Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 10

Morgunblaðið - 28.05.1993, Síða 10
10 c Hjqlimir er höfud- prýdi sérhvers hjól- - reiöamqnns og lifs- björg i sum um lil- fellum. UMFERÐARRÁÐ. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 angursrými Ibiza II meira en geng- ur og gerist. Verðið á honum í Evrópu verður heldur lægra en hjá keppninautunum, en akstureigin- leikar, vélar og öryggisþættir verða með svipuðu móti. VélarfráVW Vélar eru í meginatriðum smíð- aðar í VW-verksmiðjunum. 1,8 lítra, 90 ha vélin er hin sama og í Golf, en 1,6 lítra 75 ha vélin er ný. Hins vegar er 1,3 lítra 55 ha vélin sú hin sama og var í gamla Golfínum. Gírkassamir eru einnig frá VW. Stærsti bíllinn verður með 2 lítra vél sem skilar 115 hestöflum og er sagður ná 200 km hámarkshraða á klst. Umboðsaðili Seat á íslandi er Hekla hf. Hekla flutti inn um 20 Seat-bíla 1989 en ekkert hefur ver- ið flutt inn af þeim síðan. Finnbogi Eyjólfsson blaðafulltrúi Heklu segir að Seat hafi hækkað í verði eftir að Volkswagen eignaðist Seat- verksmiðjurnar, enda bíllinn að mörgu leyti orðinn sambærilegur við Golf. Ekki muni muna miklu á verði milli þessara bíltegunda hér á landi, verði þeir á annað borð flutt- ir inn. ■ VERIÐ er að kynna fjölmiðlum og dreifingaraðilum nýjan Seat Ibiza á Spáni um þessar mundir og hafa viðtökurnar verið afar góðar. Bíllinn, sem hefur verið því sem næst óbreyttur í tíu ár, hefur fengið nýtt útlit og tækni- lega hefur honum fleygt fram, enda Volkswagen-verksmiðjurn- ar, móðurfyrirtækið, haft hönd í bagga með þróun bílsins. Sagt er að hann hafi tvöfaldan ríkis- borgararétt, þýska tækni og spænska hönnun. Ibiza hefur verið sá bíll sem Seat-verksmiðj- urnar hafa selt mest af í Evrópu, en stóri bróðirinn, Toledo, fékk einnig góðar viðtökur. Því sem næst ekkert upprunalegt er við Seat Ibiza II annað en nafn- ið. Hann er orðinn stærsti bíllinn í sínum stærðarflokki og gæðunum hefur fleygt fram í framleiðslunni, en á árum áður þótti loða við bílinn að hann væri Iéleg eftirlíking af Fíat. Vandað til framleiðslunnar Bíllinn er settur saman í Marto- rell-verksrhiðjunni skammt frá Barcelona, sem þykir ein fullkomn- asta bílasamsetningarverksmiðjan í Evrópu. Verksmiðjan er starfrækt eftir japanskri lyrirmynd, svo- riefndu Éa/zen-lögmáli, sem felur í sér að stöðugt er unnið að því að betrumbæta framleiðsluna meðan bíllinn verður til í verksmiðjunni. Slíkt kallar á meira vinnuafl en gengur og gerist í bílaframleiðslu, og alls munu 6 þúsund starfsmenn framleiða 1.500 Seat Ibiza II á dag þegar full afköst hafa náðst í verk- smiðjunni. í gegnum árin hefur slagorð Ibiza verið „aðeins meira fyrir pening- ana“, sem tryggði kaupendum bíls- ins örlítið meira rými eða vélarafl en keppinautarnir í þessum stærð- arflokki gátu boðið upp á. Undan- farin ár hefur keppinautunum hins vegar vaxið fískur um hrygg, en með Ibiza II geta Seat-verksmiðjun- ar aftur gripið til slagorðsins. Bfli- inn er 3,81 metri á lengd, og 10 cm lengri en Renault Clio, sem hefur farið sigurför um Evrópu í þessum stærðarflokki. Þá er far- _________ SCei IAM ,8S ÍIUOACIUTBCr-i GIGAJat Bíll med tvöfaldan ríkisborgararétt Fjölmiðlakeppni SVR í ökuleikni Heilmikil kúnst ai keyra strætó ÞAÐ fer ekkert á milli mála, að það er hcilmikil kúnst að aka strætisvagni. Þessu hafði ég ekki gert mér grein fyrir, fyrr en sl. laugardag, að ég var sett undir stýri á tveimur vögnum SVR í fjölmiðlakeppni SVR í ökuleikni, sem fram fór á Reykjavíkurflug- velli. Vagnarnir eru jú sjálfskiptir, með vökvastýri og ágætasta tækniútbúnaði, svo ég taldi að það eina sem menn þyrftu að hafa á hreinu væri að vita hvar olíugjöfin og bremsan væru. En ég átti eftir að fínna áþreifanlega fyrir því, að ég vissi ekkert um strætisvagnaaksturj eða hversu kreíjandi starfíð er. I fyrsta lagi, þá þarf maður einfald- lega að hugsa upp á nýtt sem bfl- stjóri, þegar það er strætisvagn sem aka skal. Það er allt öðru vísi tilfinning að sitja einhvers staðar langt fyrir framan framhjól vagnsins og því mjög erfítt að gera sér í hugarlund hvenær byija skal að beygja, enda byijaði ég lík- lega aldrei á réttum tíma, ýmist of seint eða of snemma. Eknir voru tveir hindrunar- hringir , á Reykjavíkur- flugvelli, þar sem keilum hafði verið komið fyrir í röð, sett upp hlið, settir plattar á völl- inn sem aka átti ofan á, settar upp grindur, þann- ig að bakkað skyldi inn í stæði á milli þeirra, lagðar Morgunblaðið/Kristinn línur, þar sem lagt skyldi samhliða þeim, og svo fram vegis. Norðurlandamótið Það voru sex fjölmiðlar sem sendu fulltrúa til þessarar keppni, sem var að sjálfsögðu sett upp í gríni, til þess að vekja athygli á því að SVR er nú að hefja undir- búning á æfíngum sex bílstóra sinna sem munu fara til Svíþjóðar til þess að keppa við norræna kollega sína síðar í sumar. Þeir fjölmiðlar sem áttu fulltrúa á mótinu voru Sjónvarpið, Rás 2, DV, Stöð 2, FM og Morgunblaðið. Skemmst er frá því að segja að sumir kolleganna voru grun- samlega ieiknir, þegar þeir óku strætó af stað, enda kom á daginn við rannsókn, að einn hafði ekið steypubíl, annar vörubíl og sá þriðji hafði unnið sem sumara- fleysingamaður hjá SVR fyrir margt löngu. En aðrir voru ekki svo ýkja leiknir, og sá ökumaður sem óvéfengjanlega hafði yfir minnstu ökuleikninni að ráða á þessum farartækjum, var sú sem þetta ritar. Raunar mega þeir eiga það, herramennimir hjá SVR, að þeir sýndu einskæra herramennsku, þegar úrslit keppninnar voru kunngerð og verðlaunaafhending fór fram, því þeir greindu frá því að kvenþjóðin hefði sýnt einstaka nýtingu í keppninni, en fulltrúi kvenþjóðarinnar í þessari keppni var undirrituð. Þeir greindu frá því að kvenþjóðin hefði nýtt sér þann tíma sem til ráðstöfunar var, til fulls! Auk þess hefði full- trúi kvenþjóðarinnar náð að nýta sér svo til hvert refsistig sem hægt var að verða sér úti um! Þetta eru að vísu grófar ýkjur, . því undirritaðri tókst að forðast refsistig við 29 hindranir, en fékk hins vegar réfsistig við 15 hindranir. Út með Víkingasveitina Til þess að gera Ianga sorgar- sögu stutta, þá skal það upplýst hér að ég fékk í samanlagðan árangur 44 mínútur og 44 sekúnd- ur og þar af voru refsistig sam- tals 32 mínútur og 17 sekúndur, en sigurvegarinn, Samúel Öm, frá Sjónvarpinu var með samanlagðan árangur 23 mínútur og 22 sekúnd- ur. Aðrir keppendur vom með mínútufjölda þama á milli, en enginn fór þó yfír 40 mínútur, annar en fulltrúi Morgunblaðsins. Það skal tekið hóflega alvar- lega, þegar greint er frá því að vagnstjórar SVR spurðu keppanda Morgunblaðsins að því í keppnis- lok, hvort hún væri ekki reiðubúin til þess að taka að sér að feija nokkra vagna SVR inn á Kirkju- sand. Að sönnu var hún reiðubúin, en á daginn kom að hér var ein- ungis um létt spaug vagnstjór- anna að ræða og þeir bættu því við svona í lokin, að ef þeir þægju slíka þjónustu frá blaðamanni Morgunblaðsins, þá dygði ekkert minna til en að ræsa út Víkinga- sveit lögregunnar! n Texti: Agnes Bragadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.