Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 1

Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 1
64 SIÐUR LESBOK/C **gunHafei STOFNAÐ 1913 147. tbl. 81. árg. LAUGARDAGUR 3. JULI 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tyrkland Ikveikja verður 40 að bana Ankara. Reuter. FJÖRUTÍU manns fórust í íkveikju í Tyrklandi í gær. Kveiktu bókstafstrúarmenn í hóteli í bænum Sivas til að mótmæla Söngvum satans eftir Salman Rushdie. Tyrkneskur þýðandi bókarinnar hafði verið gestkomandi á hótelinu. Mótmæli brutust út þegar þýð- andinn, Aziz Nesin, kom til Sivas og gengu 600 bókstafstrúarmenn um götur og hrópuðu slagorð. Tutt- ugu manns slösuðust fyrr um dag- inn þegar til átaka kom milli lög- reglu og mótmælenda sem grýttu gijóti. ------» ♦ ♦----- Noregnr Hundrað hrefnur veiddar Osló. Reuter. NORSKIR hvalveiðimenn eru búnir að veiða 100 hrefnur af 160 dýra kvóta fyrir árið 1993. Hafa veiðaraar farið fram án teljandi afskipta umhverfis- verndarsinna. Búið er að verka og selja 56 dýr og ef veður leyfír verður kvótinn líklegast fullnýttur í lok næstu viku. Umhverfisverndarsamtök hafa ekki rejmt að stöðva veiðar á hafi úti en grænfriðungar hafa staðið fyrir mótmælum á landi og hlekkjað sig við hvalabyssur á landfesta bátum. Greint hefur verið frá því í norskum fjölmiðlum að liðsmenn Sea Shep- herd séu í þann mund að leggja af stað frá Kanada í þeim tilgangi að stöðva Norðmenn. Leiðtogi samtak- anna, Paul Watson, hefur heitið þeim sem tekst að sökkva norskum hvalveiðibáti rúmlega 1,7 milljónum króna. Hlaupið í tækin í Fjölskyldugarðin um Morgunblaðið/Kristinn ÞESSI böm flýttu sér inn í Fjölskyldugarðinn þegar hann var opnaður kl. 10 í gærmorgun. Mörg þeirra höfðu beðið spennt eftir að komast í rafmagnsbílana og torfærubrautina. Um 50 þúsund manns hafa komið í Fjölskyldugarðinn frá því að hann opnaði fyrir rúmri viku. Úkraínumenn vilja ekki láta kjamorkuvopnin af hendi Samþykkja eigiiar- hald á eldflaugunum Kiev. Reuter. Kiev. Reuter. ÞINGIÐ í Ukraínu lýsti í gær eignarhaldi á kjarnorkuvopnum í landinu, þriðja stærsta kjarnorkuvopnabúri heims, en lét þess um leið getið, að ekki stæði til að nota þau eða hóta að nota þau. Þá var lögð áhersla á, að Úkraína stefndi að því að verða „kjarnorku- vopnalaust ríki í framtíðinni“. Ekki er nú ljóst hvað verður um START-l-samninginn og samninginn um takmörkun við út- breiðslu kjarnorkuvopna en þeir eru báðir til umræðu á úkra- ínska þinginu. Aðskilnaðarsinnar í Abkhazíu sækja gegn stjómarher Georgíu Rússar sagðir hafa sent 2.000 hermenn til landsins Tbilisi. Reuter. STJÓRNVÖLD í Georgíu sögðu í gær að aðskilnaðarsinnar I héraðinu Abkhazíu við Svartahafsströnd hefðu gert skyndiárás á yfirráðasvæði stjórnarhersins í fyrrinótt. Þau sökuðu jafnframt Rússa um að hafa sent 2.000 hermenn inn fyrir landamæri Georgíu. Þingið í Tbilisi veitti Edúard Shevardnadze, leiðtoga landsins, stóraukin völd, meðal annars rétt til að skipa og reka ráðherra og gefa út tilskip- anir. Shevardnadze sagði að 600 að- skilnaðarsinnar hefðu komið með skipum að ströndinni og ráðist á stjórnarhermenn. Ríkissjónvarpið í Moskvu sagði að a.m.k. 23 menn hefðu beðið bana í stórskotaárás aðskilnaðarsinna. Embættismenn varnarmálaráðuneytis Georgíu sökuðu Rússa um að hafa sent 2.000 hermenn til landsins um svipað leyti og aðskilnaðarsinnarn- ir létu til skarar skríða. Rússneska vamarmálaráðuneytið vísaði því hins vegar á bug í harðorðri yfirlýs- ingu. „Þetta er skipulögð og sið- laus ögrun,“ sagði Míkhaíl Kol- esníkov, forseti rússneska herráðs- ins. Úkraínustjórn hét því á síðasta ári að staðfesta báða afvopnunar- samningana en síðan hefur þeirri skoðun vaxið fylgi, að Úkraínu-. menn ættu að halda eftir lang- drægu eldflaugunum, 176 að tölu, í öryggisskyni. Virðist mörgum sem Úkraínustjórn vilji nota eldflaug- arnar til að treysta stöðu sína í samningum við Bandaríkin og Vestur-Evrópu. Ábyrgðir frá Vesturlöndum Dmytro Pavlytsjko, formaður utanríkismálanefndar úkraínska þingsins, sagði í gær, að lýsti það ekki yfir eign sinni á eldflaugimum, gæti það heldur ekki krafist samn- inga um eða ábyrgða í öryggismál- um. Hefur Úkraínustjórn farið sér- staklega fram á slíkar ábyrgðir frá Vesturlöndum. Sagði hann, að START-l-samningurinn yrði stað- festur í fyllingu tímans, það væru aðeins óvinir ríkisins, sem héldu því fram, að Úkraína ætlaði að fara að veifa einhverjum kjamorku- vendi. Búist er við, að Rússar bregðist hart við ákvörðun úkraínska þings- ins en þeir segja Úkraínumenn ekki eiga neina kröfu til eldflaug- anna. Bangsar bakvið lás og slá The Daily Telegraph. ATHAFNAMAÐUR í Banda- ríkjunum hyggst byggja dýragarð við Yellowstone- þjóðgarðinn til að vista birni sem gera sér dælt við nestis- körfur þjóðgarðsgesta. Sumir eru í stöðugum ráns- ferðum á tjaldstæðum og gramsandi í ruslafötum þjóð- garðsins. Lewis Robinson vill byggja athvarf því vandræða- bangsar eru gjaman skotnir. Sæki einhver reglubundnar máltíðir á tjaldstæðum er hon- um gefið deyfilyf í fyrstu og skilað á sinn stað. Endurtaki sagan sig hvað eftir annað er hann skotinn. Þessi örlög sí- brotabjarna gera það að verk- um að þeim hefur fækkað úr 1.000 í 250 í garðinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.