Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 19

Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 B 19 FERÐAMENN Vildi heimsækja sögnlandið , Morgunblaðið/EmiHa Hjónin Wendy og Martin Axford keyptu íslenska peysu handa barnabarni sínu. Ef að líkum lætur koma þau í þrettánda sinn tíl íslands í sumar. Bresku hjónin Wendy og Martin Axford skruppu til Islands í helgarferð um síðustu helgi. Það væri svo sem ekki í frásögur fær- andi, nema vegna þess að þetta er í tólfta sinn, sem þau koma hingað sem ferðamenn. Og ef að líkum lætur verður þrettánda íslands- ferðin farin í sumar. En hvað býr að baki þessari áráttu að heim- sækja hijóstrugt landið, þar sem allra veðra er von? Morgunblaðið hitti þau að máli yfir kaffibolla, og takið eftir yfir kaffibolla en ekki tebolla eins og Bretar eru þó alkunnir fyrir. Kannski er þetta ein af afleiðingum íslandsferð- anna! Martin, sem er fræðslustjóri, segir að löngunin til að kynnast söguþjóðinni sé ástæðan fyrir því að hann langaði til íslands, en hann hefur lesið fjöldann allan af fomsögum. „Við höfum komið á Njáluslóðir, Laxdæluslóðir, Gísla sögu Súrssonar, á Eyrbyggjaslóðir '• og víðar. Reyndar var ég svo ákaf- ur á Laxdæluslóðum, að ég ók út í skurð, en varð ekki meint af,“ riijar Martin upp brosandi. Wendy, sem er bókasafnsfræð- ingur, bætir við að þau hafi lang- að til að kynnast villtri náttúru, enda hafi þau alltaf tjaldað á ferð- um sínum. Þau komu hingað fyrst árið 1972 með börnin sín tvö, þá 6 og 10 ára. Þau minnast þess hlæjandi þegar þau komu til lands- ins í fyrsta skipti og hugsuðu á leiðinni frá Keflavík til Reykjavík- ur: „Guð minn góður, hvernig fer maður að því að tjalda í svona umhverfi?“ Þau hafa greinilega fundið það út, því þau hafa ferð- ast um allt ísland nema Austfirð- ina. Héldu súpuna vera sósuna Þegar þau eru spurð hvort þau hafí eignast góða vini í ferðum sínum svara þau játandi og segj- ast hafa verið mjög heppin. „Við hittum vini okkar fyrst á Djúpa- vogi. Það var of mikil rigning til þess að tjalda, svo við settumst inn á matsölustað. Við héldum að sætsúpa væri sósa, svo við helltum henni yfir lambakjötið. Þá veittum við því athygli að fólkið á næsta borði hló að okkur, en kom svo yfir og benti okkur á að þetta væri súpa. Maðurinn var Skoti að nafni Samuel Ritchie og kona hans Hulda. Með okkur tókst mikil vin- átta og þau buðu okkur að koma aftur til Islands. Samuel er nú látinn, en við höfum með tímanum kynnst allri ijölskyldunni þeirra.“ Martin og Wendy láta ekki stað- ar numið við ferðalögin hingað heldur eru þau núna að læra ís- lensku hjá Bergþóru Úlfarsdóttur, sem er í arkitektanámi í Skot- landi. „Við höfum farið í tíu tíma og erum að reyna að notfæra okk- ur það litla sem við kunnum. í bílnum má heyra okkur æfa: hest- ur - hest - hesti - hests,“ segir Martin hlæjandi og bætir við að vandinn við að nota íslenskuna sé sá, að allir tali hér ensku. „Sem betur fer,“ skýtur Wendy inni í. „Jafnvel þegar við biðjum um tvo kaffi, svara þjónamir á ensku,“ segja þau. Þá segjast þau nota hvert tækifæri sem þau hafi til að sjá íslenskar myndir og læra af þeim. Þegar þau eru að lokum spurð hvort þau hafi einnig ferðast til annarra landa svara þau, að þau hafi farið til Þýskalands, Noregs, Grænlands, Svíþjóðar og Dan- merkur. „En við endum alltaf hér, okkur líkar það best,“ segja þau. „Hvers vegna? Meðal annars vegna heitu lauganna. Við njótum þess að fara í sundlaugar og reyn- um að fara daglega þegar við emm stödd hér á landi," segir Wendy. „Hjá mér er það vegna bókmennt- anna. Mér finnst gaman að koma á sögustaðina og rifja upp hvað gerðist hvar,“ svarar Martin. Erla Þórarinsdóttir eigandi og verslunarstjóri ræðir við Vig- dísi Einarsdóttur og Katrínu Karlsdóttur. TISKA Tíu ára afmæli Etienne Aigner á Islandi Eigendur Etienne Aigner verslunarinnar í Banka- stræti 9, þau Erla Þórarinsdóttir og Sævar Karl Ólason, héldu nýlega upp tíu ára afmæli versl- unarinnar. Var viðskiptavinum boðið í íslensku óperuna, þar sem m.a. var sýnd nýjasta vor- og sumartískan frá fýrirtækinu. Auk þess komu Signý Sæmunds- dóttir og Þorgeir Andrésson fram og sungu dúetta úr Sarda- furstynjunni við góðar undirtekt- ir. Þess má geta, að Etienne Aigner verslunin er aðeins önnur af tveimur slíkum búðum á Norð- urlöndunum. Alls em 105 EA verslanir í heiminum öllum, þær nýjustu í Mílanó, Numberg, Jedda og Óman. Sýningarstúlkur úr Módelsamtökunum með sýnishom af vor- fatnaðinum. TISKAN1993 Alþjóðleg frístœl, tískutínu, förðunar, tískuhönnunar og fatagerðarkeppni DAGSKRÁ Hótel íslandi 7. mars 1993 11:00 Húsið opnar EFLUM ÍSLENSKANIÐNAÐ 11:45 Keppni í leikhúsförðun 12:00 Kynning á básunt og dagskrá 13:00 Keppni ídagförðun 13:45 Keppni í dagfatnaði 14:00 Keppni í sportklœðnaði 14:15 Keppni íbarnafatnaði 15:00 Keppni tísku og samkvtemisfórðun 15:00 Ljósmyndaförðun 15:00 Keppni í tískulínu 15:40 Dómur í Tískulínukeppninni 16:15 Keppni ífrjálsum fatnaði 16:30 Keppni í kvöld og samkvœmisfatnaði 17:00 Keppni ífrístœl 17:40 Dómur ífrístœlkeppninni 17:00 Fantasíuförðun 18:10 KokkteiU hjá básunum. 19:00 Kvöldverður 19:30 Anna og útlitið - uppákoma 19:45 Verðlaunaafhending 20:00 Fantasíufórðun á sviði 20:15 Verðlaunaafhending 20:30 World Class sýning 20:40 Verðlaunaafhending 20:50 Tískusýning 20:55.Sýning Dhaniel Doudfrá Redken U.S.A. 21:05 Make upfor ever sýning 21:15 Verðlaunaafhending 21:30 Van Thomsfrá Joico í U.S.A. 22:00 Verðlaunaafhending 22:15 Tískusýning 22:30 Verðlaunaafhending 22:45 Júdó sýning 22:50 Forsíðubikar afhentur fíítURONMENI—REDUCE POLLBtlON Forsíðubikar afhentur Van Thoms frá Joico U.S.A. Sýning Dhaniel Doud frá Redken U.S.A. World Class sýning - Judo sýning, Júdódeild Ármanns. 23:00 Verðlaunaafhending Tískusýning Módel '79: Herramenn, Gullfoss, Herraríkið, CM tískuverslun, Kjallarinn, Leðurlína, Fatagerðin Fasa og Eggert feldskeri. Landsamband iðnaðarmanna. Sebastian - Perma París - Ison - Hercules Lageman - Champion - Quality - Ambrosía - Manex - Image - KMS - Maria Galland - íslenska austurlenska - Oroblu - Snyrtistofan Salon Ritz - Förðunarmeistarinn - Wella Pétur Pétursson - Schwarzkopf - Snyrtistofan N.N. - Halldór Jónsson - Maybelline - No Name - Lancome Loréal - Kiela - Fortex - Centrix - Yasaka - Hoyer - Bergman - Oliva - Make upforever - Gardena - Interco - Daniel Doud - Newco - Playboy - Isabelle Lancray - Bugatti 's - Fatagerðin Fasa - Pivot Point - Redken - Logie - Saumastofan Sólin hf - Helgason hársnyrtivörur - Biolage - Image - Litróf SOCIETY OF ' ICELANDIC MAKE-l P ARTISTS FELAG ISLENSKRA SNYRTIFRÆÐINC.A Memberol': Comilé Intcmaiional1 ■5»] d Ésihéúcuo et de Cosmétolojiie HAR OG I EC.I RO ' HAIR AND BLAl'TY MAGAZINE TímaritiS Hár og fegurfi- Skúlagönt 54 - 105 Revkjavtk - Islatui- Sínti: 91-628141 - Fax 91-628141

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.