Morgunblaðið - 01.05.1993, Blaðsíða 9
8 C
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARUAGUR I. MAI..1993
Garðahönnun
Grunnur aó
„ÞAÐ LANGAR flesta til að eiga
fallegan garð við húsið sitt, en
svo er mismunandi hvað fólk vill
leggja mikla vinnu í garðinn. Oft
heyrist setn-
ingin „ég hef
engan tíma til
að hugsa um
garð“. En það
er ekki hægt
að eiga falleg-
an garð nema
að hugsa vel
um hann. Það
er heldur ekki
bara kvöð, því
fylgir mikil
ánægja því að
garðurinn er
eins og barn.
Hann er lif-
andi og þeim
betur sem
hugsað er um
hann þeim
mun betur
claustra
_! _
!»-4 4-
T
'1'
4-
i
i
i;
í;| i
Pergola
dafnar hann, eigendum sínum til
meiri ánægju,“ segir Stanislas
Bohic, garðahönnuður. Frakki
sem flutti til íslands fyrir 15
árum og hefur starfað við garða-
hönnun síðan .
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1993
C 9
EINFALDARI LAUSN á hugmyndinni. Hér er
stóri pallurinn allur í sömu hæð og ekki stúkaður
frá öðrum hlutum garðsins.
GRUNNHUGMYNDIN byggir á því að nýta garðinn vel að vestan og sunnanverðu og Ioka
af litla „paradís" í bakgarðinum.
sto
utanhússklæðning
Eru eftirfarandi vandamál
að angra þig?
ALKALÍ-SKEMMDIR SÍENDURTEKIN MÁLNINGARVINNA
FROSTSKEMMDIR LÉLEG EINANGRUN
LEKIR VEGGIR EILÍFAR SPRUNGUVIÐGERÐIR
Ef svo er, skaltu kynna þér kosti
sto-utanhússklæðningarinnar:
STO-KLÆÐNINGIN
...er samskeytalaus akríl-klæðning
...er veöurþolin
...leyfir öndun frá vegg
...gefur ótal möguleika í þykkt, áferð og mynstri
...er litekta og fæst í yfir 300 litum
...er teygjanleg og viðnám gegn sprungumyndun er mjög gott
■KLÆÐNINGUNA
...er unnt að setja beint á vegg, plasteinangrun eða steinull
...er hægt að setja á nær hvaða byggingu sem er,
án tillits til aldurs eða lögunar
Sto-klæöningin þekur 70 þúsund fermetra víðs vegar um land
STO-KLÆÐNINGIN ENDIST - ÞÝSK GÆÐAVARA STO-KLÆÐNING Á ÍSLANDI í 6 ÁR
VEGGS RÝÐIf
BlLDSHÖFOA 18 4 SÍMI 91 - 67 33 20
FAX 91 - 67 -43 20
Garðáhöld í sérflokki
- yfir 100 ára reynsla
4
Umboðsmenn
á Islandi:
K. Þorsteinsson & Co.
SkútuvogilOE • 104 Reykjavík • Sími 685722 • Fax 687581
tanislas segist merkja mikla hugar-
farsbreytingu varðandi garðamálin
frá því sem var. „Breytingin er mjög
til batnaðar og fólk er farið horfa í meira
í samhengi á húss og garðs. Jafnvel á
meðan húsið er enn á teikniborðinu. Slík
verkefni eru mjög skemmtileg og bjóða
upp á samvinnu garðarkitekts og arki-
tekts hússins."
Þegar skoðuð eru nýleg hverfi á höfuð-
borgarsvæðinu vekur nokkra eftirtekt að
lóðir eru fremur litlar. Nema dæminu sé
snúið við eins og Stanislas gerir, húsin
eru of stór. En staðreyndin er að oft er
erfiðara að skipuleggja lítinn garð en stór-
an. í lítinn garð hentar verr gróður sem
er plássfrekur. Stór og mikil tré, eða
blómabeð í litlum garði „rninnka" hann.
Gróður sem er ekki of stórvaxinn eða
mikill um sig „stækkar" lítinn garð, jafn-
vel þótt talsvert sé af honum.
„Fólki fmnst stundum að litlir garðar
bjóði upp á lítið annað en grasflöt og lim-
gerði,“ segir Stanislas. „En það er hægt
að gera litla garða mjög skemmtilega og
búa til skjól þannig að garðurinn nýtist
vel. Slétt grasflöt með lágu limgerði sem
á mörg ár eftir í vexti áður en það gefur
eitthvað skjól, hefur miklu minna nota-
gildi.“
Varðandi skjólið bendir Stanislas einnig
á að fólki hætti til að hafa skjólveggi og
skjólgirðingar of stuttar, t.d. þannig að
sá hluti grasflatar sem er í skjóli sé en-
fremur í skugga. „En það er nauðsynlegt
að búa til skjól, bæði til að fólk geti notað
garðinn og til að skapa gróðri betri vaxtar-
skilyrði. Þegar gróðurinn hefur svo fengið
að vaxa gefur hann af sér skjól líka og
með tímanum og útsjónarsemi getur garð-
ur sem áður gustaði um orðið að skjólgóð-
um sælureit."
Stanislas var beðinn um að koma með
grófar hugmýndir að lausn á lóð sem virð-
ist nokkuð dæmigerð að stærð fyrir þau
hverfí sem eru að byggjast upp nú. Tvær
götur liggja að lóðinni, í norður og svo
vestanmegin, sem talsverð er
umferð um. Út frá baklóðinni
sem snýr í suður kemur halli
niður að læk sem rennur á
milli lóðarinnar og leikvallar.
Lóðin er um 840 fermetrar og
húsið um 210 fermetrar.
Auk aðalanddyris og inn-
gangs í bíiskúr á austurhlið
hússins, eru tvennar dyr út
á lóðina. Út úr borðstofu á
vesturhlið og í bakgarðinn
út úr stofu, sem er á lægri
palli en aðrir hlutar hússins.
„Þessar skissur að garðinum
eru í raun þrjár útfærslur á sömu
grunnhugmyndinni. Ætti að teikna þær
í endanlegri útfærslu mætti bianda þeim
saman,“ segir Stanislas. „En ef við tölum
út frá útfærslunni á skissu 1, þá er lengd
frá húsi að lóðarmörkum framanvið á bil-
inu 5-7 metrar. Það virkar kannski ekki
mikið til að vinna úr í fljóti bragði, frem-
ur en fjarlægðin á vesturhliðinni. En að-
koman að húsinu býður upp á stílhreina
og einfalda hönnun. Misháir blómakassar
með lýsingu mynda gangveg á milli stétt-
arinnar og bílastæðis, þannig að við
„minnkum" breiddina á svæðinu fyrir
framan húsið.
Fjarlægðina frá vesturhliðinni að göt-
unni við hliðina, „aukum“ við hins vegar
með því að loka garðinn frá götunni með
timburskilveggjum. Þá er ekki um að
ræða langa timburgirðingu í beinni línu
og sömu hæð, heldur búum við til dálítið
landslag með lögun skilveggsins og hann
er mishár, þannig að ákveðið útsýni í þá
átt heldur sér og gróður og grjót beggja
vegna hans. Með lokun frá götunni er
kominn grundvöllur fyrir litla pallinn eða
„útigrilis-pallinn" sem opnast út á frá
borðstofu. Og ég myndi setja lítið upplýst
listaverk á grasflötina fyrir framan hann.
Með litlum steinhellum er gangvegur
umhverfís húsið og í suð-austur horninu
er ágætt pláss fyrir matjurtagarð. En
aðalatriðið í þessari útfærslu er suðurpall-
urinn, sem yrði lítil paradís. Hann er að
mestu lokaður frá með skilveggjum, svo-
köiluðu „claustra“ (sjá teikn.), sem eru
hentugir fyrir klifurplöntur. Síðan er lítill
skjólveggur vestanvið pallinn. Efri hluti
pallsins er í sömu hæð og stofan, en geng-
ið er niður tröþpur á neðri hlutann og
heiti potturinn tengir á milli pallanna. Svo
eru svokallaðar Pergolur á fjórum stöðum
sem opna á milli svæða í garðinum.
Þar sem baklóðin snýr út að læk, en
liggur ekki upp við aðra lóð, myndi ég
leyfa gróðrinum að vera óreglulegum við
lóðamörkin bakatil og láta hann mynda
dálítið landslag þannig, í stað þess að
liggja í beinni línu,“ segir Stanislas. „Þetta
eru mjög grófar vinnuskissur, en í þeim
kemur fram sú grunnhugmynd sem ég
myndi leggja til, þannig að eigendumir
fengju sem mest út úr garðinum, þótt
hann sé ekki stór,“ segir Stanislas.
Að lokum sagðist hann vilja benda fólki
almennt á að gefa sér góðan tíma til að
velta garðinum fyrir sér og gera sér grein
fyrir því hvemig það vildi nota hann í
stað þess að drífa sig í að klára lóðina
bara til að klára hana. Og komast svo að
því síðar og kannski of seint að eiginlega
hefði það viljað hafa hana allt öðm vísi.
ve
LÆKURINN er til staðar og rennur
samsíða baklóðinni - því ekki að nota
hana til að búa til litla tjörn? í þess-
ari hugmynd er gengið í gegnum
garðinn eftir svokölluðum stiklum og
möl notuð með grasflötunum.
YFIR 4000 LAG VERÐ
Urval garðáhalda
Búsáhöld, húsgögn,
leikföng, gjafavara,
skartgrípir o. fl.
Verð kr. 190 án bgj.
Pöntunarsími 52866
BM b. m agnússon hf.
Hólshrauni 2 - siml 52866 - Hafnarfirði
Grasklippur með
180 ° snúnings-
blaðifrá...
íSrgardena
Gleðilegt sumar/
ws
Upplifðu andblæ
miðaldaborga Evrópu
- í Fornalundi B.M.Vallá
Fornilundur er heitið á nýju sýningarsvæði Fornlína B.M.Vallá er byggð á aldagömlum
B.M.Vallá að Breiðhöfða 3. Fornilundur er evrópskum hefðum og fýrirmyndum.
í raun lítill lystigarður þar sem Fornlína Fornlínunni tilheyra meðal annars forn-
B.M.Vallá og gamalgróinn trjálundur
skapa andblæ miðaldaborga Evrópu.
I Fornalundi getur þú látið hugann
reika aftur í tímann og fengið
góðar hugmyndir
varðandi garðinn
þinn.
, kX V -í
Fornilundur hlaut
viðurkenningu
Umhverfisráðs
Reykjavíkurborgar
1991.
steinn, fornklakkur, fornker, myllu-
steinn og garðbekkir. Fornlínan nýtur
sín jafnvel hvort sem umhverfið er
nýtískulegt eða í gömlum stíl og
hún gefur umhverfinu einkar
traust og virðulegt
yfirbragð.
Fáðu sendar
upplýsingar um
Fornlínu
B.M.Vallá hf.
© 68 50 06
B.M.VALLA? Steinaverksmiðja:
Sóluskrirstora og syningarsvæoi
Breiðhöfða 3
sími 91 -6830 06
;T
AUK k100d11-68