Morgunblaðið - 11.06.1993, Side 11
MORGUNBLAt 0 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
C 11
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögfnvaldsson
Ayrton Senna, sem er stigahæstur í heimsmeistaramótinu í Formula 1, á McLaren bíl sínum á fullri ferð.
íslendingar á Formula
ENGIN íþróttakeppni fær jafn mikla áhorfun í sjónvarpi
og Formula 1 kappakstur, sem er vinsælasta akstursíþróttin
í heiminum. Keppendur sem þar aka eru með hundruði
milljóna kr. í tekjur á ári og rekstur keppnisliða kostar
mikið fé. Tæknin bakvið keppnisbílana er mikil og þeir eru
búnir flóknum tölvubúnaði. Stærstu keppnisliðin hafa 100
manna starfslið að baki hverjum ökumanni og á Formula 1
mótunum er mikil umsetning. Nú gefst Islendingum tæki-
færi til að skoða dýrðina, því tímaritið 3T stendur fyrir
hópferð á Formula 1 kappaksturinn á Silverstone kappakst-
ursbrautinni þann 11. júlí nk.
Flogið verður á fimmtudegi til
London og þaðan haldið á stærstu
go kart akstursbraut Englands og
ekið á tveggja véla go-kart bílum
í skipulagðri keppni fyrir þá sem
það vilja. Þaðan er áætlað að fara
og heimsækja keppnisdeild Ford í
Boreham, sem sér m.a. um Escort
Cosworth rallbílinn sem vinnur
hveiji. heimsmeistarakeppnina af
annari.
Að tjaldabaki
Eftir það verður haldið að Sil-
verstone kappakstursbrautinni, en
á laugardegi verður fylgst með
æfingum keppenda í Formula 1
mótinu á brautinni og skyggnst að
tjaldabaki hjá keppnisliðunum, m.a.
McLaren, Ferrari og Williams, sem
eru frægustu liðin. Þar mun gefast
færi á að líta bestu ökumennina
augum og allan þann tækjakost sem
keppnisliðin hafa að geyma. Sama
dag verður komið við hjá keppnis-
deild Subaru bílaverksmiðjanna og
nýr Subaru Impreza rallbíll skoðað-
ur.
Daginn eftir, á sunnudegi fer
keppnin fram og þá aka 26 af bestu
ökumönnum heims Silverstone
brautina, oft á yfir 300 km hraða,
en keppnin er með þeim hraðari í
heimsmeistaramótinu. Eftir hana
geta menn fylgst með meistaramót-
inu í akstri kraftmikilla og breyttra
fjöldaframleiddra bíla, m.a. frá
BMW, Ford og Benz. ■
Auknum
sköttum
á bensín
mótmælt
LANDSÞING Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda hef-
ur harðlega mótmælt stór-
auknum bensínsköttum og
varar við „þeirri stefnu
stjórnvalda að líta á bifreið-
ar og umferð sem væn-
legan tekjustofn fyrir
ríkissjóð. A Landsþing-
inu sem fram fór 22.-23.
maí sl. var Björn Péturs-
son einróma kjörinn for-
maður samtakanna, en hann
tekur við af Arinbirni Kol-
beinssyni, sem verið hefur
formaður FÍB í 23 ár.
í ályktun Landsþingsins þar
Qg sem bensínsköttum er mót-
mælt segir: „Stjórnvöld virð-
ast álíta að þar sem bensín-
noktun dregst ekki saman í
kjölfar eldsneytishækkunar
þá sé jafnvel hægt að auka
m skattheimtu enn frekar.
Einkabifreiðin er eini valkost-
ur þeirra sem eru með marga
í heimili, t.d. ungbarnafjöl-
skyldur, og þeirra sem búa
utan við þjónustusvæði al-
menningssamgangna. Auknar
álögur eru höft á bifreiðanotkun,
draga úr hreyfanleika og hafa
áhrif á þjóðfélagið í heild.“
Þá kom fram í ályktun að
Landsþingið telur eðlilegt að ríkis-
sjóður greiði fjármagnskostnað af
lántökum vegna flýtingar fram-
kvæmda í vegamálum til atvinnu-
aukningar en ekki bifreiðaeigend-
ur einir. ■
Skodinn selst eins
og heitar lummur
SALA á Skoda Favorit gengur mjög vel í Danmörku og er eftirspurn-
in eftir þessari bílgerð meiri en framboðið. Eins og kunnugt er keypti
VW hlut í Skoda og framleiðir bílinn að hluta til í Tékklandi.
Nýr Peugeot 305
kynntur um helgina
NÝR Peugeot 306 verður frumsýndur hjá Jöfri hf. um helgina.
Um er að ræða alveg nýja hönnun og er bíllinn smíðaður í nýjum
verksmiðjum Peugeot í Frakklandi. Bíllinn þykir líkjast 106 bíln-
um hvað hönnun varðar.
Ole Paulsen, forstjóri Pradan Auto
Import, sem flytur inn Skoda til
Danmörku, segir að ekki hafi selst
fleiri Skodar að vori til í fímm ár.
Það hefur verið allt að eins mánaðar
afgreiðslufrestur í Danmörku, en nú
er hann orðinn hálfur mánuður.
I apríl seldust 365 Skoda Favorit
í Danmörku og var hann í sjötta
sæti yfir mest seldu bílana þar í landi
í þeim mánuði.
Fyrstu fimm mánuði þessa árs
seldi Jöfur hf., umboðsaðili Skoda,
77 Skoda Favorit og Forman. ■
Hjá Jöfri hf. fengust
þær upplýsingar að
náðst hefðu afar hag-
stæðir samningar við
framleiðendur þannig
að með Peugeot 306 er
boðið meira af staðal-
búnaði en áður hefur
tíðkast með evrópska
bíla en bíllinn verður
ódýrari en áður. Meðal
staðalbúnaða í Peugeot
306 er vökvastýri,
hvarfakútur, samlæs-
ingar, rafdrifnar rúður,
málmlakk og litað gler.
»rðlr
Forsvarsmenn
Jöfurs hafa
fyrirvara á
verölagningu
bílanna því
eftir tolla-
breytingar
sem taka gildi
eftir þrjár vik-
ur hækka bílar
eöa lækka eft-
ir atvikum.
Þrjár vélasta
Boðið verður upp á
þrjár vélastærðir, XN og XR 1400,
XR og XT 1600 og XT 1800. XR
1400 bíllinn er 75 hestafla og mun
kosta á götuna 1.148 þúsund kr.,
en forsvarsmenn Jöfurs
hafa fyrirvara á verð-
lagningu bílanna því
eftir tollabreytingar
sem taka gildi eftir
þijár vikur hækka bílar
eða lækka eftir atvik-
um. Þannig mun XR
1400 kosta undir 1.100
þúsund kr. eftir breyt-
ingu. XT 1600 með 90
hestafla vél kostar á
götuna nú 1.248 þús-
und kr. en mun hækka
í um 1.290 þúsund kr.
eftir tollabreytingu.
Sportgerðin, XT, kostar
1.348 þúsund kr. 1800
bíllinn verður aðeins til
í sportgerð, XT, og kostar nú 1.446
þúsund kr. en mun lækka niður
fyrir 1.400 þúsund kr. Hann er
með 103 hestafla vél. ■
Nýr Isuzu Trooper
NÝR Isuzu Trooper jeppi er kominn til landsins og verður hann
sýndur á næstu vikum hjá Bílheimum hf. Um er að ræða gerbreytt-
an bíl, lúxusjeppa, en ekki liggur ljóst fyrir á hvaða verði hann
verður boðinn.
Isuzu Trooper býðst tveggja og
femra dyra. Tveggja dyra bíllinn
er 4,11 sm langur en fernra dyra
bíllinn 4,54 sm, en báðir eru þeir
1,74 sm breiðir. Boðið er upp á
Ný Bjalla?
Volkswagen-verksmiðjumar
íhuga nú að framleiða takmark-
'að magn af VW-bjöllu fyrir Evr-
ópumarkað. Bíllinn hefur verið
framleiddur um árabil í Mexíkó,
en framleiðslu hans á Evrópu-
markað var hætt í byrjun átt-
unda áratugarins. Talsmaður
VW segir að ástæður þess að
slík áform séu uppi er hin mikla
eftirsókn í hið gamla, jafnt hjá
bílahönnuðum og almenningi.
Velja amerískt
Nýleg skoðanakönnun sýnir
að 85% Bandaríkjamanna 50 ára
og eldri kaupa helst bandaríska
tvær gerðir bensínvéla, aðra fjög-
urra strokka en hina sex strokka,
eina fjögurra strokka díselvél og
eina fjögurra strokka túrbódíselvél.
bíla. Hins vegar ekki nema 63%
í aldurshópnum 18-24 ára. Skoð-
anakönnunin fór þannig fram
að hringt var í 1.200 svarendur,
sem allir voru að hugleiða að
kaupa bíl. Vinsælasti bíllinn
meðal eldri aldurshópsins var
Ford, en Buick og Oldsmobile
komu þar á eftir. Toyota var í
fyrsta sæti í vinsældum yfir inn-
flutta bíla hjá 50 ára og eldri
og Honda í öðru sæti.
Beðið með
rafdyr
General Motors hefur frestað
því að bjóða upp á rafknúnar
hliðardyr á nýja gerð fjölnota-
bíla. Rafknúnar hliðardyr áttu
að koma fyrst á markað fyrir
einum mánuði á Oldsmobile Sil-
houette, Chevrolet Lumina APV
og Pontiac Trans Sport, en
vegna gæðavandamála og bilana
í dyrunum var fallið frá því.
Ráðgert er að bjóða upp á þessa
nýjung í 1994-árgerð þessara
bíla.
Dekk sem
orkugjafi
Bridgestone í Japan hefur
reist stóra raforkustöð við hjól-
barðaverksmiðju sína sem fram-
leiðir 5.000 kílóvattstundir á
mánuði sem nýtt er til hjólbarða-
framleiðslu. Orkan er að mestu
leyst úr læðingi með brennslu á
gömlum hjólbörðum. Eyðing
gamalla hjólbarða hefur verið
mikið vandamál í Japan en á
síðustu árum hefur 86% þeirra
verið endurnýttur til orkufram-
leiðslu.
ABS-hemlar
ekki fullkomnir
Monroe-fyrirtækið, sem þekkt
er fyrir framleiðslu höggdeyfa í
bíla, hefur með rannsóknum leitt
í ljós að hemlalæsivörn, svokall-
að ABS-hemlakerfí, getur gefíð
falskt öryggi ef viðkomandi bíll
er með slitna höggdeyfa. Rann
sóknir sýna að höggdeyfar með
50% slit lengja hemlunarvega-
lengd bíla, og meira í bílum sem
eru búnir ABS en bílum án
hemlalæsivama. Hlutverk högg-
deyfa er að tryggja góða snert-
ingu hjólbarða við veginn. Þegar
snertingin rofnar berast boð til
ABS-tölvunnar sem léttir strax
á hemlunarátakinu.
Spánver jar í
sókn
Mikill uppgangur er í bíla-
framleiðslu á Spáni. Þjóðin er
nú fjórði stærsti bílaframleiðandi
í Evrópu, á eftir Þýskalandi,
Frakklandi og Ítalíu. Auk þess
að framleiða Seat-bíla eru á
Spáni verksmiðjur sem framleiða
fyrir Ford, GM-Opel, Renault
Peugeot, Nissan og Mercedes
Framleiðslukostnaður við bíla
framleiðslu á Spáni er aðeins
60% af kostnaði í Þýskalandi.l