Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 29

Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993 29 Ásthildur Ásta Jóns dóttir — Minning henni að sauma er aðrir voru gengnir til náða. Enda varla um annan tíma að ræða því að gesta- gangur var gríðar mikill og lítið næði til sauma að deginum. Þessar flíkur höfnuðu víðsvegar hjá skyld- um sem vandalausum jafnt sem hennar eigin fjölskyldu. Fyrir kom að einhver kom til að fá sniðna flík, en endaði með hana fullsaumaða. Nei, var orð sem ekki var til í munni Stínu systur ef hún var beð- in um greiða. Hennar stærsta gleði var að hafa fullt hús gesta og veita af rausn sinni og var ekki kastað til þess höndum. Gjafmildin var slík að ég ætla að þess séu fá dæmi. Já, hún var stór í öllu þessi smá- vaxna kona, hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og lét þær hiklaust í ljós. Hreinskiptin og vin- ur vina sinna á hveiju sem gekk. Það var hennar aðalsmerki. Nú hefur þessi stóra sál losnað úr viðjum hins sjúka líkama sem var orðinn henni til byrði og þján- inga. Það átti ekki við þennan dugnaðarfork að geta ekki lengur staðið í stórræðum sem forðum og framkvæmt þau verk sem hugurinn stóð til. Ég minnist síðustu heim- sóknar minnar í Sólbrekku. Kraft- arnir voru sjáanlega á þrotum, en löngunin hin sama til að fagna góðum gesti. Við vöktum nætur- langt systurnar, ég fann að hún vildi teygja vökuna sem lengst. Ég er þess viss að okkur bauð báðum í grun að þetta yrði okkar síðasta næturvaka í Sólbrekku, sem og varð, þó að hvorug hefði orð á. Margt bar á góma og þá helst frá þeim gömlu góðu dögum er ég dvaldist hjá henni í Sólbrekku, að nokkru sem barnfóstra og sumpart sem hálfgildings nemandi í pönnu- kökubakstri, saumaskap og fleiru. Takmarkið í þá daga var að baka jafngóðar pönnukökur og stóra systir, lengra var ekki unnt að ná fannst mér. Það verður dap- urlegt að koma á Fáskrúðsfjörð þegar engin Stína systir stendur í dyrum að fagna gestum. Þú sofnaðir inn í sumarsins björtu nótt. Systir nú þarfnastu hvfldar að liðnum degi. Bænir okkar nú berast til þín hljótt. Að birta og fegurð lýsi upp þína vegi. Með þakklæti frá mér og mínum og systkinunum öllum. Þórey Jónsdóttir. fjögur sumur var hann við síldveið- ar. Eftir að Guðmundur eignaðist fjölskyldu vann hann í landi, heima á Hofsósi á sumrin, en nokkra vet- ur sótti hann vinnu syðra, á Kefla- víkurflugvelli og hjá Geir í Eskihlíð. Um og upp úr árinu 1950 fór Guð- mundur að vinna við húsbyggingar, bæði trésmíðar og múverk, og áttu þessi störf eftir að verða hans starfsvettvangur í þijá áratugi. Lengi unnu þeir saman Guðmundur og Gunnar Stefánsson smiður. Þeir byggðu fjölmörg hús á Hofsósi, m.a. félagsheimilið og bamaskól- ann og í nálægum sveitum byggðu þeir líka. Oft mun vinnudagur hafa verið langur og ekki hugsað um hvort klukkan væri þetta eða hitt, vinnan gekk fyrir. Og þegar ekki vannst tími til að fara í mat, þá var gjarnan send lítil stúlka eða lít- ill strákur heiman frá Birkihlíð með matarbita til pabba. Starfsævi sinni lauk Guðmundur á Sauðárkróki, þar vann hann um tíma hjá byggingarfyrirtækinu Hlyn og síðast vann hann hjá Kaup- félagi Skagfírðinga við plastgerð o.fl. 30. desember 1945 kvæntist Guðmundur eftirlifandi konu sinni, Stefaníu Jónsdóttur frá Nesi í Flókadal. Eignuðust þau sjö börn. Elstur er Sigmundur bankaútibús- stjóri, kvæntur Amalíu Sigurðar- dóttur, Steinunn Anna verslunar- maður, gift Ragnari Inga Tómas- syni, Jón trésmiður, giftur Margréti Guðmundsdóttur, Björgvin rafvirki, kvæntur Margréti Pétursdóttur, Guðmundur Örn framleiðslustjóri, hans kona er Erna'Baldursdóttir, Steinn starfsmaður hjá Landsvirkj- un, giftur Guðrúnu Gunnarsdóttur, og yngst er Hólmfríður sjúkraliði, Hinn 27. júní dó ástkær amma okkar, Ásthildur Ása Jónsdóttir. Þó að flest okkar vissu að hveiju stefndi, þá kemur þetta samt sem reiðarslag. Við getum ekki lýst hversu mikið við höfum misst, því að fyrir okkur var elsku amma okk- ar ómetanleg. Við reynum þó að hugga okkur við það að nú líður henni vel og þarf ekki að þjást meira. Og nú lítum við á hana sem engilinn okkar á himnum hjá Guði. Og þegar eitthvað bjátar á eða þeg- ar hlutimir ganga vel 'getum við beðið til hennar og treyst henni fyrir vandamálum okkar eða sam- glaðst með henni. Og“dag einn þeg- ar við deyjum hittumst við öll í himnaríki og þá verða góðir endur- fundir. Við vitum að hún saknar okkar jafnmikið og við söknum hennar. Þó að hún sé farin þá höf- um við þó allar þesar yndislegu minningar eftir og þær geymum við hjá okkur og þeim munum við deila með okkar börnum. Alla sína ævi umvafði amma okkur öll í ást sinni og umhyggju sem kom beint frá hjarta hennar. Við biðjum góðan Guð að hugsa mjög vel um elsku ömmu okkar og vitum að hann gerir sér grein fyrir því að hann hefur hreinan demant í höndum sér. Elsku ömmu þökkum við minnn- ingarnar og allt það sem hún gerði fyrir okkur. Guðfinnur, Bjarney, Gunnar, Rúnar, Atli og Ásta. í dag kveðjum við hjónin elsku- lega systur og mágkonu. Okkur er bæði ljúft og skylt að minnast henn- ar með nokkrum orðum. Ásta ólst upp hjá ömmu okkar fram undir fermingu, en þá lést amma og Ásta kom heim. Við komum úr stórum systkina- hópi þar sem ríkti mikil samheldni. í þá daga var ekki hægt að stytta sér stundir við að horfa á sjónvarp. Það voru eftirminnileg kvöldin þeg- ar Ásta tók sér gítar í hönd og við systurnar röðuðum okkur í kringum sem er gift Friðrik Jónssyni. Barnabörn Guðmundar og Stef- aníu eru tuttugu og barnabörn tvö. Annað þeirra, lítill drengur, fæddist tveimur dögum eftir lát langafa síns. Guðmundur byggði sér hús á Hofsósi, sem þau hjónin nefndu Birkihlíð. Fluttust þau inn 1948. Þar átti fjölskyldan skjól í þijátíu og eitt ár og saman ófu þau hjónin í Birkihlið þau íjölskyldubönd, sem í dag eru svo sterk og mikils virði. Árið 1979 fluttust Stefanía og Guð- mundur til Sauðárkróks og hafa lengst af búið á Hólavegi 8. Heim- ili þeirra hjóna hefur ávallt fylgt rausn og hlýja. Framan af ævi voru frístundir Guðmundar fáar, fjölskyldan stór og erfitt í ári. Bát átti hann þó jafn- an og naut þess að fara á sjó, gæfust til þess stundir. Og oftar en ekki kom hann að landi með fisk eða fugl í soðið. Bíl eignaðist hann seint á sjöunda áratugnum og fór þá lítillega að gefa sér tíma til ferðalaga um landið. Gaman þótti Guðmundi að grípa í spil með félögum sínum á vetrar- kvöldum og í nokkur á var hann félagi í Lionsklúbbnum Höfða. Guðmundur sóttist aldrei eftir metorðum, en hann vék sér ekki undan þátttöku í málefnum er hann taldi verða til framdráttar heima- byggð sinni. Hann sat í hreppsnefnd Hofsóshrepps í mörg ár og tók þátt í fleiri störfum á vegum sveitarfé- lagsins. Guðmundur var hógvær maður, sem lítt flíkaði tilfínningum sínum. Traustur og réttsýnn reyndist hann fjölskyldu sinni og góður uppal- andi. Ákveðnar skoðanir hafði hann um flest, en viðraði þær ekki nema hann teldi fulla ástæðu til. Okkur hana og þá var spilað og sungið, þá voru kvöldin fljót að líða, enda kátt á hjalla. Ásta átti til mikla kátínu og allt- af var líf og fjör þar sem hún var nálægt. En vegir guðs eru órann- sakanlegir. Þegar hún var ung að árum fór að verða vart við þann sjúkdóm hjá henni, sem við menn- imir eigum erfítt með að skilja og læknavísindin beijast við, en manni fínst stundum miða hægt. Hún barðist strangri baráttu við þennan sjúkdóm og það var ekki hægt ann- að en að dást að henni, hvað hún var alltaf ljúf og elskuleg hvernig sem henni leið. Við hjónin fluttumst í nágrenni við heimili hennar fyrir ellefu árum og það má segja að ég hafi komið daglega á heimili hennar þessi ár. Mikið var gott að koma þar við þegar ég átti leið og fá sér kaffí og rabba saman. Um tíma stunduðu mennirnir okkar trilluút- gerð samtímis og styrktist samband okkar einnig mikið við það. Ásta eignaðist dóttur árið 1958, og var hún skírð Dagfríður eftir ömmu okkar, og var alltaf einstak- lega gott samband milli þeirra mæðgna, enda studdi Dæja mömmu sína vel. Ásta giftist eftirlifandi eig- inmanni sínum árið 1961 ogeignuð- ust þau fjögur yndisleg böm sam- an. Það er ekiri hægt annað en bera virðingu fyrir Gunnari og börn- um þeirra fyrir hvað þau stóðu öll vel saman og reyndu að létta Ástu lífíð á allan hátt. Við erum viss um að þér líður vel þar sem þú ert núna, og viljum við þakka þér fýrir allar góðu stund- imar sem við áttum saman. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Við vottum Gunnari og börnum dýpstu samúð okkar. Guð geymi ykkur tengdabörnum sínum tók hann einkar vel og var vinur okkar, og bamabörnum sínum tók hann eink- ar vel og var vinur okkar, og barna- börnum var hann góður afí. Hann er einn hinn besti drengur, sem ég hef kynnst. Fyrir þetta allt vil ég þakka og gott verður að minnast hans. Guðmundur átti við vanheilsu að stríða síðustu æviár sín og naut þá umönnunar og ástríkis konu sinnar. Ég bið guð að styrkja hana, afkom- endur hennar og Sigvalda bróður Guðmundar er býr á Dvalarheimil- inu á Sauðárkróki. Ragnar Ingi Tómasson. Nú er hann elsku Mundi afí dá- inn. Guð tók hann til sín og þar líður honum vel. Hann var alltaf svo veikur, en samt brosti hann og klappaði á kollinn á okkur þegar við komum til hans og svo gaf hann okkur alltaf af rauðu og hvítu mol- unum sínum, sem hann geymdi uppi í skápnum hennar ömmu. En nú er hann hjá englunum og Jesú og brosir til okkar þaðan. Jesú er besti vinur barnanna og nú er hann besti vinur hans afa líka. Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftamjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sér. (Davíð Stefánsson) Guð geymi þig, elsku afi, og þakka þér fyrir okkur. Stefán og Ragnhildur. í dag er til moldar borin frá Keflavíkurkirkju ástkær systir og mágkona, Ásthildur Ása Jónsdóttir, én hún andaðist í Borgarspítalanum hinn 27. júní sl. eftir erfiða sjúk- dómslegu. Hún er sú fyrsta úr hópi okkar systkinanna níu sem kveður þetta líf, ef frá er talinn bróðir sem aðeins náði 14 daga aldri. Það sting- ur að sjálfsögðu í hjarta þegar kona á besta aldri er á brott kölluð. Hins vegar er aldur ávallt afstætt hugtak og þá ekki síst þegar veikindi eru annars vegar, en þannig var því farið með okkar elskulegu systur að hún þurfti meira og minna að beijast við veikindi sl. 20 ár. Þó var síðasta árið henni einkar erfítt, því að þá fóru kraftar hennar dvínandi og sjúkdómurinn að ágerast. En jafnan voru uppstyttur á milli og þá ljómaði hún Ásta líkt og aldrei fýrr, jafnan með spaugsyrði á vör- um og glettni í augum, því að það var henni eðlislægt allt frá barn- æsku. Ásthildur var fædd í Reykjavík 23. júlí 1936 og var hún þriðja barn hjónanna Jóns Indriða Hall- dórssonar og Geirnýjar Tómasdótt- ur. Jón lést árið 1989, en Geirný sem dvelst á sjúkradeild Hrafnistu í Reykjavík liflr dóttur sína. Þriggja ári að aldri fer Ásthildur í fóstur til föðurömmu sinnar, Dag- fríðar, og dvelst hjá henni til þrett- án ára aldurs, en þá lést amma. Meðan Ásta dvaldi hjá Dagfríði ömmu mynduðust sterk tryggða- bönd milli hennar og Halldórs föð- urbróður okkar og konu hans, Fan- neyjar, og bama þeirra, Benedikts og Dágfríðar, en þau bjuggu í sama húsi og amma. Enda þótt Ásta væri hjá ömmu öll þessi ár rofnuðu aldrei tengslin við systkinahópinn því að árið 1944 fluttumst við í næsta nágrenni við ömmu í Klepps- holtinu og þá varð Ásta að sjálf- sögðu daglegur gestur heima í Laufholti. Eftir lát ömmu flyst Ásta aftur heim í föðurhús og dvelst þar fram yfír tvítugt. Það sem einkenndi Ástu í augum okkar systkinanna var hennar frá- bæra geðslag, þar sem saman fóru kímnigáfa, glettni og á stundum svolítill prakkaraskapur, sem þó var þannig að hann særði aldrei, en vakti jafnan hlátur og gleði. Slíkar minningar er gott að eiga því að þær ylja um hjartarætur á erfiðum stundum. Á þessum árum byijaði Ásta að vinna í sælgætisgerðinni Víkingi, en þar vann hún í allmörg ár. Það varð síst til að draga úr vinsældum Ástu því að oft var sæl- gætismolum vikið að biðjandi munni og skrítið var hvað páskaeggin stækkuðu við það eitt að hún vann þar og jafnan var nafnið manns á viðkomandi páskaeggi skrifað með súkkulaðistöfum. Þá var hátíð í bæ því að á þessum árum var sælgæti munaður. Liðlega tvítug flyst Ásta úr föð- urhúsum og fer að leigja hjá föður- systur sinni, Guðrúnu, og manni hennar, Brandi Búasyni. Við þau hjón og dóttur þeirra, Guðrúnu Ásu, batt Ásta síðan ævilanga tryggð sem hvergi bar skugga á meðan þau hjónan lifðu. Meðan Ásta var til húsa hjá þeim hjónum eignaðist hún dótturina Dagfríði Guðrúnu, sannkallaðan sólargeisla jafnt vinum sem vandamönnum. Á haustdögum árið 1960 kynnt- ist Ásta þeim manni sem átti eftir að verða hennar lífsförunautur í Hafdís og Karl. blíðu og stríðu, en það var Gunnar Líkafrónsson, ættaður úr Grunna- vík í Jökulfjörðum. Þar eignaðist Ásta það hald og það traust sem reyndist henni ómetanlegt í gegnum tveggja áratuga veikindi, því að þær eru sterkar hinar vestfírsku stoðir og bogna hvergi þá er á reynir. Á annan dag jóla 1961 ganga þau Ásta og Gunnar í hjónaband og hófu búskap í sama húsi og móðir Gunnars í Kópavoginum. Einnig bjuggu þau í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Ári 1966 flytjast þau síðan til Keflavíkur og bjuggu þar æ síðan og frá 1969 á Hring- braut 128. Á heimili þeirra í Kefla- vík dvaldist langdvölum Bjamey, móðir Gunnars, við hið besta atlæti og hlýju og sýndi það vel hjartalag þeirra hjóna. Ásta og Gunnar áttu sérstöku bamaláni að fagna, en saman eign- uðust þau fjögur börn auk dóttur- innar sem Ásta átti fyrir og Gunnar tók sem sitt barn án skilyrða. Börn þessi eru: Dagfríður Guðrún, fædd 1958, gift Sigurvin Breiðfyörð Guð- fínnssyni og eiga þau tvo syni; Dóra Fanney, fædd 1962, í sambúð með Annel J. Þorkelssyni og eiga þau þrjú börn; Sigurlaug Kristjana, fædd 1965, í sambúð með Daníel Guðjónssyni og á hún eina dóttur; Gunnar Þór, fæddur 1966, býr í foreldrahúsum; Sævar Jósep, fædd- ur 1972, í sambúð með Hólmfríði Jónsdóttur. Barnabömin era nú 6 að tölu og það sjöunda rétt ófætt. Vom þau öll ömmu og afa sannkall- aðir sólargeislar sem ávallt veittu birtu og yl. Það sem öðm fremur einkenndi íjölskyldu þessa var ást þeirra og umhyggja fyrir velferð Ástu. Datt manni þá oft í hug það sem ritað er um kærleikann í fyrra Korintu- bréfí, 13, í hinni helgu bók. Ekki leið sá dagur að eitthvert barn- anna, tengdabarnanna eða bama- bamanna, eitt eða fleirri helgaði ömmu eða mömmu ekki einhvern hluta dagsins, ávallt reiðubúin til að hjálpa. Slík samheldni sem þar sást var með ólíkindum og öðmm til eftirbreytni, ekki skal gleyma þætti eiginmannsins sem ávallt fór i fararbroddi heill og sannur. Á þessa samheldni, nærgætni og hlýju reyndi sérstaklega hinar tvær síðustu vikur í lífí Ásthildar er hún lá fársjúk á gjörgæsludeild Borgar- spítalans. Þá stóð Gunnar sem klettur við sjúkrabeð konu sinnar dag hvern. Er sýnt þótti að hveiju dró var Ásta flutt á einbýli og síð- asta sólarhringinn var hún umvafin kærleika, ást og nærgætni eigin- manns, barna og tengdabarna sem hvergi viku af verðinum uns yfir lauk. Þannig lauk okkar kæra syst- ir hérvist sinni umhvafin hlýju og kærleik sinna nánustu. Við sem næst þessum hópi stöndum eru full aðdáunar og þakklætis fyrir um- hyggju þeirra og segjum að slíkt hjartlag sé gott að geyma í minn- ingunni. Nú þegar að leiðarlokum er kom- ið viljum við systkinin og tengda- systkinin þakka okkar elskulegu systur samfýlgdina og þær gleði- stundir sem við áttum saman í föð- urhúsum og ávallt síðan, þær minn- ingar lýsa nú sem perlur og verka sem smyrsl á sársauka viðskilnað- arins. Við erum þess fullviss að Ásta systir hefur verið leidd inn í ríki ljóssins, þar sem veikindi og þjáning hafa verið frá henni tekin. Því leyfum við okkur að gera eftir- farandi brot úr sálmi Hallgríms Péturssonar að okkar hinstu kveðju: Nú ert þú leidd mín ljúfa lystigarð Drottins í, þar áttu hvfld að hafa hörmunga og rauna fri. Við biðjum algóðan Guð að veita eiginmanni, bömum, tengdabörn- um og barnabörnum styrk í þeirra miklu sorg. Ykkar missir er mikill, en minningin um góða eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, er sú stjama sem áfram vísar veginn f anda þess sem öll vor ráð hefúr í hendi sér. Megi góður Guð varð- veita ykkur öll. Þess biðja systkini, mágar og mágkona

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.