Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
B 5
Valsmenn léku sterkan varnarleik
Selfyssingar
audveld bráð
ÞAÐ var enginn meistarabiær
yfir leik Vatsmanna og Selfyss-
inga í Laugardalshöllinni, þar
sem Valsmenn unnu öruggan
sigur, 31:27. Ákveðnir Vals-
menn, sem léku grimman
varnarleik, tóku leikinn strax í
sínar hendur og náðu Selfyss-
ingar sér aldrei á strik gegn
þeim. Undir lokin leystist leik-
urinn upp í kjánaskap, en þá
notaði Þorbjörn Jensson,
þjálfari Valsmanna, tækifærið
og setti varamenn sína inná
og lét þá leika maður gegn
manni. Þeir voru eins og kálfar
sem sleppt er út á vorin -
hlupu út um víðan völl; kunnu
sér ekki læti. Leikmenn byrj-
unarliðs Vals sátu á bekknum
og skemmtu sér konunglega.
Sigur þeirra var aldrei í hættu.
Valsmenn gáfu tóninn strax í
bvrjun með því að skora þrjú
fyrstu mörk leiksins og það var
ekki fyrr en á sjö-
undu mín. að Sel-
fyssingar náðu að
koma knettinum í
netið. Valsmenn
voru alltaf með yfirhöndina - þeir
léku sterkan varnarleik, sem setti
Selfyssinga út af laginu og skoraði
Sigurður Sveinsson t.d. aðeins eitt
mark í fyrri hálfleik. Hin stórskytt-
an, Einar Gunnar Sigurðsson,
skoraði tvö mörk, en það var ein-
kennilegt hvernig hann reyndi að
hnoðast í gegnum vörn Vals-
manna; í stað þess að nýta hæð
sína og stökkva upp af níu metrun-
um til að skjóta. Þegar skytturnar
hjá Selfyssingum voru pass, reyndi
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Valur - Selfoss
31:27
Laugardalshöll. Undanúrslit meistarakeppninnar í handknattleik, fyrsti leikur, mánudag-
ur 24. apríl 1993.
Gangur leiksins: 3:0, 3:1, 4:3, 5:5, 8:5, 11:6, 12:9, 15:10. 15:12, 20:14, 23:17, 24:18,
25:19, 29:22, 30:25, 31:27.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 8/1, Ólafur Stefánsson 6, Valdimar Grímsson 6, Geir
Sveinsson 4, Dagur Sigurðsson 3, Jakob Sigurðsson 2, Ingi H. Jónsson 2.
Utan vallar: 10 mín.
Mörk Selfoss: Sigurðru Sveinsson 8, Gústaf Bjarnason 6/3, Einar Gunnar Sigurðsson
6, Einar Guðmundsson 2, Siguijón Bjarnason 2, Oliver Pálmarsson 2, Jón Þórir Jónsson 1.
Utan vallar: 4 mín.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnaldsson, sem hafa oft dæmt betur.
Áhorfendur: 1.178 greyddu aðgangseyri.
línumaðurinn Gústaf Bjarnason
langskot. Svo örvæntingafullur var
sóknarleikur Selfyssinga.
Valsmenn áttu ekki í erfiðleikum
með varnarleik Selfyssinga og
stjórnaði Jón Kristjánsson sóknar-
aðgerðum Valsmanna af stakri
snilld. Það er vægast sagt furðu-
legt að ekki hafi verið not fyrir
hann með landsliðinu í vetur. Jón
skoraði alls átta mörk í leiknum,
en Valsmenn nýttu sér fálmkennd-
ann sóknarleik Selfyssinga og
skoruðu níu mörk eftir hraðaupp-
hlaup.
Einar Þorvarðarson byrjaði í
marki Selfyssinga og varði vel -
hélt sínum mönnum á floti og varði
tíu skot. Hann fór síðan úr mark-
inu í byijun seinni hálfleiks og
kunnu Valsmenn vel að meta það.
Tveir markverðir fengu að
spreysta sig - fyrst Olafur Einars-
son og þá Ásmundur Jónsson, en
þeir vörðu sitt hvort skotið.
Eins og fyrr segir var sigur
Valsmanna aldrei í hættu og leik-
urinn var spennulítill og vægast
sagt leiðinlegur.
Létlara en ég bjóst við
- sagði Þorbjörn Jensson þjálfari Vals eftir öruggan sigur á Selfyssingum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ringi. Hann átti mjög góðan leik og skoraði átta mörk.
innan sviga varið en boltinn aftur til
; 5 (1) langskot, 2 (1) eftir hraðaupp-
langskot, 3 úr horni, 2 af línu, 1 eftir
>); 5 (3) langskot, 2 (2) gegnumbrot, 1
; 5 (1) langskot, 2 úr horni, 2 hraðaupp-
(1) hraðaupphlaup.
mgskot.
Já, þetta var i raun léttara en ég
bjóst við,“ sagði Þorbjörn Jens-
son þjálfari Vals eftir að Valsmenn
höfðu sigrað Sel-
fyssinga með fjög-
urra marka mun í
gærkvöldi.
Þorgjörn lét unga
og óreynda stráka inná þegar tæp-
ar fjórar mínútur voru til leiksloka
og forysta Vals örugg. Var hann
ekkeit hræddur um að hann tefldi
of djarft? „Nei, ég var alveg viss
um að tíminn væri of naumur fyrir
Selfyssinga tíl að ná að jafna þann-
ig að þetta var engin hætta,“ sagði
þjálfarinn.
Sigurinn var sannfærandi þó að-
eins munaði ijórum mörkum í Iokin.
Verður leikurinn á miðvikudaginn
erfiðari? „Já, ég á von á því. Það
verður alla vega mun meiri barátta,
það er alveg ljóst. í kvöld áttum
við betri dag en Selfyssingar og því
var sigurinn svona auðveldur. Vörn-
in small saman hjá okkur og það
munaði um það,“ sagði Þorbjörn.
Viö erum með besta liöið
Jón Kristjánsson átti mjög góðan
leik fyrir Valsmenn, bæði í vörn og
sókn. Telur hann að Valur sé með
besta liðið? „Já, ég held það, svona
á heildina litið. Annars er úrslita-
keppnin þannig uppbyggð að vænta
má óvæntra úrslita og lítið sem
ekkert má bera útaf til að illa fari.
Við þurfum til dæmis aðeins að eiga
tvo slæma daga þá er allt búið,“
sagði Jón.
Jón var í miklu'stuði, gerði sex
mörk í fyrri hálfleik og tvö í þeim
síðari en þá var hann tekinn úr
umferð. Er hann í miklu formi þessa
dagan? „Þetta gekk alla vega ágæt-
lega í kvöld og var i raun auðveld-
ara en ég átti von á. Það var spurn-
ing hvernig okkurtækist upp í vörn-
inni og hún small saman hjá okkur
og því fengum við hraðaupphlaup
sem nýttust og þetta fór að rúlla
hjá okkur. Það veikir óneitanlega
lið Selfoss að Gísli Felix [Bjarnson]
er ekki með. Ég á von á jafnari
leik á Selfossi á miðvikudaginn, en
það verður bara að koma í ljós
hvernig hann endar,“ sagði Jón.
Vantaði hungrið til að sigra
Einar Þorvarðarson þjálfari og
markvörður Selfyssinga var að von-
um ekki ánægður með leik liðsins.
„Við gerðum allt of mikið af mistök-
um, bæði misfórast allt of margar
sendingar og eins gerðum við of
mikið af „teknískum" mistökum.
Sóknin var ekki nógu góð og Vals-
menn fengu allt of mörg hraðaupp-
hlaup og náðu fimm marka forystu
í fyrri hálfleik og við náðum þeim
mun aldrei. Hann var allt of mikill
fyrir okkur. Varnarlega lékum við
líka illa og því má ljóst vera að við
lékum í heildina illa og ég vona að
við leikum betur heima á miðviku-
daginn,“ sagði Einar.
Nú er liðið um eitt ár síðan Ein-
ar stóð síðast í markinu, i úrlsita-
keppninni í fyrra. Einar varði ágæt-
lega þrátt fyrir að hafa slaka vörn
fyrir framan sig, en getur það ver-
ið að leikmenn hafi orðið tauga-
óstyrkir vegna þess að Gísli Felix
var ekki í markinu?
„Nei, það held ég ekki. Þegar
svona kemur fyrir, að lið missir
mikilvægan mann, ætti það frekar
að þjappa þeim sem eftir era sam-
an. Það vantaði hungrið í sigur sem
verður að vera til að vinna í svona
leikjum. Vonandi látum við ekki
staðar numið hér og bætum leik
okkar á miðvikudaginn og við verð-
um síðan bara að sjá til hvort það
dugar,“ sagði Einar.
Skuli Unnar
Sveinsson
skrifar
Hvað næst -
rokkhljóm-
sveit?
Valsmenn mættu með sér-
stakt hátalarakerfi sem
þeir settu upp á svið Laugar-
dalshallarinna og notuðu óspart
fyrir leik, í leik-
hléi og eftir leik
og það sem
meira er, á með-
an á ieiknum
stóð. Það er ekkert nema gott
eitt um það að segja ef menn
vilja stiðja við bakið á sínu liði
í leikjum, ekki síst mikilvægum
leikjum. En uppátæki Vals-
manna í gærkvöldi var einum
of.
Gaslúðrarnir voru á sínum
tíma bannaðir með tilskipun frá
Handknattleikssambandinu, að-
eins má nota lúðra sem menn
blása sjálfir í. Mörgum finnst
að einnig eigi að banna tromm-
ur og í rauninni allt nema radd-
böndin. Þeim er þetta ritar þyk-
ir í lagi að nota hljóðkerfi hús-
anna til að skjóta inní stuttum
lagstúfum þegar leikmenn
skora og þegar leikurinn er
stopp einhverra hluta vegna.
Slíkt tíðkast víða erlendis og
setur skemmtilegan svip á leik-
inn, svo Iengi sem menn mis-
nota það ekki og reyni að gera
lítið úr mótheijunum.
Slíkt gerðist í gærkvöldi.
Þegar Sigurður Sveinsson var
að taka fyrsta vitakast leiksins
komu ógurlegir skraðningar úr
„græjum“ piltanna tveggja.
Sigurður misnotaði vítakastið
og þá komu fagnaðarlætín á
margföldum styrk. Þetta á auð-
vitað að banna.
Sem betur fer sáu piltarnir
að sér í síðari hálfleik og virt-
ust þeir þá fylgjast betur með
því sem var að gerast á vellinum
og notuðu hljóðkerfið ekki í tima
og ótíma. Vonandi koma Vals-
menn ekki með rokkhljómsveit
á næsta leik, þó svo það sé
ekkert í lögum sem banni það.
Dómarar hafa að vísu heimild
til að stöðva áhorfendur telji
þeir þá hafa truflandi áhrif á
leikinn
„Mér finnst óþægilegt að
hafa mikinn hávaða, en þetta
er ef til vill bara þróun sem
erfitt er að koma I veg fyrir,“
sagði Þorbjöm Jensson þjálfari
Vals, þegar hann var spurður
að því hvernig honum litist á
nýjustu stuðningsmenn Vals.