Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 16

Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993 Sérfræðingar vona að vatnsrennslið í Vestfjarðagöngunum fari rénandi Bergið er meira og minna fullt af vatni ENGAR aðferðir eru til sem hægt er að nota til að kanna hugsan- legt vatnsrennsli í jarðlögum með neinni vissu nema mjög umfangs- miklar jarðboranir, að sögn Hreins Haraldssonar, jarðfræðings hjá Vegagerð ríkisins. Vatnið sem streymir út úr vinstri hiið jarð- ganganna til Önundarfjarðar er úrkoma sem fallið hefur á löngum tíma, síast hefur í gegnum berglögin og safnast fyrir í svokölluð- um geymum. Hreinn segir að bergið sé meira eða minna fullt af vatni en mismikið pláss sé fyrir það og ráðist það af því hve sprungið bergið er. Hreinn sagði að engar sérstakar aðstæður væru við þann stað þar sem rennslið mikla byrjaði s.l. fimmtudag, miðað við aðra staði, en á ákveðnum svæðum í berginu geti verið að fínna opnari sprung- ur sem ekki hafi náð að þéttast með tímanum. Vatnsaginn í Ólafs- fjarðargöngunum hefði þótt nokk- uð mikill þegar framkvæmdir stóðu þar yfír á sínum tíma en hann hefði verið margfalt minni þar sem hann var mestur en hann er nú í Vestfjarðagöngunum. Ólík- legt er þó að vatnsrennslið sé við- varandi og vonast menn til að það færi senn að draga úr því. Gamalt vatn „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem menn lenda í vatni við jarðganga- gerð hérlendis en þetta er miklu meira en áður. Reynslan er sú að það hefur komið mikill toppur í byijun en síðan hefur dregið úr straumnum. Sumstaðar hefur hann dottið skyndilega niður en annars staðar dregið úr og vatns- elgurinn náð nýju jafnvægi sem stýrist af því hvaða aðrennslis- svæði eru að þessum ákveðna stað. Það eru því mestar líkur til að það dragi úr þessu og ef eitt- hvað er þá er þetta í rénun nú,“ sagði Hreinn. Ógerlegt að sjá fyrir í fjallinu eru basaltlög með þétt- ari setlögum inn á milli. Hreinn sagði að reynt hefði verið að kort- leggja öll jarðlög utan frá og bora könnunarholur áður en fram- kvæmdir við göngin hófust en ógerlegt sé að sjá fyrir hvort vatnsæð verði fyrir á leiðinni. Hann sagði að vatn í fjöllunum væri stöðugt á hægri hreyfingu í átt til sjávar. Sjálfsagt væri eitt- hvert aðrennsli inn í bergið en ekkert í líkingu við það magn sem streymir út úr göngunum. Hugs- anlega væri þetta margra tuga ára gamalt vatn sem nú leitaði undan berginu. Vatn sem rynni gegnum þétt berglög væri yfirleitt tært og hreint og varla hægt að hugsa sér betra neysluvatn. Það hefði komið til umræðu áður en þessi vatnsæð opnaðist hvort unnt væri að nýta vatnið úr berginu sem drykkjarvatn fyrir ísfirðinga. Hættulegt starf Hreinn sagði að ekki væri hægt að fullyrða að starfsmenn við jarð- göngin hefðu verið í hættu þegar æðin opnaðist. Þeir hefðu verið á leið inn í göngin nokkru eftir að sprengt hafði verið og urðu þá varir við að vatnsstreymið út úr göngunum hafði vaxið mikið. „Það á ekki að vera hætta á slíkum slys- um, einkum þegar litið er til þess að enginn er á staðnum þegar sprengt er. En almennt er þetta hættuleg vinna,“ sagði Hreinn. í tímaritinu Vegamál er í grein eftir Hrein fjallað um vatnsrennsli í Vestijarðajarðgöngunum. Þar segir m.a.: „Hugsanlegt vatns- rennsli inn í jarðgöngin er eitt af helstu óvssuatriðunum þegar metnar eru jarðfræðilegar aðstæð- ur á gangaleiðinni. Við gerð jarð- ganga í Ólafsfjarðarmúla var þetta eina atriðið sem var að ein- hveiju marki frábrugðið því sem áætlað var.“ Töluvert innrennsli Reynslan sýni að í blágrýtis- grunni sé lítils vatnsrennslis að vænta og talið vonlítið að bora eftir köldu vatni í slíku bergi. Þegar vatnsleiðandi æðar hafa opnast við jarðgangagerð hafa þær jafnan tæmst eða rennsli úr þeim minnkað verulega eftir skamman tíma. Það hafi hins veg- ar ekki gerst í Ólafsfjarðarmúla en þar var mesta heildarrennslið út úr göngunum 200 lítrar á sek- úndu, en áætlað hefur verið að 2.000 lítrar hafi streymt út úr Vestfjarðagöngunum þegar mest var í fýrradag. Þá segir í greininni: „Eftir þessa reynslu hafa menn ekki þorað annað en að reikna með að tölu- KORTIÐ sýnir berglög við gangamunna í Botnsdal. Viðamiklar jarðfræðirannsóknir eru gerðar áður en ráðist er í gangagerðina. Berglög eru könnuð með borunum og athugunum á stöðum þar sem berg er aðgengilegt. Út frá því er bergið kortlagt. vert innrennsli vatns geti orðið í Vestíjarðagöngum. Geymirinn yfir göngunum, þ.e. þykkt þess berglags sem yfir þeim liggur, er að vísu minni að jafnaði heldur en var í Ólafsfjarðarmúla. Einnig eru þar víða þéttari setlög inni í jarðlagastaflanum sem hindra rennslið og veita því til hliðar út úr fjöllunum. Samt sem áður er mikið af sprungum og misgengj- um sem geta skorið þvert á þessi þéttu setlög og leitt vatnið áfram niður í gegn allt til jarðganganna. Það eru engar aðferðir sem hægt er að nota til að kanna þetta með neinni vissu fyrirfram nema þá mjög umfangsmiklar jarðboranir." Fjórðungsmótið á Vindheimamelum Hrafntinna var efst í A-flokki BALDVIN Ari Guðlaugsson lét ekki sama óhappið henda sig tvo daga í röð og sýndi Hrafntinnu frá Dalvík með miklum glæsibrag og höfnuðu þau í fyrsta sætinu í A-flokki gæðinga með 8,72 í eink- unn, langt fyrir ofan þá sem komu næst. Er þetta hæsta einkunn sem gefin hefur verið í gæðingakeppni á þessu ári. í öðru sæti varð Fiðla frá Syðra- Skörðugili sem Elvar Einarsson sat með 8,44, næst komu Prins frá Flugumýri sem Jóhann Skúla- son sat með 8,41, Hjúpur frá Leys- ingjastöðum sem Sigurbjörn Bárð- arson sat, með 8,39, Dama frá Svalbarðseyri sem Sigrún Brynj- arsdóttir sat, með 8,38, Vordís frá Aðalbóli sem Höskuldur Þráinsson sat, með 8,37, Nökkvi frá Akur- eyri sem Þorvar Þorsteinsson sat, með 8,36 og í áttunda sæti varð Kola frá Sigríðarstöðum sem Egill Þórarinsson sýndi, með 8,35. Þess- ir hestar mæta í úrslit á sunnu- dag. í unglingaflokki hlaut hæstu einkunn úr forkeppninni Friðgeir Kemp á Ör frá Vatnsleysu með 8,31, næst kom Hrafnhildur Jóns- dóttir á Kólumbusi frá Akureyri með 8,27, Ragnar Skúlason á Punkti með 8,23, ísólfur Líndal Þórisson á Móra frá Djúpadal með 8,19, Sveinn Ingi Kjartansson á Leira frá Syðstu-Grund með 8,19, Líney Hjálmarsdóttir á Glettingu frá Tunguhálsi með 8,09, Kolbrún Stella Indriðadóttir á Sölva frá Skáney með 8,09 og Friðgeir Jó- hannsson á Gými frá Hofi með 8,06. Þessi átta.mæta í úrslit á sunnudag. í hinni óopinberu keppni félaganna í gæðingakeppn- inni er staðan sú að Léttismenn frá Akureyri hafa komið tíu kepp- endum í úrslit, Stígandi í Skaga- firði sex, Léttfeti á Sauðárkróki fímm, Svaði á Hofsósi og Þytur í Vestur-Hún. hafa komið þremur keppendum í úrslit hvort félag. Hraðari framkvæmd Framkvæmd gæðingakeppn- innar hefur tekið mun skemmri tíma en áður þar sem dómarar gefa aðeins meðaleinkunn fyrir öll dómsatriði í stað þess að gefa upp einkunn fyrir hvert einstakt at- riði. Þá hefur í tímaáætlun verið reiknaður nokkuð ríflegur tími þannig að löng hlé hafa myndast sem hefur verið' frekar fátitt á hestamótum til þessa. Mikill fjöldi mótsgesta hefur fylgst með hæfí- leikadómum kynbótahrossa en þar hefur einnig verið gerð sú breyting á að hrossin voru öll bygginga- dæmd á miðvikudag og fyrir há- degi í gær. Af þessu leiðir að sýn- ing á hæfíleikum hrossanna hefur verið mun samfelldari og þar með skemmtilegri fyrír mótsgesti. Veð- ur var heldur leiðinlegt til sam- Vætutíð á Vindheimamelum MJÖG vætusamt hefur verið á hestamannamótinu það sem af er og regngallar því vinsælasti klæðn- aðurinn. komuhalds utanhúss á Vindheima- melum í gær, rigning af og til og kalt en svo til lygnt þannig að mótsgestir hafa borið sig vel þrátt fyrir vosbúðina. íslenskir hesta- menn kunna að klæða sig til úti- veru enda ýmsu vanir. Úrslit í tölti Úrslitin í forkeppninni í tölti var sðdegis í gær og urðu úrslit sem hér segir. I fyrsta sæti varð Sigur- björn Bárðarson Fáki á Oddi frá Blöndósi með 98,8 púnkta. í öðru sæti varð Baldvin Ari Guðlaugsson Létti á Nökkva frá Þverá með 91,60, í þriðja sæti Halldór Vict- orsson Gusti á Herði frá Bjarna- stöðum með 88,80 og í fjórða sæti Eyjólfur ísólfsson Stíganda á HRAFNTINNA frá Dalvík og Baldvin Ari Guðlaugsson sýndu Skrúði frá Lækjamóti. mikla yfirburði í A-flokki gæðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.