Morgunblaðið - 03.07.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
15
í snjó og sólskini
SKÍÐAFÓLK í Kerlingarfjöllum.
Sumarstarfið í Kerl-
ingarfjöllum hafið
SKÍÐASUMARIÐ í Kerlingarfjöllum byijaði 23. júní með fjölsóttii
unglinganámskeiði og tvö önnur fylgdu í kjölfarið en fyrstu helgina
í júlí eru það starfsmenn frá fyrirtækinu Globus og fjölskyldur þeirra
sem leggja undir sig staðinn.
Leið til Kerlingarfjalla hefur nú
verið opnuð, bæði að norðan og
sunnan, og vegurinn er greiðfær
vel útbúnum bílum. Snjór er nú
óvenju mikill í Kerlingarfjöllum og
hefur sjaldan eða aldrei verið meiri
í upphafi skíðatímans frá því að
Skíðaskólinn var stofnaður fyrir 32
árum.
Enn sem fyrr eru skipulögð
skíðanámskeið í starfsemi skólans
en í sumar verður fólki auðveldara
en áður að komast í fjöllum hvenær
sem það lystir og vera þar að vild,
því að Norðurleið ætlar að halda
upp daglegum áætlunarferðum milli
Reykjavíkur og Akureyrar, báðar
leiðir, með viðkomu í Kerlingarfjöll-
um í hverri ferð.
Síðastliðið sumar var gefinn
kostur á ferð með snjótroðara upp
að Snækolli, hæsta tindi Kerlingar-
fjalla og svo verður áfram í sumar
enda voru þessar ferðir ákaflega
vinsælar. Það er Ferðaskrifstofa
íslands sem einkum annast upplýs-
ingar og bókanir fyrir Skíðaskólann
en auk þess hefur skólinn umboðs-
menn víða um land.
)
I
Ljósmyndasýningf í Eyjum
RAGNAR Sigurjónsson, Ijós-
myndari, heldur ljósmyndasýn-
ingu á veitingastaðnum Skútan-
um í Vestmannaeyjum. Sýningin
stendur frá 4.—11. júlí.
Ragnar hefur haldið fjölmargar
einkasýningar og tekið þátt í
nokkrum samsýningum. Ragnar
er starfandi ljósmyndari á DV og
hefur starfað þar frá 1986. Hann
hefur lagt stund á ljósmyndum frá
1972 er hann lærði hjá Hlyni Ólafs-
syni.
Aðalfyrirmyndin á verkum
Ragnars á þessari sýningu er söng-
konan Andrea Gylfadóttir og eru
á sýningunni 25 myndverk.
Sunnudaginn 4. júlí leikur
Andrea Gylfadóttir ásamt píanó-
leikaranum Kjartani Valdimars-
syni við opnun sýningarinnar.
Ragnar tekur einnig þátt í sam-
sýningu ljósmyndara í tilefni af 20
ára gosafmæli.
Skútinn hefur opnað aftur eftir
gagngerar breytingar, en staður-
Ragnar Siguijónsson með tvö
verka sinna.
inn skemmdist mikið í eldi á síð-
asta ári, og er nú góð aðstaða til
þess að halda myndlistarsýningar
þar.
Ræðumenn eru Sigrid Andreas-
en og Jóhan Olsen. Aliir velkomn-
ir.
GARÐA- og Hafnarfjarðarsókn:
Hafnarfjarðarkirkja kl. 11. Sr.
Bragi Friðriksson messar.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 11. Sr. Bragi Friðriks-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ:Þýsk messa kl. 10.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmheiga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl.
8.
KÁLFATJARNARSÓKN:Guðs-
þjónusta kl. 14. Bragi Friðriks-
son.
BESSASTAÐAKIRKJA: Kvöld-
guðsþjónusta kl. 20.30. Skáta-
vígsla fer fram í athöfninni.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
YTRI-Njarðvfkurkirkja: Messa
kl. 21. Altarisganga. Baldur Rafn
Sigurðsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa í
Hveragerðiskirkju kl. 11. Messa
í Kotstrandarkirkju kl. 14. Tómas
Guðmundsson.
STÓRA-Núpsprestakall: Ólaf-
svallakirkja á Skeiðum guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Stóra-
Núpskirkja í Gnúpverjahreppi
guðsþjónusta sunnudag kl. 21.
Axel Arnason.
EYRARBAKKAKIRKJ A: Messa
kl. 14. Aðalsafnaðarfundur eftir
messu.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa kl.
17 á sunnudag. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Þakkarmessa í gíg Eldfells í
tilefni af tuttugu árum liðnum frá '
kulnun gosstöðva sunnudag kl.
11. Sætaferðir frá Landakirkju
kl. 10.45 og fyrir heimilisfólk
Hraunbúða kl. 10.30. Kl. 20.30
KFUM & K unglingafundur.
MOSFELLSPREST AKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 11.
Organisti Gyða Halldórsdóttir.
Jón Þorsteinsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL:
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 14. Prestur sr.
Sigurður Árni Þórðarson. Barna-
stund verður nærri kirkjunni á
sama tíma. Þjóðgarðsvörður.
HELGI HÁLFDANARSON
Nýstárleg* túlkun
Margt er það í orðum skálda sem
skilja má á ýmsan veg. í góðum
skáldskap er einatt svo í pottinn
búið, að á bak við þann skilning,
sem beinast liggur við, má lesa það
sem oft er kallað „dýpri skilningur"
og er, þegar vel tekst til, það sem
einkum gefur verkinu gildi.
Hitt er ekki heldur fátítt um
kveðskap, að orðbragð er ekki ljós-
ara en svo, að sú hugsun, sem fyr-
ir skáldinu var að bögglast, fer út
um þúfur, og helzt má af orðunum
ráða eitthvað annað og kannski
lakara en til var ætlazt; og getur
þá skáldið sjálfu sér um kennt.
Enn eru þessi dæmi, að fyrir til-
viljun má lesa úr kveðskap betri
eða skemmtilegri skilning en skáld-
inu hafði nokkum tíma til hugar
komið, og má þá með sanni segja,
að vel hafi rætzt úr andagiftinni.
Margir hafa gaman af því að
lesa sem flest út úr skáldskap
umfram það sem beint liggur við.
í Morgunblaðinu 27. f.m. leikur
Matthías skáld Johannessen sér að
því að halda fram nýstárlegum
skilningi á tveimur ljóðlínum í
kvæði Matthíasar Jochumssonar,
Guð minn, guð, ég hrópa.. í loka-
erindi biður skáldið um „mildan
dauða ... eins og lítill lækur ljúki
sínu hjali þar sem lygn í leyni ligg-
ur marinn svali.“
Þetta túlkar Matthías svo, að
„marinn svali“ sé limlestur fugl og
finnur því samsvörun í kvæði eftir
Jónas Hallgrímsson. Og þetta tekst
Matthíasi með skáldlegum mál-
flutningi að gera furðu tækilega
skýringu við hlið þeirrar, sem ég
hygg að þótt hafi nokkuð eðlileg,
að lækurinn ljúki hjali sínu þar sem
hinn svali mar (sjór) liggur lygn í
leyni, og þar eigi lækurinn að tákna
mannlífið, en hinn lygni svali sær,
sem í leyni liggur, tákni þann
leyndardómsfulla veruleika sem við
tekur að því loknu.
Það skal viðurkennt, að Matt-
híasi Johannessen tekst ótrúlega
vel að koma túlkun sinni til skila.
En þegar alls er gætt hygg ég að
hún geti varia talizt sannfærandi
sem „aukaskýring", né heldur hef-
ur hún á annan hátt breytt skiln-
ingi undirritaðs á þessum ljóðlín-
um. Hitt er svo annað mál, að þessi
tilraun Matthíasar Johannessens til
að fitja upp á nýstárlegri túlkun
er eigi að síður skemmtileg, jafnvel
þótt hún kunni að þykja langsótt.
Meb heiminn
i hendi sér
Viltufá betri fréttir af heimsmálunum? Viltufylgjast
með atburðum og skoðanaskiptum utan landsteinanna?
Þá skaltu lesa erlend dagblöð reglulega.
í Bókabúðum Máls og menningar færðu öll helstu
dagblöð heims með glóðvolgar fréttir og vandaða
umfjöllun um þau mál sem mestu skipta.
Dagblöð úr öllum áttum:
Frá Danmörku:
Politiken/Sondag
Extra Bladet/Sendag
Berlingske Tidende/Sondag
Sendags BT
Politiken j-
ím,
vk Á
Frá Spáni:
El Pais
' ' ■
. 'l3?'
Frá Bandaríkjunum:
Herald Tribune
USA Today
Frá Frakklandi:
Libération
Le Monde
Frá Ítalíu:
Corriere Della Sera
Le Repubblica
Frá Þýskalandi:
Welt am Sonntag
Bild am Sonntag
Frankfurter Allgemeine
Suddeutsche Zeitung
Frá Bretlandi:
Times
Star
Daily Express
Sunday Express
Daily Mail
Sunday Mail
News of the World
Observer
The Guardian
Daily Mirror
Sunday Mirror
Sunday People
Daily Telegraph
Sunday Telegraph
Sunday Times
The Independent
The Wall Street Journal Europe
The Financial Times
Alþjóðlegt:
European (vikulega)
Verð frá 130 kr.
Mál IMI og menning
LAUCAVECI 18, SÍMI (91) 24240 & SÍÐUMÚLA 7-9, SÍMI (91)688577
OPIÐ A LAUGAVEGI 18 OLL KVOLD TIL KL. 22:00
OG ALLAR HELGAR 10:00 - 22:00.