Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 1
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
adidas
Kringlusport
Borgarkringlunni
selur Adidas
Morgunblaðið/Júlíus
ÍR-ingurinn Róbert Rafnsson,
sem átti mjög góðan leik gegn meist-
urum FH, sem lentu í kröppum dansi,
sækir að FH-ingunum Alexej Trúfan
og Kristjáni Arasyni, sem mynda
múr. Sjá um leiki kvöldsins B4,ÍB5.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
KNATTSPYRNA
Guðmundur
Ingi
skoraði
Guðmundur Ingi Magnússon,
sem lék með Víkingum í
fyrra, leikur nú með sænska lið-
inu Skövde AIK
í suðurriðli
sænsku 1. deild-
arinnar. Hann
kom mikið við
sögu í leik liðsins gegn Kalmar
FF um helgina. Hann gaf víta-
spyrnu er hann braut á leik-
manni Kalmar FF á 67. mínútu,
en bætti fyrir það með því að
skora eina mark liðsins í 2:1
tapi á 83. mínútu.
Frá Sveini
Agnerssyni
í Svíþjóð
Brian Clough látinn fara frá Forest eftir átján ára starf
Áttum ekki von á
þessari uppákomu
„ÞETTA er sögulegur dagur í lífi okkar leikmanna Nottingham
Forest. Við áttum ekki von á þessari uppákomu á þessum erfiða
tíma - við fengum fréttirnar á milli æfinga og vorum slegnir,"
sagði Þorvaldur Örlygsson, landsliðsmaður, eftir að tilkynnt hafði
verið að Brian Clough, framkvæmdastjóri Forest, myndi hætta
eftir þá tvo leiki sem Forest á eftir, en Clough var nýbúinn að
skrifa undir nýjan samning sem renna átti út 1994.
Það var ákveðið á framkvæmd-
arstjórnarfundi í hádeginu í
gær að Clough yrði ekki lengur hjá
félaginu. „Þessi ákvörðun kemur á
einkennilegum tíma. Það er enn
möguleiki fyrir hendi að við getum
bjargað okkur frá falli - við þurfum
að vinna Sheffield United heima á
laugardaginn og síðan Ipswich úti,
til að halda í vonina. Tímasetningin
á þessari uppákomu er því furðu-
leg,“ sagði Þorvaidur.
Brian Clough, 58 ára, hefur verið
dýrlingur í Nottingham eins og Hrói
höttur var. Hann hefur verið fram-
kvæmdastjóri Forest í átján ár og
undir stjórn hans komst félágið upp
úr 2. deild, varð Englandsmeistari
1978, Evrópumeistari 1979 og 1980.
Þá hefur Forest orðið íjórum sinnum
deildarbikarmeistari. Nú þegar Clo-
ugh er látinn fara, þá er liðið á leið
á þann stað sem hann tók við því -
í 2. deild.
„Það má örugglega rekja þessa
uppákomu til þess að tvö af stóru
blöðunum voru með greinar um Clo-
ugh á sunnudaginn og í öðru blaðinu
fékk hann það óþvegið - að hann
væri drykkjumaður. Ofögur mynd
var dregin upp í blaðinu," sagði
Þoi-valdur.
KNATTSPYRNA
Serbi til
Skaga-
manna
Islandsmeistarar ÍA í knatt-
spyrnu eiga von á serbnesk-
um miðheija á allra næstu dög-
um. Vinur Luca Kostic, miðvarð-
ar ÍA og besta leikmanns íslands-
mótsins í fyrra, mælti með við-
komandi leikmanni og kemur
hann til reynslu.
Miðheijinn heitir Zivko Ostojii
og er 29 ára gamall. Guðjón
Þórðarson, þjálfari ÍA, sagði við
Morgunblaðið í gærkvöldi að
Skagamenn hefðu skoðað ýmsa
möguleika í þeim tilgangi að
styrkja liðið. Menn í Belgrad
hefðu vitað af þessu og bent á
Ostojii. „Við sögðumst aðeins
hafa áhuga á mjög góðum manni
og okkur var sagt að miðheijinn
væri maðurinn, sem við værum
að leyta að. Við ætlum ekki að
kaupa köttinn í sekknum heldur
fáum hann hingað til reynslu
og ef dæmið gengur upp má
gera ráð fyrir að það fjölgi um
einn í hópnum.“
Brian Clough.
Mikil óvissa er nú í herbúðum
Forest, þar sem margit' leikmenn eru
með lausa samninga. Byijað er að
ræða um eftirmann Clough og hefur
Martin O’Neil, fyrrum leikmaður
liðsins, verið orðaður við starfíð.
KNATTSPYRNA: STRAKARNIR UNNU STORSIGUR GEGN N-IRUM AEM / B3