Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN
Fyrsti heili leikur Sverris í sjö ár
Sverrir Kristinsson, sem venju-
iega er varamarkvörður
Bergsveins Bergsveinssonar hjá
FH, var óvænt í aðalhlutverki í
gærkvöldi. Um hádegið fékk hann
að vita að Bergsveinn lægi veikur
heima með háan hita og uppköst
og þar með var ljóst að hann yrði
á óvenjulegum stað — í markinu.
„Þetta var fyrsti heili leikur
minn síðan 1986 og því var frek-
ar erfítt að koma inn og ég var
lengi í gang,“ sagði Sverrir við
Morgunblaðið eftir sigurinn gegn
ÍR.
Sverrir varði tvö langskot í fyrri
hálfleik, en markvarsla hans hafði
mikið að segja eftir hlé. í stöð-
unni 19:19 varði hann eftir hrað-
aupphlaup en hélt ekki boltanum
og skot úr homi fylgdi í kjölfarið
— en þá varði hann örugglega.
Þegar rúmar fimm mínútur vom
til leiksloka gerði hann sér lítið
fyrir og varði vítakast frá Bran-
iiav Dimitrivi, en þá var FH marki
yfir, 25:24. „Eg fór í gang í-seinni
hálfleik og þetta var gaman, því
dæmið gekk upp.“
Bergsveinn Iandsliðsmarkvörð-
ur leikur stórt hlutverk hjá FH
og því var mikil ábyrgð lögð á
Sverri, en hann stóðst álagið.
„Það er rétt, Bergsveinn spilar
stórt hlutverk, en ég reyndi að
hugsa ekki of mikið um hvað ég
þurfti að gera. Það gekk ágætlega
og nú er bara að halda áfrarn."
ÍÞRÓmR
FOLX
■ MARGIR voru ósáttir við dóm-
gæslu Rögnvald Erlingsssonar og
Stefáns Arnaldssonar í leik Vals
og Selfoss í gærkvöldi. Þess má
geta að þeir félagar komu til lands-
ins frá Þýskalandi kl. 15 í gær, en
þar dæmdu þeir leik í Evrópu-
keppninni.
■ VALSMENN voru ekki sérlega
ánægðir í leikhléi, að minnsta kosti
ekki stuðningsmenn þeirra. Tvívegis
hafði tveimur leikmönnum Vals,
þeim Geir Sveinssyni og Degi Sig-
urðssyni verið vísað af leikvelli.
Valur hafði því verið tveimur færri
í einar þtjár mínútur.
■ BERGS VEINN Bergsveins-
son, landsliðsmarkvörður úr FH,_gat
ekki leikið með liði sínu gegn IR í
gærkvöldi vegna veikinda. Sverrir
Kristinsson stóð í markinu allan
leikinn, en varamarkvörður var Jón-
as Stefánsson sem leikur með 3.
flokki félagsins.
■ PÉTUR Petersen, leikmaður
FH, fékk að líta rauða spjaldið hjá
dómurunum fyrir að mótmæla þeg-
ar hálf mínúta var eftri af leiknum.
„Eg sagði ekkert ljótt. Sagði að
hann [Dimitrivi] hefði stigið á lín-
una er hann skoraði 26. mark ÍR,“
sagði Pétur.
ÞÝSKALAND
Bremen
að hlid
Bayern
Werder Bremen vann Bayem
Munchen 4:1 í þýsku úrvals-
deildinni í gærkvöldi og eru liðin þar
með jöfn að stigum, en Bayern er
með betri markatölu. Liðin eru með
39 stig, þegar sex umferðir eru eftir.
Wynton Rufer frá Nýja-Sjálandi
skoraði úr tveimur vítaspymu Brem-
en eftir að Christian Ziega hafði náð
forystunni fyrir gestina. 40.800
áhorfendur tóku heldur betur við sér
og Austurríkismaðurinn Andreas
Herzog og Bemdt Hobsch bættu við
mörkum undir lokin.
Uwe Gospodarek, varamarkvörður
Bayem, var í marki þar sem Raim-
ond Aumann var með mikla tannpínu
og var leikurinn örugglega ekki til
að efla sjálfstraust stráksins, sem
er 19 ára.
Bayem Miinchen tók Saarbrucken
í kennslustund um helgina og vann
6:0, en Werder Bremen slapp með
skrekkinn í Köln og náði markalausu
jafntefli.
ÚRSLIT
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
Valur - Þróttur............1:1
Gunnar Gunnarsson - Hreiðar Bjarnason
FH slapp fyrir hom
ÍSLAIMDSMEISTARAR FH
sluppu fyrir horn í fyrstu viður-
eign sinni gegn ÍR-ingum í und-
anúrslitum ístandsmótsins í
handknattleik er þeir sigruðu
34:31 fæsispennandileiksem
þurfti að framlengja. ÍR-ingar
virtust eiga sigurinn vísan í
venjulegum leiktíma þvíþeir
voru yfir 25:26 og FH-ingar ein-
um leikmanni færri. En Kristján
Arason laumaði sér innúr
hægra horninu og jafnaði þeg-
ar 7 sekúndur voru eftir og
tryggði framiengingu.
Valur B.
lónatansson
skrífar
3 mörk. FH
forskoti, 5:1,
IR-ingar voru lengi að finna takt-
inn í Kaplakrika því þeir náðu
ekki að skora fyrr en 8 mínútur
voru liðnar af leikn-
um og_það gerði Jó-
hann Asgeirsson úr
vítakasti, en þá
höfðu FH-ingar gert
náði fjögurra marka
þegar tíu mín. voru
liðnar en þá sögðu ÍR-ingar hingað
og ekki lengra. FH klúðraði_ hverri
sókninni á fætur annarri og IR-ing-
ar nýttu sér það og náðu yfirhönd-
inni og komust í 11:14, en FH náði
að klóra í bakkann fyrir hlé, 13:14.
Síðari hálfleikur var spennandi.
ÍR hafði frumkvæðið framan af ,og
náði mest þriggja marka mun,
15:18, en síðan kom slæmur kafli
þar sem ekkert gekk og FH gerði
næstu fjögur mörk og allt í járnum.
Þegar tæpar sex mínútur voru eftir
var FH yfir 25:23. ÍR gerði næstu
þijú mörk og var yfir 25:26 og efn-
um leikmanni FH vísað af leikvelli
þegar 30 sek. voru eftir því Pétur
Petersen fékk rauða spjaldið á
bekknum fyrir að mótmæla dóm-
gæslunni. Hefði getað orðið dýrt
spaug fyrir FH, en Kristján Arason
sýndi hversu klókur leikmaður hann
er — fór innúr horninu og jafnaði,
26:26.
Enn var allt í járnum eftir fyrri
hálfleik framlengingar, 29:29. Hálf-
dán Þórðarson kom FH í 30:29 og
í kjölfarið var Branislav Dimitrivi
rekinn útaf og IR-ingar voru sem
vængbrotnir; FH-ingar hreinlega
flugu uppfyrir og lokatölur urðu
34:31.
FH-ingar léku ekki besta leik
sinn í vetur og var leikur þeirra
kaflaskiptur. Má vera að þeir hafi
vanmetið ÍR-inga, en sýndu styrk-
leika sinn í lokin þegar virkilega á
þurfti að halda. Sigurður Sveinsson
og Trúfan náðu sér vel á strik í
framlengingunni, gerðu þá sex
mörk af átta. Guðjón var sterkur í
fyrri hálfleik en síðan var settur á
hann „yfirfrakki". Hálfdán var
öflugur á línunni og Kristján í vörn-
inni. Gunnar óx með leiknum.
Sverrir stóð í markinu allan tímann
þar sem Bergsveinn Bergsveinsson
var veikur. Hann var lengi í gang
FH-ÍR 34:31
Kaplakriki, íslandsmótið í handknatt-
leik, fyrsti leikur í undanúrslitum 1.
deildar karla, mánud. 26. apríl 1993.
Gangur leiksins: 3:0, 3:1, 5:1, 5:4,
7:4, 7:8, 10:10, 11:11, 11:14, 13:14,
14:14, 14:15, 15:15, 15:18, 18:18,
20:20, 22.20, 24:21, 24:23, 25:24,
25:26, 26:26, 27:26, 29:28, 29:29,
32:29, 34:30, 34:31.
Mörk FH: Alexej Trúfan 7, Sigurður
Sveinsson 7, Guðjón Árnason 6/2,
Gunnar Beinteinsson 5, Hálfdán Þórð-
arson 5, Kristján Arason 3, Þorgils
Óttar Mathiesen 1.
Utan vallar: 10 mínútur og eitt rautt
spjald._
Mörk ÍR: Branilav Dimitrivi 8, Róbert
Þór Rafnsson 6, Ólafur Gylfason 6/1,
Matthias Matthiasson 5, Magnús
Ólafsson 3, Jóhann Ásgeirsson 2/1,
Guðmundur Þórðarson 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Hákon Siguijónsson og
Gufijón L. Sigurðsson.
Áhorfendur: 1.250.
en komst vel frá leiknum í heild.
ÍR-ingar sýndu að þeir eru sýnd
veiði en ekki gefin og of snemmt
að afskrifa þá. Ódrepandi barátta
og kraftur einkennir leik þeirra, en
reynsluleysi háði þeim lok venjulegs
leiktíma. Branislav Dimitrivi og
Ólafur Gylfason voru þeirra bestu
menn. Róbert byijaði vel en var of
gráðugur á köflum. Matthías og
Magnús Ólafsson sluppu einnig vel
frá leiknum.
Oöruggir í sókninni
- en stöndum vel
Kristján Arason, þjálfari FH, var
. öflugur í vörninni að vanda og
tryggði liði sínu framlengingu, þegar
hann skoraði úr hægra horninu og
jafnaði 26:26 sjö sekúndum áður en
flautað var til leiksloka.
„Sóknarleikurinn gek illa hjá okk-
ur. Við vorum óöruggir í spila-
mennskunni, þversendingamar voru
hættulegar og þeir refsuðu okkur
með hraðaupphlaupum. Öryggisleys-
ið setti okkur útaf laginu og þetta
er hlutur, sem við verðum að bæta.
En við erum 1:0 yfir og förum
óhræddir í Austurbergið, því ef illa
fer eigum við alltaf heimaleikinn til
góða. ÍR-ingar hafa í huga að tapi
þeir næsta leik eru þeir úr leik, en
við höfum spilað vel á útivelli undan-
farin tvö ár og stuðningsmennirnir
hjálpa okkur örugglega eins og að
þessu sinni.“
ÍR-ingar saman í mörg ár
Sigurður Sveinsson hefur bætt sig
með hveijum leik og var óstöðvandi
í sókn FH. „Þetta var eins og gera
mátti ráð fyrir. ÍR-ingar eru með
baráttulið, strákamir hafa leikið
saman í mörg ár og vinna á mjög
sterkri liðsheild og frábærum móral,
en við höfðum þetta á hefðinni."
Komum aftur í Kaplakrika
„Það eru viss vonbrigði að tapa
vegna þess að við vorum með sigur-
inn í hendi okkar. En það er aðeins
þriðjungur búinn og við ætlum okkur
að koma aftur hingað í Kaplakrika
á föstudagskvöld," sagði Brynjar
Kvaran, þjálfari ÍR.
„Vendipunkturinn í leiknum var
er Dimitrivi var rekinn útaf í síðari
hálfleik framlengingarinnar. Hann
var aðeins að beijast heiðarlega um
boltann. Það var fáranlegt að reka
hann útaf. Þessir dómara hafa verið
okkur mjög óhagstæðir í vetur og
vom það einnig í þessum leik. Von-
andi eru við lausir við þá í næstu
leikjum það yrði öllum fyrir bestu.
En það er ljóst að við verðum að
vinna næstu tvo leiki og ég sé ekki
neitt því til fyrirstöðu," sagði Brynjar.
SOKNAR-
NÝTING
Urslitakeppnin í
handknattleik 1993
Valur Selfoss
Mðf1< Sóknir %
MörkSóknir 1
FH
Mörk Sóknir %
Mörk Séknir %
15 16 24 62 F.h 10 25 31 52 S.h 17 31 40 55 14 13 8 34
31 55 56 Alls 27 56 48
10 Langskot 16 7
1 Gegnumbrot 1 6
9 Hraðaupphlaup 2 8
5 Horn 3 7
5 Lína 2 wmm , ■ 4
1 Víti 3 2
5 10 50
Langskot
Qegnumbrot
Hraðaupphlaup
Hom
Lína
V/ti
12
2
8
1
6
2
Jón Kristjánsson stjómaöi leik Valsmanna eins og herfo
Þannig vörðu þeir
Markvarslan í leikjum gærkvöldsins (
mótheija).
Sverrir Kristinsson, FH - 12/2 (5/1)
hlaup, 2 (1) víti, 3 (2) úr horni.
Magnús Sigmundsson, ÍR - 10/1; 3
hraðaupphlaup, 1 víti.
Guðmundur Hrafnkelsson, Val - 9 (I
úr horni, 1 af línu.
Einar Þorvarðarson, Selfossi -10 (2);
hlaup, 1 (1) gegnumbrot.
Ólafur Einarsson, Selfossi - 1 (1); 1
Ásmundur Jónsson, Selfossi - 1; 1 1;