Morgunblaðið - 11.06.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
C 5
Ráölagður
dagskammtur
E-vítamíns
VÍTAMIN eru mæld eftir
virkni i alþjóðlegum eining-
um, skammstafað a.e., á is-
lensku en i.e. (International
Units) á ensku. Þyngdin er
mæld í milligrömmum,
skammstafað mg. Ein a.e. af
E vítamíni er mjög nálægt
því að vera 1 mg, en slíkt á
ekki við um öll vítamínin.
Ráðlagður dagskammtur
fyrir konur er 12 a.e og 15
a.e. fyrir karla.
E-VÍTAMÍNRÍKAR
FÆÐUTEGUNDIR:
E vítamín er óeitrað náttúru-
efni, sem fæst aðallega í hveiti-,
rúg- og maískími, soja- og
maísolíum, spergil- og rósakáli,
salati, heilhveiti og eggjum.
Talið er að nægilegt magn sé
í daglegri fæðu, en steiking,
suða og langvarandi geymsla
minnki áhrif vítamínsins.
Þórarinsson lyfjafræðingur segir að
þetta eigi við um B og C vítamín,
sem eru vatnsleysanleg. A, D og E
vítamín séu hins vegar fítuleysanleg
og safnist fyrir í fituvefjum, þótt E
vítamínið skolist að einhveiju leyti
út.
„Þó ekki væri nema á þessum
forsendum fínnst mér fyllsta
ástæða til að gæta varúðar og taka
ekki inn meira af E vítamíni en
þann dagsskammt, sem nú er talinn
ráðlagður, þ.e. 12 a.e. fyrir konur
og 15 a.e. fyrir karlmenn. Niður-
staða rannsóknanna á áhrifum E
vítamíns á hjartað er afar merkileg,
rökrétt og fellur vel að kenningum
samtímans." Til að skýra það nánar
segir Hjörleifur að stundum sé talað
um „góða“ og „vonda“ blóðfítu.
Góða blóðfitan flytji kólesteról frá
vefjum til lifrar. Vonda blóðfítan
flytji kólesterólið frá lifrinni til vefja
GODSÖGNIN
kalbletti og flugnabit, aðrir telji E
vítamín hægja á öldrun húðarinnar,
vöðvarýrnun og annarra hrömunar-
einkenna og margir hafí trú á því
til að hindra magasár, fósturlát,
ófrjósemi og lungnaskemmdir
vegna mengunar í andrúmslofti.
„Mér fínnst ánægjulegt að augu
læknavísindanna skuli nú í auknum
mæli beinast að gagnsemi vítamína
til forvama eða lækninga. Ef til
vill hafa þau ekki verið nægilega
rannsökuð vegna þess að lítil von
er til að niðurstöður slíkra rann-
sókna færi mikla íjármuni líkt og
þegar um ný lyf er að ræða, en
einkaleyfí á þeim em oft milljóna-
virði,“ segir Hjörleifur.
Tilraunir á rottum
Guðrún Skúladóttir lífefnafræð-
ingur hjá Raunvísindastofnun Há-
skólans segir að ekki hafí verið
gerðar íslenskar rannsóknir á E
vítamíni og áhrifum þess. Guðrún
hefur um árabil rannsakað fítusýmr
í hjartahimnum manna og dýra og
hefur mikinn áhuga á verndaráhrif-
um E vítamíns. Hún gerði nýverið,
ásamt tveimur bandarískum pró-
fessorum, rannsókn á áhrifum E
vítamíns á Qölómettaðar fítusýmr
í lifur og hjarta rotta í Oregon State
University í Bandaríkjunum. „Síð-
ari ár hefur athygli beinst að þeim
neikvæðu áhrifum sem vemleg
neysla omega fítusýra í lýsi kann
að hafa á vefí. Við skiptum rottun-
um í tvo hópa, báðir fengu jafn
mikið E vítamín, annar hópurinn
fékk lýsisbætt fóður, hinn kornolíu-
bætt. í kornolíu er önnur gerð
omega fítusýra og þær em ekki
eins flölómettaðar. I ljós kom að
þrisvar sinnum meira magn E vít-
amíns var í hjarta en lifur, sem
bendir til að hjartað sé vel varið
og að neikvæð áhrif omega fítusýra
í lýsi sé ekki skaðlegt. Víðtækari
rannsóknir þurfa að fara fram, þær
gætu e.t.v. vakið upp fleiri spum-
ingar t.d. í sambandi við hvernig E
vítamínið virkar með öðmm efnum
o.s.frv.
Mér fínnst hyggilegt að fara að
öllu með gát varðandi niðurstöður
rannsóknanna um að stórir
skammtar hindri hjartasjúkdóma
EKKI þrifst rússneskur
bóndi ón þess nð hnfn
sinn grnut
RÚSSIMESKUR
MÁLSHÁTTUR
E-VÍTAMÍNIÐ er stundum nefnt stjarnan í vít-
amínkeðjunni. Trúlega á goðsögnin um að það
auki kynorkuna þátt í nafnbótinni, en fátt eitt
hefur verið sannað í þeim efnum. Vitað er að E
vítamínskortur hjá rottum veldur sjúkdómum
og ófrjósemi þannig að ekki er útilokað að goð-
sögnin eigi rætur að rekja til þeirrar vitneskju.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Á fullri ferð niður flúðimar í Hvítá. Vilborg situr aftast og stýrir
bátnum.
Bátsferðir krydda lífið
BÁTSFERÐIR niður Hvítá í stórum 12 og 14 manna gúmbátum eiga
stöðugt vaxandi vinsældum að fagna sem afþreying. Hjónin Vilborg
Hannesdóttir og Bjöm Gíslason annast þessar ferðir og hafa aðsetur
á Dmmboddsstöðum. Þar er upphaf og endir ferðanna. Gestimir
fara í flotgalla og setja á sig hjálma áður en ekið er af stað með þá
og bátinn vel upp fyrir Brúarhlöð og lagt á fljótið. Siðan er siglt
af stað eftir að gestimir hafa fengið leiðbeiningar frá stjómendum
en tveir vanir stjórnendur em í hverjum bát.
„Við erum með allan útbúnað fyrir
siglinguna og tökum á móti fólkinu
og skilum því þurru aftur,“ segir
Vilborg Hannesdóttir. Eftir ferðina
niður ána þar sem oft er ágjöf í
mestu flúðunum, sem reyndar
kryddár ferðina, er báturinn tekinn
upp og ekið aftur að Drumbodds-
stöðum þar sem öllum er boðið í
kaffi. Tvær leiðir eru í boði, önnur
er erfiðari, með meiri boðaföllum,
en hin er í rólegri kantinum þar sem
lygnur eru meiri.
Það var greinilegt á þeim sem
fóru í bátnum niður ána að ferðin
var þess virði að reyna enda gaman
að takast á við stórfljótið og mátu-
legt afl þess á þessum stað.
Hvort sem ferðamaðurinn vill átök
við stórfljót, göngu í fjöllum, ffið-
sæld og kyrrð, reiðtúr um óbyggðir,
silungsveiði í ánum, sumartónleika
eða sunnudagsbíltúr með ís eða
sundspretti þá eru Tungurnar kjör-
lendið sem uppfyllir óskirnar. ■
Sig. Jóns. Selfossi
Vilborg Hannesdóttir með fullt
fangið af árum áður en lagt var
af stað niður Hvítá.
Var Abraham múslimi?
YASSIR Mallah, prófessor við háskólann í Betlehem, olli miklu
fjaðrafoki á málþingi í Jerúsalem nýlega þar sem fjallað var um
fyrirheit spámanna í eingyðistrúarbrögðum. Hann staðhæfði að
Ábraham hefði verið múslimi en hvorki gyðingur né kristinn
maður.
Þótt E vítamínið rísi e.t.v. ekki undir nafni sem
kynorkubætandi vítamín er talið víst að það vinni
á móti frumuhrörnun í Iikamanum.
líkamans s.s. hjarta og æðaveggja
þar sem það getur hlaðist upp og
valdið kransæðastíflu. „Ekki hefur
verið sýnt fram á að E vítamín
valdi hörgulsjúkdómum eins og A,
G, D og sum B vítamín. Greinileg
skortseinkenni E vítamíns hjá
mönnum eru ekki þekkt nema um
mikla vannæringu sé að ræða eða
langvarandi truflanir á frásogi
fæðu.“
E vítamín í fæðunnl
E vítamín er óeitrað náttúruefni,
áém fæst aðallega í hveiti-, rúg-
og maískími, soja- og maísolíum,
spergil- og rósakáli, salati, heil-
hveiti og eggjum. Talið er að nægi-
legt magn sé í daglegri fæðu, en
steiking, suða og langvarandi
geymsla minnki áhrif vítamínsins.
Hjörleifur segir að þótt erfítt sé
að sanna og e.t.v. ógjörningur að
afsanna lækningamátt E vítamíns
hafi margir tröllatrú á gagnsemi
þess. Fólk taki vítamínið af ýmsum
ástæðum m.a. við gelgjubólum og
hárlosi. Konur á breytingaskeiði
kaupi vítamínið, sumir noti innihald
hylkjanna til að bera á sólbruna,
hjá mönnum. Þótt ég hafí mikla trú
. á E vítamíni t.d. til að vernda húð-
ina tel ég þörf á frekari rannsókn-
um. Meðan niðurstaða þeirra er
ekki óyggjandi er hætta á alls kon-
ar auglýsingaskrumi, sem fólk læt-
ur auðveldlega glepjast af e.t.v.
með ófyrirsjáanlegum afleiðing-
um.“
VarúA
Islenskir og erlendir læknar og
vísindamenn virðast sammála um
að umræddar rannsóknir á E vítam-
íni hafí mikið gildi og þurfi að kanna
til hlítar. Á hinn bóginn sé nauðsyn-
legt að vera á varðbergi. Þegar um
margfalda skammta af vítamíni sé
að ræða miðað við það sem nú er
viðurkennt sé ekki lengur hægt að
tala um vítamín sem bætiefni held-
ur einfaldlega lyf og þá þurfi lækn-
ar að hafa síðasta orðið. En vítam-
ín eru ekki seld gegn lyfseðli og
því er hætta á að fólk taki málin í
sínar hendur, auki vítamínneyslu
úr hófi og freisti þess að kaupa
heilsuna dýru verði. ■
Vaigerður Þ. Jónsdóttir
FERÐAMENN eru teknir að leggja leið sína um Snæfellsnesið og
þessi mynd er af Arnarbæ á Arnarstapa og sjá má til Stapafells.
Amarstapi er að verða vinsæll áningarstaður ferðamanna og ýmsar
uppákomur verða þar í sumar. Þá þykir mörgum útsýnið til jökuls-
ins og yfir Breiðafjörðinn óvíða fegurra en þar. ■
Mallah minnti á að Abraham
væri einn spámanna í múhameðs-
trú og þeir sem sneru baki við
Múhameð afneituðu þar með
kenningum hans. Hann sagði að
samkvæmt islam væri fyrirheitna
landið það sem löngum hefur ver-
ið kallað Stór-Sýrland. Guð hefði
Morgunblaðið/Alfons
Arnarbær á Arnarstapa
gefíð það gyðingaþjóðinni með
þeim skilmálum að þeir fylgdu
kenningum Móses og það loforð
hefði aðeins gilt meðan Móse lifði
og hefði lokið þegar gyðingum
hefði verið boðið að fylgja spádóm-
um Múhameðs. ■
M/SAS
Reykingabannl
allétt hjá SAS
REYKINGABANNI á flugleið-
um SAS innan Evrópu sem eru
innan við tvær og hálf klukku-
stund hefur verið aflétt, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinu. Þar kemur fram
að bannið hafi verið til reynslu
og hófst það 28. mars. sl.
Samkvæmt skoðanakönnunum
sem hafa verið gerðar á meðan
bannið var í gildi virðist sem mark-
aðurinn sé ekki reiðubúinn að
sætta sig við reyklaust flug. Þvi
hefur nú þessu verið aflétt en
áfram verður reykbann á Norður-
landaleiðum. ■