Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
Stjóm Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum
V elfer ðarker fið
á í vök að verjast
STJÓRN Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum átelur þá skerðingu
sem orðið hefur á lífskjörum fatlaðra. Þetta kemur fram í ályktun
sem stjórnin sendi frá sér, en hún hélt fyrir nokkru fund á Akur-
eyri þar sem ýmis málefni voru rædd. Forseti bandalagsins er
Jóhann Pétur Sveinsson, formaður Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra, en hann gegnir starfinu fram til ársins 1996.
„Um áratuga skeið hafa
Norðurlandaþjóðirnar unnið að því
að byggja upp velferðarkerfi sem
tryggja á öllum mannsæmandi
lífskjör og jafna aðstöðumun fatl-
aðra og ófatlaðra. Þær efnahags-
legu þrengingar sem við búum við
í dag valda því að þetta velferðar-
kerfi á í vök að veijast.
Á sama tíma færast Norður-
löndun nær Evrópubandalaginu,
ýmist í formi aðildarumsóknar eða
samnings um evrópskt efnahags-
svæði. Þessum hræringum fylgir
mikið óöryggi. Enginn getur með
vissu sagt hvaða afleiðingar þetta
muni hafa fyrir lífskjör fatlaðra.
Við hljótum því að krefjast þess
að fatlaðir njóti sömu réttinda og
aðrir þjóðfélagsþegnar.
Þörfin á norrænni samstöðu í
málefnum fatlaðra eykst stöðugt.
Norðurlöndin eru á margan hátt
fyrirmynd á sviði félagsmála og
málefna fatlaðra. Ef það á að
haldast verða ríkisstjómir Norður-
landanna að vinna áfram mark-
visst að uppbyggingu velferðar-
kerfísins og jöfnun lífskjara.
Stjórn Bandalags fatlaðra á Norð-
urlöndum telur því ólijákvæmilegt
að ríkisstjómir Norðurlandanna
svari því hvort sá niðurskurður
sem við stöndum frammi fyrir í
dag sé upphafið á aðlögun þeirra
að Evrópubandalaginu eða hvort
þær hyggjast halda fast við hið
norræna velferðarkerfi,“ segir í
ályktun frá stjórn Bandalags fatl-
aðra á Norðurlöndum.
Gert klárt fyrir loðnuveiðar
LOÐNUSKIPIÐ Jón Kjartansson RE hefur verið í slipp á Akureyri siðustu daga, en áhöfnin er að
gera sig klára til loðnuveiða og er reiknað með að skipið haldi af stað eftir helgi.
Langvarandi kuldatíð hefur hrellt Norðlendinga að undanförnu
Fullt í sólarlampa, en
tjaldbúar flýja í bílana
„ÞAÐ HEFUR verið rosalega kalt, þetta er ekkert sumar,“ sagði
Sigríður Guðmundsdóttir tjaldvörður á tjaldsvæðinu á Akureyri.
Gistinætur á tjaldstæðinu eru um eitt hundrað færri nú í júní miðað
við júnímánuð á síðasta ári. Dæmi eru þess að tjaldbúar hafi flúið í
bíla sina og gist þar. Það er hins vegar mikið að gera á sólbaðsstof-
um bæjarins i kuldatíðinni og ljósalampar ásetnir.
„Það er alveg brjálað að gera,
allt fullt. Fólk er þreytt á þessu
veðri og greinilegt að veðrið hefur
áhrif á aðsóknina, fólk liggur ekki
svo mikið í sólarlömpum í glamp-
andi sól og góðu veðri, en slíku er
ekki til að dreifa nú,“ sagði Gunnar
Sigtryggsson einn eigandi Stjörnu-
sólar.
Fullt í sólarlampana
Rögnvaldur Sigurðsson eigandi
Toppsólar tók í sama streng, sagði
fólk mikið tala um kuldann og það
væri mikið að gera á sólstofunni í
kjölfarið. „Við merkjum vissulega
aukningu á aðsókninni, það er allt-
af fullt hér,“ sagði Rögnvaldur.
Sigríður Guðmundsdóttir sagði
að margir gestir væru á tjaldstæð-
inu þessa helgi, enda stórt fótbolta-
mót í bænum. Gistinætur í júní
voru 1.705 talsins, en í júní í fyrra
voru þær 1.807 eða um eitt hund-
rað færri. „Það hefur verið mjög
kalt, en fólkið kvartar ekki. Það
klæðir sig vel, er með góða svefn-
poka og tjöld og situr yfir prímusun-
um í kuldanum,“ sagði Sigríður.
Flýja í bílinn
Meirihluti gesta tjaldstæðisins
eru útlendingar og sagði Sigríður
að þeir kvörtuðu ekki undan kuld-
anum, það væru fremur íslending-
arnir sem það gerðu. „Þeir hafa
þolinmæði til að dvelja hér í 2-3
daga, svo flýja þeir kuldann," sagði
hún og bætti við að þess væru nokk-
ur dæmi að fólk hafi flúið tjöld sín
köldustu næturnar og sofið í bíln-
Messa
Messa verður í Glerárkirkju
annað kvöld, sunnudagskvöldið
4. júlí, kl. 21. Prestur er séra
Hannes Örn Blandon.
Skautasvæöið opnað
SKAUTASVÆÐI Skautafé-
lags Akureyrar við Krókeyri
verður opnað í dag, laugar-
daginn 3. júlí.
Á svæðinu eru leigðir út línu-
skautar og verður svæðið opið
frá kl. 13 til 16. Fyrir þá sem
fremur kjósa að sigla um tjörn-
ina neðan skautasvæðisins verð-
ur boðið upp á rafmagnsbátale-
igu sem opin frá kl. 11 til 22.
Skorað á bæjarráð
Skinnaiðn-
aðuráfram
öflug iðn
STARFSMENN Rekstrarfélags
ÍSI hafa sent bæjarráði Akur-
eyrar áskorun þess efnis að bær-
inn beiti sér fyrir því að full-
vinnsla skinna verði áfram öflug
iðngrein í bænum.
Askorunin var samþykkt á starfs-
mannafundi sem haldin var í vik-
unni og var hún afhent bæjarráði
fyrir fund þess á fímmtudag.
Áfram öflug iðngrein
„í ljósi þess erfiða atvinnuástands
sem nú er og þess hversu störfum
í iðnaði hefur fækkað á Akureyri
síðastliðin ár, skorar starfsfólk í
skinnaiðnaði á Akureyri á bæjaryfír-
völd að beita sér fyrir því að full-
vinnsla skinna verði áfram öflug
iðngrein hér í bæ og komi þar með
í veg fyrir þann mikla skaða sem
bæjarfélagið yrði fyrir ef þessi iðn-
grein legðist af,“ segir í áskorun
starfsmanna rekstrarfélags ÍSI.
Við treystum því að bæjaryfirvöld
vilji halda uppi nafni Akureyrar sem
iðnaðarbæjar og komi því til með
að stuðla að því með öllum tiltækum
ráðum að skinnaiðnaður verði hér
áfram,“ segir einnig í áskorun
starfsmannanna.
Orlof í sveitinni
Leigjum út íbúðarhús (ca 30 km sunnan Akur-
eyrar). Rúm fyrir allt að 10-12 manns (sæng-
ur fylgja) ásamt öllum eldhúsáhöldum.
Búskapur er stundaður á staðnum.
Upplýsingar veitir Guðrún í síma 96-31282 í
hádegi og á kvöldin.
Kjðrbfiðarstiori
Kaupfélag Eyfirðinga auglýsir eftir verslunarstjóra í
eina af kjörbúðum félagsins á Akureyri.
Leitað er eftir starfsmanni, sem hefur reynslu af smá-
söluverslun og æskilegt að viðkomandi hafi menntun
á sviði verslunar og reksturs.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið gefur Hannes Karlsson, deild-
arstjóri matvörudeildar KEA, sími 96-30300.
Umsóknir, er tilgreini aldur og menntun ásamt starfs-
reynslu, þurfa að berast aðalfulltrúa félagsins, Sigurði
Jóhannessyni, fyrir 20. júlí næstkomandi.
Kaupfélag Eyfirðinga.
um.
0
1
verður haldið á Akureyri
dagana 22.-25. júlí nk.
Skráningar sendist Ingólfi Sigurþórssyni, Norður-
götu 48, 600 Akureyri, eða sendist í fax 96-27813,
merkt íþróttadeild Léttis, c/o Ingólfur Sigþórsson.
Ath.: Skráning á að fara fram í gegnum félögin
eða deildirnar.
Skráningargjaid í fullorðinsflokki kr. 2.000, 1.
skráning 1.200 kr. eftir það, í barna-, unglinga-
og ungmennaflokkum 1.200 kr., 1. skráning, 800
kr. eftir það. Lokaskráning 9. júlí. SkráningargjÖid
þurfa að hafa borist á sparireikning í Landsbanka
Islands, útibúi nr. 162, á höfuðbók nr. 05118127.
Athugið, notið þrírit.