Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
Á Sjálfstæðisflokkurinn
Strætisvagna Reykjavíkur?
eftir Guðrúnu
Agústsdóttur
Hver á Strætisvagna Reykjavík-
ur?
Hver hefur vald til þess að selja
eða gefa fyrirtækið einkaaðilum?
Er það meirihluti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn?
Er SVR útibú frá Valhöll sem
hægt er að ráðstafa þaðan af gamla
flokksveldi Sjálfstæðisflokksins?
Svarið við þessum spurningum
er einfalt en tilefni spurninganna
er líka augljóst: Yfirgangur Sjálf-
stæðisflokksins í málefnum Stræt-
isvagna Reykjavíkur undanfarnar
vikur.
SVR er vissulega eign allra
Reykvíkinga; líka þeirra sem hafa
kosið aðra flokka en Sjálfstæðis-
flokkinn, líka þeirra sem starfa hjá
fyrirtækinu og hafa starfað þar um
árabil.
Þess vegna er það ekki aðeins
eðlileg og sanngjörn krafa heldur
líka ósk sem sprettur af því að við
búum í lýðræðisríki að málinu verði
frestað í heild fram yfir næstu borg-
arstjórnarkosningar. Þannig geti
borgarbúar sagt álit sitt á málinu
í næstu kosningum til borgarstjórn-
ar Reykjavíkur. Þangað til er ekki
einu sinni eitt ár. Eða er það til of
mikils mælst að fólk fái að segja
álit sitt á svona máli í kosningum?
En hvað þá með stjórn Strætis-
vagna Reykjavíkur sem er kosin af
borgarfulltrúum úr síðustu kosn-
ingum? Af hverju hafa þeir ekki
heldur fengið að fylgjast með mál-
inu — raunar hafa þeir verið snið-
gengnir allir; hvort sem þeir til-
heyra meirihluta eða minnihluta
borgarstjómar.
Og hvað með starfsmennina? í
öllum nútímafyrirtækjum er haft
samráð við starfsmennina áður en
forsendum starfsstaðar þeirra er
kollvarpað. En það var heidur ekki
gert hér.
Allir starfsmenn á móti þessu
Látið hefur verið að því liggja
að fámennur hópur starfsmanna
SVR sé breytingunni mótfallinn.
Aðrir ekki. Staðreyndin er sú að
allir starfsmenn SVR hafa lýst and-
stöðu við þessi sjónarmið einkavæð-
ingarmanna. Þeir óttast um kjör sín
og starfsaðstöðu sem er jafnframt
tilverugrundvöllur þeirra og fjöl-
skyldna þeirra. Og fullyrðingar
þessara manna um óbreytt kjör
starfsmanna standast ekki og er
það reyndar staðfest í nýjum gögn-
um um málið. Kjör starfsmanna eru
í fullkominni óvissu.
Spurning um heilindi
Það er svo kapítuli út af fyrir sig
að leiðtogi ungkrata, Bolli Val-
garðsson, skuli ganga fram fyrir
skjöldu og lýsa sjónarmiðum sem
eru í andstöðu við þau viðhorf sem
fulltrúar minnihlutaflokkanna í
stjórn SVR hafa látið frá sér fara.
Er hann að þakka fyrir að hafa
verið á launum hjá Sveini Andra
við að kynna hið nýja hlutafélag
og undirbúa fundi með starfsmönn-
um SVR eða er þessi leiðtogi ung-
krata að lýsa skoðunum Alþýðu-
flokksins? Ef hann er að lýsa skoð-
unum Alþýðuflokksins vakna aðrar
spurningar um heilindi Alþýðu-
flokksins í andstöðu við borgar-
stjórnaríhaldið þegar að kosningum
kemur næsta vor.
30% borgarbúa verða að nota
strætó
Þær hugmyndir sem komið hafa
fram frá höfuðstöðvum Sjálfstæðis-
flokksins í Valhöll um að breyta
SVR i hlutafélag, til að einfalda
næsta skref sem er einkavæðing,
gera alls ekki ráð fyrir bættri þjón-
ustu við borgarbúa, t.d. með því
að fjölga ferðum. Líklegt er að um
30% borgarbúa eigi ekki aðra ferða-
möguleika innan bæjar en vagna
SVR.
Eini sýnilegi „ávinningurinn"
sem hægt er að finna í þeim gögn-
um sem lögð hafa verið fram er sá,
að borgarstjóri getur sýnt fram á
betri skuldastöðu borgarsjóðs um
300 millj. með því að leggja inn í
banka skuldabréf upp á áðurnefnda
upphæð vegna hlutafélagsstofnun-
arinnar. Það mun líta betur út i
reikningum borgarinnar á kosn-
ingaári og ekki veitir af eftir gegnd-
arlausa sóun á almannafé undan-
gengin ár.
Sparast ekkert — verður
dýrara
í gögnum sem fyrir liggja í mál-
inu er hins vegar hægt að finna fjöl-
mörg dæmi um hversu vitlaus,
heimskuleg og umfram allt gamal-
dags þessi „einkavæðing" er og þar
sést líka hversu illa hún er undirbú-
in.
Báknið verður aukið. í stað einn-
ar stjórnamefndar SVR verða þær
tvær. í stað eins framkvæmdastjóra
verða þeir tveir. Svo verður ýmsum
þáttum starfseminnar dritað niður
á stofnanir borgarinnar. Þannig
verður líka hægt að fela kostnað
og sýna fram á „árangur" af hluta-
félagsstofnuninni. Staðreyndin er
sú að fjárhagslega mun þessi skipan
mála ekki spara heldur auka kostn-
að. Gert er ráð fyrir því að spara
2% af útgjöldum borgarinnar til
strætisvagnamála á ári næstu sex
árin. A móti kemur kostnaður við
strætisvagnaskýli og biðstöðvar.
Þannig er ljóst að sparnaður verður
enginn nettó þegar upp er staðið —
nema, og það er stórt nema: Ætlun-
in sé að skerða kjör starfsmanna
Guðrún Ágústsdóttir
„Þess vegna er það ekki
aðeins eðlileg og sann-
gjörn krafa heldur líka
ósk sem sprettur af því
að við búum í lýðræðis-
ríki að málinu verði
frestað í heild fram yfir
næstu borgarstjórnar-
kosningar. Þannig geti
borgarbúar sagt álit
sitt á málinu í næstu
kosningum til borgar-
stjórnar Reykjavíkur."
og ná þannig fram sparnaði, sem
þá getur þýtt verri þjónustu. Með
öðrum orðum: Sá grunur læðist að
manni að ekki sé ætlunin að tryggja
óbreytta þjónustu í raun. Þess vegna
muni borgarbúar tapa bæði beint
og óbeint á öllu bröltinu: Beint með
hærri sköttum en ella og óbeint með
verri þjónustu en ella væri.
Jafnvel sjálfstæðismenn sem trúa
á einkavæðingu hafa bent á að það
þýði lítið að einkavæða fyrirtæki
sem ekki búi við samkeppni. SVR
mun ekki búa við samkeppni frá
öðru fyrirtæki sem býður upp á
sömu þjónustu. Því hefur verið svar-
að að borginni, sem heldur leiðar-
kerfinu hjá sér, verði heimilt að
bjóða út einstaka leiðir — einkavæða
þær. T.d. leið 14, leið 110 o.s.frv.
Hvaða einkaaðili myndi vilja kaupa
Ný mynd um Hauka-
dal og Haukadalsheiði
MYNDBÆR HF. hefur í sam- undir eins og til dæmis fuglertur,
starfi við Landgræðslu ríkisins
lokið við gerð myndar um
Haukadal og Haukadalsheiði í
Biskupstungum, sem er eitt
áhugaverðasta svæði íslands og
fjölsótt af erlendum ferðamönn-
um.
í myndinni er lögð áhersla á
landshætti og sögu dalsins. Athug-
anir hafa sýnt að gróðurlendi á
Haukadalsheiði er nú aðeins fimmt-
án af hundraði þess sem það var í
eina tíð eða 40 ferkílómetrar, en
gífurlegt magn jarðvegs hefur fokið
á haf út. Þau rofabörð sem eftir
standa eru einungis brot af þeim
gróðri sem eitt sinn klæddi heiðar-
landið. Þá er fjallað um plöntuteg-
sem voru áður ræktaðar sem fóður-
jurt og síðast en ekki síst, uppblást-
ur, skógrækt og landgræðslu á
svæðinu og þann mikilvæga árang-
ur sem hefur náðst á því sviði. Einn-
ig er fjallað um hvernig bændur í
Biskupstungum hafa lagt sitt af
mörkum til að hefta landeyðingu.
Myndin er gerð eftir handriti
Ágústar H. Bjarnasonar, líffræð-
ings, en kvikmyndataka og stjórn
var í höndum Ernst Kettler. Fag-
lega ráðgjöf veitti Ari Trausti Guð-
mundsson, jarðeðlisfræðingur, og
er myndin gerð með íslensku og
ensku tali. Myndin er 15 mínútna
löng.
fyrirtæki, þar sem fyrirsjáanlegt er
að þær leiðir sem skila mestum arði
verði teknar af fyrirtækinu?! Raunar
sést það á þessu og öðru að flumbru-
gangurinn og hroðvirknin einkenna
vinnubrögðin í heild.
Virðingarleysi við opinberan
rekstur
Gengið er út frá þeirri trúarkenn-
ingu að hlutafélag sé alltaf gott og
nútímalegt, opinber rekstur sé gam-
aldags og vondur. Fullyrt er að í
hlutafélagi verði stjórnendur að
standa sig og fá umbun samkvæmt
því og sama gildi um starfsmenn.
Þetta er athyglisvert viðhorf, sem
aldrei hefur verið viðurkennt eins
augljóslega og þarna er gert. Sjálf-
stæðisflokkurinn (og fleiri flokkar
eins og nýleg dæmi sanna) hefur
gengið mjög djarflega fram í því
að planta flokksbræðrum sínum og
systrum í fjölmargar yfirmanns-
stöður opinberra fyrirtækja. Sumir
hafa verið þokkalega hæfir, aðrir
alls ekki — eins og gengur þegar
störfum er úthlutað eftir flokksskír-
teini en ekki hæfni. Þetta hefur
staðið og stendur mörgum ágætum
opinberum fyrirtækjum fyrir þrifum
og er ágæt leið til að sýna fram á
ókosti opinbers reksturs. Fólk þarf
nefnilega alls ekki að standa sig -
hvorki stjórnendur né starfsmenn —
hjá því opinbera! Þessi kenning
Sjálfstæðisflokksins er í raun
hættuleg öllum opinberum rekstri
og hún lýsir vel því virðingarleysi
sem einkennir vinnubrögð Sjálf-
stæðisflokksins hjá ríki og borg.
Þar er ekki fyrir að fara metnaði
fyrir hönd félagslegra fyrirtækja.
Til hvers var gerð könnun?
Hagfræðistofnun Háskóla ís-
lands hefur reiknað út og sýnt fram
á það í skýrslu að það sé afar þjóð-
hagslega hagkvæmt að reka góðar
almenningssamgöngur. Þar skrifar
yfirlýstur sjálfstæðismaður.
Borgarskipulag og borgarverk-
fræðingurinn í Reykjavík létu ný-
lega gera viðhorfskönnun meðal
borgarbúa. Niðurstaðan er sú að
75% aðspurðra töldu æskilegt að
minnka umferð einkabíla og flestir
töldu að bætt þjónusta SVR, tíðari
ferðir og lægri fargjöld væri heppi-
legasta leiðin til að draga úr notkun
einkabílsins. Til hvers var verið að
gera þessa könnun? Til þess að
undirbúa stofnun hlutafélags?
Borgarbúar vilja bætta þjónustu
SVR, hún er þjóðhagslega hag-
kvæm, hún dregur úr slæmum
umhverfisáhrifum, hún tryggir
borgarbúum þau sjálfsögðu mann-
réttindi að geta ferðast á milli borg-
arhluta. Ólýðræðisleg vinnubrögð
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn
beinast ekki eingöngu að starfs-
mönnum SVR og kjörnum fulltrú-
um í stjórn SVR heldur borgarbúum
öllum.
I
I
I
I
I
\
B
I
I
1
l
Höfundur er varnhorgurfuUtrúi
og fyrrverandi formaður stjórnar
SVR.
iMpááur
a
morgun
ÁSKIRKJA: Safnaðarferð að Gull-
fossi og Geysi. Guðsþjónusta í
Miðdalskirkju kl. 11. Brottför frá
Áskirkju kl. 9. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Fermd verður Helena
Wilkins, Austurbergi 10. Ein-
söngur Ingunn Ósk Sturludóttir.
Altarisganga. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Ferming, altarisganga. Prestur
sr. Hjalti Guðmundsson. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Fermd
verður Þórunn Pálína Jónsdóttir,
Ásvallagötu 1, Rvík.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30.
ELLIHEIMILIÐ GRUND:
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organ-
isti Pavel Smid.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Sigurður Pálsson. Sr.
Guðspjall dagsins:
(Lúk. 6.) Verið mis-
kunnsamir.
Munib Younana prófessor í Lúth-
ersku kirkjunni í Palestínu prédik-
ar. Prédikunin verður túlkuð.
Tónleikar kl. 20.30. Ann Toril
Lindstad leikur á orgelið.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Messa kl.
11. Ferming, altarisganga. Prest-
ur sr. Ingólfur Guðmundsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju (hópur III) syng-
ur. Fermd verða: Berglind Jóna
Hlynsdóttir, Langholtsvegi 194,
og Nikulás Ingi Vignisson, Lang-
holtsvegi 194.
LAUGARNESKIRKJA: Bæna-
stund með altarisgöngu kl. 11.
Prestur sr. Sigrún Óskarsdóttir.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Organisti
Hákon Leifsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Prestur Axel
Árnason. Organisti Kári Þormar.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Biblíulestur í
umsjá ungs fólks með hlutverk
kl. 20.30. Sr. Gísli Jónasson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Sum-
arsamvera kl. 20.30. Jónas Þóris-
son framkvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar prédikar.
Tónlist í umsjón sönghópsins
„Án skilyrða". Ritningarlestra
annast Guðjón Petersen, sr.
Hjalti Guðmundsson, og Ragn-
hildur Hjaltadóttir. Tekið verður
á móti gjöfum til Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
SELJAKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Sr. Árni Pálsson
prédikar. Kór Borgarneskirkju
syngur undir stjórn Jóns Björns-
sonar. Guðsþjónusta í Seljahlíð
laugardag kl. 11. Sóknarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Messa kl. 14. Ensk messa
kl. 20. Laugardaga messa kl. 14
og ensk messa kl. 20. Aðra rúm-
helga daga messur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
SAFNIRKJAN, Árbæjarsafni:
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Sigrún Óskarsdóttir. Organisti
Kári Þormar.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta í Víðistaðakirkju kl. 11 og í
Hrafnistu kl. 13. Kór Víðistaða-
sóknar syngur. Organisti Úlrik
Ólason. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fílad-
elfía: Brauðsþrotning kl. 11.
Ræðumaður Hreinn Bernharðs-
son. Almenn samkoma kl. 20.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagur kl. 19.30 bæn. Kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma. Majorarnir
Reidunn og Káre Morken stjórna
og tala.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma sunnudag kl. 17.