Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 13

Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ———i—; —i— M Stuttmyndadagar í Reykjavík er yfirskrift stuttmyndahátíðar Kvik- myndafélags íslands sem haldnir verða dagana 7.- 9. apríl að undirlagi þeirra Jóhanns Sigmarssonar og Júlíusar Kemps hjá Kvik- myndafélagi íslands. Svipuð hátíð var haldin í fyrra en nú verða veitt verðlaun fyr- ir þrjár bestu myndirnar og er það Reykjavíkurborg sem fjármagnar þau. Fyrstu verðlaun eru 250.000 krón- ur, önnur 150.000 ogþriðju verðlaun 50.000. MÁstralski leikstjórinn Gillian Armstrong („My Brilliant Career“) sneri aftur til Ástralíu til að gera myndina „The Last Days of Chez Nous“, sem nýlega var frumsýnd vestra. Með aðalhlutverkið fer þýski leikarinn Bruno Ganz en hann leikur mann sem held- ur framhjá með yngri systur konunnar sinnar. Með önnur hlutverk fara Lisa Harrow, sem fór með hlutverk móð- urinnar í sjónvarpsmynda- flokknum umNonna og Manna eftir Ágúst Guð- mundsson, og Kerry Fox. MSamtök arabískra Banda- ríkjamanna hafa kvartað við Jeffrey Katzenberg for- stjóra Disneyfyrirtækisins vegna neikvæðrar lýsingar á aröbum í nýjustu Disney- teiknimyndinni, Aladdín. Segir í söngtexta í myndinni um Agrahab, heimabæ titil- persónunnar: Þeir skera af þér eyrun/ef þeim líkar ekki andlitið/það er villimanns- legt en, hei, heima er best. Segir talsmaður Disney að engu verði breytt áður en myndin kemur út á mynd- bandi. Nfu útnefningar; úr Hávarðsenda. Óskarsútnefningar HÉR Á eftir fer listi yfilr nokkrar helstu útnefning- arnar til Óskarsverðlaunanna 1993. Besta myndin: Ljótur leikur („The Crying Game“). Heiðursmenn („A Few Good Men“). Hávarðsendi („Howards End“). Konuilmur („Scent of a Wo- man“). Hinir vægðarlausu („Unforgi- ven“). Besti leikarinn: Robert Downey (Chaplin). Clint Eastwood (Hinir vægð- arlausu). A1 Pacino (Konuilmur). Stephen Rea (Ljótur leikur). Denzel Washington (Malcolm X). Besti leikarinn í aukahlut- verki: Jaye Davidson (Ljótur leik- ur). Gene Hackman (Hinir vægö- arlausu). Jack Nicholson (Heiðurs- menn). A1 Pacino („Glengarry Glen Ross“). David Paymer (Herra Laug- ardagskvöld/„Mr. Saturday Night"). Besta leikkonan: Catherine Deneuve (Indó- kina). Mary McDonnell („Passion Fish"). Michelle Pfeiffer („Love Fi- eld“). Susan Sarandon (Olta Lor- enzos/ „Lorenzo's Oil“). Emma Thompson (Hávarðs- endi). Besta leikkonan í auka- hlutverki: Judy Davis (Hjónabands- sæla/„Husbands and Wi- fes“). Joan Plowright („Enchanted April“). Vanessa Redgrave (Há- varðsendi). Miranda Richardson (Skaði/ „Damage"). Marma Tomei (Vinny frændi/„My Cousin Vinny). Besti leikstjórinn: Neil Jordan (Ljótur leikur). James Ivory (Hávarðsendi). Robert Altman) (Leikmað- urinn/ „The Player". Martin Brest Hinir vægðar- lausu). Clint Eastwood (Konuil). Besta erlenda myndin: Nálægt Eden (Rússland). „Daens" (Belgia). lndókína (Frakkland). Staður í heiminum (Or- úgvæ). „Schtonk" (Þýskaland"). Besta frumsamda handrit- ið: Nell Jordan (Ljótur leikur). Woody Allen (Hjónabands- George Miller og Nick Enr- ight (Olía Lorenzos). John Sayles („Passion FÍ8h“). David Webb Peoples (Hinir vægðarlausu). 15.000 hafa séð Laumuspil Alls hafa nú um 15.000 manns séð spennu- myndina Laumuspil í Há- skólabíói, samkvæmt upp- lýsingum frá bíóinu. Þá hafa tæplega 30.000 manns séð íslensku gaman- myndina Karlakórinn Heklu í Háskólabíói en hún hefur einnig verið sýnd úti á landi, 7.400 hafa séð Hávarð- senda, 5.500 frönsku mynd- ina Elskhugann, 4.500 ástr- ölsku myndina Forboðin spor, 1.800 manns sáu gam- anmyndina Tvo ruglaða fyrstu sýningarhelgina og 1.500 hafa séð dönsku myndina Baðdaginn mikla. Næstu myndir Háskóla- bíós eru „Just Like A Wo- man“, gamanmynd með Julie Walters, „Trespass", nýjasta mynd Walter Hills, „Article 99“ með Ray Liotta og Kiefer Sutherland, Vinir Péturs eftir og með Kenneth Branagh og loks „Leap of Faith“ með Steve Martin. Þess má geta að Norræna kvikmyndahátíðin verður í Háskólabíói seinnipartinn í mars. Síðasta hetja hasarmyndanna „HÚN ER svona sambland af Galdrakarlinum í Oz og „48 Hrs“,“ er haft eftir handritshöfundum nýj- ustu spennumyndar Arn- olds Schwarzeneggers, „The Last Action Hero“ eða Síðasta hasarmynda- hetjan. Hún verður ein af sumarmyndunum í Bandaríkjunum og kemur í Stjörnubíó í júlí. Leikstjóri er John McTi- ernan („Die Hard“, „Predator") en með önnur hlutverk fara Bretinn Char- les Dance, Anthony Quinn, F. Murray Abraham og Mercedes Ruehl. Handritshöfundamir heita Shane Black og David Ar- nott (William Goldman kom eitthvað við sögu) og þeir segjast hafa sett í myndina hvert einasta formúluatriði hasarmyndanna sem þeim hafi komið í hug. Myndin segir frá ungum dreng sem hefur þann eiginleika að geta horfið inní bíómyndir uppá- halds hetjunnar sinnar. Eln af stóru sumarmynd- unum; Austin O’Brian og Schwarzenegger í Síðustu hasarmyndahetjunni. „Hann er kannski að horfa á Laurence Olivier leika Hamlet og hann fer að dreyma um Amold í hlut- verki prinsins," segir annar höfundurinn. Nema Amold, eins og venjulega, er með vélbyssu í hendinni og tekur að drita liðið niður. Góó aðsókn; tæp 30.000 manns séð Karlakórinn í Háskólabíói. í BÍÓ Oskarsverðlaunin verða afhent eftir mánuð en ekki hafa allar helstu myndirnar sem hlutu útnefningu komið i bíóin hér á landi. Búast má við að þær verði sýnd- ar fljótlega. Tvær byij- uðu reyndar um síðustu helgi, spennumyndin Ljótur leikur eftir Neil Jordan, sem hlaut sex útnefningar, og Chaplin, sem hlaut þrjár útnefn- ingar. Þegar hafa myndir eins og Hinir vægðar- lausu og Heiðursmenn verið sýndar hér, einnig Hávarðsendi, Leikmað- urinn og Hjónabands- sæla. Þær myndir sem við eigum eftir að sjá eru m.a. Malcolm X eftir Spike Lee, Konuilmur þar sem A1 Pacino þykir fara á kostum, „Gleng- arry Glen Ross“, þar sem Pacino er útnefndur fyrir leik í aukahlutverki en mörgum vestra hefur sjálfsagt komið á óvart að Jack Lemmon skyldi ekki hljóta útnefningu fyrir þá mynd, Indókína með Catherine Deneuve og Olía Lorenzos með Susan Sarandon. —KVIKMYNDI Hvad hefurfarid úrskeibis? Kreppan íHoUywood Hollywood er I kreppu. Um það vitnar m.a. nýleg út- nefning til Óskarsverðlauna. Aðeins ein mynd frá stóru kvikmyndaverunum í draumaverksmiðjunni hlaut út- nefningu sem besta myndin en það er Konuilmur eða „Scent of a Woman“ með A1 Pacino. Og það er lýsandi fyrir ástandið á þeim bænum að hún er endurgerð gamallar ítalskrar gamanmyndar. Fjallað var lítillega um endurgerðir evrópskra mynda í Hollywood hér á þessum stað fyrir viku. Þeim hefur fjölgað mjög vestra að undan- fömu og þykja ásamt öðru dæmigerð- ar fyrir vandann sem kvik- mynda- borgin stendur frammi fyrir þessa dagana. Þar virðist enginn fá frumlega hugmynd lengur eða gera myndir sem keppt geta við það besta sem gert er annarstaðar. Litlu óháðu kvikmyndafyrirtækin senda frá sér myndir eins og réttar- eftir Arnald Indriðason dramað Heiðursmenn og vestrann Hina vægðarlausu, sem eru áberandi við óskars- útnefningamar í ár, og það sem verra er fyrir Holly- wood, útlendingar fá lof, að- dáun og flestar útnefningar fyrir myndir eins og Hávarð- senda og Ljótan leik („The Crying Game“). I nýlegu hefti bandaríska vikuritsins Newsweek er rit- að um þessa þróun og spurt er: Hvað hefur farið úrskeið- is hjá valdamesta kvik- myndaiðnaði heimsins? Ein- faldasta svarið er að Holly- woodmyndimar kosta of mikið. Meðalverð á bíómynd er 2,6 milljarðar króna. Óhemju dýrt er að reka stóru kvikmyndaverin og það varla hægt nema stefna sífellt á stórkostlegar metsölumynd- ir. Þannig eru verin rekin með metsölu í huga og hún fæst í gegnum myndir sem höfða til alls almennings, fjölskyldugamanmyndir, hasarmyndir með Arnold Schwarzenegger, spennu- myndir. Þetta hefur Holly- wood reyndar verið að fást við alla öldina en áður hlutu þessar myndir líka lof jgagn- rýnenda og hrúgu af Oskur- um: Franska sambandið og Gaukshreiðrið eru nefndar sem dæmi. Það er alltaf hægt að treysta á að bíógest- ir undir 25 ára fylli húsin þegar verið er að sýna „Die Hard“ eða „Lethal Weapon“ og myndir Steven Seagals, en fullorðnari áhorfendur sjá ekki margar ástæður til að fara í bíó. Og Hollywood reiðir sig á örugga söluvöru fyrst og fremst. Bráðlega koma hing- að framhaldsmyndir „Way- ne’s World", AddamsQöl- skyldunnar og gamanmynd- arinnar Beethoven og bíó- Lltlar myndlr; Ljótur leikur með Forest Whitaker og Stephen Rea hlaut sex útnefn- ingar og gerir það gott i miða- sölu miðað við listræna, er- lenda mynd vestra. Stórmyndlr; „Hoffa" með Jack Nicholson er dæmi um Holly- woodvöru sem olli vonbrigðum í miðasölu en kostaði nógu mikið. myndimar sem gerðar eru uppúr þekktum sjónvarps- þáttum taka einnig brátt að flæða yfir heiminn: Denni dæmalausi, „The Beverly Hillbillies," „Mr. Magoo” og „Mr Ed“, þar sem aðalnúm- erið er talandi hestur. Ofan á þetta kemur fy'öldi endur- gerðra evrópskra mynda, sem áður hefur verið getið í þessum dálki. Forstjórar kvikmyndaver- anna hafa viðurkennt að þörf sé á „betri bíómyndum". Di- sneyfélagið hefur gert þriggja ára samning við Ismail Merchant og James Ivory, sem gerðu Herbergi með útsýni og Hávarðsenda, og Sony og Universal hafa stofnað sérstaka deild sem gera á alvarlegri, listrænni myndir. Hvort það eigi eftir að færa kvikmyndaverunum í Hollywood fleiri Óskara, meiri virðingu og eldri, þakklátari áhorfendur skal ósagt látið. Breska framleið- andanum David Puttnam mistókst það a.m.k. þegar hann var forstjóri Columbia.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.