Morgunblaðið - 05.02.1993, Side 2

Morgunblaðið - 05.02.1993, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993 Sjálfstæðisflokkur Lands- fundur í október LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins verður haldinn 21.-24. október nk. Þetta var ákveðið á fundi miðsljórnar Sjálfstæðis- flokksins í gær. Að sögn Davíðs Oddssonar, for- sætisráðherra og formanns Sjálf- stæðisflokksins, voru allir í mið- stjóm flokksins sammála því að það væri skynsamlegt að halda landsfundinn á þessum tíma. Hann sagði að of snemmt væri að segja hvað yrðu aðalmálefni fundarins. „Nú hefst málefnaundirbúningur undir landsfundinn sérstaklega. Málefnanefndir hafa þegar verið kjömar og munu undirbúa mál- efnastarfið. Það er of fljótt að segja fyrir um það með hvaða hætti málefnastarfið verður byggt upp,“ sagði Davíð. Snjómokstur í Reykjavík '/3 fjárveit- inga uppur- inníjanúar KOSTNAÐUR við snjómokstur í Reykjavík hefur farið fram úr öll- um áætlunum vegna fannfergis og umhleypinga. í janúar var kostnaður embættis gatnamála- stjóra af snjómokstri 30-35 miHj- ónir, en fjárveiting til siyóruðn- ings á árinu öllu er 75 miHjónir. Sigurður Skarphéðinsson gatna- málastjóri sagði að væntanlega feng- ist virðisaukaskattur endurgreiddur af kostnaði við snjómoksturinn, þannig að nettókostnaður í janúar yrði 25-30 milljónir króna. Það breytti ekki því, að um það bil þriðj- ungur ársfjárveitingarinnar væri uppurinn í jan.úar. „Þetta er hryllingur,“ sagði Sig- urður. „Við höfum ekki séð svona lagað í tíu ár.“ Hart deilt á fundi Háskólaráðs og stúdentar gengu af fundi ^ * Morgunblaðið/Þorkell Iburðarmikill rokksöngleikur Nemendur í Verslunarskóla íslands settu upp Sýningin var liður í nemendaviku sem nú stendur sýningu á rokksöngleiknum „Tommy“ á Hótel yfir í skólanum. Húsfyllir var og undirtektir íslandi síðdegis í gær, fímmtudaginn 4. febrúar. áhorfenda mjög góðar. Fundurinn yfírleitt að hausti Davíð sagði að landsfundurinn væri yfírleitt haldinn á haustin. Ef það væru kosningar framundan væri hann stundum haldinn á vor- in. Það væri gert til þess að hefja kosningarundirbúninginn en ella væri fundurinn að hausti. Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins er haldinn að jafnaði annað hvert ár. Fundurinn fer með æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokks- ins og þar er stefna flokksins mót- uð. A landsfundi fer fram kjör for- manns og varaformanns flokksins. Einnig er kosið í miðstjóm. Lands- fundur Sjálfstæðisflokksins er langstærsti fundur stjómmála- flokks sem haldinn er hér á landi en milli 1.600 og 1.800 fulltrúar munu eiga rétt á setu á honum. 17 árekstr- ar í borg- inni í gær ALLS urðu 17 árekstrar í umferðinni í Reykjavík í gær og einnig varð bílvelta á gatnamótum Reykjanes- brautar og Blesugrófar í gærkvöldi. Engin slys urðu þó á mönn- um vegna þessara óhappa en bifreiðin sem valt við Blesu- gróf mun hafa skemmst tals- vert. Að sögn lögreglu má rekja flest óhöppin í umferð- inni til mikillar hálku á götum borgarinnar. í dag Skíðahelgin __________________ Gott færi eríflestum skíðasvæöum landsins en veðurspá helgarinnar er skíðamönnum óhagstæð 4 Skúkmeistari __________ Guðmundur Gíslason frá ísafirði gerði sér lítið fyrir og vann allar 11 skákir sínar á Skákþingi Reykjavíkur 12 Atlanta um allan heim_________ Flugfélag með sjö Boeing 737-flug- vélar og nær 80 starfsmenn 24 Leiðari_____________________ Gjaldtaka án kerfisbreytingar? 24 Deildum leyft að ákveða strangari inntökuskilyrði HÁSKÓLARÁÐ samþykkti í gær breytingu á lögum Háskóla Is- lands, sem heimilar deildum skólans að setja strangari inntökuskil- yrði og takmarka fjölda nemenda, ef kennsluaðstöðu skortir. Laga- breytingin var samþykkt með níu atkvæðum gegn fimm í ráðinu og tveir sátu hjá. Fjórir fulltrúar stúdenta andmæltu harðlega og gengu af fundi. Með samþykkt Háskólaráðs er deildum heimilað að krefjast þess að stúdent hafí „náð tilteknum árangri í einstökum greinum eða greina- flokkum til stúdentsprófs". Að sögn Sveinbjöms Bjömssonar Háskóla- rektors er nokkur misbrestur á því að menn hafí lokið þeim faglega undirbúningi, sem gert er ráð fyrir að þeir hafí til að leggja stund á ákveðin námskeið í Háskólanum. „Við erum að reyna að ná samleitari hópi námsmanna. Við emm samt ekki að óska eftir mikilli sérhæfíngu, heldur viljum við tryggja okkur að til dæmis í íslenzku, stærðfræði og erlendum málum standist menn okk- ar kröfur," sagði Sveinbjöm. Fj öldatakmarkanir vegna aðstöðuskorts Annað umdeilt ákvæði í sam- þykktinni kveður á um að takmarka megi flölda stúdenta, sem teknir verði til náms á fyrsta ári og í fram- haldsnám, vegna skorts á aðstöðu á hveijum tíma. Sveinbjöm sagði að þama væri verið að festa í lög undan- þáguákvæði, sem lengi hefðu verið við lýði. Skortur væri á aðstöðu til starfsþjálfunar, til dæmis í heilbrigð- isgreinum og uppeldis- og kennslu- fræði. „Einnig mætti beita þessu ákvæði ef skyndileg aðsókn yrði í einhveija grein og við hefðum ekki svigrúm til að bregðast við henni. Fyrsta skilyrðið, sem við verðum að gæta að, er að gæði kennslunnar séu tryggð," sagði Sveinbjörn. Hann sagðist ekki eiga von á að margar deildir myndu taka upp nýjar fjölda- takmarkanir. Yrðu nýjar takmarkan- ir teknar upp, yrði framhaldsskóla- nemum gefínn tími til að aðlaga nám sitt hinum nýju kröfum. Stúdentar mótmæla Stúdentaráð Háskólans andmælti lagabreytingunni í ályktun í gær. Þar segir meðal annars: „Verði þessar breytingar samþykktar á Alþingi ís- lendinga er opnað fyrir margvíslegar takmarkanir á rétti landsmanna til þess að stunda nám á háskólastigi, ýmist þannig að menn fá ekki tæki- færi til að spreyta sig í því námi, er hugurinn stendur til, eða svo að á síðari stigum námsins standi menn frammi fýrir hindrunum, sem aðrar ástæður liggja til en að viðkomandi hafi ekki staðizt kröfur Háskólans." Fosteignir ► Minni sementsframleiðsla — Greiðslumat húsbréfakerfisins — Nýr framhaldsskóli í Borgar- holtshverfi — f slenskir útveggir í stórviðrum Daglegt líf ► ísland 7. besta land í heimi? — „Fjölskyldan“ á gæðastjómunar- fundi — Mandarin-hótelið í Hong Kong — Nýr vatnskassi fyrir sér- útbúna bQa Böm hermanna leita feðra sinna Þrautaganga fyrir marga Stefán Geir Karlsson hefur ásamt fleir- um undirbúið samráðsfund bamanna UPPKOMIN börn bandariskra hermanna, sem þjónað hafa hér á landi, ætla að hittast á sunnudag og ræða hvemig þau komast í samband við feður sína. „Það veit enginn, sem ekki hefur reynt á sjálfum sér eða sínum nánustu, hvað það er að þekkja ekki föður sinn. Ég á von á að um 30-40 manns komi á fund- inn, þar á meðal einhveijir af landsbyggðinni," sagði Stefán Geir Karlsson í samtali við Morgunblaðið. Stefán Geir hefur unnið að undirbúningi fundarins, ásamt Bimi Leóssyni, sem hafði uppi á bandarískum föður sínum í fyrra. Hann komst í tölvuvædda skrá á þingbókasafninu í Washington yfír alla bandaríska þegna, sem neytt hafa atkvæðisréttar síns í kosningum og fann heimilisfang föður síns. „Við ætlum að rita niður nöfn feðra fundarmanna og láta fletta þeim upp í skránni, með aðstoð sendiráðsins í Wash- ington," sagði Stefán Geir. Stefán sagði að fyrir marga hefði það reynst mikil þrauta- ganga að hafa uppi á feðrunum. „Konan mín hefur leitað föður síns af og til í fjórtán ár,“ sagði hann. „Hún varð vongóð þegar bresk samtök stríðsbama unnu mál gegn Pentagon, bandaríska vamarmálaráðuneytinu, og fengu að komast í skýrslur yfír fyrrum hermenn. Þá kom hins vegar í ljós, að hluti skýrslanna hafi eyði- lagst í bruna, þar á meðal skýrsl- an um tengdaföður minn.“ Stefán Geir sagði að það vekti mönnum mikla bjartsýni hversu vel Bimi Leóssyni hefði gengið að hafa uppi á föður sínum með hjálp skrárinnar í þingbókasafn- inu. „Björninn er þó ekki unninn þótt stríðsbam hafí uppi á föður sínum, því þessi mál em afar við- kvæm, bæði fyrir barnið og föður- inn.“ Fundur íslensku stríðsbarn- anna verður haldinn í fundarsal ISI í Laugardal á sunnudag kl. 15. Rauði kross íslands Athvarf fyrir geðsjúka RAUÐI kross íslands opnar athvarf fyrir geðsjúka á Hverfisgötu 47 á mánudaginn. Starfsemi athvarfsins verður einkum sniðin með þarfir geðsjúkra sem útskrifast hafa af geðdeildum í huga. Fríða Eyjólfsdóttir, hjúkrunarfræðingur, er forstöðumaður athvarfsins. Hugmyndin er að skjólstæðingar þ4tt j verklegri þj41fun 4 sviði mat. athvarfsins geti sott þangað stuðn- argerðar, tómstundum og félags- íng, spjallað við folk í somu sporum jegn uppbye-g-infru og það sjálft yfír kaffibolla, tekiö Sjá ennfremur bls. 2-3C.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.