Morgunblaðið - 03.07.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
Islendingar koma út á
sléttu í Víkingalottói
Hafa spilað fyrir 115 milljónir króna
ÍSLENDINGAR kaupa mun fleiri
raðir í Vikingalottói en hinar þátt-
tökuþjóðirnar ef miðað er við
höfðatölu. Þeir hafa hingað til
keypt raðir fyrir um 115 milljónir
ísl. króna og þar af hafa þeir
greitt 14 milljónir í sameiginlegan
vinningssjóð með hinum fimm
Norðurlandaþjóðunum, sem spila
i Víkingalottóinu. Ur þessum sjóði
hafa svo komið 13 milljónir aftur
í vinningsformi.
Aðeins fyrsti vinningurinn í Vík-
ingalottóinu kemur úr sameiginleg-
um sjóði. Aðrar vinningsupphæðir
miðast við hvert land fyrir sig, líkt
og íslenska lottóið er aðeins bundið
við ísiand. Eini möguleikinn fyrir
peninga til að færast á milli landa
er því í gegnunr fyrsta vinninginn.
V I K I N G A
Þau sem hafa greitt í pottinn
og þau sem hafa tekið
vinningana
Upphæðir í milljónum Greittí Vinn-
islenskra kr. pottinn ingar
Danmörk 139 219
Noregur 125 27
Finnland 99 164
Svíþjóð 66 20
ísland 14 13
Danir eyða mest...
Danir hafa eytt mestum pening-
um í Víkingalottóinu frá því það
byrjaði eða rúmlega 1,2 milljarði ísl.
kr. Á eftir þeim koma svo Finnar
og Norðmenn með milljarð hvort
land, þá Svíþjóð með hálfan milljarð
og loks ísland með 115 milljónir
króna.
Ef miðað er við höfðatölu horfir
dæmið öðruvísi við. ísland hefur
keypt raðir fyrir 440 ísl. kr. á mann
á meðan þau lönd sem næst koma
eru Noregur og Danmörk með 240
kr. á mann. Þá kemur Finnland með
201 kr. á mann og Svíþjóð rekur
lestina með 57 kr. á hvern íbúa.
...og Danir græða mest
Eins og sést meðfylgjandi töflu
hafa Danir grætt mest frá hinum
Norðurlandaþjóðunum eða um 80
milljónir. Þar á eftir koma Finnar
með 65 milljónir í hagnað. Norðmenn
koma langverst út úr Víkingalottó-
inu og hafa tapað til hinna Norður-
landanna, sem nemur 100 milljónum
ísl. kr. Svíar hafa svo tapað 46 millj-
ónum en íslendingar eru því sem
næst á sléttu, hafa einungis tapað
einni milljón.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 3. JULI
YFIRLIT: Skammt suðaustur af Jan Mayen er 996 mb lægð sem fer
mjög hægt norðaustur. Um 1.000 km suðvestur af landinu er 1.003
mb lægð sem grynnist og fer austur. SPÁ: Norðvestan 3-5 vindstig.
Dumbungsveður og rigning eða súld með köflum fyrir norðan, en bjart-
viðri syðra. Hiti 5-10stig norðanlands, en allt að 16 stigum sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hæg norðvestlæg
átt. Minnkandi skúrir norðanlands og þokubakkar með vesturströndinni
en annars staðar léttskýjað. Hiti 5 tll 15 stig, hlýjast í innsveitum sunnan-
lands.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Hæg vestlæg átt. Þokuloft með norðurströnd-
inni en annars yfirleitt bjartviðri. Hiti á bilinu 6 til 18 stig, svalast á
annesjum norðanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30,.4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsimi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
O tik
Heiðskírt Léttskýjað
r r r * / *
/ / * /
/ / / / * /
Rigning Slydda
■'cö
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
*
Skýjað
Alskýjað
v $ ý
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindórín sýnir vindstefnu
og fjaörirnar vindstyrk,
heil fjööur er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
ríig..
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 í gær)
Greiðfært er um þjóðvegi landsins. Hálendisvegir eru óðum að opnast
hver af öðrum, og er t.d. orðið fært um Uxahryggi, í Eldgjá að sunnan,
Veiðivötn, Jökulheima, Herðubreiðarlindir, KverkfjÖII og Landmannalaug-
ar um Sigöldu. Einnig er Kjalvegur orðinn fær stórum bílum. Víða er
unnið við vegagerð og eru vegfarendur af gefnu tilefni beðnir um að
virða þær merkingar sem þar eru.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UMHEM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti vsflur
Akureyri 7 rigning
Reykjsvfk 10 léttskýjað
Bergen 14 skýjaö
Heleinkl 19 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 skýjað
Narssarssuaq 5 rigning
Nuuk 4 rignlng
Osló vantar
Stokkhólmur 25 léttskýjað
Þórshöfn 9 akýjað
Algarve 25 léttskýjað
Amsterdam 22 léttskýjað
Barceiona 24 léttakýjað
Beriín 25 léttskýjað
Chicago 21 þokumóða
Feneyjar 27 léttskýjað
Frankfurt 29 léttskýjað
Glasgow 13 rigning
Hamborg 24 hálfskýjað
London 23 mistur
Los Angeles 19 þokumóða
Lúxemborg vantar
Madríd 24 skýjað
Malaga 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Montreal 19 skýjað
NewYork vantar
Ortando 25 skýjað
Paría 20 skýjað
Madeira 19 sltýjað
Róm 25 skýjað
Vín 25 léttskýjað
Woshington 23 rigning
Winnipeg 16 léttskýjað
14. bæjarstjórinn í Hafnarfirði
INGVAR Viktorsson nýkjörinn bæjarstjóri í Hafnarfirði tók formlega
við störfum í gær, þegar hann tók við lyklavöldum úr höndum fráfar-
andi bæjarstjóra, Guðmundar Árna Stefánssonar, sem tekið hefur við
störfum heilbrigðisráðherra. Ingvar Viktorsson er fjórtándi í röð bæjar-
stjóra í Hafnarfirði frá því bærinn fékk kaupstaðarréttindi fyrir rétt
rúmum 85 árum.
Stöð 2 sendir út frá sex
gervihnattastöðvum
STOÐ 2 hefur kynningarútsendingar frá erlendum gervihnatta-
stöðvum um dreifikerfi sitt aðfaranótt mánudags. Sent verður út
frá sex gervihnattastöðvum um óákveðinn tima. Útsendingar þess-
ar eru áskrifendum Stöðvar 2 að kostnaðarlausu.
Um er að ræða útsendingar frá
Sky News, Eurosport, Diseovery
Channel, BBC World Service, CNN
og MTV. Að sögn Páls Magnússon-
ar, útvarpsstjóra íslenska útvarps-
félagsins hf., eru kynningarút-
sendingarnar skipulagðar í sam-
starfi við erlendu aðilana og verða
hrein viðbót við dagskrá stöðvar-
innar, sem senda mun út allan
sólarhringinn.
Rásirnar
Sky News, BBC World Service
og CNN eru sjónvarpsfréttarásir
sem ná til milljóna áhorfenda.
Eruosport er íþróttarás og MTV
er popptónlistarstöð. Dagskráinn á
Discovery Channel samanstendur
af dýra- og náttúrulífsþáttum, vís-
inda- og tækniþáttum og mynda-
flokkum um mannkynið og sögu
þess.
Aðfaranótt mánudags og fram til
kl. 16.45 verður dagskrá Sky News
send um dreifíkerfí Stöðvar 2, aðra
nótt MTV, þriðju nóttina Eruosport,
fjórðu nóttina BBC World Service.
Aðfaranótt laugardagsins 9. júlí og
sunnudagsins 10. júlí verður dag-
skrá MTV send út og þá er komið
að fréttarásinni CNN.
Fjórir handteknir grunaðir um inubrot
Þrjár haglabyssur
enn ekki fundist
FJÓRIR menn á aldrinum 19-31 árs voru handteknir í Breiðholti
í gær og eru þeir grunaðir um aðild að innbrotum í geymslur í
hverfinu. Einn þeirra sem var handtekinn var i klæðnaði sem stol-
ið hafði verið úr einni geymslunni. Þá kom í leitirnar hjá mönnun-
um riffill sem einnig hafði verið stolið úr geymslu. Þeir hafa allir
áður komið við sögu lögreglu vegna innbrota og annara afbrota.
Alls hefur verið tilkynnt um níu
innbrot í geymslur í Breiðholtinu.
Sl. þriðjudag var tilkynnt um fjög-
ur innbrot í geymslur og var stolið
úr þeim tveimur haglabyssum og
einum riffli.
Fyrir einni viku var stolið hagla-
byssu úr geymslu í Breiðholti.
Aðeins einn riffill af þessum skot-
vopnum hefur komið í leitirnar enn
sem komið er, að sögn Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
Gripnir glóðvolgir
Lögreglan veitti mönnunum at-
hygli er þeir yoru að flytja varning
úr bíl í hús. í ljós kom að í bílnum
var varningur sem stolið hafði ver-
ið úr geymslu fyn- um morguninn.
Mennirnir voru teknir til yfir-
heyrslu hjá RLR í gær.
Mun fleiri atvinnu-
lausir nú en í fyrra
HJÁ Atvinnumiðlun námsmanna er talið að á milli 200 og 300
manns, sem eru á skrá hjá miðluninni, hafi enn ekki fengið at-
vinnu. Að sögn Auðuns Guðmundssonar, framkvæmdastjóra, hefur
atvinnumiðlunin útvegað um 350 manns atvinnu í sumar miðað við
um 520 á sama tíma í fyrra. Þá eru enn fleiri á atvinnuleysisskrá
hjá Ráðningastofu Reykjavíkurborgar.
Auðun segir að erfiðast sé fyrir
menntaskólanemendur að fínna sér
vinnu, enn færri störf séu fyrir
þann hóp en aðra. „Nú eru atvinnu-
rekendur yfírleitt að leita að fólki,
sem er yfir tvítugt sem hefur bæði
reynslu og menntun," segir hann.
Ennfremur segir Auðun að at-
vinnurekendur séu mun seinni að
leita sér að starfskröftum nú en
áður og geri þar með sjálfum sér
erfiðara fyrir að fá sérmenntað
fólk.
Hjá Ráðningastofu Reykjavíkur-
borgar fengust þær upplýsingar
að í lok júnímánaðar hafi 973 karl-
ar og 1.308 konur verið á atvinnu-
leysisskrá miðað við 669 karla og
786 konur á sama tíma á síðasta
ári.