Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
17
Erlendir náttúruverndar-
menn fordæma bjamar-
dráp á Yestfjarðamiðum
VIÐBJÓÐUR og hryllingur eru þau orð sem dðnsku náttúrverndar-
samtökin, Danmarks Naturfredsfornening, nota um bjarnaveiði
skipsverja á Guðnýju ÍS 266, 24. júní s.l. Samtökin hafa ritað
Össuri Skarphéðinssyni umhverfisráðherra bréf þar sem þetta
álit kemur fram. Umhverfisráðherra sagði að þessu til viðbótar
hefði annað bréf sama efnis borist frá Bretlandi. Báðum bréfum
hafi verið svarað. Hann hafi greint náttúruverndarmönnum frá
því að hann vænti þess að slíkt dráp yrði bannað áður en árið
væri liðið.
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
Umdæmisstjóraskipti
Fráfarandi umdæmisstjóri Gestur Þorsteinsson t.v. og viðtakandi
umdæmisstóri Jón Hákon Magnússon spjalla saman í kaffihléi.
í fyrrdag barst umhverfisráð-
herra bréf frá dönsku náttúr-
verndarsamtökunum Danmarks
Naturfredsfornening. í erindi
dönsku samtakanna er umhverfís-
ráðherra greint frá því að frétt í
Morgunblaðinu 27. júní af þeim
atburði að skipsverjar á Guðnýju
fönguðu og „kyrktu“ hvítabjörn
valdi „djúpstæðum viðbjóði".
Þetta athæfí skipsverja gangi
þvert á mikilvæga alþjóðasamn-
inga um verndun dýra í útrýming-
arhættu.
Fjölmennt umdæmisþing Rotaryhreyfingarinnar var haldið á Sauðárkróki
„Sönn hamingja er að hjálpa öðrum“
Sauðárkróki.
UMDÆMISÞING Rotaryhreyf-
ingarinnar á Islandi var haldið í
47. sinn í Iþróttahúsinu á Sauðár-
króki fyrir skömmu. I tengslum
við Umdæmisþingið var að venju
haldið formót, sem er fræðslu-
fundur fyrir verðandi embættis-
menn í klúbbunum viðsvegar um
landið.
í Rotary gegnir enginn félagi
sama starfinu nema eitt ár í senn,
og sjaldgæft er að nokkur gegn
sama embætti nema einu sinni.
Þetta fyrirkomulag krefst þess að
verðandi embættismenn mæti á
námskeið og læri þar af reyndari
félögum, til hvers er ætlast af þeim
í starfí. Þá var í tengslum við þing-
ið haldið ársþing „Inner Wheel“,
sem eru samtök eiginkvenna Rota-
rymanna.
Gestur Þorsteinsson bankaúti-
bússtjóri á Sauðárkróki gegndi
embætti umdæmisstjóra síðastliðið
ár, en lét nú af störfum, og sam-
kvæmt venju var Umdæmisþingið
haldið á svæði fráfarandi umdæmis-
stjóra. Gestur sagði að þetta væri
í annað sinn sem þingið væri haldið
á Sauðárkróki, hitt skiptið var það
árið 1959, en þá var sr. Helgi Konr-
áðsson sóknarprestur umdæmis-
stjóri. Gestur sagði að Rotaryfélag-
ar á Sauðárkróki hefðu unnið mjög
gott starf að undirbúningi, og með-
al annars komið upp glæsilegri að-
stöðu til þinghaldsins í íþróttahús-
inu, sem væri líka sönnun þess hve
gott væri að halda ráðstefnur á
Sauðárkróki, þar sem einnig hjálp-
aði að hótel sem fært væri um að
hýsa alla ráðstefnugesti stæði við
hlið íþróttahússins, og einnig væri
góð aðstaða í skólunum sem stæðu
á sömu lóð, til funda fyrir alla hópa
og nefndir sem starfa þyrftu.
í tengslum við þingið gáfu heima-
menn út tvö tölublöð af Lindinni,
kynningarriti um starf Rotary-
hreyfíngarinnar, en einnig lítinn
bækling sem nefndist Króksbók,
sem er til kynningar á þingstaðnum
á Sauðárkróki, með örnefnakorti
og ýmsum fróðleik, gömlum og
nýjum, um staðinn.
Verðlaun veitt úr
Starfsgreinasjóði
Að kvöldi laugardags var hátíða-
dagskrá í íþróttahúsinu þar sem
afhent voru verðlaun úr starfs-
greinasjóði, 400 þúsund kr., en
verðlaunin hlaut að þessu inni
Sveinn Guðmundsson hrossarækt-
armaður fyrir frábær störf að
hrossakynbótum. Starfsgreinasjóði
er ætlað það hlutverk að veita úr
honum viðurkenningu á sviði hvaða
starfsgreinar sem er, sem Rotary-
menn tilheyra, og er þar um mjög
vítt svið að ræða.
Þá fóru einnig fram umdæmis-
stjóraskipti, en Gestur Þorsteinsson
lét nú af því starfí, en við tók Jón
Hákon Magnússon frá Rotaryklúbbi
Seltjamarness. Þátttakendur á
Umdæmismótinu á Sauðárkróki
voru tæplega 230 með mökum.
- BB.
í bréfínu til umhverfísráðherra
kemur fram að um 260.000 fjöl-
skyldur eiga aðild að dönsku nátt-
úruverndarsamtökum. Þar á með-
al séu nokkrar þúsundir ísland-
svina og margir þeirra séu nú
slegnir „hryllingi“.
Dönsku náttúruverndarsamtökin
hvetja umhverfísráðherra til að
gera íslenskum sjómönnum og öll-
um almenningi, innanlands og er-
lendis, það ljóst að ísland ætli að
standa við alþjóðasamninga.
Ráðherra svarar
í samtali við Morgunblaðið
sagði Össur Skarphéðinsson um-
hverfísráðherra að hann hefði
fengið annað bréf sama efnis frá
Bretlandi. Ráðherrann kvaðst hafa
svarað báðum bréfum. í sínu svari
hefði verið greint frá frumvarpinu
til laga um vernd og veiði villtra
dýra, þar væru ísbimir friðaðir á
sundi og ís, einnig væru ýmis veiði-
tól bönnuð, þ.á.m. snörur.
Þetta frumvarp hefði ekki hlotið
afgreiðslu í vor en hann hann
vænti þess að það yrði að lögum
fyrir áramót. Jafnframt hefði hann
greint þeim frá vanþóknun sinni
á þessum veiðiaðförum, bæði dráp-
inu og aðferðinni.
Forseti ASÍ um greiðsluskyldu til verkalýðsfélaga
A jafnt við um ein-
staklingsbundna
kjarasamninga
BENEDIKT Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins, segir að jafnvel
1 þeim tilfellum, þar sem launþegar geri einstaklingsbundinn kjara-
samning við vinnuveitanda sinn, án atbeina stéttarfélaga, haldi verka-
lýðshreyfingin því til streitu, að launamenn greiði félagsgjald til
verkalýðsfélags. Lára V. Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri ASI, sagði
í Morgunblaðinu í fyrradag að ekki væri skylduaðild að verkalýðsfé-
lögum, hins vegar væru menn skyldugir að greiða til stéttarfélaga
fyrir að fá að vinna eftir samningum þeirra.
Benedikt sagði það rétt að í
mörgum tilfellum semdu launþeg-
ar beint við vinnuveitanda sinn,
en þeir samningar væru .yfírleitt
byggðir á samningum stéttarfé-
laga. „Lögbundin réttindi og önnur
slík, sem eru meginhluti af réttind-
um verkafólks, félagsbundins eða
ófélagsbundins eru tilkomin í
samningum verkalýðsfélaganna
og fylgt eftir af þeim,“ sagði hann.
„Félögin veita bæði beina og
óbeina þjónustu, í gegnum kjara-
samninga og lagasetningu um
tryggingar og fleira."
Ekki hægt að semja af sér
lágmarksréttindi
Benedikt sagði að þótt menn
gætu ef til vill sýnt fram á að samn-
ingur þeirra við vinnuveitanda væri
í veigamiklum atriðum frábrugðinn
almennum kjarasamningi, væru
ákveðin lög, sem giltu um alla
kjarasamninga. „Það gilda sömu
lög um tryggingar, veikindarétt, líf-
eyrissjóði og annað slíkt. Grundvöll-
urinn er byggður á því, sem verka-
lýðssamtökin hafa verið að gera.
Menn geta samið um viðbót við
þetta, en einstaklingum er ekki
heimilt að semja af sér þessi lág-
marksréttindi," sagði Benedikt.
STORUTSALA
GARÐHÚSGÖGN
20-40% AFSLÁTTUR
Gband soleil
ARREDA SPAZI APERTI
ítölsk gæðavara
Seld með 20-40% afslætti
meðan birgðir endast.
Hvítt veðurþolið plast.
Mikið úrval - Frábært verð!
FESTIVAL
Kringlótt borð 90 cm breitt
.^tð-áétirkrJÆTOT-
Verðnú kr. 2.674,-
CLUB
Armstóll, Setdýpt 58 cm.
_AfeFé-áðnrtÍr8957”
Verð nú kr. 695,-
VIENNA
Armstóll. Setdýpt 58 cm.
_Jfer4LáðtnHtrt0957-
Verð nú kr. 876,-
Öll sumarblóm
á kr. 39,-
Risabúnt:
12 afskornar rósir á aðeins
kr.895,-