Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
Skálar hf. festa
kaup á Júpíter
Kaupverð er 255 milljónir króna
Þórshöfn.
NÝTT hlutafélag Skálar hf. keypti í gær loðnuveiðiskipið Júpíter
RE-161 af þrotabúi Júpíters hf. en félagið var í eigu Einars Guð-
finnssonar hf. á Bolungarvík og Hrólfs Gunnarssonar skipstjóra.
Skálar hf. er stofnað af Hraðfrystistöð Þórshafnar hf., Tanga hf.
á Vopnafirði, Fiskiðjunni Bjargi hf. Bakkafirði, sveitarfélögum á
svæðinu og fleiri aðilum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er kaupverð skipsins
255 milljónir kr. Greiðast 55 millj.
kr. á árinu og þar af 35 millj. kr.
við undirritun kaupsamnings.
Kvóti rúmlega 21 þús. tonn
Júpíter er 747 brúttólestir að
stærð og er eitt afkastamesta
loðnuveiðiskip flotans. Fulllestaður
ber hann um 1.300 tonn af loðnu.
Veiðiheimildir skipsins verða 3%
af útgefnum loðnukvóta eða rúm-
lega 21.000 tonn miðað við þann
byijunarkvóta sem gefinn hefur
verið út fyrir nýbyijaða vertíð.
Skipstjóri á skipinu verður Lárus
Grímsson en í áhöfn skipsins verða
15 manns.
Útgerð skipsins á að styrkja
hráefnisöflun loðnuverksmiðjanna
á Þórshöfn og Vopnafirði og bæta
afkomumöguleika þeirra. Þá mun
útgerð skipsins styrkja atvinnulíf
byggðarlaganna, bæði útgerð
skipsins beint og vegna þjónustu
við útgerðina.
- LS.
Björgunarsveitin Albert á Seltjarnarnesi
Björguðu 3 fóstrum
og 21 bami úr Gróttu
Voru hætt komin vegna flóðsins
ÞRÍR félagar úr björgunarsveitinni Albert á Selljarnarnesi sýndu
skjót viðbrögð er þeir björguðu þremur fóstrum og 21 barni úr
Gróttu síðdegis í gær. Fóstrurnar voru með börnin á leikskólanám-
skeiði en er hópurinn ætlaði í land aftur eftir eiðinu úr Gróttu
var byrjað að flæða að þannig að stór hluti barnanna komst hvorki
áfram né aftur á bak. Að sögn Árna Kolbeins formanns björgunar-
sveitarinnar flæðir mjög hratt að þarna og virðast fóstrurnar
ekki hafa áttað sig á því. _________
Fyrstu loðnufarmarnir til Raufarhafnar
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson.
Fyrsti farmurinn
LOÐNUSKIPIÐ Gígja kemur með fyrsta loðnu-
farminn að landi á Raufarhöfn.
Rúmlega 1.500 tonn
eru komin í bræðslu
Raufarhöfn.
GÍGJAN VE kom til Raufarhafnar kl. 7 föstudaginn 2. júlí með
fyrsta loðnufarm vertíðarinnar sem hófst núna um mánaðamótin.
Seinna um daginn kom síðan Sunnubergið en samtals lönduðu
þessi skip rúmlega 1.500 tonnum. Veiðisvæðið var nánast beint
norður frá Raufarhöfn um 100 mílur.
Gígjan fékk 700 tonn í sex köst-
um. Þeir leituðu lítið út frá þessu
svæði en þetta er ekki eins norðar-
lega og Svanur RE hóf loðnuveiðar
í upphafi síðustu vertiðar. Sunnu-
bergið var með um 800 tonna afla.
Loðnan blönduð
Loðnan er dálítið blönduð og
virðast þetta vera tveir árgangar.
Mikið er af hnúfubak á veiðisvæð-
inu. Löndun gengur vel og var
reiknað með að gangsetja verk-
smiðjuna föstudaginn 2. eða laug-
ardaginn 3. júlí.
Hólmaborgin landaði 1.370
tonnum af loðnu á Eskifirði en auk
þessara þriggja skipa eru Börkur
og Keflvíkingur einnig á miðunum
nú og fleiri skip á leiðinni.
- Helgi.
Árni segir að útkallið hafí borist
um fímm mínútum fyrir klukkan
fjögur en 15 mínútum síðar var
búið að bjarga öllum á land og
notaði sveitin gúmmíbátinn Gauja
við verkið. „Er við komum á stað-
inn voru bömin uppi á steinum á
eiðinu og sum orðin vot upp undir
hendur," segir Árni. „Fóstrumar
börðust aftur á móti við að halda
börnunum uppi og ekki mátti tæp-
ara standa að við kæmum með
bátinn."
Ein á slysadeild
Ekkert amaði að bömunum en
ein fóstran var flutt á slysadeild
með lögreglubíl til aðhlynningar
enda var hún orðin mjög köld og
máttlaus eftir volkið í sjónum.
Ámi segir að björgunarsveitin
reyni að bregðast eins skjótt við
útköllum sem þessum og kostur
er enda hefur fólk áður verið hætt
komið á þessum stað þar sem það
hefur ekki áttað sig á hve hratt
flæðir að yfir eiðið.
Umhverfisráðherra hefur rætt við skípveijana á Guðnýju ÍS
Ríkið fái hvftabjarnar-
hræið til rannsóknar
ÖSSUR Skarphéðinsson umhverfisráðherra vill að Náttúrufræði-
stofnun fái til rannsókna hræ hvítabjarnarins sem skipveijar á
Guðnýju IS veiddu í síðasta mánuði. Hann fór þessa á leit við skip-
sljórann, Jón Pétursson, í samtali í gegnum Gufnesradíó síðdegis á
fimmtudaginn. Ráðherrann vill á móti sjá til þess að Náttúrugripa-
safn Bolungarvíkur fái feldinn og hauskúpuna til varðveislu.
Össur Skarphéðinsson umhverf-
isráðherra staðfesti í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að hann
hefði haft samband við skipstjórann
og farið þess á leit að ríkið fengi
hið umtalaða bjarndýrshræ til rann-
sókna. Umhverfisráðherra sagðist
reyndar telja að stjómvöld gætu, í
vísinda þágu, lagt hald á þetta hræ.
Umhverfisráðherra var það gleði-
efni að Jón Pétursson skipstjóri
hefði tekið mjög vel í tilmæli sín
um að afhenda dýrið. Ráðherrann
sagði samband einnig hafa verið
haft við aðra skipveija og hefðu
þeirra undirtektir verið góðar. Össur
Skarphéðinsson kvaðst ennfremur
hafa rætt þetta mál við útgerðar-
dag
Fjórðungsmótið
Hrafntinna var efst í A-flokki á
Vindheimamelum 16
Tyrkland
Halim mætti ekki með dæturnar
til Sophiu í gær eins og dómstöll
hafði úrskurðað 22
Fundur NAMMCO__________________
Sjóður styrki upplýsingamiðlun um
nýtingu sjávarspendýra 23
HUt0unVlnfrifr
VÆNGJAÐ
AUGA
Leiðari
Niðurskurður í Þýskalandi 22
Lesbók
► Hörgulkenningin - Bænda-
þjóðfél. og „grimmdarverkin" 2
- Bogabrúin á Fnjóská - Munch í
Stuttgart - Samanb. á bleikju-
stofnum. - Um séra Friðrik.
Menning/listir
► Myndbanda- og gemingalist
í Nýlistasafninu - Ghena Dim-
itrova - Tékkneskt skáld og líb-
anskt - Bamabækur 1992 - Sig-
urður Á. Sigurðsson í París.
mann Guðnýjar ÍS, Magnús Snorra-
son, og bæjarstjóra Bolungarvíkur,
Ólaf Kristjánsson.
Össur Skarphéðinsson sagðist
hyggja að góð samstaða væri um
það að ríkið fengi þetta dýr. En til
endurgjalds kvaðst Össur ætla að
sjá til þess að Náttúrugripasafn
Bolungarvíkur sem yrði opnað fyrir
áramót fengi feldinn og hauskúp-
una.
Umhverfísráðherra var inntur
eftir þeim rannsóknum sem hann
teldi svo nauðsynlegar á bjamar-
hræinu. Össur greindi frá því að í
holdi bjarndýra væri mikið af trík-
ínum og hárormum. Slíkt væri
hættulegt ef bærist í menn; þetta
yrði að rannsaka. Þar að auki væri
sjálfsagt að vísindamenn fengju
skrokkinn tii að kanna magn þung-
málma í vöðvum og klórkolefnis-
sambönd í lifur. Þetta væm mjög
nauðsynlegar rannsóknir.
Sjá bls. 17: „Erlendir náttúru-
vemdarmenn..."
Verðbreytingar
v. gengislaekkunarinnar
Flug fró Reykjavík til Akureyrar
og til baka
Apex-
Verðið Verðíð hækkar
var kr. er nú kr. um
5.900 6.160 4,4%
Fargjald til
Akureyrar
mun hækka
um260kr.
FARGJÖLD Flugleiða innan-
lands hækkuðu 1. júlí vegna
gengisfellingarinnar. Sem
dæmi um fjargjald má nefna
apex-fargjald til Akureyrar
fram og til baka, sem áður
kostaði 5.900 krónur og kost-
ar nú 6.160 krónur og er það
4,4% hækkun. Almennt
hækkuðu fargjöld Flugleiða
innanlands öll um 4,4%.
Hjálmur segir níu manns upp
HJÁLMUR hf. á Flateyri hefur sagt upp níu manns og segir Einar
Oddur Kristjánsson framkvæmdastjóri að þessar uppsagnir hafi
verið ákveðnar fyrir löngu sem liður í endurskipulagningu á rekstri
fyrirtækisins. „Við eram að reyna að hagræða í rekstri okkar eins
og aðrir og þetta er liður í þeim efnum. Ég á von á að einhveijir
verði endurráðnir,“ segir Einar Oddur.
í máli Einars kom fram að um
fastráðna starfsmenn á skrifstofu,
verkstjóra og flokksstjóra hafi verið
að ræða en að engu verkafólki hafí
verið sagt upp. „Eins og önnur fyr-
irtæki í sjávarútvegi höfum við átt
við erfíðleika að stríða og við erum
að bregðast við þeim erfiðleikum,"
segir Einar Oddur.
.