Morgunblaðið - 05.02.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993
31
Afmæliskveðja
Jóna Erlends
dóttir níræð
Hinn 4. febrúar varð sæmdar-
konan Jóna Erlendsdóttir, heiðurs-
félagi Hvítabandsins, níræð. Hún
fæddist að Hvallátrum í Rauða-
sandshreppi 4. febrúar 1903. Hún
Eystrasalts-
dagar í
Bókasafni
Kópavogs
BÓKASAFN Kópavogs hefur
nýverið fengið veglega bókag-
jöf frá Þjóðbókasafni Lettlands
í Riga, samtals 45 bækur. Er
hér um að ræða bækur um sögu
og menningu Lettlands, listir,
bókmenntir, þjóðhætti, þjóðsög-
ur og bækur fyrir börn, bækur
um byggingariist, kirkjur,
Ijóðabækur o.fl. Flestar eru
bækurnar á ensku en nokkrar
á lettnesku.
í tilefni af þessari höfðinglegu
gjöf verða Eystrarsaltsdagar í
Bókasafninu og hefjast þeir
laugardaginn 6. febrúar og munu
standa til 6. mars.
Til sýnis verða bækumar frá
Lettlandi, myndir, bæklingar, kort
og upplýsingar um Lettland og
hin Eystrarsaltslöndin, Eistland
og Litháen. Þá verður leikin af
bandi þjóðleg tónlist frá Lettlandi
og laugardaginn 6. febrúar mun
Jes Zvirgzdgrauds, nemandi í
Háskóla Islands, halda fyrirlestur
um bækur og þjóðarsálina kl. 15.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
íslendingar eru í miklum metum
hjá Eystrarsaltsþjóðunum vegna
þess hve skjótt þeir brugðust við
að viðurkenna þær eftir hrun
Sovétveldisins og í öllum þessum
þremur löndum eru starfandi vin-
áttufélög við ísland. Hér á landi
er starfandi Vináttufélag íslands
og Litháens og er stefnt að því
að stofna Vináttufélag íslands og
Lettlands að loknum fyrirlestri
Jens Zvirgzdgrauds ef áhugi er
fyrir hendi.
Eystrarsaltsdagar í Bókasafn-
inu verða á venjulegum opnunar-
tíma þess: Mánudaga til fímmtu-
daga kl. 10 til 21, föstudaga kl.
10 til 17 og laugardaga kl. 13 til
17.
(Fréttatilkynning)
er ein af mörgum börnum hjón-
anna Steinunnar Olafsdóttur
Thorlacíus og Erlends Kristjáns-
sonar útvegsbónda og vitavarðar.
Eiginmaður Jónu var Búi Þor-
valdsson mjólkurfræðingur, en
hann lést árið 1983. Þau eignuð-
ust fjóra syni og eina dóttur, allt
mikils metið dugnaðarfólk.
Jóna gerðist félagi í Hvítaband-
inu árið 1946 og formannsstörfum
gegndi hún í 22 ár, á árunum
1951-1973. Auk formannsstarfs-
ins gegndi hún ýmsum nefndar-
störfum og fulltrúi Hvítabandsins
var hún á þingum þeirra samtaka
sem félagið á aðild að, bæði innan-
lands og utan. Félagsstörfin vann
Jóna af hugsjón og áhuga. Þrátt
fyrir mannmarga fjölskyldu gaf
hún sér alltaf tíma fyrir félagið
sitt þegar á því þurfti að halda.
Við Hvítabandskonur eigum henni
og hennar samtíðarkonum, sem
nú eru flestar látnar, mikið að
þakka fyrir öll þeirra fórnfúsu og
óeigingjörnu störf. Fyrir mannúð-
ar- og félagsstörf var hún sæmd
Hinni íslensku fálkaorðu.
Jóna er mikil hannyrðakona og
er handbragðið til fyrirmyndar.
Miklaholtshreppur :
Samgöng-
ur að mestu
ótruflaðar
Borg í Miklaholtshreppi.
í Miklaholtshreppi hefur
snjóað meira og minna hvem
dag og eru margir orðnir
þreyttir á því veðurfari sem ríkt
hefur þar síðan í nóvember.
Samgöngur hafa þó haldist að >
Hvítabandið nýtur enn góðs af
hannyrðum hennar. Aldurinn ber
Jóna vel. Hún er fróð kona og
minnug og þar sem hún hefur
sótt félagsfundi mjög vel, hafa
konur farið af fundi margs vísari
eftir slíkar samverustundir.
Þegar við nú lítum yfír liðna tíð
og minnumst samverustundanna
með Jónu, bæði í starfí og leik,
er okkur efst í huga hjartans þakk-
læti til kærrar félagssystur fyrir
ómetanlegan stuðning og störf í
þágu Hvítabandsins.
Kæra Jóna. Á þessum merku
tímamótum í lífí þínu færum við
þér hugheilar hamingjuóskir og
biðjum þér og fjölskyldu þinni
Guðs blessunar.
Fyrir hönd Hvítabandsins
Aradís M. Þórðardóttir.
mestu ótruflaðar en æði oft hefur
komið fyrir að fella hefur þurft
niður kennslu í Laugagerðiskóla
því veðurofsinn suma daga hefur
verið slíkur að ekki hefur verið
mögulegt að komast í skólann.
Vasklega hefur verið staðið að
snjómokstri en veðurguðinn hefur
þó stundum haft betur.
Muniö póstverslunina
Grænt númer 99 66 80
HAGKAUP
gœöi úrval þjónusta
- Páii.