Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 30

Morgunblaðið - 03.07.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993 Minning Þórhallur Bjöm Siguijónsson Fæddur 10. apríl 1909 Dáinn 27. júní 1993 Jæja, þá er komið að því að kveðja blessaðan karlinn hann afa. Fyrstu minningar mínar um afa eru þegar við fjölskyldan fluttumst upp á Aust- urveg, við hliðina á ömmu og afa. Þar var ýmislegt brallað. Ég, sem þá hef verið u.þ.b. 7-8 ára, gat hangið tímunum saman úti á smíða- verkstæði hjá afa og fékk þá oftar en ekki að búa til alls konar hentuga hluti í barbie-húsið eða búið, með aðstoð hans. Það var alltaf svo mik- ið að gerast í kringum afa, hann smíðaði t.d. lítið hús í garðinum sem við krakkamir nefndum „smíðakof- ann“. Þar máttum við leika okkur, en þó með einu skilyrði, afi notaði húsið fyrir geymslu undir garðáhöld- in og þau máttum við ekki snerta, sem var skiljanlegt þar sem um var að ræða orf og ljá o.þ.h. Einnig bjó afí til baðhús með heitum potti og sauna, en hugmyndina hafði hann fengið í Finnlandi þar sem við dvöld- um í dálítinn tíma sumarið 1980. Það var nú algjör fjársjóður að fá að leika sér þar inni, skella dúkkun- um í bað og þar fram eftir götunum. Á haustin var heldur betur mikið að gera því að afi og amma voru með stóran kartöflugarð á lóðinni hjá sér og var mikil vinna að taka upp, skola, þurrka o.s.frv. og þá fékk maður að vera með og þvælast fyrir. Afi var ákveðinn og afar hreinskil- inn, þ.e.a.s. hann sagði stundum það sem hinir þorðu aðeins að hugsa með sjálfum sér. Ég gleymi því t.d. aldrei þegar hann tilkynnti mér að ég væri alveg hræðilega laglaus. Þá hét ég því að ég skyldi aldrei syngja framar, en hann fékk mig nú fljótt ofan af því með glaðværðinni og hressileikanum sem ávallt fylgdi honum. Já, það er margs að minnast og nú þegar komið er að kveðjustund eru það minningamar, sem ylja manni um hjartarætumar. Liðnar stundir koma ekki aftur, en minning- ar á maður þó út af fyrir sig. Eg er mjög þakklát fyrir að hafa náð svona vel til afa. í þeim samskiptum var ekki um neitt kynslóðabil að ræða. Með þökk fyrir samveruna sem veitti mér svo margt. Aðalbjörg. Að kvöldi sunnudagsins 27. júní 1993 lést á heimili sínu í Grindavík afi okkar, Þórhallur Bjöm Siguijóns- son smiður frá Þórshöfn á Langa- nesi. Okkur systkinin Iangar til að minnast hans fáum orðum. Afi var einstakur og engum líkur, höfðinglegur í fasi og lund. Hann stendur okkur fyrir hugskotssjónum glæsilegur á velli, með glettnisg- lampa í augum og hnyttin tilsvör á vömm. Lífshlaup afa var farsælt, þótt skipst hafi á skin og skúrir eins og gengur á langri ævi. Hann átti því láni að fagna að ganga að eiga ömmu okkar, Aðalbjörgu Þorvaldsdóttur frá Skálum á Langanesi, í nóvember 1933 og áttu þau samleið um sextíu ára skeið. Þau hófu búskap á Þórs- höfn, þar sem afí starfrækti jám- og trésmíðaverkstæði, en um miðbik aldarinnar fluttust þau búferlum suð- ur á land og bjuggu lengst af í Grindavík. Á heimili afa og ömmu var ávallt margt um manninn og öllum fagnað af einstökum rausnarskap. Þar var oft glatt á hjalla og afí ævinlega hrókur alls fagnaðar, enda hafði hann mikla ánægju af samfundum ættingja og vina. Smáfólkið var sérstaklega velkom- ið og lögðu barnabömin tuttugu oft leið sína á Austurveginn í spjall og veitingar hjá ömmu og á smíðaverk- stæðið til afa þar sem mörglistaverk- in litu dagsins ljós unnin af stórum hug og litlum höndum. Þá var margt skrafað og hlegið, sagðar sögur og tekið í spil og litlu manneskjumar iðulega leystar út með gjöfum. Afí var vel gefínn maður, bók- hneigður og ljóðelskur. Hann hafði yndi af líflegum samræðum, var heimspekilegur í hugsun og trúði á hið góða í tilverunni. Hann bjó yfír einstakri kímnigáfu og næmleika fyrir því skoplega í hversdagsleikan- um. I kringum afa var ávallt gleði og þannig munum við minnast hans. Verk afa á lífsleiðinni bera hans góðu eiginleikum vitni og því vitum við að vel verður tekið á móti honum í nýjum heimkynnum. Við systkinin kveðjum elsku afa okkar með ást og þakklæti fyrir góðar stundir og velgjörð allra og biðjum algóðan Guð að styrkja ömmu okkar á skilnaðarstund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé Iof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elizabeth, Fanney, Dagný og Finnbogi. Mig langar til að minnast með örfáum orðum móðurbróður míns, Þórhalls Siguijónssonar, sem lést 27. júní sl. Þegar ég hugsa um liðna tíð kem- ur svo margt í hugann, sem ég vildi segja frá og þakka fyrir. Ég kynntist Þórhalli þegar ég kom á heimili hans og eiginkonu hans, Aðalbjargar Þorvaldsdóttur, eftir lát móður minnar langt fyrir aldur fram. Þá vorum við systur enn á bams- aldri. Okkur var tekið þar opnum örmum á heimili þeirra og var það líkt og að koma heim. Lífsgleði Þórhalls var viðbrugðið enda var hann virtur og dáður af þeim sem umgengust hann. I huga mínum og systra minna mun gæska hans og alúð lifa. Enginn reyndist okkur betur á erfiðum tím- um. Elsku Bogga og fjölskylda, megi guð styrkja ykkur og styðja á þess- ari sorgarstund. Vér sjáum, hvar sumar rennur með sól yfir dauðans haf og lyftir í eilífan aldingarð því öllu, sem Drottin gaf. (Matth. Jochumsson.) Guð blessi minningu Þórhalls Sig- uijónssonar. Heiða Jóhannsdóttir. í dag verður til moldar borinn frá Grindavíkurkirkju Þórhallur Bjöm Siguijónsson trésmiður, en hann dó á heimili sínu hinn 27. júní síðastlið- inn. Þórhallur var fæddur á Akur- eyri 10. apríl 1909, sonur hjónanna Indíönu Sigríðar Einarsdóttur og Siguijóns Bjömssonar húsasmiðs. Þau bjuggu fyrst á Hjalteyri, en síð- ar á Siglufirði. Börn þeirra vom átta talsins og eru þau nú öll látin. Vorið 1924 kemur Þórhallur norð- ur á Þórshöfn og fer í vist til Jó- hanns Gunnlaugssonar og konu hans, Önnu. Frá Þórshöfn liggur leið- in í Hallgilsstaði til Halldórs Bene- diktssonar og Halldóru Hjartardótt- ur. Þama hefjast afskipti hans af leiklist, sem var snar þáttur í lífi hans næstu árin. Um 1931 fer Þórhallur í Syðra- Lón, þar sem hann kynntist eftirlif- andi konu sinni, Aðalbjörgu Þor- valdsdóttur frá Skálum á Langanesi. Þau gengu í hjónaband 10. nóvember 1933 og hófu sinn búskap í Heiðar- höfn, en fluttust fljótlega til Þórs- hafnar. Þar hóf Þórhallur smíðavinnu og rak um árabil trésmiðju og jám- smiðju eða til ársins 1948, er þau hjón fluttust suður með börnin sín fímm og fór Þórhallur að vinna á verkstæðinu Akri 'við húsgagna- smíði. Einnig vann hann í Öndvegi við bólstrun húsgagna. Þegar vinnu lauk í Öndvegi stofnaði hann sitt eigið verkstæði í Kópavogi. Síðar rak hann trésmíða- og bólstrunarverk- stæði í Grindavík. Þórhallur var vinamargur og vildi allra. götu greiða eftir mætti. Hér hefur verið stiklað á stóm um langan æviveg. Margt fleira mætti segja um dugnað hans og áræðni en hér verður staðar numið. Guð þakki þér samfylgdina. Hvíldu í friði. Eftirlifandi konu, börnum, tengda- bömum og bamabömum votta ég mína dýpstu samúð. Ivar Þórhallsson. Þegar okkur barst fregnin af and- láti Þórhalls frænda okkar, fylltist hugurinn af innilegu þakklæti til þessa öðlingsmanns. Hugurinn hvarflar til bemsku- minninganna, þegar við litum hann og fyölskyldu hans fyrst augum. Þau hjónin vom að flytjast til höfuðborg- arinnar frá Þórshöfn á Langanesi með allan bamahópinn sinn. Hann fyllti út í dymar á Rauðarárstígnum og litla íbúðin okkar fylltist af krökk- um. Þvílík hamingja að fá alla þessa krakka 1 heimsókn. Við fengum að fara út á róló ein með þessum ókunn- ugu frænkum og frændum. Við systkinin horfðum agndofa á, hvem- ig sveitakrakkarnir víluðu ekki fyrir sér að klifra yfír girðinguna til að komast sem fyrst inn á svæðið. Því- líkt frjálsræði og gáski. Þessi fjölskylda átti eftir að tengj- ast okkur órofa vináttuböndum. Að fá að gista hjá Þórhalli frænda og Boggu í Silfurtúninu vom hátíðar- dagar fyrir okkur systkinin. I nágrenninu stóðu galtómu minkabúrin og buðu upp á gáska- fulla leiki og annasama daga fyrir okkur krakkana. Hjá Boggu var ávallt veisla í mat og drykk. Og oft kappborðað, því að lystin var mikil. Gamlárskvöldin með þessari fjöl- skyldu em okkur ógleymanleg. Og sífellt ánægjulegt umræðuefni. Hjá þeim mættust fyölskyldumar. Þórhallur frændi stóð fyrir skemmti- atriðum, skemmti sjálfur með leik eða lestri og gerði okkur krakkana virka þátttakendur í veislugleðinni. Þá má ekki gleyma að minnast á áramótabrennumar, sem íjölskyldan stóð fyrir í Silfurtúninu. Við minnumst mað þakklæti og virðingu allra heimasmíðuðu jóla- gjafanna til okkar systkinanna, dúkkuhússins, vömbílsins, tré- taskanna, sem við áttum að hafa undir dótið, þegar við kæmum til þeirra í heimsókn, bólstruðu dúkku- stólanna og trépúltsins, sem geymdi dýrgripi og leyndardóma barns- og unglingsáranna. Umhyggja hans og næmi á bamssálina var einstakt. Svo tengd voram við, að ferming- arveisla Dagnýjar og Þóreyjar var haldin sameiginlega með hljóðfæra- slætti og dansi. Þessi öðlingshjón, Þórhallur og Bogga, em svo samofin minningu uppvaxtaráranna, að vart er hægt að minnast annars nema geta þeirra beggja. Þórhallur frændi var glæsilegur maður og völundarsmiður. Ávallt glaður og hress og einlægur bama- vinur. Foreldrar Þórhalls vom hjónin Indíana Sigríður Einarsdóttir, ömmusystir okkar, og Siguijón Björnsson. Þau hófu sinn búskap á Hjalteyri við Eyjaíjörð, en bjuggu lengst af á Siglufirði. Þórhallur kvæntist 10. nóvember 1933 eftirlif- andi konu sinni Aðalbjörgu Þorvalds- dóttur. Þau kynntust á Syðra-Lóni við Þórshöfn. Hófu þau sinn búskap á Þórshöfn. Þeim varð sex bama auðið og komust fímm þeirra á legg. Elstur er ívar, kvæntur Lovísu Sveinsdóttur og eiga þau fímm böm; Indíana, gift Páli Halldórssyni og eiga þau þijú böm; Hallbjörg og á hún fjögur böm; Siguijón, kvæntur Helgu Ingólfsdóttur og eiga þau fjög- ur böm; Dagný og á hún fjögur böm. Árið 1948 fluttist fjölskyldan í Silf- urtún í Garðabæ. En 1963 fluttust þau til Grindavíkur. Við vottum eiginkonu Þórhalls, Aðalbjörgu (Boggu) og ástvinum hennar öllum innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin lifir um góðan dreng. Blessuð sé minning hans. Sigtryggur Rósmar, Þórey og Hildur Guðrún. Mig langar að rita fáeinar línur um hann afa minn, sem lést á heim- ili sínu hinn 27. júní. Hann afí hét fullu nafni Þórhallur Björn Siguijónsson og starfaði sem bólstrari og smiður í seinni tíð. Hann var giftur Aðalbjörgu Þorvaldsdóttur og bjuggu þau í Grindavík þegar ég fór að muna eftir mér. Hann afí var mjög sérstakur karl sem maður gat trúað fyrir ýmsum vandamálum unglingsáranna þegar mikið var hugsað og ýmis strákapör framin (sem litu ekki vel út í augum foreldr- anna). Ég átti því láni að fagna að for- eldrar mínir fluttust í húsið við hlið- ina á afa og ömmu þegar ég var 15-16 ára og var því heimili þeirra mitt annað heimili og naut maður góðs af. Ef matur heima í foreldra- húsi var manni ekki að skapi gat maður t.d. farið yfir til þeirra og snætt með þeim það sem mann lang- aði í það skiptið. Eins vom margar stundirnar sem maður eyddi úti á verkstæði með afa við ýmsa iðju, og komu fyrstu vasapeningarnir sem maður vann sér inn sjálfur, fyrir að laga til þar. Afí var mikill vinur minn og sagði því það sem honum datt í hug. Enda var hann ákveðinn og óhræddur að skjóta á mann í gríni og alvöru og spyija mann spuminga um hvort maður væri farinn að smakka það og reykja og sambandið við hitt kyn- ið. Þessu svaraði maður eins og ekk- ert væri því að þetta var hánn afí og honum gat maður treyst. Það er skrýtið og sárt að missa ástvini því að einhvern veginn gerir maður sér ekki grein fyrir því að enginn er eilífur og allir sem lifa þeir deyja í lokin. Þetta er gangur Iífsins sem maður sættir sig seint við. Stefán. Nú er hann elsku afi okkar búinn að kveðja þennan heim og langar okkur systkinin að minnast hans með nokkmm orðum. Margs er að minnast þegar hugsað er til baka, en árin sem við bjuggum á Austurveginum við hliðina á ömmu og afa verða ávallt sérlega minnis- stæð. Á þessum ámm rak afí smíða- verkstæði í bílskúmum hjá sér. Það var mikið smíðað og byggt hjá ung- um krökkum í þá daga og kom það sér vel að eiga afa sem rak smíða- verkstæði, enda notfærðum við systkinin og krakkamir í hverfínu okkur það óspart. Afí var mjög lífsglaður maður og var alltaf léttur og kátur og fengum við systkinin óspart að njóta þess. Þegar við vomm ung og áttum það til að gera prakkarastrik þá skamm- aði afí okkur aldrei heldur talaði allt- af við okkur í góðu. Fyrir nokkmm ámm fluttumst við í annað húsnæði. Marga daga kom afi labbandi til okkar í heimsókn og vora þá sagðar sögur frá gamla tím- anum og höfðum við álltaf jafn gam- an af því þó að sumar sögurnar heyrðum við oftar en hinar. Minninguna um góðan og hlýjan afa munum við ávallt geyma í hjört- um okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð.. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma, megi Guð styðja þig og styrkja á þessari erfíðu stundu og við systkinin sendum þér okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þórhallur, Anna Þórunn, Guðmundur og Atli. fóm þeir ekki framhjá þeim hjónum. Fyrir hjónaband dvaldist Guðný um skeið í Reykjavík og lærði þar fatasaum og stundaði að nokkm síð- ar. Kom þetta sér vel og urðu marg- ir til að leita til hennar í þeim efn- um, því að hún var bæði vandvirk og útsjónarsöm. Faðir Guðnýjar var ömmubróðir minn og fór því ekki á milli mála að kynni okkar voru mik- il. Pétur var dugnaðarforkur til vinnu og skapgóður maður og gamansamur og þótti okkur börnunum gaman og gott að vera í návist hans. Guðný erfði þessa kosti föður síns í ríkum mæli og eins var hún trygg og traust. Mamma og hún áttu mikil samskipti. Ég á Guðnýju margt upp að unna. Þær voru ekki fáar ferðirnar okkar til hennar og geymast í þakklátum hjörtum. Þetta vil ég að komi nú fram þegar lífi hennar hér á okkar jörð er lokið. Um leið og ég þakka allt og blessa minningu herinar bið ég henni allrar blessunar á nýjum vettvangi. Já, guð blessi minningu hennar. Árni Helgason. Guðný Pétursdóttir, Eskifirði — Minning Utför Guðnýjar Pétursdóttur fer fram frá Eskifjarðarkirkju í dag, laugardaginn 3. þ.m. Hún varð tæpra 102 ára og hafði unnið sín verk dyggilega um árin. Guðný var fædd á Þuríðarstöðum, bæ efst á Fagradal á Héraði, 4. nóvember 1891. Foreldr- ar hennar voru Anna Jónsdóttir frá Borg í Skriðdal og Pétur Sigurðsson, lengi póstur milli Hornafjarðar og Austfjarða, fæddur að Tunguhaga á Völlum. Systkini Guðnýjar voru Arni, sem lengi var skipstjóri og útgerðar- maður og síðar trésmíðameistari í Reykjavík, og Jarþrúður húsfreyja í Voðmúlastaðahjáleigu í Rangár- þingi. Móður sína missti Guðný snemma og fylgdi síðan föður sínum uns hún stofnaði eigið heimili með Guðna Jónssyni trésmíðameistara og bjuggu þau á Eskifirði. Foreldrar Guðna vom hjónin Guðný Guðnadótt- ir og Jón Gíslason, en hann var lengi póstur á sömu leið og Pétur. Börn Guðnýjar og Guðna vom fjögur, Hjalti sem var iðnaðarmaður eins og faðir hans, organisti og stjórnandi karlakórsins Glaðs; Vilberg, ljós- myndari á Eskifírði; Guðni Þór, einn- ig tónlistarmaður; og Steinunn hús- freyja. Guðni var frábærlega músíkelskur maður og lék mikið á hljóðfæri, góð- ur söngmaður og söng í karlakórum og kvartettum og var því á heimili þeirra mikið um söng og hljóðfæra- slátt. Og þar var oft glatt á hjalla og em margar góðar minningar mín- ar frá þeim dögum. Erfiðleikatímar voru margir á ferli manna þá og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.