Morgunblaðið - 11.06.1993, Síða 6

Morgunblaðið - 11.06.1993, Síða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993 Bláa lönid - Perla Suðumesja ÞÓ MARGIR afgreiði Suðurnesin sem „rokrassgat“, eiga þeir Suðurnesjamenn sínar Perlur líkt og Reykvík- ingar og aðrir landsmenn. Bláa lónið við Grindavík fer þar fremst, er að verða þekkt um víða veröld. Mýmörg dæmi eru um að erlendir gestir, sem hingað koma, viti lítið um land og þjóð fyrirfram, en freistast hingað vegna þess mikla hróðurs sem þetta séríslenska náttúru- fyrirbrigði hefur fengið í umfjöllunum fjölmiðla erlend- is, en á milli tvö og þrjú hundruð erlendir fjölmiðla- menn hafa sótt lónið heim í vetur. Fólk hefur átt þar rómantískar stundir, trúlofast og jafnvel gifst þar. Kristinn Benediktsson, framkvæmdastjóri Bláa lónsins Morgunblaðið/RAX Horft til g-ufumökksins við Bláa lónið Aðstaða þarf vissulega öll að vera tii fyrirmyndar til að standa undir vonum og væntingum gesta, erlendra sem innlendra. Aðstöðu- leysi hefur hingað til háð Bláa lón- inu, enda sækja þangað að jafnaði um 100 þús. baðgestir á ári. „Sú aðstaða, sem við höfðum upp á að bjóða, var fyrir löngu sprungin, sérstaklega yfir sumartímann. Þengsli voru orðin mikil, sem endur- spegluðust síðan í neikvæðri um- ræðu. Þessu höfum við verið að breyta. Fyrstu 5 mánuði ársins komu um 32 þús. manns sem lofar mjög góðu um framhaldið, segir Kristinn Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Bláa lónsins. Vlðbygging Grindavíkurbær tók við rekstri Bláa lónsins sl. haust og hefur síð- an unnið að ýmsum endurbótum svo mæta megi þessari miklu að- sókn og að sama skapi auka að- dráttaraflið. Fyrir nokkru var tekin í notkun 200 fm ný viðbygging sem bætir mjög alla aðstöðu baðgesta. Þar er veitinga- og búningsaðstaða fyrir 200 manns, en gamla húsið hýsir um 140 manns. Með bygging- unni skapast auk þess skemmtileg aðstaða fyrir fitiveitingar á sólrík- um dögum. Þetta er létt bygging á stálbitum, sem má flytja ef til kem- ur. Bundið slitlag verður lagt á veginn niður að lóninu, gerður hef- ur verið göngustígur út í hraunið og bílastæðin rýmkuð verulega, enda hafa þau hvergi annað eftir- spum frekar en baðhúsið. Þá er ráðgert að byggja bryggju frá hraunjaðrinum út í dýpsta hlutann, þar sem baðgestir geta hvílst og stundað sólböð þegar vel viðrar. Flutningur íslenska heilsufélagið og Grinda- víkurbær stofnuðu í fyrra sérfyrir- tæki sem ber heitið Heilsufélagið við Bláa lónið, í því skyni að kanna hvort grunur manna um lækninga- mátt Bláa lónsins ætti sér stoð í raunveruleikanum og ef svo væri að byggja upp alhliða heilsuhótel með tilheyrandi aðstöðu í tengslum við lækna. Lengi hefur því verið haldið fram að í Bláa lóninu fælist lækningamáttur, einkum fyrir ýmsa húðkvilla. Nýlega birtist sú frétt frá læknum, sem önnuðust þýskan til- raunahóp sl. haust, að þessi grunur ætti við rök að styðjast og stað- festu niðurstöður rannsóknarinnar að lækningamáttur væri fyrir hendi. I framhaldi af þessum athugun- um eru nú uppi hugmyndir um uppbyggingu við lónið, sem koma til með að gjörbreyta þeirri aðstöðu sem fyrir er, auk þess sem hug- myndirnar gera ráð fyrir flutningi lónsins í hrauninu, þar sem það er nú orðið fyrir Hitaveitu Suðumesja. „Þessar hugmyndir ættu að geta komist í gagnið eftir tvö til þijú ár, ef björtustu vonir rætast. Tillög- ur hafa verið fengnar frá íslenskum arkitekt og nú er verið að skoða hugmyndir frá þýskum arkitekt," segir Kristinn. Elnstakt Bláa lónið er sagt einstakt í heiminum, enda sáu menn ekki Bláa lónið fyrir sér þegar sveitar- stjómin í Grindavík ákvað árið 1969 að láta rannsaka Svartsengissvæðið með tilliti til jarðhita, sem átti að beisla til húshitunar í Grindavík. En þegar holumar tvær vora borað- ar, önnur 1971 og hin 1972, lofuðu þær mjög góðu og leiddu m.a. í ljós að hér var um há hitasvæði að ræða og að vatnið sem kom úr Mikil náttúrufegurð er í hraun- inu við Grindavík holunum var salt. Hanna þurfti orkuver sem gat nýtt heitan sjóinn til upphitunar á fersku vatni sem síðar er nýtt til húshitunar. Þegar búið var að nota sjóinn til upphitun- ar á fersku vatni, var honum dælt út úr orkuverinu og reiknuðu menn fastlega með því að hann myndi einfaldlega renna út i hraunið og hverfa þar. Spáin gekk ekki alls kostar eftir. í staðinn situr Hita- veita Suðurnesja uppi með eftirsótt náttúraundur, heillandi og sjálf- hreinsandi stöðuvatn, sem fyrst var opnað almenningi til yndisauka og ánægju árið 1987, 30-40 gráða heitt. Útlvlst Aðeins 4 kílómetrar skilja að Bláa lónið og Grindavík, sem er 2.200 manna byggðarlag, ósköp venjulegur íslenskur sjávarútvegs- bær á suðurströnd Reykjanesskag- ans, með stórbrotna náttúra á alla kanta. Uppruna sinn sækir Grinda- vík í sjósókn og fiskvinnslu aftur í aldir, enda við ein bestu fiskimið landsins. En þar er ekki bara slor. Möguleikar á útivist era enda- lausir, ekki síst nú, þegar augu manna eru að opnast fyrir útivera. Fjöraskoðun, fiskibátar á leið til hafnar og heilnæmt sjávarloft er eitthvað sem Grindavíkurbær býður ferðamönnum upp á, auk ágætra veitingastaða, sem allir leggja metnað sinn í að bjóða upp á góða fískrétti. Þeir eru: Veitingahúsið við Bláa lónið, Sjómannastofan Vör og Hafur-Björninn, sem einnig er krá. Þá má aka út á Reykjanestá að skoða vitann og fylgjast með út- hafsöldunni brotna á hömrunum eða skoða fuglalífið sem fyllir allar klettasillur. Golf, sjóstangaveiði, útreiðatúrar, sund, silungsveiði og gönguferðir era jafnframt inni í myndinni og skammt frá Grindavík eru ferðamannastaðir á borð við Festarfjall, Vigdísarvelli, Djúpa- vatn, Krýsuvík, Krýsuvíkurbjarg og Selatanga, en þar eru minjar af verstöð frá síðustu öld. „Og ef ann rignir þá er ekkert annað að gera í stöðunni en að drífa sig í regngall- ann,“ segir Kristinn að lokum. ■ Jóhanna Ingvarsdóttir London séð úr lofti GENGIS- SKRÁNING 24. maí 1993 Argentína peso 64.2344 Ástralía dollar 44.4388 Belize dollar 32.1172 Brasilía cmzeiro 0.0016 Costa Rica colon 0.4648 Egyptaland pund 46.6081 Eistland kroon 4.9443 Fílabeinsstr. CFA-franki 0.2326 Hong Kong dollar 8.3079 l'srael sikill 23.5552 Kólumbía peso 0.0754 Laos kip 0.0892 Líbanon pund 0.0370 Malasía ringit. 25.0186 Malta pund 175.0098 Mexókó nýr peso 20.5683 Óman rial 166.8527 Singapore dollar 39.7378 Sri Lanka rúpía 1.3401 Suður-Afrika rand 20.0823 Taiwan NT-dollar 2.2418 Thailand baht 2.5445 Zambia kwatcha 0.1235 Ferdalangar í Þörsmörk panti tjaldstædin áður FERÐAFÓLK sem ætlar að leggja leið sína í Þórsmörk í sumar skyldi hafa bak við eyrað að reksturinn verður með svip- uðu sniði og undanfarin sumur. Skógrækt ríkisins fer með yfir- umsjón en daglegur rekstur er í höndum fjögurra aðila og skiptist þannig að í Húsadal hefur Austurleið forsjá, í Langadal og Endum Ferðafé- lag Islands, Farfuglar í Slypp- ugili og Útivist hefur umsjón með Básum og Strákagili. Ferðamenn sem ætla að gista skulu hafa samband fyrirfram við umsjónarmenn um tjaldstæði eða pláss í skála, því ella getur komið fyrir að þurfí að vísa fólki frá sé allt yfirfullt. Þá verður Húsadalur í sumar lokaður fyrir tjöldum en fólki er heimil umferð. Tjaldstæði eru á uppgræddum eyrum við aðset- ur Austurleiðar, við mynni Húsa- dals. ■ FERÐAMENN í London geta nú farið í sérstakt útsýnis- flug yfir höfuðborgina og Suðaustur-England og standa fjórar ferðir til boða. Farið er yfir miðborgina, kastala Kent og Sussex, yfir hvíta kletta Dover og Docklands. Notaðar eru Cessna 172 og Piper Aztec og verð er frá 90 sterlingspundum en Dov- erferðin er dýrust, 155 pund. Búist er við að þessar ferðir njóti ekki hvað síst vinsælda meðal áhuga- manna um ljósmyndun. Ferðir frá hótelum í London, máltíðir í flug- ferðinni og leiðsögn er allt fáanlegt og flest hótel í borginni gefa upp- lýsingar um þessi útsýnisflug. B Bæklingur um ráðstefnuhald SAMVINNUFERÐIR/Landsýn hafa gefið út vandaðan bækling um ísland sem ákjósanlegan stað fyrir ráðstefnur. Er lýst hversu ágæta aðstöðu sé að finna fyrir ráðstefnur þar sem öll þjónusta er í boði, svo sem þýðingar á ýmis tungumál, aðstoð ritara o.fl. En síðan er einnig lagt kapp á að sýna fram á að margir kostir gef- ist mökum sem vilja vera með án þess að sitja fundi og eins hvað megi sér til gamans og fróðleiks gera að fundum loknum. Eru stuttar og skilmerkilegar lýs- ingar með myndum á því hvað kæmi til greina eins og siglingar um ár, jöklaferðir, sjóstangaveiði og golf svo nokkuð sé nefnt. Þá eru talin upp nokkur veit- ingahús og gefnar ráðleggingar um verslanir þar sem gera megi hin fjölbreytilegustu innkaup. ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.