Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 21

Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993 21 Reuter Kaupsýslumaður myrti átta manns BANDARÍKJAMAÐUR á sextugsaldri, Gian Luigi Ferri, skaut á fimmtudag átta manns á lögfræðistofu í San Francisco og særði sjö að auki áður en hann fyrirfór sér. Ferri mun hafa stundað fasteignaviðskipti og átt í málaferlum sem tengdust lögfræðistofunni. „Engan grunaði neitt því að hann var klæddur jakkafötum eins og kaupsýslumenn, í skyrtu og með bindi... Hann var vopnaður tveim hálf-sjálfvirkum byssum sem festar voru við axlaböndin og bar auk þess skammbyssu," sagði borgarstjóri San Francisco. A myndinni sjást björgunarmenn huga að fómarlömbum árásarinnar. Clinton ákveður að loka 130 herstöðvum Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkja- forseti tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að loka 130 herstöðvum í Bandaríkj- unum. Er þetta í fullu sam- ræmi við tillögu sjálfstæðrar nefndar, sem unnið hefur úttekt á því hversu mörgum herstöðvum þurfi að loka til að ná markmiðum um minni herafla vegna loka kalda stríðsins. Á fimmtudag greindi Clinton frá því að ákveðið hefði verið að Ioka 92 bandarískum herstöðvum erlendis, flestum þeirra í Þýskalandi. Til að draga úr efnahagslegum áföllum vegna lokananna hefur for- setinn ákveðið að á næstu fimm árum verði fimm milljörðum dollara varið til þeirra svæða þar sem við- komandi stöðvar eru. Hann viður- kenndi þó að ekki væri hægt að tryggja að ný atvinnutækifæri kæmu í stað allra þeirra sem glötuð- ust. „Það er ekki hægt að draga úr fjölda karla og kvenna í hernum án þess að herstöðvum í Bandaríkj- unum og utan þeirra verði fækkað til samræmis," sagði Clinton. Samkvæmt bandarískum lögum getur Bandaríkjaþing ekki gert breytingar á þeim herstöðvum, sem til stendur að leggja niður. Ef það leggjast alfarið gegn öllum lokun- ákveður ekki innan 45 daga að um, tekur ákvörðun forsetans gildi. Reuter * Þrír Italir drepnir í Mogadishu ÞRÍR ítalskir hermenn voru drepnir og tíu særðust í hörðum bardögum á götum Mogadishu, höfuðborgar Sómalíu, í gær. Sómalskar leyniskyttur skutu á þá_ þegar þeir voru að leita að vopnum í norðurhluta borgarinn- ar. Stjórn Ítalíu gaf út yfirlýsingu þar sem hún krafðist þess að Samein- uðu þjóðirnar fyndu friðsamlega lausn á sómalska vandanum. Á mynd- inni er verið að flytja ítalskan hermann sem særðist á skjúkrahús. Bill Clinton boðar stefnubreytingu Bætt samskipti við Víetnama Washmgton. Reuter. BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, átti í gær fund með fjölskyldum hermanna, sem saknað er síðan í Víetnamstríð- inu, en í dag mun hann tilkynna, að unnið verði að bættum samskiptum við Víetnam. Víetnam og Víetnamstríðið eru enn viðkvæm mál í Bandaríkjunum, sérstaklega meðal fyrrverandi her- manna og þeirra, sem misstu þar ástvini sína. Því þótti Clinton rétt að kynna fyrst fulltrúum þessa fólks nýja stefnu í samskiptum ríkjanna. Var búist við tilkynningu í dag um, að Bandaríkjastjórn ætlaði ekki að standa í vegi fyrir endurfjármögnun erlendra skulda Víetnama. Stutt í afnám viðskiptabanns Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun annast endurfjármögnun skuldanna en þótt ekki sé um að ræða nema 140 milljónir dollara er þetta mál, sem skiptir öllu fyrir Víetnamstjórn og framtíðaruppbyggingu efnahags- lífsins í landinu. Þá er einnig búist við, að stutt sé í að Bandaríkjastjórn aflétti viðskiptabanninu á Víetnam. Bannið var sett á Norður-Víetnam árið 1964 og síðan á allt landið í apríl 1975 eftir að kommúnistar höfðu borið sigurorð af Suður- Víetnömum, sem Bandaríkjamenn studdu. Æ fleiri bandarísk fyrirtæki hafa hvatt stjórnina til að aflétta banninu, sem þau segja útiloka þau frá erlendum markaði sem hafi mikla vaxtarmöguleika. ERLENT Noregur Aukið eft- irlit með virnislimni Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSK yfirvöld hafa hert mjög aðgerðir gegn hvers konar mis- ferli og svindli í sjávarútvegin- um, veiðum jafnt sem vinnslu. Skrifað hefur verið undir sér- stakt samstarfssamkomulag þar að lútandi milli sjávarútvegs-, skatta- og tollyfirvalda. Eftirlit með fiskvinnslunni í landi verður stóraukið og grannt fylgst með útflutningi á norskum sjávar- afurðum. Hefur margoft komið fram, að mikið af fiski, sem hvergi er getið í opinberum plöggum, hef- ur verið flutt á markað í Evrópu og til að ná tökum á því verður farmur flutningabíla kannaður miklu oftar en gert hefur verið. Samstarfið við rússnesk yfirvöld hefur einnig verið aukið en þau draga enga dul á, að þau hafi misst alla stjórn á fiskveiðunum í Bar- entshafi. Áætlað hefur verið, að rússnesk skip hafi veitt um 100.000 tonn af þorski umfram kvóta á síð- asta ári og vitað er, að mörg skip- anna eru á veiðum án leyfis. Bijóstagjöf mimikar hættu á krabbameini London. Reuter. KONUR, sem hafa börn sín á brjósti í þrjá mánuði, fá miklu síður krabbamein í brjóstin en konur, sem setja börnin strax á pela. Er þetta niðurstaða rannsóknar; sem birt var í breska Læknablaðinu á fimmtudag. „Með hvetju barni, sem haft ér á bijósti, minnkar hættan á krabbameini hvorki meira né minna en um 15%,“ segir formað- ur rannsóknarhópsins, Clair Chil- vers, prófessor við háskólann í Nottingham. Bijóstkrabbamein er nú algengasta krabbameins- tegundin í breskum konum. Við rannsóknina var athugað- ur ferill 755 kvenna í 11 héruðum í Bretlandi og áttu þær það sam- eiginlegt að hafa fengið krabba- mein í brjóst 36 ára eða yngri. Var hann síðan borinn saman við feril jafn margra kvenna, sem ekki höfðu kennt sér meins í bijóstum, á sömu stöðum og sama aldri. í ljós kom, að hættan á krabbameini minnkaði eftir því sem börnin voru höfð lengur á bijósti eða að þremur mánuðum og einnig eftir því hve börnin voru mörg. Ekki er ljóst hvers vegna bijóstagjöf dregur úr líkum á krabbameini en bráðabirgðan- iðurstöður benda ekki til, að það hafi nein áhrif hér á, að hún seinkar því að blæðingar hefjist á ný. BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI 1/2 skrokkur af íyi'sta flokks lambakjöti í poka. Ljúffengt og gott á grillið Fæst í næstu verslun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.