Morgunblaðið - 03.07.1993, Síða 31

Morgunblaðið - 03.07.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JULI 1993 31 Minning Torfhildur Jósefs- dóttir frá Torfufelli Fædd 6. ágúst 1925 . Dáin 25. júní 1993 Lítill snáði í heimsókn hjá ömmu og afa á Hrafnagili. Skemmtilegur dagur að kvöldi kominn; mjúk dýna, hlý sæng. Amma Hilla komin inn í herbergið til að biðja með mér bæn- irnar og bjóða góða nótt. Áður en hún fer gerir hún. krossmark yfir mér og muldrar: „í nafni guðsföð- ur, sonar og heilagsanda.“ Þetta gerði hún í hvert skipti sem ég gisti á Hrafnagili og í hvert skipti velti ég því fyrir mér hvernig sandar þeir væru þessir heilagsandar. Ljúf minning. Rétt eins og allar þær æskuminningar sem ég geymi um ömmu Hillu. Nú þegar hún er farin tek ég eftir hversu sttjálar þær gerðust með árunum. Eflaust skipti þar máli að ég fluttist á brott úr Eyjafirði, kannski spilaði inn í að lítill snáði varð að stórum strák sem þóttist vera fullorðinn maður og taldi sig hafa þarfari hluti að gera en rækta sambandið við ömmu sína. Nú veit ég að fátt veitti ömmu meiri ánægju en það að fylgjast með barnabömum sínum, ég veit að ég hefði getað verið duglegri að láta hana heyra í mér, en ég veit líka hversu auðvelt er að vera vitur eftir á. Eg get vonað að ég eigi eftir að hitta ömmu mína aftur að loknu þessu jarðlífi. Ég get reynt að rækta betur tengslin við mína nánustu, ég get hlúð að þeim minn- ingum sem ég geymi úr æsku minni og seinni tíð um ömmu mína. Minn- ingum um góða konu. Hjörvar Pétursson. Með þessum fáu orðum langar okkur til að minnast elsku ömmu okkar, Torfhildar Jósefsdóttur, sem lést 25 júní síðastliðinn. Það eru margar yndislegar minn- ingar sem koma upp í hugann er við hugsum um ömmu Hillu. Það var alltaf svo gaman og gott að koma til þeirra afa og ömmu í Hrafnagili og alltaf var tekið jafn- vel á móti okkur. Amma á sannar- legan stóran þátt í því að böndin við Eyjafjörð haldast sterk því að góðu minningarnar þaðan eru svo margar. Amma var alveg fyrirmyndar kokkur og „ömmu Hillu bragðið" gleymist seint. Gjafmildina vantaði ekki því að aldrei slapp maður út úr húsi hjá henni án þess að fá eitt- hvað gott í goginn eða þá að hafa eitthvað með sér í nesti. Jólaundir- búningurinn er aldeilis eftirminni- legur þegar við bjuggum í Löngu- hlíð á Akureyri. Þá kom amma allt- af til okkar fyrir jólin og við máluð- um piparkökur saman. Það var ein- hver sérstök stemmning í kringum það, enda vantaði ekki kátínu þar sem hún var stödd því að hún var sannkallaður „húmoristi" og naut þess þegar maður hló að bröndurun- um hennar. Ömmu fannst alltaf gaman innan um fólk og naut hún sín einna best á mannamótum þar sem margir voru saman komnir. Ef þeir nánustu voru í þeim hópi þá var hún sæl. Það var alltaf svo mikil harka og dugnaður í kringum hana ömmu Hillu. Hún var eiginlega alltaf á ferðinni. Fjallaferðimar sem við fór- um með þeim afa og ömmu eru al- deilis ógleymanlegar. Frá því við vorum lítil hafa þau oft boðið okkur með sér í Laugafell. Allar voru þær skemmtilegar, en þó var fýrsta ferð- in ekki síst. Þá em sérstaklega ofar- lega í minni síðsumarkvöldin sem við sátum með afa og ömmu, spiluð- um og spjölluðum og dmkkum hind- beijadjús í volgu vatni. Einn daginn þegar við vomm búin að svamla í sundlauginni dágóðan part úr degi þá sýndi amma umhyggjusemi sína með því að senda okkur glaðning í smjörboxum sem hvarf fljótt upp í soltna munna. Þó að amma hafi átt í harðri baráttu við sjúkdóm síðastliðin tvö ár, þá bauð hún okkur systrunum, ásamt Dísu frænku, með sér og afa í Laugafell síastliðin sumur. Það var í sumar sem leið sem amma gleymdi inniskónum sínum uppá baki bílsins og keyrt var af stað. Þegar við vor- um komin nokkuð áleiðis inn fjörð- inn þá segist amma hafa heyrt eitt- hvað detta og biður afa um að stoppa bílinn. Lá þá ekki annar skór- inn í vegarkantinum en hinn uppi á þaki! Svona gat amma verið eftir- tektarsöm, en það sem hún hló að þessu var ekki lítið. Hún gat hlegið að öllum sköpuðum hlutum og hafði mjög gaman af því að segja frá. Það var alltaf svo gott að tala við ömmu Hillu. Hún var alltaf til staðar þegar eitthvað bjátaði á og ástin og hlýjan svo mikil. Hún hugs- aði alltaf svo vel um barnabörnin og gerði aidrei upp á milli okkar. Hún var öllum traustur og tryggur vinur. Blómin voru líka vinir hennar og hugsaði hún um þau eins og um ungbörn væri að ræða, enda döfn- uðu þau vel í garðinum hjá henni, líkt og inni. Amma kveið sennilega ekki brott- förinni úr okkar heimi og aldrei kvartaði hún í veikindum sínum. Þeir sem höfðu eitthvert samneyti við ömmu á þeim tíma gátu ekki annað en dáðst að því hvað hún tók lífinu létt og hún hætti svo sannar- lega ekki að njóta þess. Amma sýndi ótrúlegan viljastyrk og andlegt heil- brigði með stöðugum ferðum sínum frá sjúkrahúsinu og heim í fjörð, allt fram á síðasta dag. Ekki lét hún heldur sjúkdóminn aftra sér frá að fara á myndlistarsýningu Lilju, dótt- ur sinnar, fyrir um það bil mánuði síðan. Á kveðjustundu er okkur efst í huga þakklæti fyrir að eiga svona góða og yndislega ömmu. Betri ömmu væri ekki hægt að hugsa sér. Við vitum að hún lfíir sæl á öðrum sviðum tilverunnar og ein- hvern daginn fáum við að heim- sækja ömmu Hillu eins og í gamla daga. Megi hún lifa heil þangað til og ávallt. Blessuð sé minning henn- ar. Elsku afí! Um leið og við þökkum ömmu fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman vottum við þér alla okkar virðingu og samúð. Ingimar, Kristbjörg og Sigríður Fyrir hart nær tveimur áratugum lágu leiðir okkar Torfhildar, Hillu, eins og hún var kölluð, saman. Hún bjó í Hrafnagilsskóla þar sem Hjörvar, maður hennar, kenndi og ég var nýflutt á staðinn. Ekki leið á löngu þar til ágæt kynni komust á og mikið var rætt á síðkvöldum, ekki síst um lífsgátuna og eilífðar- málin og mikið kaffi drukkið. Þetta voru góðar stundir. Þótt ég færði mig nokkrum árum síðar sunnar í fjörðinn héldust tengslin enda vor- um við nú orðnar tengdar í gegnum menn okkar. Hilla var lífleg og vönduð mann- eskja, lét aldrei styggðarorð falla um nokkra manneskju og bar mikla virðingu fyrir öllu því sem lifði, í því voru þau samhent hjónin sem öðru. Hún var snyrtimanneskja með afbrigðum og kom það ekki síst fram í mjög smekklegum klæða- burði. Hjónin ferðuðust mikið inn- anlands, fóru í margar ferðirnar fyrir og á vegum Ferðafélags Akur- eyrar. Síðasta skemmtiferð Hillu var síðastliðið sumar þegar hún ásamt fleira fólki fór að Eiðum og dvaldi þar hjá vinum í nokkra daga á meðan ýmsir úr hópnum gengu á Dyrfjöll. Ung að aldri fékk Hilla lömunar- veiki og bar þess nokkur merki eft- ir það. Að öðru leyti var hún heilsu- hraust uns hún varð að lúta fyrir því meini sem heggur hvert skarðið á fætur öðru. Hún var fædd á Torfufelli, syðst í Eyjafjarðardal. Hilla og Hjörvar hófu búskap í Villingadal, en bjuggu svo á Torfufelli uns Hjörvar fór að kenna við Grunnskóla Saurbæjar- hrepps í Sólgarði, þar sem hann ~ síðar tók við skólastjórn. Síðustu tvo áratugina bjuggu þau í Hrafna- gilshreppi sem nú er hluti Eyjafjarð- arsveitar. Þau eignuðust þrjár dæt- ur, Sigfríði, Ingibjörgu og Elín- borgu. Hilla var bundin afkomend- um sínum þrettán sterkum böndum, vildi vita hvernig þeim vegnaði fram á síðustu stundu. Fyrir rúmum áratug hófust Hjörvar og Hilla handa við bygg- ingu húss í Reykárhverfi í Eyja- • fjarðarsveit. Það hús er dálítið sér- stakt. Sérvalið íslenskt gijót var flutt frá óbyggðum, aðallega Torfu- fellsdal, sagað og mulið eftir þörf- um og notað í skreytingar innan húss sem utan. Þau hjón voru samhent og höfðu svipaða lífssýn. í Hjörvari átti Hilla tryggan lífsförunaut. Þau hugsuðu vel hvort um annað. Æðrulaust tók- ust þau á við veikindin, bæði tvö, uns yfir lauk. Hjörvar hefur misst mikils, svo og dætur, bróðir og aðr- ir ástvinir. Við Gunnar, ásamt drengjunum okkar, sendum að- standendum Hillu dýpstu samúðar- kveðjur. Rósa Eggertsdóttir. I Minning Jóhann Steinþór Guðna son skipaafgreiðslu- maður frá Siglufirði Fæddur 12. febrúar 1919 Dáinn 24. júní 1993 Við andlát Jóa frænda langar okkur systurnar, systurdætur hans, að minnast hans nokkrum orðum. í æskuminningum okkar frá bernskuheimili okkar á Túngötu 18 í Siglufírði er Jói frændi Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum okkar. Túngata 18 var heimili afa og ömmu, en þau voru Pálína Jónsdóttir og Guðni Guðnason, sem bjuggu í Siglu- firði öll sín hjúskaparár. Afa og ömmu varð níu bama auðið og kom- ust fimm þeirra til fullorðinsára. Auk þess ólu þau upp eina fósturdóttur. Jóhann var þriðji í röð systkinanna sem komust á legg. Hann gekk menntaveginn, en á fyrri hluta aldar- innar var allt annað en auðvelt fyrir alþýðufólk að setja börn sín til mennta. Jóhann hefur eflaust notið hæfileika sinna, þegar afi og amma afréðu að leyfa stráknum að læra. Þegar flest var bjuggu 17 manns á Túngötu 18, þ.e. afi og amma, börn þeirra fimm, makar þeirra og barnabörn. Eflaust þætti sambýlið þröngt nú á dögum, en allt blessað- ist þetta undir styrkri stjórn ömmu Pálínu. Við litlu frænkurnar leituðum oft til Jóa frænda, enda faðir okkar langdvölum á sjó. Alltaf átti Jói tíma handa okkur hvernig sem á stóð. Jóhann og Una, kona hans, flutt- ust af Túngötunni um 1950 og stofn- uðu sitt eigið heimili á Hólavegi 38. Samband okkar við Jóa rofnaði ekki við þessa breytingu og hélst, að vísu með hléum, vegna búsetu okkar í Reykjavík, ailt til dánardægurs Jóa. Áhugi hans á börnum okkar og barnabörnum var ávallt fyrir hendi þótt samvistir yrðu stopulli vegna fjarlægðar okkar. Samband hans við móður okkar var alltaf mjög náið og kærleiksríkt. Jói hafði mikla ánægju af mann- legum samskiptum, sérstaklega rök- ræðum um stjórnmál og málefni líð- andi stundar. Hann átti til að slá fram einhverri skoðun, sem hann vissi, að félli kannski í grýttan jarð- veg hjá viðmælendum, og veija „málstað" sinn síðan af ákafa. Ekki er ólíklegt að sumir hafi misskilið þennan samkvæmisleik Jóa. Samt skildu allir sáttir eftir þessi upp- átæki hans, enda einungis til gam- ans gert. Síðustu mánuðir Jóa frænda verða okkur minnisstæðir. Hann kom suð- ur til Reykjavíkur til lækninga. Ávallt voru honum gamanyrði á vör- um og hugurinn kominn hálfa Ieið heim til Siglufjarðar á fyrsta degi sjúkrahúsdvalar. Hann tók veikind- unum af æðruleysi og lét ekki í ljós neinn ugg um hnignandi heilsu sína. Allir vissu hve veikindi Jóa voru al- varleg, en gátu ekki annað en dáðst að hugrekki hans. Þannig minnumst við okkar kæra frænda. Elsku Una, Guð gefi þér og börn- um ykkar og barnabörnum styrk í sorg ykkar. Við erum þess fullvissar að Jói vakir áfram yfir okkur öllum. Bryiýa og Hjördís. Í dag verður til moldar borinn frá Siglufjarðarkirkju einn mætur borg- ari Siglufjarðar, Jóhann Guðnason, skipaafgreiðslumaður. Hann hafði um nokkra hríð háð harða og stranga baráttu við erfiðan sjúkdóm sem margir hafa fallið fyrir. Þrátt fyrir mikinn viljastyrk og lífslöngun varð Jóhann einnig að láta undan og halda á vit hins ókunna. Jóhann var borinn og barnfæddur á Siglufirði og þar lá allt hans lífs- starf. Á uppvaxtarárum hans var vinna og aftur vinna það eina sem komst að til að heimilin hefðu viðun- andi lífsafkomu. Þá þótti hneisa að sækja um bæjarstyrk og flestum óljúft. Foreldrar Jóhanns, þau Pálína Jónsdóttir og Guðni Guðnason, bjuggu alla sína búskapartíð á Siglu- firði. Þau eignuðust níu böm, en íjögur þeirra létust í æsku. Einnig ólu þau upp eina fósturdóttur svo að það hefur oft verið mannmargt á heimili þeirra í Túngötunni og ör- ugglega hefur húsmóðirin þurft að vera hagsýn í hússtjórn. Nú er að- eins ein systirin og fósturdóttir þeirra eftir hérna megin tjaldsins. Jóhann byijaði snemma að vinna, eins og títt var með unglinga í þann tíð, sem nú myndi ef til vill flokkast undir barnaþrældóm. Níu ára gam- all byijaði hann á sfldarplani hjá athafnamanninum Steindóri Hjaltal- ín. Þá var síldarævintýrið að byija á Siglufirði og var Jóhann þátttak- andi í því eins og flestir aðrir sem voru að alast upp á Siglufirði á þess- um tíma. Á unglingsárum sínum vandist hann margvíslegri og fjöl- breyttri vinnu, en flest tengdist síld- inni. Með dugnaði tókst Jóhanni að vinna sér inn aura sem hann var ákveðinn í að nýta til náms og hann fór í Verslunarskólann og lauk þaðan námi 1938. Hjá Síldarverksmiðjum ríkisins vann hann um árabil, meðal annars lengi sem bifreiðastjóri. Lengst af starfsævi sinnar starfaði hann sjálf- stætt við skipa- og vöruafgreiðslu og annaðist flest skip sem komu til Siglufjarðar allt frá árinu 1967 og til dauðadags. í starfi hans komu fram hans miklu mannkostir. Hann var ákaf- Iega trúverðugur í starfi og sýndi lipurð og áreiðanleika, allt sem hann sagði stóð eins og stafur á bók. Hann kunni því illa ef hann mætti öðru frá samferðafólki sínu. Gegnum árin kynntist Jóhann mörgum af farmönnum landsins og aflaði sér mikilla vinsælda einnig meðal þeirra. Jóhann var gæfumaður í lífi og starfi. Hann giftist ágætri konu, heilsteyptri og duglegri, Unu Dagnýju Guðmundsdóttur frá Ólafs- firði, hinn 10. desember 1942, og lifir hún mann sinn. Þau eignuðust gott heimili á Hólaveginum og var þangað hlýlegt að koma. Börn þeirra hjóna eru María og Hreiðar, bæði búsett á Siglufirði, og Eiríkur sem Una átti fyrir hjónaband er búsettur á Ólafsfirði. Öll þessi Ijjölskylda, auk tengda- barnanna og barnabarnanna var mjög samstillt og var þeim hjónum mjög annt um hag þeirra allra. Nú þegar Jóhann er allur, veit ég að hann hefði óskað þess að honum hefði unnist tími til að þakka fyrir sig. Starfsfólk á Borgarspítalanum annaðist hann með miklum ágætum og til þeirra viljum við flytja þakkir hans og kveðjur. Vafalaust hefði hann kosið að taka undir með verka- manninum sem kvað eitt sinn: Þegar nálgast stundin stríð stend ég fljóts á bðkkum. Kveðja vil ég land og lýð og lífið sjálft með þðkkum. Við sem eftir stöndum þökkum Jóhanni samfýlgd á lífsins vegi. Við hjónin þökkum góðum nágranna tryggð gegnum árin. Við sendum ekkju hans, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öllum vinum hans samúðarkveðjur og biðjum guð að blessa vegferð hans. Guðrún og Skúli. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Afi minn, Jóhann Guðnason, lést í Borgarspítalanum 24. júní sl. eftir erfiða sjúkrahúslegu. Afi giftist ömmu minni, Unu Dagnýju Guð- mundsdóttur, 10. desember 1942. Hún er ættuð frá Ólafsfirði. Þau eignuðust tvö böm, Maríu og Hreið- ar. Amma átti son áður, Eirík, og reyndist afi honum sem besti faðir. Um leið og ég kveð afa minn vi! ég þakka honum allan þann kærleik sem hann gaf mér. Jafnframt vil ég skila þakklæti frá fjölskyldu hans til starfsfólks á deild A5 Borgarspít- alanum fyrir mjög góða umhyggju í hans garð og okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku amma mín, Guð gefi þér styrk á þessum erfiðu tímamótum. Jóhann Steinþór Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.