Morgunblaðið - 28.05.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
C 7
ðryggi og brjostsykur
á Delhi Sheraton
Hilary hylltur í Nepal
ÞAÐ hefur ekki farið
framhjá þeim sem
fylgjast með fréttum
að öðru hverju blossa
upp óeirðir í Indlandi
og um tíma í vetur
dró mjög úr komum
ferðamanna til Nýju
Delhi vegna at-
burða í borginni.
Ferðamálayfir-
völd hvöttu til að
allt yrði gert sem
hægt væri til að
gestum þættu
þeir öruggir og
hótel hefðu ör-
yggisverði og
fylgdust
gaumgæfi-
lega með
öllu.
í fréttatil-
kynningu
Maurya Sheraton sem sent hefur
verið Ferðablaði segir að þar á bæ
hafi tafarlaust verið gerðar ráðstaf-
anir í þessa átt. Við komu gesta
og brottför kanna öryggisverðir
með málmleitartækjum bílinn og
búnað hans til að ganga úr skugga
um að allt sé í lagi og gesturinn
sé hættulaus. Sama er gert við
brottför svo gesturinn geti verið
rólegur ef hann bregður sér í bílt-
úr. A meðan leit stendur yfir borð-
ar gesturinn sætindi hjá dyraverð-
inum. ■
Á morgun, 29. maí, eru liðin 40 ár frá því Nýsjálendingurinn
Edmund Hilary, þá 33 ára gamall og Nepalinn Tenzing komust á
hæsta tind Everestfjalls og af því tilefni hafa verið hátíðahöld í
Nepal síðustu vikur. Hilary nýtur mikilla vinsælda þar í landi ekki
síst vegna þess að hann hefur jafnan deilt heiðrinum með sjerpanum
Tenzing, sem nú er látinn og fyrir það mikla verk sem hann hefur
unnið með sjóðstofnun og veitt er úr til skóla og heilsugæslustöðva
í Nepal.
Hilary og Mingma Norbu frægur
fjallagarpur í Nepal sem flutti
aðalræðuna á hátíð til að hylla
afrek Hilary og Tenzing 1953.
Hann þakkaði Hilary fyrir að
stuðla að því að sjerpar væru
virtir og þekktir um heiminn og
viðstaddir sýndu Hilary virðing-
arvott með því að hengja hvíta
silkiklúta, kallaðir katas, um
háls hans, en þá mega aðeins
sjerpar setja á sig.
Síðan þeir Hilary
og Tenzing komust
á Everest, sem er
8.847 metrar og
hæsta fjall heims,
hefur fjallið verið
klifið 491 sinni.
Sumir hafa farið
oftar en einu sinni og 17 konur
hafa komist á Everesttind. Hundr-
að og átján manns hafa látið lífið
í glímu við tindinn, þar á meðal
er 41 sjeipi. Einna frægastur er
Ang nokkur Doije sem hefur verið
á fjallið átta sinnum.
Nýlega kleif fyrsta nepalska
konan tindinn en hún og fimm
fylgdarmenn hennar létu lífið á
leiðinfii niður af fjallinu. ■
Hótel L’Archipel á Praslin
ÞÓTT ferðaþjónusta á Seychel-
les-eyjum eigi sér ekki langa
sögu virðist enginn viðvanings-
bragur á hótel- og veitingahúsa-
rekstri. A.m.k. ætti ekki að væsa
um neinn á Hótel LArchipel við
einkaströndina Anse Govern-
ment á Praslin.
Eigandinn, Louis D’Offay,
Seychelleyjabúi í húð og hár,
lærði hótelrekstur í London
og kynnti sér slíkan rekstur
víða um heim áður en hann
byggði hótelið 1987. Hann
hefur ekki látið staðar numið
og er nú að byggja átta hús
til viðbótar þeim átta sem
fyrir eru, einnig er í bígerð
að byggja sundlaug. Stærsta
húsið með gestamóttöku,
veitingasali, bari o.fl., ér mið-
svæðis.
Húsin eru spölkorn frá
ströndinni, umlukin stórum
tijám og biómaskrúði. í
hveiju húsi eru tvær 35 fm
íbúðir (án eldhúss) með ve-
rönd. Góð loftræsting er í
íbúðunum og öllu haganlega
fyrir komið. Sími, mini-bar,
hárþurrka og aðrar nauðsynjar eru
í hverri íbúð og hugsað er vel fyrir
ýmsum smáatriðum. í febrúar var
unnið að því að koma upp sérstök-
um útbúnaði fyrir sjónvarp.
„Vandasamt verk,“ segir D’Offay,
því móttökuskilyrði eru slæm. Samt
vonast hann til áð ná BBC og CCN
auk seychellsku sjónvarpsstöðvar-
innar.
Húsin falla vel að umhverfínu,
sem er töluvert hæðótt og því
óhentugt fyrir fatlaða. Vegna
slysahættu þykja börn innan 3ja
ára ekki æskilegir dvalargestir.
Einu sinni í viku leikur kreólsk
danshljómsveit.„Þótt gestir kunni
ágætlega að meta framtakið eru
þeir ekki sérstaklega dansglaðir.
Þeir sitja og hlusta í tvo tíma og
fara síðan í háttinn," segir D’Offay.
Starfsfólk hans sýnir réttan fóta-
burð og léttar mjaðmasveiflur,
dæmigerðan kreóladans og virðist
skemmta sér hið besta, þótt gestir
kjósi að horfa á. „Þetta breytist
Louis D’Offay
vonandi þegar yngra fölk fer að
koma hingað í auknum mæli,“ seg-
ir D’Offay vongóður.
Við ströndina er notaleg veit-
ingastofa og minjagripaverslun,
hvort tveggja í eigu hótelsins. Þar
er bátaleiga og hótelið sér um að
útvega dvalargestum, útbúnað til
köfunar og veiða.
Þótt dýrt sé að dvelja á flestum
hótelum á Seychelles-eyjum er
Hótel LArchipel í dýrari kantinum.
Gisting með morgunverði fyrir einn
kostar tæpar 18. þús. kr. Ef tveir
eru í íbúð er verðið um 21. þús. kr.
Maturinn er hinn kræsilegasti
og ber hæsf ýmsa fiskrétti fram-
reidda á kreólska vísu. ibúðirnar
eru þrifnar tvisvar á dag og með
bros á vör greiðir starfsfólk hvers
manns götu. ■
Valgcrður Þ. Jónsdóttir
f LESENDAKÖNNUN bandaríska ferðaritsins Travel&Leisure
nýlega um Evrópuferðir lesenda sinna og hug þeirra til þeirra
sögðust 36% hafa farið í leyfi til Englands árið 1992, 28% til Frakk-
lands, 25% til Þýskalands, 19% til ítalíu og 12% til Sviss.
Þegar lesendur voru spurðir um
verð sögðu 17% að Evrópuferð
væri “óhíeyrilega dýr“ og 25% að
hún hefði verið dýrari en þeir
reiknuðu með. En 41% fannst
ferðaverð hófleg og 11% töldu sig
hafa gert reyfarakaup. Aðalkostn-
aðarliður sem hneykslaði var verð
á hótelgistingu og veitingastöðum.
Þá voru menn spurðir hvort
þeir hygðu á Evrópuferð aftur á
árinu 1993 og sögðust 70% stefna
aðþví. ■
Köreumenn leggjast f feiðaUg
SUÐUR-Kóreumenn eru nýjustu ferðaflakkarar Asíu og á sl. ári
fóru um 2,3 milljónir í ferð til útlanda, 44% til Japans, 17% til Banda-
ríkjanna og um 6.5% til Evrópu.
Ekki eru nema fáein ár síðan
Suður-Kóreumönnum voru ýmsar
skorður settar með ferðalög til út-
landa, einkum átti það við um unga
karla á herskyldualdri.
Þá sækja Kóreumenn í meira
mæli til Taiwan og Bangkok en
árið 1991. Hver Kóreumaður eyddi
um 120 þús. kr. á ferðalagi sínu.
Þá hefur ferðamannastraumur auk-
ist til Kóreu jafnt og þétt sl. ár og
voru erlendir gestir þar 3,5 milljón-
ir 1991. ■
Hversu hratt
fjölgar þelm? % áári
Nýja Sjáland 1,0
Frakkland 0,4
Þýskaland 0,0
Singapore 1,1
Macau 4,9
Suður Afríka 2,2
Fijieyjar 1,5
Thailand 1,4
Papua Nýja Guinea 2,3
Pakistan 2,9
Indónesía 1,8
Indland 2,1
1 Bhutan 2,3
Ðangladesh 2,7
Kambodia 2,2
Bretíand HetmUd: Asiaweek 0,2
Bretland fær flesta
bandarlsku fertamennina