Morgunblaðið - 07.03.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.03.1993, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 26 B_______________ ÆSKUMYNDIN... ER AF SIGURÐIG. TÓMASSYNIDAGSKRÁRSTIÓRA RÁSAR 2 Liðsmaður í ,, Blóðiigu höndinni“ ÆSKUMYNDIN að þessu sinni er af Sigurði G. Tóm- assyni dagskrárstjóra Rásar 2. Hann er miðdepill í , hópi sjö systkina, en sex þeirra eru á lífi. Elstur er Sverrir, þá Magnús, siðan Þóranna. Er þá röðin kom- in að Sigurði, en síðan koma í þessari röð, Sigriður og Gerður. Faðir Sigurðar er Tómas Gíslason raf- virki, móðir hans var Gerður Magnúsdóttir en hún er látin. Sigurður fæddist 1. desember 1950 „á fæð- ingardeildinni". Um það bil sem Sigurður fæddist, flutti fjölskyldan í Bústaðahverfið og þar Iiðu æskuár Sigurðar ljúflega. Þó var hann bundinn Hverfisgöt- unni sterkum böndum, þar bjó afi hans og langafi þar á undan. Eg stofnaði knattspymufélagið Sókn í hverfinu og kom það til af því að ég komst aldrei í lið hjá Víkingi. Nafn félagsins segir allt um leikstíl liðsins. Þetta var alvöru félag með prentuðum félags- •skírteinum. Við vorum svo margir að fjöldinn nægði í tvö lið. En félag- ið varð ekki langlíft. Dagar þess voru taldir er vitlaus kerling sem átti garð að vellinum okkar, reynd- ist einnig hafa þræði inn í borgar- stjórn. Hún fékk því til leiðar kom- ið að brunagjall var borið á völlinn hjá okkur og fýsti engan að leika þar knattspyrnu eftir það. Við kom- um að vísu upp körfuhringjum í staðinn, en það var annað mál. Reyndar er mér kannski minnis- stæðast frá knattspymufélaginu Sókn, að það var prentvilla á félags- skírteininu, það stóð „skríteini" í staðinn fyrir skírteini", segir Sig- urður. „Annað sem var minnisstætt frá þessum árum voru slagsmálin gatna á milli. Leynifélögin. Eg var í einu sem hét „Blóðuga höndin". Mark- miðið var að veija götumar og leik- svæðin og þá var sterkast að vera Sigurður G. Tómasson fyrr og síðar. í þeim hópnum sem bjó að stærsta bræðra- og frændahópnum. Það var gífurlegur fjöldi barna í hverfínu þannig að þetta vom mikil fjölda- átök. Sjaldan var álagið á þessa hópa meira heldur en er nær dró áramótum og brennusmíði hófst. Það þurfti sólarhringsvakt síðustu dagana, því í næstu hópum vom óprúttnir strákar sem stálu úr brennunum og kveiktu svo í því sem þeir gátu ekki hirt. Vaktmennimir voru í kössum eða tunnum uppi í brennu svo það var eins gott að sofna ekki á verðinum," segir Sig- urður. Sigurður rifjar upp að Bústaða- hverfíð hafí verið nokkuð afskekkt á þessum tíma og strákahópurinn hafi verið mikið í því að taka sig upp og halda í leiðangra. í Naut- hólsvík. Inn að Elliðaám til veiða. í Fossvog á skíði. Hann segir föður sinn eitt sinn hafa tekið sig í gegn eftir að sumir drengjanna voru hætt komnir við veiðar í Elliðaánum og borið á hann flökkueðli. Þetta hafí líklega verið satt, því fímm ára gamall hafí hann verið farinn að ferðast einn síns liðs með strætó um allan bæ, m.a. til ömmu sinnar á Grímsstaðaholtinu. UR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON r Islandsglínum fimmtug Myndirnar úr safni Ólafs K. Magnússonar eru tæplega fjörtíu ára að þessu sinni en þær eru flestar teknar á fímmtugsafmæli ís- landsglímunnar Það var 25. maí árið 1956 og var glímt í íþróttahúsinu við Hálogaland. Ármann J. Lárusson bar sigur úr býtum í fjórða skipti og bætti um betur næstu ár, því hann varð glímu- kóngur allt fram til ársins 1960, eða átta sinnum. Fimmtugasta ís- landsglíman var hins vegar ekki háð fyrr en fjórum árum seinna, árið 1960, þar sem glíma lá niðri á tím- um fyrri heimsstyijaldar. í tilefni þess að Íslandsglíman var haldin í fímmtugasta skipti, voru saman- komnir margir af helstu glímumönnum þjóðar- innar frá því að fyrst var farið að keppa um Grett- isbeltið. Er úrslit voru ljós, var Ólafur V. Dav- íðsson, sem fyrstur vann Íslandsglímuna, fenginn til að spenna beltið á Ármann. Auk hans voru þar staddir flestir fyrrum glímu- kóngar landsins, þeirra á meðal Hermann Jónasson, fyrrum forsæt- isráðherra en hann varð glímukóng- ur árið 1921. ÉG HEITI... SIGRÍÐUR THEÓDÓRAÁRMANN ÆTT Sigríðar Theódóru Armann ballettkennara er fastheldin á nöfn. Nöfnur ömmu hennar, Sigríðar Theódóru Pálsdóttur eru nú orðnar þrettán talsins. Allar eru þær skírðar fullu nafni, Sig- riður Theódóra; engum hefur til hugar komið að skira aðeins öðru nafninu. „Við höldum upp á þetta nafn, amma var stórbrot- in kona og það er af væntumþykju og virðingu við hana sem afkomendur hennar hafa látið heita í höfuðið á henni,“ segir Sigríður Theódóra Ármann. Sigríður Theódóra Pálsdóttir var frá Selalæk á Rangárvöllum. Hún átti sjö böm sem öll létu heita eftir henni. Þá hafa sex bamaböm hennar gert slíkt hið sama. „Afí dó ungur og amma stóð því uppi ein með stóran bamahóp, sem hún kom öllum til manns. Það er mikil samheldni í ættinni, sem kemur meðal annars fram í því nafnið hennar er það eina sem er gegnum- gangandi í ættinni. Það hefur ekk- ert vafíst fyrir okkur hversu marg- ar nöfnumar eru, því allar eigum við okkur gælunöfn. Eg er ýmist kölluð Sigríður eða Sigga." Sigríður segir að mörgum þyki ættin íhaldssöm með afbrigðum og hugmyndaflugið takmarkað, þegar þeir heyri af nöfnunum þrettán. „Sonur minn gerði til dæmis mikið grín að þessu þegar hann var yngrí en þegar hann eignaðist sjálfur dóttur, fannst honum ekki koma annað til greina en að skíra hana Sigríði Theódóru." Nafnið Sigríður kemur fyrir í Landnámu og á mörgum stöðum í íslendingasögum. Það hefur alla tíð verið algengt, árið 1982 var það annað algengasta kvenmannsnafn- ið og árið 1989 bám 4566 nafnið að fyrra nafni eða sem einnefni. Sigríður Theódóra. Nafnið er talið sett saman úr sigur (sig-) og fríður (-ríður). Theódórunafninu bregður fyrst fyrir hérlendis árið 1845. Árið 1989 hétu 104 konur Theódóra að fyrra nafni en 31 kona að síðara. Nafnið hefur sömu merkingu og Dóróthea; guðsgjöf. ÞANNIG . . . VARÐ RENNILÁSINN TIL SJÁLFKRÆKJULÁSINN RENNILÁSINN, það þarfaþing, var fundinn upp fyrir 100 árum. Líkt og margar aðrar snjallar uppfinningar er rennilásinn sáraeinfalt fyrirbæri og gerir líf okkar þægilegra á margan hátt. Rennilásinn kom í stað krækja, hnappa og reima á flíkum fólks og er nú notaður í ýmsum til- gangi auk þess að halda klæðum á kroppnum. Whitcomb L. Judson var ungur og óþolinmóður hugvits- maður. Honum þótti leiðinleg og tímafrek iðja að reima stígvélin sín og kom í hug hvort ekki mætti loka stígvélunum með þægilegri hætti. Judson datt niður á þá lausn að búa til tvær keðjur með tenntum krókum sem hægt var að þrýr a saman með læsingarstykki. Hann sótti um einkaleyfi á þessari upp- fínningu og kallaði hana „klemm- ulás eða opnara fyrir skó“. Judson stofnaði fyrirtæki ásamt framkvæmdamanninum Lewis Walker til að koma uppfinningunni á markað. Kölluðu þeir félagið Automatic Hook and Eye Company (Sjálfkrækjufélagið) og var það til heimilis í Meádville í Pennsylvaníu- ríki. Walker var framsýnn og bjart- sýnn, taldi hann ótækt að tak- marka notagildi sjálfkrækjulássins Rennilásinn var fundinn upp fyr- ir 100 árum og leysti af hólmi krækjur, hnappa og reimar. við skófatnað. Taldi Walker þetta þarfaþing leysa af hólmi allar krækjur, hnappa og reimar sem 19. aldarmenn notuðu til að festa klæði sín með. Árið 1896 markaðs- settu þeir félagamir nýju uppfinn- inguna og kölluðu hana Alhliða lás (Universal Fastener). Nýjungin fékk heldur dræmar viðtökur hjá kaupendum. Félagamir gáfust ekki upp en þróuðu rennilásinn áfram og árið 1910 settu þeir á hiarkað öryggislásinn C-Curity, sem einkum var ætlaður til að loka buxnaklaufum og á kvenpils. En öryggislásinn reyndist ekki nógu öruggur. Verkfræðingurinn Gideon Sunback slóst nú í lið með þeim Judson og Walker. Árið 1913 hafði Sunback tekist að betrumbæta uppfinninguna og var hún enn sett á markað án þess að almenningur tæki við sér. Afram var haldið við að fullkomna rennilásinn, en það var ekki fyrr en þriðja útfærsla rennilássins kom á markað að hagnaður varð af fyrirtækinu. Umskiptin í rekstrinum mátti þakka stórri pöntun frá bandaríska hemum. Upp frá því varð rennilás- inn það ómissarjdi þarfaþing sem flestir nota daglega og þykir ekki merkilegt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.