Morgunblaðið - 03.07.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JULI 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur ástæðu til að fagna
góðu gengi í starfi, en hags-
munir heimilis og fjölskyldu
hafa forgang hjá þér í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn hentar vel til að
skreppa í ökuferð með ást-
vini eða fjölskyldu. í kvöld
hefur þú það náðugt heima
fyrir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Þú sinnir heimilisstörfunum
fyrri hluta dags. Makar taka
mikilvæga ákvörðun varð-
andi fjárfestingu. Varastu
óþarfa eyðslu.
Krabbi
(21. júní - 22. júií)
Félagslyndi og mannleg
samskipti ráða. ríkjum í dag
með tilheyrandi stefnumót-
um og mannfundum. Fjör
færist í leikinn í ástamálum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vinnugleðin ríkir hjá þér í
dag og þú nærð góðum við-
skiptasamböndum. Kvöldið
býður upp á skemmtun í
hópi góðra vina.
Meyja
(23. ágúst - 22. septemter)
Þú eyðir ef til vill of miklu,
en þú skemmtir þér konung-
lega. Ævintýraþráin og
rómantíkin ráða ríkjum í
kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Húsverkin geta verið tíma-
frek í dag. Viðræður leiða
til hagkvæmra viðskipta.
Ferðalag virðist á næstu
grösum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) HfjS
Þú gætir heimsótt vini í dag
eða farið í smá ferðalag.
Sýndu aðgát í umferðinni.
Kvöldið verður alveg sér-
staklega skemmtilegt.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Taktu daginn snemma og
dagurinn verður árangurs-
ríkur. Fjárhagurinn fer
batnandi. Kvöldið verður
ánægjulegt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Tilboð þarfnast nánari íhug-
unar, en flest gengur þér í
haginn í dag. Nú er rétti
tíminn til að undirbúa ferða-
lag.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú færð góð ráð varðandi
fjárfestingu. Þótt ekki verði
mikið um að vera í dag mið-
ar þér hægt og rólega að
settu marki.
Fiskar
(1*9. febrúar - 20. mars)
Gættu hófs í notkun kredit-
kortsins í dag. Þú lætur til
þín taka í samkvæmislífinu
og átt ánægjulegar stundir
þegar kvöldar.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
!T/l HM/NGJU/MEP
1/lFAIÆUP'
TOMMI OG JENNI
i/M, M&ÐUZ-! ctrrv Á
JLBGG/NA 'A pSSSAKUj
U/*f SJVUSU9C/ /f& TALA U*1
LJOSKA
é<S gg AO HVE LENG) ,
! /ARA ÚTAO) VGF&UtzeU L
OjSVONA L
FttVtAiTAN þl)S>'
1BÍPÞU Ahpaftak! SVÖ
LENGl 6BTUKOU EtOCj
FERDINAND
Sofðu vel, gamli félagi... Það kemur nýr dagur á morgun, og við vitum aldrei hvaða spennandi viðburðir bíða manns. Satt
að segja get ég ekki greint einn dag frá öðrum ...
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Níutíu sveitir tóku þátt í opna
Schipol-mótinu í Amsterdam,
sem fram fór í byrjun þessa
mánaðar. Fjórir liðsmenn úr
bronssveit Norðmanna á Evr-
ópumótinu í Menton (Helgemin,
Helness, Grötheim, Terje), unnu
öruggan sigur, en sveitir frá
Belgíu og Póllandi lentu í 2. og
3. sæti. Hollenska landsliðið
(Westra, Leufkens, de Boer,
Muller) var að sjálfsögðu meðal
keppenda, en komst ekki á verð-
launapall. Hinn ungi Muller átti
hins vegar heiður skilinn fyrir
spilamennsku sína í fjórum spöð-
um í þessu spili úr mótinu:
Vestur gefur, allir á hættu.
Norður
♦ 4
VG63
♦ D852
♦ ÁD872
Vestur Austur
♦ 85 .. ♦G103
♦ KD10854 ¥2
♦ 9743 ♦ ÁKIO
♦ G ♦ K109543
Suður
♦ ÁKD9762
♦ Á97
♦ G6
♦ 6
Vestur Norður Austur Suður
De Boer Muller
2 tíglar* Pass 2 hjörtur 4 spaðar
Pass Pass Pass
*Veikir tveir í hálit.
Samningurinn var sá sami á
báðum borum, en hinummegin
leysti vestur vanda sagnhafa
með því að koma út með hjarta-
kóng. Suður gat þá tekið tromp-
in og spilað hjarta á gosann.
Muller fékk hins vegar út lauf-
gosa, sem þyngir spilið verulega.
Hann drap laufás og tók
trompin í þremur umferðum.
Lagði svo niður hjartaás (austur
gat átt háspil stakt) og spilaði
tígulgosa. Áustur tók tvo slagi
á tígul og reyndi að losa sig út
á laufkóng. En Muller henti ein-
faldlega hjara í þann slag, svo
austur varð að gefa blindum
úrslitaslaginn á aðra láglita-
drottninguna.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp á minning-
armóti um rússneska stórmeistar-
ann og skákkennarann Igor Bond-
arevskí sem haldið var í Rostov
við ána Don í vor. Tveir kunnir
rússneskir stórmeistarar sátu að
taflinu, Sergei Dolmatov (2.630)
og Júrí Rasúvajev (2.525), sem
hafði svart og átti leik.
Svo virðist sem hvítur sé að skipta
upp í endatafl en svartur fann
stórkostlega línurofsfléttu:
1. - Bd4+!!, (Biskupinn fer á
reit sem hvorki meira né minna
en fimm hvítir menn valda!) 2.
Hxd4 - Rf3+, 3. Kg2 - Rxd4,
4. Dxe6+ - Rxe6, og með skipta-
mun yfir vann Rasúvajev enda-
taflið auðveldlega.