Morgunblaðið - 03.07.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1993
LUXEMBORG
Tveggja daga þjóðhátíð
Islendingar í Lúxemborg héldu
tveggja daga þjóðhátíð 18. og
19. júní sl. Á föstudagskvöldinu var
efnt til kvöldverðar og dansleiks í
Centre Culturel Sandweiler á veg-
um Félags íslendinga í Lúxemborg
í samvinnu við Meistarann hf. og
Leikklúbbinn Spuna.
Voru um 200 gestir mættir og
sá 14 manna hópur undir stjóm
Þórarins Guðlaugssonar, annars
eiganda Meistarans, um allar veit-
ingar og tónlist, en á vegum þeirra
kom hljómsveitin Sveitin milli
sanda. Karlakór SVR söng einnig
nokkur lög fyrir gesti og dregið var
í happdrætti sem Leikklúbburinn
Spuni stóð fyrir.
Daginn eftir var haldin fjöl-
skylduhátíð í almenningsgarðinum
í Berdorf skammt utan borgarinn-
ar. Fengu bömin íslenska fána,
blöðrur og sælgæti. Boðið var upp
á kaffi og enn voru „meistaramir"
mættir. Að þessu sinni seldu þeir
pylsur sem var þeirra eigin fram-
leiðsla, grillaðar íslenskar lamba-
Morgunblaðið/Ömar Birkisson
Hermann Reynisson, formaður Félags íslendinga í Lúxemborg, ásamt
„meisturunum“ Sigurði Sumarliðasyni og Þórarni Guðlaugssyni.
Ekki vitum við nafnið á konunni á myndinni.
kótilettur með kartöflusalati og
grænmeti. Er líða tók á daginn var
dreginn fram gítar og sunginn
fjöldasöngur. Vora gestir ánægðir
með hversu vel staðið var að undir-
búningi þjóðhátíðarinnar.
mmmmmmmmammi
MANNFJOLGUN
Kvikmyndir
og krakkar
Danska leikstjóranum Billy
August er ekki físjað saman
þegar um framleiðslu er að ræða
og gildir einu hvort átt er við kvik-
myndir eða bameignir. Meðal
þekktra mynda leikstjórans má
nefna Palja sigurvegara sem aflaði
honum Óskarsverðlauna. Nýlega
eignuðust August og kona hans
Pernilla sitt fimmta barn og má
segja að fæðinguna hafi borið að
með fremur dramatískum hætti.
Pemilla kona Billy Augusts var
komin að því að fæða og kenndi
sín. Þau hjónakom lögðu af stað á
sjúkrahúsið en á leiðinni elnaði
Pernillu sóttin svo mjög að August
hélt að hann þyrfti að taka á móti
barninu í aftursæti fy'ölskyldubif-
reiðarinnar. Fyrir þróttmikla leikni
og harðfylgi leikstjórans í öku-
mannssætinu náðu þau hjónakorn
á fæðingardeildina í sama mund og
litla dóttirin skaust í heiminn. Þrátt
fyrir langa og haldgóða reynslu í
Pernilla og Billy August eiga alls fimm börn, sem öll heita nöfnum
sem byija á A.
föðurhlutverkinu segir August að
þessi fæðing hafi reynt langmest á
taugarnar, en allt fór vel að lokum.
Börn þeirra Pemillu og Billy
Augusts heita öll nöfnum sem byija
á A og er ljóst að leitað verður að
alþjóðlegu nafni á yngstu dótturina
fremst í stafrófmu. Pernilla átti
fyrir dótturina Agnesi, sem er átta
ára, næst yngsta dóttir Augusts
heitir Asta og er hálfs annars árs.
Þar að auki á August tvo syni,
Anders, 14 ára, og Adam, 9 ára,
sinn með hvorri barnsmóðurinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðjón Karlsson að vinna við lokafrágang á hjólinu.
KVARTMILA
Smíðaði eigin
keppnishjól
Ikvartmílukeppninni, sem fram
fer í Kapelluhrauni rétt utan
við Hafnarfjörð um næstu helgi,
verða tvö mjög sérkennileg hjól
meðal keppnistælqa. Annað hjólið
er í eigu Guðjóns Karlssonar og
hefur hann smíðað það algjörlega
sjálfur nema felgur og fram-
gaffla. Það tók hann 450 vinnu-
stundir að gera hjólið klárt eða
tæpa þrjá mánuði. „í Bandaríkj-
unum hefur verið keppt á svipuð-
um hjólum í mörg ár. Hér á Iandi
hefur bara verið keppt á breyttum
götuhjólum en ekki á neinu sem
er í líkingu við þetta,“ sagði Guð-
jón aðspurður um gripinn. „Ég
hef séð svipuð hjól á ferðum mín-
um erlendis og byggði á þeim
hugmyndum. Eg hef hins vegar
ekki farið eftir neinum teikning-
um, heldur smíðaði grindina eftir
eigin höfði og eftir miklar pæling-
ar.“
Felgan kemur frá
Bandarí kj unum
Aftara dekk hjólsins er sérstakt
kvartmíludekk, slikki, 9,5 tommur
að breidd eða sams konar og not-
að er undir kvartmílubíla. Felgan
er hins vegar sérstaklega hönnuð
fyrir hjól og er smíðuð hjá Cos-
man í Bandaríkjunum. Vélin er
Suzuki GS 1100 mótor, sem hefur
verið breytt í 1568 kúbikk, heddið
er af Suzuki 1150, sem búið er
að „porta“ og þjappan er 15:1
með heitum knastásum og yfir-
stærð af ventlum.
Guðjón kveðst hafa stundað
kvartmíluna undanfarin fimm ár.
Hann hafi byijaði svo að segja á
venjulegu hjóli, en síðan hafi hann
breytt hjólinu smávegis fyrir
hveija keppni. Nú er hann hins
vegar búinn að leggja gamla hjól-
inu í bili, en segir að kostnaðurinn
við smíði þessa nýja hjóls fyrir
utan vinnustundir hafi farið í
nokkur hundruð þúsund krónur.
Tekur þátt í 11-12 keppnum
Aðspurður kveðst Guðjón þó
ekki nota þetta undarlega hjól
dags daglega heldur sé þetta ein-
ungis keppnishjól. „Ég á von á
því að nota það líka í sandspyrnu-
keppnum. Þá set ég undir hjólið
rosaleg skófludekk í staðinn fyrir
slikkann að aftan,“ sagði Guðjón
og bætti við að líklega tæki hann
þátt í 5-6 kvartmílukeppnum í
sumar og álíka mörgum sand-
spyrnukeppnum. Þá sagðist hann
einnig taka þátt í 2-3 hjólamílum
á vegum Sniglanna lendi þær
ekki á sömu helgi og aðrar keppn-
ir. „Ég veit ekki hvort ég legg
það á hjólið dag eftir dag,“ sagði
Guðjón, sem talar um gripinn eins
og lifandi afkvæmi sitt sé að ræða.
Hann lifir og hrærist í mótor-
hjólum allan daginn, því hann
rekur fyrirtækið G.B. bifhjól
ásamt Bjarka Júlíussyni. Hann
hefur frá því hann var lítill verið
spenntur fyrir mótorhjólum og
eignaðist fyrstu skellinöðrana 13
ára gamall. Þegar hann er spurð-
ur hvað sé svona skemmtilegt við
mótorhjólasportið svarar hann:
„Ja, það er spennan og hraðinn,
en einnig viðgerðirnar. Það er
mjög gaman að vinna við hjólin
sjálfur og sjá hlutina virka þegar
búið er að lagfæra þá.
*
I kvðld velur dómnefnd úr hópi gesta
vinsælustu lögin frá diskó-tímabilinu.
Við rifjum upp okkar vinsælu spurninga-
keppni frá árunum 78-79
►
KLUBBURINN
Stórkostleg danssýnig
Jarðskjálftinn — Kontakt — Dúkkudans — YMCA *
Dansarar-. Ólöf — Guðbjörg — Rósa — Anna — Sigga
Diskótekarar Daddi DJ - AIH Bergás -
Sveinn Hollywood/Sigtún rifja upp gamlar rispur.
MIÐASALA OG BORÐAPANTANIR í S: 687111