Morgunblaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 44
44 M0RGUN3LAÐIÐ FOSTUDAGUR 5, FEBRUAR 1993 mnmm Hvað heldurðu að gagni að Þetta ætti að kenna þér að gera auglýsa eftir kisunni okkar. ekki grín að karate-hæfni Hún kann ekki að lesa! hennar mömmu! HOGNI HKEKKVISI BRÉF TEL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811 Yfirlýsing Dagsbrúnar- manna í Stálsmiðjunni Frá Arna H. Kristjánssyni: Við sem vinnum í Slippnum (verkamenn í dráttarbrautum, deild 4 í Stálsmiðjunni) höfum lent í þeim hremmingum eins og margir aðrir, að það er verið að lækka við okkur kaupið. Sérkjarasamningur sem tryggir okkur 5 tíma í eftirvinnu á viku hefur verið brotinn. Kjör okkar hafa skerst verulega og því höfum við snúist til vamar. Hinn 4. mars 1988 var undirrit- aður samningur milli Vinnuveit- endasambands íslands (VSÍ), Slippfélagsins í Reykjavík og Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Það var sérsamningur um vinnu verkamanna sem vinna í brautum á athafnasvæði Slippfélagsins í Reykjavík. í samningnum er bókun þar sem segir að verkamönnum séu tryggðar eftirfarandi lágmarks- tímaskriftir: 40 stunda dagvinna, 5 stunda yfirvinna (80%). í lok sama árs sameinaðist Stál- smiðjan þeim hluta Slippfélagsins sem réð yfir dráttarbrautunum. Sameiningin tók gildi 1. janúar 1989. Skömmu áður var haldinn fundur með starfsmönnum Slippfé- lagsins þar sem sameiningin var kynnt. Skúli Jónsson, núverandi forstjóri Stálsmiðjunnar og þáver- andi formaður stjórnar Slippfélags- ins, gaf þar yfirlýsingu um að „eft- ir sameininguna haldi starfsmenn öllum þeim réttindum sem þeir þeg- ar hafa“, að „allar breytingar verða gerðar með samkomulagi beggja aðila“ og að „það eina sern breytist er hausinn á launaseðlinum". Þann 29. desember 1988 var öllum verka- mönnum sem unnu í brautum á athafnasvæði Slippfélagsins sagt upp störfum. Þeir sem þess óskuðu voru síðan endurráðnir að Stál- smiðjunni 1. janúar 1989 en hinum var gefinn kostur á að ljúka upp- sagnarfrestinum í málningarverk- smiðju Slippfélagsins. Árið 1989 breyttist ekkert. í jan- úar 1990 sagði Stálsmiðjan upp allri yfirvinnu og tók breytingin gildi 3 mánuðum síðar. Við töldum uppsögnina ógilda vegna fyrr- nefndrar bókunar og yfirlýsinga forstjóra fyrirtækisins og neituðum að vinna yfirvinnu þar til uppsögnin hefði verið dregin til baka. Eftir tvær vikur var gert samkomulag þar sem okkur voru borgaðir yfír- vinnutímarnir þessar tvær vikur aftur í tímann og ákveðið að vísa málinu til Félagsdóms. Samkomu- lagið var undirritað 4. maí 1990 af forstóra Stálsmiðjunnar og trún- aðarmanni okkar. Þar tryggir Stál- smiðjan okkur 5 klst. yfírvinnu (laun) á viku meðan málið er fyrir Félagsdómi. Ekki er tekið fram hvenær málinu skuli vísað til þang- að. í septemberlok á síðasta ári feng- um við bréf þar sem allri yfírvinnu var sagt upp frá og með 1. janúar 1993. I samráði við stjóm Dags- brúnar ákváðum við að setja málið í Félagsdóm og verður það lögfest þar í vikunni. Jafnframt ákváðum við allir að vinna enga yfírvinnu, fengjum við ekki okkar föstu 5 stundir frá áramótum. Þessa ákvörðun tilkynntum við verksjór- um strax. Á þetta reyndi fyrir hálf- um mánuði þegar taka átti upp skip (Búðafell), síðdegis föstudag- inn 15. janúar. Vegna þess að tiltæk skorðumál á skipinu reyndust ekki vera rétt mistókst að taka skipið upp í fyrstu atrennu og þurfti að reyna aftur þegar rétt skorðumál voru fengin. Það náðist ekki í dag- vinnu og var gert á mánudeginum. Það má af mörgu vera ljóst að for- stjori fyrirtækisins vissu um ákvörðun okkar. Föstudag 29. janúar sagði verk- stjóri okkur að það vantaði þijá menn á laugardeginum til þess að taka búkka og planka frá Júlíusi II og setja skipið síðan niður. Við kváðumst ekki ætla að vinna það verk utan dagvinnutíma. Þar sem við töldum heldur ekki tilhlýðilegt að aðrir menn gengju í störfín, héld- um við uppá skrifstofu Dagsbrúnar til að undirbúa vamir og þaðan var haft samband við forstjórann, Skúla Jónsson, og tilkynnt hvemig verka- mennimir litu á málið. Við mættum síðan á laugardeginum ásamt for- manni Dagsbrúnar og fór Júlíus II ekki niður þann daginn. Því miður var skipshöfnin komin frá Þorláks- höfn. Á þeirri fýluferð ber Skúli Jónsson ábyrgð, því hann vissi dag- inn áður að skipið yrði ekki sjósett. Vélvirkjar sem voru að vinna við Júlíus II voru látnir ganga í okkar störf og taka planka og búkka frá skipinu. Þessa vinnu framkvæmum við Dagsbrúnarmennimir alltaf. Það er beinlínis rangt hjá Skúla Jónssyni að þeir hafí ætlað að „... láta þá menn sem hafa nú árum saman gengið til þessara verka framkvæma þetta“. Það hafa ávallt verið Dagsbrúnarmenn sem hafa sett niður skip og tekið frá; verkstjórar hafa aldrei framkvæmt þessa vinnu einir sér. Þetta er líka rangt hjá Skúla Jónssyni að „þessi samningur (sérkjarasamningurinn frá 4. mars 1988) hafí ekkert með Stálsmiðjuna að gera“. Eftir þessum samningi hefur verið farið í öllum meginatrið- um. Vinnutímafyrirkomulagi var að vísu breytt, en með samþykki beggja aðila. í raun hefur Stálsmiðj- an viðurkennt sérkjarasamninginn og greitt okkur 5 klst. yfírvinnu á viku í öll þessi 4 ár og frá því sam- einingin átti sér stað. Það þarf sam- þykki beggja aðila til þess að breyta honum og þessi samningur gildir þar til nýr sérkjarasamningur hefur verið gerður. Við höfum ekki efni á að gefa fýrirtækinu þessa tíma eftir. Und- anfarið hefur verið ráðist á kjör verkafólks. Ríkisstjómin hefur skert kaupmátt og félagsleg kjör vemlega. Atvinnurekendur ráða fólk á lægra kaupi, segja jafnvel upp starfsfólki og ráða að nýju með lakari kjörum en áður. Þetta er gert í skjóli atvinnuleysisgrýlunnar. Það þykir tilhlýðilegt að láta okkur vinna botnlaust kvöld og helgar þegar skip bíða eftir að komast í slipp og ljúka þarf vinnu við þau, en hýrudraga okkur þegar minna er að gera. Fyrir hönd Dagsbrúnarmanna í Stálsmiðjunni, ÁRNI H. KRISTJÁNSSON, trúnaðarmaður, Frostafold 6, Reykjavík. Víkverji skrifar Veturinn ætlar að verða ákaf- lega snjóþungur og leiðinleg- ur. Hvert stórviðrið rekur annað landsmönnum til armæðu. En I þessum snjóþyngslum hafa starfs- menn Reykjavíkurborgar staðið sig hreint frábærlega vel. Götur eru ruddar eins fljótt og kostur er og snjór er fluttur með skipulögðum hætti af bílastæðum. Ástæða er til að þakka þetta góða starf. XXX Víkveiji hefur um nokkurt skeið haft auga með myndsending- um sem berast á einn myndrita Morgunblaðsins. Flest myndritin koma frá stofnunum, ráðuneytum, fyrirtækjum eða öðrum einkaaðil- um. Nokkui hluti þeirra kemur einnig frá fólki sem ekki hefur að- gang að myndsendum og þarf að reiða sig á þjónustu Pósts og síma. Athyglisvert er hve myndsend- ingar sem sendar eru frá hinum ýmsu pósthúsum landsins eru oft í ólagi. Þegar svo ber undir þarf að biðja um að þær séu sendar aftur en iðulega er ekki hlaupið að því vegna þess að á sérstök eyðublöð Póst- og símamálastofnunar vantar upplýsingar um það hvaðan mynd- sendingin berst, símanúmer við- komandi pósthúss o.s.frv. Sérstakir reitir eru þó á eyðublöðunum fyrir allar þessar upplýsingar. Þeir eru bara ekki fylltir út. Eins og áður sagði koma fæstar myndsendingar sem Morgunblaðinu berast um um- ræddan myndrita frá pósthúsum en meirihluti þeirra sendinga sem frá þeim koma eru í ólagi. Víkveiji hefur velt því fyrir sér hvernig á þessu geti staðið, einkum þegar borið er saman við aðra sendendur. Eru myndsendar Pósts og síma vandmeðfarnari en aðrir eða eru notendur þeirra ekki starfi sínu vaxnir? Kunningi Víkveija átti fyrir skömmu erindi í Héraðsdóm Reykjavíkur í nýuppgerðu húsnæði í Áusturstræti þar sem áður var Útvegsbanki íslands. Athygli hans vakti hversu salarkynnin voru glæsileg og það að þar stóðu litlir leðursófar meðfram veggjum - alls staðar nema þar sem þörf var fyrir þá að því er virtist. Hann þurfti að bíða í biðstofu fyrir utan lítinn dóm- sal þar sem mál eru þingfest. Dóm- taka allnokkurra mála er tímasett á sama tíma og þeir sem mæta vegna þeirra skrifa nafn sitt á blað og bíða eftir að verða kallaðir inn í dómsalinn. Þegar kunningi Vík- veija var staddur þarna biðu milli 10 og 15 manns í biðsalnum en þar eru aðeins sæti fyrir 6. Væri ekki tilvalið að færa eitthvað af sófunum sem eru upp á punt frammi í stóra salnum inn í biðsalinn þar sem þeir geta komið að notum?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.