Morgunblaðið - 13.05.1993, Qupperneq 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
+
Bankamál
ÁfeUisdómur yfír bankakerfínu
íslenskt bankakerfi er dýrt og óhagkvæmt miðað við mörg önnur lönd samkvæmt nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar
Háskólans en bankamenn setja mikla fyrirvara við þennan samanburð
NÝLEG skýrsla Hagfræðisstofnunar Háskólans um íslenska
banka og sparisjóði dregur upp fremur dökka mynd af rekstri
þeirra með samanburði við bankastofnanir á Norðurlöndunum,
í Bretlandi og Bandaríkjunum. Þannig virðist rekstrarkostnaður
í bankastarfsemi hér á landi um tvöfalt meiri en í þessum lönd-
um. Hvergi eru fleiri bankastarfsmenn og bankaútibú eru óvíða
fleiri í hlutfalli við fólksfjölda. Að sama skapi er vaxtamunur
hér hærri en í þessum löndum og þjónustutekjur hærri í hlut-
falli við heildareignir. Hins vegar eru fyrirvarar á þessum niður-
stöðum mjög margir og bankamenn telja þennan samanburð
að ýmsu leyti varhugaverðan.
I skýrslu Hagfræðistofnunar er
á það bent að starfsmannakostnað-
ur sem hlutfall af niðurstöðu efna-
hagsreiknings var rúmlega 3% að
meðaltali á árunum 1985-1991 hér
á landi, en tæplega 1,4% að meðal-
tali í samanburðarlöndunum. Hjá
innlendum viðskiptabönkum er
þetta hlutfall um 3% að meðaltali
en hjá sparisjóðunum um 3,8%.
Þá eru fleiri bankastarfsmenn
hér á landi en á Norðurlöndunum
samkvæmt skýrslunni. Starfsmenn
á hvetja tíu þúsund íbúa hér á landi
hafa verið að meðaltali um 112 á
árunum 1985 til 1991 á sama tíma
og þeir hafa verið um 77 að meðai-
tali á hinum Norðurlöndunum.
Þrátt fyrir fækkun útibúa hér á
landi á undanförnum árum hafa þau
verið fleiri en á hinum Norðurlönd-
unum. Útibú á hveija tíu þúsund
íbúa hafa verið að meðaltali 7 hér
meðan þau hafa verið 6 á hinum
Norðurlöndunum á áðurnefndu ára-
bili.
Annar rekstrarkostnaður er einn-
ig hæstur hér á landi en Finnar
fylgja fast á eftir. Þessi kostnaður
var um 2,3% af niðurstöðutölu efna-
hagsreiknings að meðaltali á árun-
um 1985 til 1991 en um 1,3% í
samanburðarlöndunum. Hjá inn-
lendum viðskiptabönkum hefur
þetta hlutfall verið 2,2% að meðal-
tali en hjá sparisjóðunum um 3,4%.
Þá eru opinber gjöld einnig tiltölu-
lega há hér á landi miðað við erlend-
is. _
A hinn bóginn hafa þjónustutekj-
ur banka og sparisjóða hér á landi
verið um 2% af heildareignum mið-
að við 1,2-1,5% í öðrum löndum.
Vaxtamunur hefur sömuleiðis verið
nokkru meiri en í samanburðarlönd-
unum. Fyrir bankakerfið í heild var
vaxtamunur mestur hér á landi árið
1987 eða 6,31% en hefur Jækkað
síðan í 4,93% árið 1991. Á sama
tíma var hann 2,6-2,8% í saman-
burðarlöndunum. Vaxtamunur
sparisjóða hér á landi hefur verið
nokkru meiri að meðaltali sem skýr-
ist af því að þeir stunda fremur
smásöluviðskipti sem kreíjast meiri
kostnaðar,-að því er segir í skýrsl-
unni.
Bankalán á íslandi að mestu
leyti til skamms tíma
Við þennan talnasamanburð eru
hins vegar settir mjög veigamiklir
fyrirvarar. í skýrslunni er tekið
fram að oft er um að ræða stofnan-
ir með gerólíka starfsemi jafnframt
því sem erlendar stofnanir eru yfir-
leitt mun stærri og viðameiri en
íslenskar bankastofnanir. Þá sé
markaðsumhverfið oft mjög ólíkt
enda erlendir markaðir mun stærri.
Afskipti stjórnvalda séu mismikil
og tveir af íslensku viðskiptabönk-
unum í eigu ríkisins.
Það er einnig talið skipta veru-
legu máli í þessum samanburði að
innlendar stofnanir hafa eingöngu
átt í viðskiptum með skammtímalán
en langtímalán eru veitt af Ijárfest-
ingarlánasjóðum. Skammtímalán-
um fylgir meiri tilkostnaður og
benda skýrsluhöfundar á að staða
innlendra lánastofnana myndi
batna tiltölulega í samanburði við
erlendar stofnanir væri skiptingin
milli skammtíma- og langtímalána
með sama hætti. Þegar starfsemi
banka og ijárfestingarlánasjóða er
lögð saman kemur í ljós að allar
helstu kennitölur úr rekstri lækka
tiltölulega mikið. Kemur fram að
kostnaður vegna starfsmanna sem
hlutfall af heildarniðurstöðu efna-
hagsreiknings lækkar um rúmlega
50% að meðaltali, þjónustutekjur
sem hlutfall af niðurstöðu efna-
hagsreiknings lækka um 22% að
meðaltaii og hlutfall vaxtamunar
lækkar um 19% að meðaltali.
Loks er bent á að reikningsskila-
aðferðir séu víðast hvar ólíkar því
sem viðgengst hér á landi og geti
það skekkt myndina ennfrekar.
Sparisjóðirnir lækka
kostnað
Bankamenn eru síður en svo sátt-
ur við skýrslu Hagfræðistofnunar
og telja að skort hafi á að gera
fullnægjandi grein fyrir þeim fyrir-
vörum í kynningu á niðurstöðunum.
Jafnframt er allur talnasamanburð-
ur mjög dreginn í efa. Mikil gagn-
íýni kom t.d. fram á skýrsluna í
grein Baldurs Oskarssonar, fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
bankamanna í blaðinu, fyrir viku.
Þar var tekið svo djúpt í árinni að
kalla skýrsluna villandi.
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis, kvaðst ekki hafa fengið
skýrsluna í hendur í endanlegri
mynd. Aðspurður sagðist hann hins
vegar telja að sú aðferð að miða
við hlutfall kostnaðar af heildar-
eignum gæfi ekki rétta mynd af
kostnaði jslenskra og erlendra
banka. í efnahagsreikningum
stórra erlendra banka væru með-
taldar eignir í dótturfélögum og um
heildsölubanka að ræða í mörgum
tilvikum. „Nánast allir fjárfesting-
arsjóðir hér á landi eru utan við
bankakerfið og slíkir sjóðir stækka
efnahagsreikninginn hjá erlendum
bönkum. Ef fjárfestingarlánasjóð-
irnir yrðu færðir inn í bankakerfið
þá myndu niðurstöðurnar gjör-
breytast því starfsmannahaldið hjá
þessum sjóðum er tiltölulega lítið.“
Baldvin segir að þrátt fyrir mjög
aukin umsvif sparisjóðanna hafi
starfamannafjöldi ekki aukist og
þeir vinni ötullega að því að hag-
ræða og draga úr rekstarkostnaði
enda hafi þeir skilað góðum hagn-
aði á þessu ári miðað við aðrar inn-
lánsstofnanir. „Hjá Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis er gert
ráð fyrir að fækka stöðugildum um
9% á þessu ári og minnka rekstrar-
kostnað um svipað hlutfall."
Ekki um sambærilegar
stofnanir að ræða
Tryggvi Pálsson, framkvæmda-
stjóri hjá íslandsbanka, segist telja
að samanburður á starfsskilyrðum
innlendra og erlendra banka og
sparisjóða sé afar vandasamur og
marga fyrirvara þurfi að gera í því
sambandi. Ekki sé verið að bera
saman íslenska banka og sparisjóði
við sambærilegar stofnanir erlendis
í skýrslu Hagfræðistofnunar.
Hann bendir hins vegar á að ein
orsökin fyrir því hversu dýrt banka-
kerfið hafi verið hér á landi sé
hversu lengi höftin voru við lýði.
„Þegar ekki var leyft að keppa um
viðskipti með fijálsum vaxta-
ákvörðunum og mismunandi þjón-
ustu þá var keppt með því að ná í
innlán með stofnun sem flestra
útibúa. Það eru aðeins sjö ár síðan
vaxtafrelsi var innleitt og íslenskir
bankar og sparisjóðir hafa haft
þess vegna mjög skamman tíma til
að bæta sinn rekstur. Enn er nokk-
uð í land með að íslenskir bankar
og sparisjóðir hafi fullnýtt þau tæki-
færi sem eru til sparnaðar í rekstri.
Talnasamanburðurinn í skýrslunni
nær til ársins 1990 en þó nokkuð
hefur miðað í rétta átt frá þeim
tíma eins og í starfi íslandsbanka.
Við höfum fækkað útibúum um
fjórðung og starfsmönnum um
fímmtung án þess að viðskiptin
hafi minnkað," sagði Tryggvi Páls-
son.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, bendir á
að mjög mikilvægt sé að hafa í
huga fyrirvara sem fram komi í
skýrslunni strax í byijun hennar.
„Fyrirvaramir hafa týnst í umræð-
unni um skýrsluna sjálfa. Það er
verið að gera samanburð við mjög
stóra efnahagsreikninga erlendra
banka sem þýðir að hlutfallslega
verða allar þessar tölur lægri er-
lendis, hvort sem það er starfs-
mannakostnaður, annar rekstrar-
Lykilorð í farsælum samskiptum við erler
Það er hvort tveggja í senn sterkur leikur og sjálfsögð
kurteisi, að upplýsa viðskiptavini erlendis um ísland og
íslenska staðhætti. Ekki spillir að gera það með reisn.
ICELAND REVIEW er löngu orðið þekkt og virt víða um
lönd. Með glæsibrag færir það lesendur sína nær íslandi;
fjallar um land og þjóð, sögu og menningu á þann hátt
að eftir er tekið.
Goodwill: Viðskiptavild
NEWS FROM ICELAND er mánaðarlegt fréttablað í dagblaðs-
broti, sem flytur samantekin helstu tíðindi frá íslandi og
greinar um atburði og þróun mála á öllum sviðum
þjóðlífsins. Hverju tölublaði fylgja sérútgáfur um viðskipta-
mál og ferðaþjónustu.
Það er gaman að fræða fólk erlendis um ísland og mikilvægt
að allir leggi þar sitt af mörkum. Sendu gjafaáskrift, það
kostar minna en þig grunar.