Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
11
Mannréttindadómstóll Evrópu
ísland brýtur gegn
félagafrelsinu
eftir Björn Bjarnason
Mannréttindadómstóll Evrópu í
Strassborg hefur enn á ný (30.
júní 1993) fellt dóm í máli á þann
veg að ríkisstjórn íslands lýtur í
lægga haldi. A síðasta ári snerist
íslenskt mál fyrir dómstólnum um
málfrelsi og þaðan gekk Þorgeir
Þorgeirsson rithöfundur sem sigur-
vegari. Að þessu sinni snýst málið
um skyldu manns til að vera í leigu-
bílstjórafélaginu Frama svo að
hann öðlist atvinnuréttindi og frá
því gengur Sigurður A. Siguijóns-
son sem sigurvegari.
Dómurinn í máli Þorgeirs Þor-
geirssonar knýr ekki í sjálfu sér á
um að íslenskum lögum verði
breytt, þótt það kunni engu að síð-
ur að verða gert. í máli Sigurðar
A. Sigurjónssonar segir Mannrétt-
indadómstóllinn hins vegar fullum
fetum, að það hafi brotið gegn 11.
gr. mannréttindasáttmála Evrópu
að knýja Sigurð með lögum
(77/1989) til að vera félagi í
Frama. Dómurinn verður með öðr-
um orðum ekki skilinn á annan veg
„Ríkisstjórn íslands
hefur hingað til tekið
afstöðu með stéttar- og
verkalýðsfélögum í
málarekstri á vettvangi
Evrópuráðsins vegna
réttar einstaklinga til
að standa utan félaga.
Ríkissljórnin þarf nú að
líta í eigin barm og end-
urskoða afstöðu sína.“
en þann, að umrædd lög feli í sér
skerðingu á mannréttindum. Al-
þingi verður að láta málið til sín
taka.
Ótvírætt frelsi
Sigurður A. Siguijónsson höfð-
aði mál sitt fyrir Mannréttinda-
dómstólnum á þeirri meginfor-
sendu, að 11. gr. mannréttinda-
sáttmála Evrópu varðar ekki að-
eins rétt manna til að stofna félög
heldur einnig til að standa utan
þeirra. Umrædd grein hefur ekki
að geyma neitt ákvæði um rétt
manna til að standa utan félaga,
þ.e. um svokallað „neikvætt fé-
lagafrelsi". Þór Vilhjálmsson, ís-
lenski dómarinn í Mannréttinda-
dómstólnum, er þeirrar skoðunar
að forsaga 11. gr. og orðalag henn-
ar leiði til þess, að það sé ekki
brot á henni að skylda menn að
vera f félagi til að öðlast atvinnu-
réttindi.
I máli Sigurðar A. Siguijónsson-
ar var Þór í minnihluta með þessa
skoðun. Atta dómarar telja hins
vegar, að 11. gr. mannréttinda-
sáttmálans eigi að túlka á þann
veg, að hún tryggi mönnum rétt
til að standa utan félaga. Dómar-
arnir segja, að í máli Sigurðar sé
þó ekki nauðsynlegt fyrir dómstól-
inn að ákveða hvort líta eigi þann-
ig á að þessi réttur sé jafnmikill
og rétturinn til að vera í félagi.
Með þessari túlkun á 11. gr.
mannréttindasáttmálans tekur
Mannréttindadómstóllinn ótvírætt
af skarið um gildissvið greinarinn-
ar, hún tekur til réttarins til að
Björn Bjarnason
vera utan félaga. Að þessu leyti
hefur þessi dómur áhrif langt út
fyrir ágreining Sigurðar A. Sigur-
jónssonar við íslenska ríkið.
íslenskt vandamál
Vegna málareksturs fyrir Mann-
réttindanefndinnl og dómstólnum
í Strassborg var á sínum tíma tek-
in ákvörðun um að breyta íslensku
réttarfari og skilja á milli fram-
kvæmdavalds og dómsvalds. Sú
ákvörðun sýndi hve mikið tillit
stjórnvöld telja að taka beri til
þessara virtu stofnana.
ísland er ekki aðeins aðili að
mannréttindasáttmála Evrópu
heldur einnig félagsmálasáttmál-
anum. Sérfræðingar í félagsmálum
Riddari réttlætis-
ins — Jón Quixote
eftir Björn
Jakobsson
Sú einstaka leikræna uppákoma
í íslenskri stjómmálasögu sem átti
sér stað fyrir síðustu Alþingiskosn-
ingar er sannarlega þess virði að
hennar sé minnst með viðeigandi
hætti. í þessum frábæra leikþætti
birtust tvær af frægustu persónum
heimsbókmenntanna — þeir Don
Quixote og þjónn hans Sancho
Pancha, í hlutverkum formanns
Alþýðuflokksins og fylgdarmanns
hans.
Ekki aðeins í útliti, eins og þess-
ir frægu karakterar Cervantes
hafa verið dregnir upp, heldur
einnig í hátterni og tiltektum virt-
ust þessir tveir nútíma íslendingar
jafnvel án þess að klæðast sérstök-
um leikbúningum, falla inn í hlut-
verkin.
Formaður Alþýðuflokksins dró
sverð sitt úr slíðrum, söðlaði hest
sinn og þeysti um landið þvert og
endilangt. Svo geyst fór formaður-
inn, að þjónn hans og skutilsveinn
átti fullt í fangi með að fylgja
honum eftir á herferð „Hinna
hundrað funda“.
Hver á ísland? — Svar-dæmi!
Undir herópinu „Hver á ísland
— svar-dæmi“ skar formaðurinn
upp herör gegn óréttlætinu og
ójöfnuðinum í íslensku samfélagi.
Hann sór þess dýran eið að frelsa
sína saklausu og hávelbornu ást-
mey, hina íslensku þjóð úr ræn-
ingjahöndum. Lokaárásina ætlaði
hann að gera á hinn dimma og
drungalega Nordalskastala, þar
sem hinu ljósa mani var haldið í
hlekkjum.
En eins og í hinu frábæra bók-
menntaverki Cervantes, afhjúpað-
ist blekkingin á grátbroslegan
hátt, þegar riddari réttlætisins
gafst upp, afhenti sverð sitt og
gekk Bubba kóng á hönd í Viðey
23. apríl 1991.
Orðsending í alvöru til
„heilagrar Jóhönnu“
Ekki virðist samt allt glatað
„Hann sór þess dýran
eið að frelsa sína sak-
lausu og hávelbornu
ástmey, hina íslensku
þjóð úr ræningjahönd-
um. Lokaárásina ætlaði
hann að gera á hinn
dimma o g drungalega
Nordalskastala, þar
sem hinu ljósa mani var
haldið í hlekkjum.“
þrátt fyrir uppgjöf riddara réttlæt-
isins. Aftur er hægt að vísa til
heimsbókmenntana og sögunnar.
Heiðraða Jóhanna, nú ert þú ein
eftir úr forystusveit Alþýðuflokks-
ins sem allt venjulegt fólk, sem
eftir er í flokknum, treystir til að
bjarga því sem bjargað verður.
Nýlega hafa þær tvær konur, sem
gegna tveimur æðstu embættum
þjóðarinnar látið tvær fyrirferðar-
mestu karlrembur landsins valta
yfir sig og hin háu embætti sín,
þannig að almenningur lítur nú á
þau sem nær marklaus. Þú ert því
ein eftir kvenna, sem enn stendur
óbuguð í háu embætti ráðherra
samfélagsmála.
Því er nú skorað á þig að taka
vopn þín, söðla hest þinn og stíga
nú í ístöð frægrar nöfnu þinnar
Jóhönnu af Örk, halda síðan til
Hafnarfjarðar, þar sem krónprins
Alþýðuflokksins bíður ráðalaus og
dundar sér við kubba eins og krón-
prins Frakklands forðum daga í
Chinon.
Blástu honum hugrekki í bijóst
— gerið uppreisn og byltingu í
Alþýðuflokknum, látið ekki nýja
blekkingu flokksformannsins villa
ykkur sýn og binda ykkur á bása
í núverandi ríkisstjórn. Kallið sam-
an flokksþing og leysið flokkinn
úr umsátri fjármagnseigenda og
sérhagsmunahópa. Bjargið flokkn-
um af gamalli ítalskri leið inn á
umfram allt heiðarlega íslenska
leið. Gerið pólitíska vorhreingern-
ingu að ný-ítölskum hætti.
Að lokum er hér gömul og ný
orðsending til formanns Alþýðu-
flokksins frá Abraham Lincoln:
„Það er hægt að blekkja alla menn
um nokkra tíð og suma menn um
alla tíð, en það er ekki hægt að
blekkja alla menn um alla tíð.“
Höfundur er fyrrv.
framkvæmdastjóri.
hafa fundið að ýmsu varðandi
framkvæmd okkar á ákvæðum fé-
lagsmálasáttmáians. Þar hefur
borið hæst gagnrýni er snertir rétt
manna til að vera utan félaga.
Embættismannanefnd er fylgist
með framkvæmd félagsmálasátt-
málans hefur nýlega sent íslensk-
um stjórnvöldum viðvörun vegna
reglna hér á landi um skylduaðild
að verkalýðsfélögúm og rétt til
vinnu. í dómsorði sínu í máli Sig-
urðar A. Siguijónssonar vitnar
Mannréttindadómstóllinn í þessa
viðvörun embættismannanefndar-
innar til íslands.
Staða einstaklinga gagnvart
stéttar- og verkalýðsfélögum á ís-
landi er því þannig að bæði sér-
fræðingar í félagsmálum á vegum
Evrópuráðsins og sjálfur Mann-
réttindadómstóll Evrópu telja hana
í ósamræmi við sáttmála Evrópur-
áðsins, sem eiga að tryggja ein-
staklingum hæfileg réttindi í frjáls-
um lýðræðisríkjum.
Umbóta er þörf
Ríkisstjórn íslands hefur hingað
til tekið' afstöðu með stéttar- og
verkalýðsfélögum í málarekstri á
vettvangi Evrópuráðsins vegna
réttar einstaklinga til að standa
utan félaga. Ríkisstjórnin þarf nú
að líta í eigin barm og endurskoða
afstöðu sína.
Þing Evrópuráðsins hefur lýst
eindregnum vilja sínum til þess að
5. gr. félagsmálasáttmála Evrópu
verði breytt á þann veg að hún
veiti frelsi til að standa utan félaga
án þess að tapa nokkrum réttind-
um til vinnu. Nú hefur Mannrétt-
indadómstóllinn tekið af skarið í
máli gegn ríkisstjórn íslands um
að 11. gr. mannréttindasáttmálans
veiti mönnum frelsi til að vera utan
félaga án þess að tapa nokkrum
rétti.
Ekki verður lengur dregið að
ganga til þess að festa þessi mann-
réttindi í lög á íslandi.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
og ásætiá þingi Evrópuráðsins (
Strassborg.
FLÍSAR
pSnnSSiríuiLLÍj
a?
1~ 1 I I 1 I I 1 „1,..
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Björn Jakobsson.
Ódpir
dúíiar
T
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
UTSALAN
HEFST í DAG
Langur
laugardagur
opið 10-17
<j7(LL
BANKASTRÆTI 8 SÍMI 1 3069