Morgunblaðið - 07.03.1993, Blaðsíða 14
14 B
B 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
Af ungu fólki/Hér segir frá 111 nemendum Framhaldsskólans á Laugum en
þrátt fyrir fámennið komst lið skólans í átta liða úrslit Spurningakeppni framhaldsskólanna
Vikuna fyrsta til fímmta mars
er skólastarfinu umsnúið. Sinna
nemendur hugðarefnum sínum,
öllu öðru en hefðbundnu námi.
Má þar nefna snyrtinámskeið,
hestaíþróttir, útvarp, íþróttir fatl-
aðra, matreiðslunámskeið, vinnu
með rithöfundi, vetrarútivist, blað-
aútgáfu og myndabandsupptökur.
Ekki eiga þó fulltrúar okkar í
spurningakeppni framhaldsskól-
anna sjö Laugadagana sæla, því
þeirra verkefni var að þessu sinni
að þjálfa seinar sellur fyrir spurn-
ingakeppnina á föstudag.'Lauga-
menn eru stoltir af sínu liði en það
hefur aldrei náð jafn langt f þess-
ari keppni og nú:
Áfram Laþgamenn!
-Höfundur er nemandi í
Laugaskóla og útnefndur
áróðursmálaráðherra
skólans.
Takmarkinu náð
til 18.50 eða fram að kvöldmat,
sem margir sleppa. Svo er haldið
áfram við lærdóminn eða spriklið
fram að Sæmundi. Kvöldkaffi í
Laugaskóla hefur fengið þetta
merka nafn, og amma ömmu man
alls ekki af hveiju. Eftir Sæmund
koma nemendur sér inn á vistirnar
en klukkan 23 er þeim læst. Þeir
sem ekki eru inni á sinni vist eru
einfaldlega læstir úti. Föstudagar
eru sérstakir að því leyti að ein-
ungis er kennt fram að hádegi.
Geta þá þeir nemendur sem vilja
farið heim til sín.
Skólabjalla óþekkt
Framangreinda tímaupptaln-
ingu skal ekki taka hátíðlega, þar
sem skólabjalla er hugtak sem
ekki þekkist í Laugaskóla. Ekki
er þó rétt að gleyma um leið hug-
takinu tími. Eiginlega miður gáfu-
legt, því ef ákveðinn nemandi
mætir ekki í 80% eða meira af
tímum hvers áfanga er sá hinn
sami búinn að segja sig úr áfang-
anum og fyrirgera rétti sínum til
að taka próf, þó svo að þetta sé
uppáhaldsáfanginn og uppá-
haldsfagið.
Ekki er allt búið enn, því ekki
fara Laugamenn og -meyjar að
sofa strax klukkan 23. Þá eru eft-
ir heimsóknirnar til félaganna inn-
an hverrar vistar, eða litið í bók
sem margir íþróttahliðhollir gera,
svona upp úr miðnættinu. Venju-
lega er allt komið í ró um eittleyt-
ið. Af þessari upptalningu sést að
nóg er að gera á venjulegum degi
og eru 24 klukkustundir bara al-
gjör fásinna fyrir venjulegan sólar-
hring.
Mötuneyti er starfrækt við skól-
ann. Þar eru framleiddar fjórar
máltíðir á dag auk Sæmundar.
Starfandi er mötuneytisráð sem
sér um að koma ábendingum og
óskum áfram til brytans. Er þá
oft talað um meira/minna salat,
meiri/minni lauk, sveppi í sósunum
og margt annað sem betur mætti
fara. í Laugaskóla má, eins og í
flestum mötuneytum, nefna dag-
ana eftir matnum; fískdagur, ham-
borgaradagur, steikardagur,
pizzudagur, grautardagur, snarl-
dagur og samlokudagur.
Læknisþjónusta er á staðnum.
Hafa læknir og hjúkrunarfræðing-
ur haft ærinn starfa eftir áramót,
þar sem nemendur hafa verið iðn-
ir við að steinliggja í öllum mögu-
legum og ómögulegum kvillum.
Tónlistarskóli er á Laugum og
er kennt á öll algengustu hljóð-
færi. Söngnám er einnig vinsælt.
Félagslíf
Margt annað er brallað í Lauga-
skóla. Til dæmis er verið að æfa
upp leikrit fyrir árshátíðina, en
Skólinn
Skólahald hófst á Laugum 1925, og var hann þá einn af fyrstu héraðsskólunum á íslandi.
Laugadagar
eftir Urði Gunnarsdóttur
Sigurbjörn Arni Amgrímsson hefur haft nóg
fyrir stafni í Laugaskóia síðustu þrjú ár. Þriðja
árið i röð er hann formaður nemendafélagsins,
hann er í fjórða skiptið í liði Laugskælinga í
Spurningakeppni framhaldsskólanna, er í ungl-
ingalandsliðinu í fijálsum íþróttum og æfir auk
þess giímu, blak og handbolta.
Sigurbjöm er-úr Mývatnssveitrog mikill áhugamað-
ur um .íþróftir eíns^-og'sést af tfamantöldu. Hann
lýkur stúdentsprgfi I vor og ætti tæpast að eiga í
vandræðum með þókléga. námið frekar én íþróttim-
ar. „Það hefur margoft sýnt sjg að íþróftirnar efla
andann,“ segir hann.
Sigurbjöm sigraði í undankeppni Laugaskóla fyrir
ÍÞRÓTTIR
Busavígsla
Vinsælt er að busa nýnema Laugaskóla í Tjörninni. í baksýn er
Húsmæðraskólinn, þar sem nú er byggðasafn.
hún verður vonandi 13. mars. Mik-
ill tónlistaráhugi er í skólanum.
Til marks um það eru fimm starf-
andi hljómsveitir, kór og útvarp.
Skólinn heldur úti liðum í ann-
arri deild, bæði í körfubolta og
blaki. Eru íþróttir aðaláhugamál
flestra nemenda utan skóla. Tals-
vert er gert af því að fara inn á
Akureyri um helgar til að létta
andann. Ekki þjakar drykkjuskap-
ur þó Lauganema því öll meðferð
áfengis í skólanum og á
skemmtunum skólans er skilyrðis-
laus brottrekstrarsök. Þá er reynt
er að hafa aðra hveija helgi félags-
málahelgi. Skila þá hinir ýmsu
klúbbar sem eru starfandi inn
áætlun sinni um starfsemi næst-
komandi félagsmálahelgi. Er svo
raðað saman dagskrá fyrir helg-
ina, til að nemendur geti tekið
þátt í sem flestu.
Kennarar og draugar
Óhætt er að segja að kennar-
aliðið sé stórskotalið og ekki skort-
ir menntunina. Tökum sem dæmi
skólameistarann, Hannes Hilm-
arsson, sem er sálfræðingur og
brúnbeltungur í karate og því í
lófa lagið að taka nemendur á
sálfræðinni eða beita kunnáttu
sinni í karate. Oft er þó gaman
að spjalla við hann þó að ekkert
hefi gerst, því þetta er besti ná-
ungi.
Aðstaða til kennslu er góð. Má
þar nefna nýuppgerðar kennslu-
stofur, tölvustofu, bókasafn og
margt fleira. Ekki skaðar heldur
draugagangurinn og lætin á hverri
vist. Er það mál manna að ekki
sé minna en einn draugur á hverri
vist.
Vistirnar
Þegar talað er um vistirnar er
að sjálfsögðu átt við heimavistirn-
ar fjórar, heimili nemanna:
Gamli skóli, elsta byggingin, er
byggður 1925. í Gamla skóla er
mötuneytið, bókasafnið, tölvustof-
an og sundlaugin. Gamli skóli er
einnig vinsælasta vistin. Þar eru
flest pörin og þá undantekningar-
lítið saman á herbergi, því Amor
hefur látið til sín taka í Lauga-
skóla. Á þann hátt geta pör kom-
ist að því hvernig þeim fellur að
vera í sambúð, auk þess sem dvöl
í heimavist er góð kennsla í mann-
legum samskiptum. I Gamla skóla
eru 23 herbergi fyrir nemendur
og tvær kennaraíbúðir.
í Álfasteini eða Húsó eru lang-
flestir fyrsta árs nemarnir. Vistin
er nefnd eftir húsmæðraskólanum
sem var í húsinu við hliðina. Hús-
mæðraskólinn var stofnaður 1929
en starfsemi þar var lögð niður
1986. Á Húsó eru ellefu herbergi,
ein kennaraíbúð og ein kennslu-
stofa.
Dvergasteinn, eða Dvergur. Þar
eru þijár kennslustofur, þrettán
herbergi og tvær kennaraíbúðir.
Fjall, eða Draugur, þar eru tutt-
ugu herbergi og tvær kennara-
íbúðir, útvarpið er einnig með að-
setur sitt í einu herbergi.
Slotið heitir önnur kennaraíbúð-
in í Fjalli. Nokkrir fjórða árs nem-
ar tóku sig til, ásamt vífum sínum,
og leigðu íbúðina. Er þar oft glatt
á hjalla. Er ekki laust við að nokkr-
ir yngri nemar renni öfundaraug-
um til þeirra sem eru með sér íbúð.
Á staðnum eru ennfremur tvö
einbýlishús og einnig kennaraíbúð-
ir.
Tvö mikilvæg hús í augum nem-
enda eru þó ótalin: Iþróttahúsið
og Þróttó. íþróttahúsið er eins og
áður kom fram með löggiltan
körfu- og handboltavöll, stúku,
lyftingasal og ljósabekki. Einnig
er þar billjardherbergi. íþróttahús-
ið var tekið í notkun í febrúar
1978.
Þróttó, gamla íþróttahúsið, var
innréttað sem kvikmyndahús eða
fundarsalur skólans. Þar eru kvik-
myndasýningar á hveiju fímmtu-
dagskvöldi. Leikrit eru sett upp
og æfð í Þróttó og hljómsveitir eru
þar með æfingar sínar.
Þrátt fyrir háan aldur á flestum
byggingum er gott viðhald á öllu,
yfír meðallag á landsvísu.
Einnig setja draugarnir okkar
skemmtilegan og góðan anda í
húsin. Og brakið er til staðar, í
öllum gólfum, alveg eins og vera
ber.
spumingakeppnina og gefur þá skýringu að hann
sé ágætlega minnugur. „Ég get lært eins og páfa-
gaukur, hlaðið upplýsingum inn á minnið. Það kem-
ur sér vel fyrir keppni eins og þessa,“ segir Sigur-
björn, en hann og félagar hans í liðinu, Ragnar
Bjamason og Tryggvi Héðinsson, hafa setið við bók-
lestur og upplýsingaöflun undanfamar vikur. Ragnar
og T-ryggvi era einnig liðtækir íþróttamenn, Tryggvi
er í landsliðinu í glímu og Ragnar keppk með 2.
flokki í handbolta -og dæmir í körfubolta.
Langamenn hafa aldrei náð eins góðum 'árángri
í spumingakeppninni og nú. „Takmarki okkar var í
raun náð með því áð komast í sjónvarpið, burtséð
frá úrslitunum. En auðvitað viljum við sigra.“
mui ^uiiuiawiu/ mmai
Til keppni
Þjálfari liðsins, Gunnar Þór Sigurðsson, og keppendurnir Tryggvi Héðinsson, Sigurbjörn Árni Arngrímsson
og Ragnar Bjarnason.
Framhaldsskólinn á Laugum,
dagsdaglega kallaður Laugaskóli,
er í Reykjadal í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Laugar eru aðeins 60 km
frá Akureyri og 40 km frá Húsa-
vík. Fijálshyggjubændur og fjall-
alömbin í Mývatnssveit eru svo
handan við hæðina.
Skólahald hófst á Laugum 1925
og var hann þá einn af fyrstu
héraðsskólunum á íslandi. Skóla-
hald hefur verið óslitið síðan. Árið
1987 var skólanum formlega
breytt í framhaldsskóla og héraðs-
skólinn lagður niður.
Námið
Laugaskóli er áfangaskóli. í því
felst að námsefni í einstökum
námsgreinum er skipt niður í af-
markaða áfanga sem kenndir era
í eina námsönn og lýkur með prófí
eða öðra námsmati í lok annar.
Nú í vor er í fyrsta sinn kennt
til stúdentsprófs, ekki era nemend-
ur þó útskrifaðir héðan, heldur
metur Fjölbrautaskólinn í Garða-
bæ námið.
10. bekkur er einkum starf-
ræktur fyrir nágrannasveitimar.
Einnig koma í 10. bekk krakkar
sem annaðhvort hefðu þurft að
leita út fyrir sína heimabyggð til
að klára skyldunámið, eða þá
krakkar sem eru að prófa að vera
á heimavist. Margir koma líka og
ætla að ná sér í framhaldsrnenntun
í skólanum.
Laugaskóli getur státað af því
að vera með áhugaverða en fáa
valmöguleika:
Á bóknámsbraut er aðeins hægt
að stunda nám í tvö ár en leita
verður svo í aðra skóla eftir frek-
ara námi.
íþróttabraut er kennd til stúd-
ents, er hún önnur af stóra náms-
brautunum við skólann. Ekki er
hægt að kvarta yfir aðstöðunni;
nýlegu íþróttahúsi með löggiltum
keppnisvelli í körfubolta og hand-
bolta. Sundaðstaðan er mjög sér-
stök, en Laugaskóli státar af elstu
innisundlaug landsins, með
brautarlengd upþ" á, 11 metra';
Ferðamáiabraút er hin stéra
brautin. Þar fá nemendur un&ir-
búning undir öll þau störf sem
hugsast getur varðandi ferðaþjón-
ustu. Ekki veitir af menntuðu fólki
til að taka á móti ferðamönnum
Lauganemar leggja í
og þjónusta þá þar sem arður af
ferðaþjónustu hefur þrefaldast á
innan við tíu árum.
Kvöldkaffið Sæmundur
Stundatafla nemenda er mjög
misjöfn enda er um áfangaskóla
að ræða. Getur stundafjöldi hjá
nemendum verið frá 24 tímum á
viku upp í 43 tíma. Fyrsta árs
nemar sitja uppi með sneisafulla
stundaskrá á meðan nemendur
íþróttabrautar lifa og leika sér
með sína 24 tíma á viku. Allt
mögulegt er gert í þeim eyðum
sem óhjákvæmilega skapast, lært
undir þá tíma sem era framundan,
eða þá bara í eitthvað annað.
Venjulegur skóladagur hefst
klukkan 8 og er kennd ein kennslu-
stund fyrir morgunmat, sem er frá
8.40 til 9. Frá klukkan 9 er sam-
felld kennsla til 12.10, en þá er
matarhlé til klukkan 13, kennsla
til 16.10 og svo kaffíhlé til 16.30
og kennsla til 17.10.
Eftir að hafa setið undir áhuga-
verðum fróðleikskomum og mis-
góðum brönduram frá kennuram
er komið að langþráðri stund:
Nemendur þyrpast annaðhvort
niður í íþróttahús eða inn á bóka-
safn til að auka enn við þekkingu
sína. Er svo spriklað eða lært fram
hann fyrr í vikunni.
Signrliðið
Lið Laugaskóla sigraði á Framhaldsskólamótinu i knattspyrnu í
karlaflokki.
EFLA ANDANN
J
eftir Sígurjón Jónsson.
Myndir: Rúnor Þór Bjömsson og nemendur Laugoskólo.
Allir 111 nemendur framhaldsskól-
ans á Laugum brugðu sér til Reykja-
víkur í vikunni til að styðja lið sitt
í átta liða úrslitum spurningakeppni
framhaldsskóla, kynna sér menning-
ar- og matargerðarlist í höfuðborg-
inni og að heimsækja fyrirtæki og
stofnanir í tengslum við starfsdaga
í skólanum. Áhugi flestra nemenda
liggur á sviði íþrótta en það virðist
þó síður en svo koma niður á bók-
legri þekkingu þeirra, samanber
árangur þeirra í spurningakeppn-
inni. Þá er ótalinn góður árangur á
Framhaldsskólamótinu í knatt-
spyrnu en þar stóð iið Laugaskóla
uppi sem sigurvegari í karlaflokki. stað
Vilt þú veróa
skiptinemi?
Ef þú...
ert fædd(ur) 1975, 1976 eða 1977,
vilt auka þekkingu þína á umheiminum,
vilt læra nýtt og spennandi tungumál,
vilt kynnast skóla- og fjölskyldulífi í öðru landi,
þá erársdvöl sem skiptinemi örugglega eitthvað fyrirþig!
Eigum m.a. laus pláss til Bandaríkjanna, Hollands
og Tyrklands með brottför í ágúst.
Umsóknarfrestur er til 19. mars.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá:
AfS Á ÍSL4NDI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti
LAUGAVEGUR 59. P O. BOX 753 IS-121 REYKJAVlK. ICELAND
SÍMI 91-25450
Opiö milli kl. 10 og 16 virka daga
Royal
súkkulaðibúðingur
- eftirlæti barnanna
Flottir fermingarskór
Teg: 742
Verð: 5.500,-
Svart leður
Teg: 804
Verð: 4.500,-
Svart leður
Teg: 424
Verð: 4.900,-
Svart leður
SKÓVERSLUN, BORGARKRINGLUNNI, 5ÍMI 677267
W
Póstsendum samdægurs.
■ •***•