Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
7
Tveggja ára fang-
elsi vegna hassmáls
ÞRÍR menn hafa verið dæmdir í óskiiorðsbundið tveg-gja ára, eins
árs og fimm mánaða fangelsi fyrir tilraun til brots á fíkniefnalög-
gjöfinni, innflutning á 13,3 kg af hassi og sölu á hluta þess. Mennirn-
ir eru 48 ára, 42 ára og 32 ára.
Sá er þyngsta dóminn hlaut var
dæmdur fyrir tilraun til brots á fík-
nefnalöggjöfinni með því að hafa
keypt 3,5 kg af efni í Amsterdam
um mánaðamótin apríl-maí 1989
sem ákærði taldi vera hass. Fyrir
efnið greiddi hann 420 þúsund kr.
og flutti hann það í bifreið frá Rott-
erdam til íslands þar sem hann
hugðist selja það í ágóðaskyni. Þá
var hann dæmdur fyrir að hafa
keypt 2 kg af hassi í Amsterdam
í október 1990 ásamt öðrum með-
ákærða. Megnið af efninu var flutt
í sumarbústað þess þriðja ákærða
og á næstu vikum var alls um 1.350
gr. fengin í hendur öðrum með-
ákærða til sölumeðferðar.
Falið í vökvadælu
Tveir mannanna, sá er þyngsta
dóminn hlaut og eigandi sumarbú-
staðarins, eru dæmdir fyrir tilraun
til innflutnings á hassi með því að
hafa um mánaðamót apríl-maí 1991
keypt 10 kg af hassi í Hollandi.
Hassið földu mennirnir í vökvadælu
sem þeir höfðu keypt gagngert í
þessu skyni og afhentu þeir dælurn-
ar í Rotterdam til flutnings hingað
til lands. Lögreglan í Hollandi varð
áskynja um hassið og lagði hald á
það en lét flutning dælanna hingað
til lands ganga fyrir sig svo sem
ákærðu höfðu ráðgert. Ákærðu
voru handteknir 16. maí 1991 er
sá er þyngstan dóm hlaut hafði flutt
dælurnar heim til sín.
Ákærðu hafa að baki marga aðra
dóma og við refsingu þess er
þyngstan dóminn hlaut var felldur
inn skilorðshluti síðasta dóms hans,
átta mánaða fangelsi. Til frádráttar
refsingu mannanna kemur gæslu-
varðhald vegna rannsóknar máls-
ins. Dóminn kvað upp Sverrir Ein-
arsson héraðsdómari.
Ted Turner og Jane
Fonda tíl landsins
HJÓNIN Ted Turner, æðsti yfirmaður CNN, og Jane Fonda,
leikkona, koma í fjögurra daga íslandsheimsókn 22. júlí. ís-
lenska útvarpsfélagið er gestgjafi þeirra og segir Páll Magnús-
son, útvarpsstjóri, að reynt verði að gera heimsóknina eins
afslappaða og rólega og hægt sé.
Páll sagði að hjónin kæmu með
einkaflugvél sinni til Reykjavíkur-
flugvallar 22. júlí og hittu forseta
Islands á Bessastöðum síðar um
'daginn. Dagana á eftir yrðu þau
við laxveiði í Norðurá og væri Turn-
er mikið fyrir veiði þó honum hefði
eflaust gefist lítill tími til að sinna
þessu áhugamáli síðustu ár. Ekki
vissi Páll hvort Jane Fonda væri
mikil veiðikona en sagði að hún
væri mikið fyrir útivist.
Aðdragandinn
Hvað aðdraganda heimsóknar-
innar varðaði sagði Páll að íslenska
útvarpsfélagið hefði átt nokkur
samskipti við CNN og sjálfur hefði
Turner komið hingað til lands árið
1988. „Við urðum þess síðan
áskynja að þau höfðu áhuga á að
koma hingað í stutt leyfi og niður-
staðan varð sú að við skipulögðum
þessa ferð,“ sagði Páll. Áðspurður
sagði hann að hjónin myndu eflaust
koma fram á Stöð 2 en ekki væri
ákveðið með hvaða hætti það yrði.
Einlægur og heill
Páll lét vel af kynnum sínum við
Turner. „Hann er iaus við alla til-
gerð og oflátungsskap og kom mér
fyrir sjónir sem einlægur og heill,“
sagði hann í þessu sambandi. Fram
kom að Turner væri stjórnarfor-
maður og æðsti yfirmaður CNN
kapalfréttastöðvarinnar í Banda-
ríkjunum, CNN Interntional og
Turner Broadcasting. Þá hefði hann
í hyggju að leggja fé til kvikmynda-
gerðar.
Færri gistu á Farfugla-
heimilinu en í fyrra
MUN FÆRRI nýttu sér aðstöðu Farfuglaheimilisins í Reykjavík í júní
í ár en sama tímabili í fyrra. Fjöldinn er þó svipaður og í hitti-
fyrra. Ragnheiður Hauksdóttir, starfsmaður hjá Farfuglaheimilinu,
sagði að í fyrra hefði verið óvenju gott ár en árið i ár virtist ætla
að verða meðalár. Álíka margar gistinætur og í fyrra voru skráðar
í júní á tjaldstæðinu í Laugardal.
í júní í fyrra gistu rúmlega 2.000
ferðamenn í Farfuglaheimilinu í
Reykjavík, að sögn Ragnheiðar, en
í ár voru þeir 1.400. Ragnheiður
segir að muninn megi skýra með
500 manna hópi frá Skandinavíu,
sem kom á tónlistarmót í fyrra og
gisti á heimilinu. Núna væri allt
fullt hjá þeim og hefði þurft að vísa
ferðalöngum frá. Þjóðveijar væru
langfjölmennasti hópurinn, sem
gistir hjá þeim.
Kristján Sigfússon, tjaldstæða-
vörður í Laugardalnum, sagði að
2.290 gistinætur hefðu verið seldar
í júní miðað við 2.363 í fyrra. Fjöld-
inn stæði því í stað, í júlí í fyrra
voru seldar 9.300 gistinætur í
Laugardalnum og á Kristján von á
svipaðri tölu í ár. Um eitt þúsund
gistinætur af þeim, sem seldar voru
í júní, voru notaðar af Þjóðveijum,
næstflestir voru Hollendingar en
það sæti hafa Frakkar skipað und-
anfarin ár að sögn Kristjáns.
Vilja endurvekja Skúlatorg
HAGSMUNAFÉLAG húseigenda
og fyrirtækja við Skúlagötu aust-
an Snorrabrautar, Skúiatún og
Borgartún hafa óskað eftir því
við skipulagsnefnd Reykjavíkur
að gert verði hringtorg á mótum
Snorrabrautar, Skúlagötu og
Borgartúns.
Erindi þetta var tekið fyrir á
fundi skipulagsnefndar síðastliðinn
mánudag, og var samþykkt að fela
borgarverkfræðingi að ræða við
forsvarsmenn hagsmunafélagsins
og skila skipulagsnefnd greinargerð
um viðræðurnar fyrir næsta fund
nefndarinnar.
£ • n * Morgunblaðið/Sverrir
I vikingaferð
„SVO mælti mín móðir, að mér skyldi kaupa, fley og fagrar árar ..."
Víkingabörn í Hafnarfirði
KRAKKARNIR í Kató, leikskóla St. Jósefsspítaia
í Hafnarfirði, gerðust víkingar í vikunni. Þau
tóku sér víkinganöfn og hétu Hrafnaflóki, Mel-
korka, Gísli Súrsson, Hallgerður og Egill Skalla-
grímsson. Þau fóru í víkingaferðir og fundu lönd
á leikvellinum og börðust við ófreskjur og tröll.
Að sögn Ránar Einarsdóttur leikskólastjóra tókst
verkefnið vel en tilgangurinn var að kynna sögu
landnámsins og kempurnar sem námu landið. Hún
sagði að hápunkturinn hefði verið þegar Fjörukráin
í Hafnarfirði bauð öllum krökkunum í heimsókn.
Þar tók sjálfur Hrafnaflóki á móti gestum og veitti
vel. Hann kunni frá mörgu að segja og var glaður
og reifur. Og þá var kátt í höllinni en úti er ævintýri.
Nú er komin
hásumartíð
og góður tími
til að gróðursetja
67%
O afsláttur
• Stórtré
af birki
• AlaskaÖsp
• Ilmreynir
J 50-60%
• 4birkiSS.Ípa“" iðuíLMftfr Nú: 1.800 V
• Ulfareynir iðuruhSOO- Nú: 900
• Lerki JiðufríNjft Nú: 450
-20-50%
• Fjallafura .1.900 1.500
• Beijarifs 59ff 300
• Síberíukvistur 5JJ
• Runnamura .540 300
• Lauftré, barrtré
og skrautrunnar
í miklu úrvali
• Sumarblómog
plærar plöntur
• Opið um helgina
frá kl. 9-18
STJÖRNUGRÓF18, SÍMI814288
Gróðrarstöð án opinberra styrkja