja það er skipið kæmi aftur til íslands. Að sögn lögreglunnar í Bremer- haven hafa Islendingar borið við yfírheyrslur að hafa flogið til Lúx- emborgar og leigt sér bifreið. Þeir óku til Amsterdam og eftir að hafa komið sér í samband við fíkniefna- sala þar í borg keyptu þeir hassið, komu því fyrir í pakka í farangurs- geymslu bifreiðarinnar og óku til Bremerhaven. Ekki vitorðsmenn í skipi Mennimir hafa borið að hafa báðir verið til sjós og að þeir hafi vitað að íslenzk skip lönduðu oft í Bremerhaven. Þeir hafí ætlað að laumast um borð í eitthvert þeirra, fela hassið í vélarrúminu, fljúga heim til íslands aftur og sækja pakkann með leynd er skipið kæmi til heimahafnar. Lögreglan í Brem- erhaven telur að mennimir hafí ekki verið búnir að ákveða hvaða skip yrði fyrir valinu og að þeir hafí ekki átt neina vitorðsmenn í íslenzku skipi. Mennimir voru síðan stöðvaðir í reglubundnu eftirliti lögreglu við höfnina í Bremerhaven. Er þeir vom spurðir um skilríki og skrán- ingarskírteini bifreiðarinnar, urðu þeir mjög óstyrkir og sögðu skjölin vera í farangursgeymslunni. Þeir opnuðu geymsluna en reyndu um leið á áberandi hátt að fela pakka, sem þar var, og fór ekki framhjá lögreglumönnum að ekki var allt með felldu. tollfijálsar innan EES. Reiknað er með því að heimilt verði að flytja inn hlutfallsiega sama magn síð- ustu þijá mánuði ársins hafi EES ekki verið afgreitt fyrir þann tíma. Að sama skapi verða tollar þessa þijá mánuði þeir sömu og sex mánuðina frá 1. apríl. Hagstæðar tillögur Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Sölusambandi íslenskra fiskframleiðenda í gær eru þessar tillögur heldur hagstæðari en þeir innflutningstollar sem giltu hjá EB síðasta ári. Tollur af söltuðum flök- um yrði þó sá sami og var í gildi frá 1. apríl til 31. desember í fyrra eða 9% og og um hlutfallslega sama magn að ræða nú. Á sama tímabili í fyrra var heimit að flytja inn 60 þús. tonn af blautverkuðum salt- fiski á 6% tolli. Nú er hins vegar lagt til hlutfallslega svipað magn fyrir sex mánaða tímabil en tollpró- sentan er hins vegar lækkuð tals- vert frá síðasta ári. Ekki lágu fyrir upplýsingar um hvað sú tollalækk- un gæti þýtt í auknum útflutnings- tekjum ef tekst að flytja út allt það magn sem framkvæmdastjórnin leggur til að verði heimilað. Tillögur framkvæmdastjórnar- innar verða lagðar fyrir ráðherra- fund EB um leið og búið er að ganga frá þeim en ósamkomulag er um texta vegna tengslanna við EES. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins eru taldar góðar líkur á því að ráðherraráðið samþykki til- lögumar. Flugvallarbrautin brátt úr sögunni Borgarráð hefur samþykkt að loka Flugvallarbraut, einstefnu- götu sem liggur frá Hótel Loft- leiðum um Vatnsmýrina og upp á Vatnsmýrarveg. Lítil umfei-ð hefur verið um götuna undanfar- in ár. Líklega muna sumir helzt eftir henni vegna þess að margur ungur ökumaður á kvöldrúnti hefur gefíð í og látið farþegana hossast á ræsinu, sem er á miðri Flugvallarbrautinni, eða jafnvel freistað þess að ná bílnum á flug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.