Morgunblaðið - 03.07.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
19
Athyglisverð niðurstaða hjá Kærunefnd jafnréttismála
Fyrsti úrskurðurinn
sem er karlmanni í hag
KÆRUNEFND jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu
að brotið hafi verið gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt
karla og kvenna þegar Elva Dögg Einarsdóttir, fóstra, hafi verið
ráðin kennari við barnaskólann að Skógum í stað Vigfúsar Andr-
éssonar, kennara, vorið 1992. Nefndin hefur fengið 30 mál til
umfjöllunar frá því henni var komið á fót í júlí árið 1991 og er
þetta í fyrsta sinn sem hún álítur að brotið hafi verið á karlmanni.
Nefndarmenn telja óumdeilan-
legt að aðeins annar umsækjand-
anna uppfylli þau menntunarskil-
yrði sem gerð séu til kennara. Þrátt
fyrir það hafi skólastjóri, skóla-
nefnd og fræðslustjóri mælt með
ráðningu þess sem ekki uppfyllti
menntunarskilyrðin og hafi sá
umsækjandi verið ráðinn að feng-
inni undanþágu frá menntamála-
ráðuneytinu.
Fram kemur að röksemdir fyrir
ráðningu Elvu Daggar hafi verið
eftirfarandi: Hún hafi kennt við
skólann tvö ár á undan, vegna til-
tekins þróunarverkefnis hafi verið
æskilegt að sem minnstar breyt-
ingar yrðu á mannahaldi, andstaða
foreldra barnanna við það að Vig-
fús yrði ráðinn og deilur milli hans
og ýmissa sveitunga hans en í fá-
mennu sveitarfélagi geti verið erf-
itt að ráða mann til starfa í and-
stöðu við aðra í sveitinni.
Réttindi og lengri
starfsreynsla
I álitsgerð kærunefndar kemur
Húsavík
hins vegar fram að kærunefnd
jafnréttismála geti ekki fallist á
að umrætt þróunarverkefni rétt-
læti að gengið sé framhjá umsækj-
anda með réttindi og lengri starfs-
reynslu enda ekkert komið fram
um að Vigfús geti ekki tekið fullan
þátt í því verkefni. Kærunefnd
jafnréttismála lítur svo á að full-
yrðingar skólastjóra og skóla-
nefndar um afstöðu foreldra til
Vigfúsar og deilur hans við sveit-
unga hafi ekki verið studdar þeim
gögnum að niðurstaða verði á þeim
byggð.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Gróðursett í Öræfum
NÚ er lokið gróðursetningu tijáplantna innan nýrrar landgræðslugirð-
ingar í Öræfum. Plantað var 8.600 plöntum aðallega birki bæði frá
Tumastöðum í Fljótshlíð og landgræðsluskógum á Héraði. Við gróður-
setninguna unnu unglingar í Öræfum á aldrinum 10 til 18 ára undir
leiðsögn Rúnars Garðarssonar og Hafdísar Ólafsson.
ÞRIKEPPNI STOÐVAR 2 OG TITAN
( SICLINCUM, HJÓLREIDUM OC COLFI
2. OC 3. JÚLÍ 1993 í HBFNARFIRDI
Oánægja með
þjónustu hjá
Flugleiðum
Húsavík.
BÆJARSTJÓRN Húsavíkur
ræddi á fundi sínum sl. þriðjudag
þjónustu Flugleiða sem hún er
mjög óánægð með á flugleiðinni
Húsavík — Reykjavík og í álykt-
um fundarins segir meðal ann-
ars:
í nóvember 1990 samþykkti bæj-
arstjórnin ályktun um að Flugleiðir
fengju einar sérleyfi á leiðinni
Húsavík - Reykjavík en til vara ef
annað félag fengi hlutdeild í því
yrði Flugfélag Norðurlands valið.
Forsendur ályktunarinnar voru
m.a. að bæjarstjórnin taldi það
tryggja best uppbyggingu ferða-
þjónustu í héraðinu þar sem Flug-
leiðir væru eina innlenda flugfélag-
ið, sem réði yfir því markaðskerfi
að geta beint erlendum ferðamönn-
um til Húsavíkurflugvallar og þar
með Þingeyjarsýslu.
Bæjarstjórnin segir þróun mála
hafa valdið algerum vonbrigðum.
Ferðum Flugleiða til Húsavíkur
hafí fækkað jafnt og þétt. Sumarið
1991 voru 10 ferðir í viku, 1992 6
ferðir og sumarið 1993 eru þær
orðnar 4.
„Breytingar á áætlunum félags-
ins á þessum árum hafa verið unn-
ar þannig að líkja má við beina
skemmdarstarfsemi gagnvart
ferðaþjónustuaðilum í héraðinu,“
segir orðrétt í ályktuninni. „...og í
ljósi þess krefst bæjarstjórn Húsa-
víkur þess að Flugleiðir þjóni því
áætlunarleyfi sem félagið hefur á
flugleiðinni Húsavík - Reykjavík,
hvað varðar ferðatíðni, í samræmi
við fyrirheit. Bæjaryfírvöld bjóðast
til að beita sér fyrir því að koma á
samráðsvettvangi milli ferðaþjón-
ustuaðila í héraðinu og Flugleiða
um ferðatíðni og tímasetningar er
leitt gætu til fjölgunar farþega á
flugleiðinni.1*
Samþykktin var gerð samhljóða
í bæjarstjóm.
FÖSTUDAGUR 2. JÚLf
16.00 Sigling hefst frá Rauðarárvík utan Reykjavíkurhafnar.
19.30 Koma fyrstu seglskútunnar til Hafnarfjarðar (áætlaður tími).
21.30 Kokkar frá A. Hansen grilla gómsætar skútusteikur á vægu verði á smábátabryggju,
þar sem líta má á skúturnar.
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ
8.00 Golf hluti Þríkeppninnar hefst hjá Golfklúbbi Keilis á Hvaleyrarholti. Á 16. braut geta keppendur unnið
Combi-Camp Family llodena tjaldvagn með aukabúnaði að verðmæti kr. 500 þúsund með holu í höggi.
9.00 Almenningi boðið að reyna við holu í höggi á 16. braut til kl. 11.00 og er Laser 4,7 seglbátur að
verðmæti kr. 360 þúsund í verðlaun. Lengd brautar er 129 metrar og fær hver eina tilraun.
10.00 Meðlimir Fallhlífaklúbbs Reykjavíkur reyna að koma golfkúlu í holu með frjálsri aðferð úr 25 feta hæð.
13.00 Fjallahjólreiða hluti Þríkeppninnar á Norðurbakka hefst, þar sem keppendur hjóla 20 km. vegalengd.
13.30 Á Norðurbakka sýna fjallahjólamenn listir sínar á hjólum.
14.00 Hjólreiðakeppni Fálkans fyrir börn og unglinga. Keppt í 2 flokkum, 9-12 ára (10 km.)
og 13-15 ára (15 km.). Tímalengd fer eftir þátttöku.
15.00 Siglingar í Þríkeppni hefjast að nýju, sigldur verður ca. 3ja tíma þríhyrningur fyrir utan Hafnarfjörð.
Dagskrá í höfninni meðan stóru skúturnar keppa;
* Laser sýningarsigling.
* Samæfing Björgunarsveitarinnar Fiskakletts og þyrlu Landhelgisgæslunnar við björgun á sjó.
* Bátasmiðja Guðmundar sýnir veiðar og siglingar á hraðfiskibát.
Reynt verður við íslandsmet í fjöldadrætti á sjóskíðum.
* Vatnasport-sjóskíðasýning og ótrúlegir Shetland hraðbátar.
18.00 Áætlaður komutími fyrstu seglskútu inn i Hafnarfjarðarhöfn og verða þá dregnir út hinir heppnu
sem fá að fara í skemmtisiglingu með skútu frá Hafnarfirði til Reykjavíkur á sunnudag kl. 13.00.
19.30 Verðlaunaafhending á Norðurbakka.
21.30 Sigurvegaraveisla á A. Hansen, kr. 2.500 pr. mann. Borðapantanir í síma 651130.
FALKINN
ÞEKKING, REYNSLA OG ÞJÓNUSTA
SÉRSTAKAR PAKKIR FÁ
UTILIF" a
HAFNARFJARÐARHOFN
OC SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR
HAFNARFJÖRÐUR
HEKLA Þann 3- júlf verða bílar frá HEKLU og tjaldvagnar frá TÍTAN til sýnis á Þórsplani.
- Fréttaritarl.